Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 86
86 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Glaðbeittir krakkar komu fram í myndböndunum með Guitar Islancio.
Guitar Islancio í
Arbæjarsafni
TRÍÓIÐ Guitar Islancio, sem skipað
er Gunnari Þórðarsyni, Birni Thor-
oddsen og Jóni Rafnssyni, tók á dög-
unum upp þrjú myndbönd í Árbæj-
arsafni. Myndböndin, sem
•akureyrska myndbandagerðin Am-
arauga sá um að vinna, eru við lög af
samnefndri hijómplötu flokksins
þjóðlega sem kom út fyrir síðustu
jól. Um er að ræða samstarfsverk-
efni milli Guitar Islancio og Árbæj-
arsafns þar sem báðir aðilar njóta
góðs af en safnið hyggst nota af-
raksturinn í kynningarstarfi auk
þess sem Flugleiðir munu sýna
myndböndin í millilandaflugi sínu.
Annars hafa heiðursmennirnir í
Guitar Islancio haft nóg fyrir stafni
upp á síðkastið og leikið um víðan
völl sína einstöku þjóðlagadjass-
blöndu. Á sjálfan þjóðhátíðardaginn
leika þeir síðan á Islendingaslóðum í
Kanada sem án vafa verður kær-
kominn glaðningur. Auk þess munu
þeir spila í íslenska básnum á heims-
sýningunni í Hannover í ágúst.
Guitar Islancio ætla að spila fyrir Vestur-íslendinga á þjdðhátfðardaginn.
Á myndbandi 20. júní
LAueAvmauii im
*MW SEM NfJUSIU MVNDIRNAR FAST*
ÞAÐ VAR glæsibragur yfir Evrópu-
leikum Special Olympics sem fóru
fram í Hollandi dagana 27. maí - 4.
júní. Af alls 1800 keppendum frá 53
þjóðlöndum voru hvorki fleiri né
færri en 41 frá íslandi en íþrótta-
samband fatlaðra, umsjónaraðili
Special Olympics á Islandi, hafði veg
og vanda af þátttöku íslands í
keppninni. Auk keppenda fór góður
hópur fararstjóra og aðstandanda I
þessa vel heppnuðu reisu.
Athygli vakti að meginþorri sjálf-
boðaliða við leikana voru háskóla-
stúdentar og eldri borgarar og var
mikil ánægja með þeirra störf meðal
keppenda. Skipulag leikanna var
mjög gott. Special Olympies leikarn-
ir eru gjörólíkir hefðbundnum mót-
um þar sem aðeins þeir bestu vinna.
Á leikum Special Olympics eiga allir
sama möguleika á verðlaunum og
keppa aðeins við sína jafningja.
Keppendm- fara í gegnum undan-
keppni sem gefur mynd af niðurröð-
un í úrslitariðla í hverri grein.
Sú regla gildir að ekki
má skeika meira en 15% frá
árangri í undankeppni til
úrslita, að öðrum kosti er
keppandi dæmdur úr leik.
Þetta ræðst af því að kepp-
endum er raðað í jafna riðla
og flokka eftir árangur í
undankeppni og þessi regla
var sett á til að koma í veg
fyrir svindl, skipulögð af
þjálfurum en því miður
komu upp dæmi um slíkt á
mótum áður fyrr.Stigagjöf
ræður því hvar keppendur
raðast og karlar og konur
geta lent saman í flokki.
Einu kvenkyns
keppendurnir í
knattþrautum
Islensku keppendurnir Anton
kepptu í hinum ýmsu grein-
um; knattspyrnu, knatt-
þrautum, keilu, borðtennis, sundi,
frjálsum íþróttum og fimleikum og
voru á öllum aldri, sá yngsti hin 13
ára gamla Edda Sighvatsdóttir sem
keppti í fimleikum og sá elsti hin 67
ára gamla Hjördís Magnúsdóttir
sem keppti í keilu. ísland var með
einu kvenkyns keppendurna i knatt-
þrautum, Rósu Gunnarsdóttur og
Soffíu Rúnu Jensdóttur. Þær kepptu
báðar í flokki með körlum vegna
hárrar stigagjafar í undankeppni.
ísland var einnig með eina kepp-
andann í keilukeppninni sem notaði
sérstaka rennu til hjálpar vegna
mikillar fötlunar, en það var Arni
Sævar Gylfason. Rennan vakti mikla
athygli viðstaddra en þetta hjálpar-
tæki gefur mikið fötluðum tækifæri
til keppni í keilu. Heimsmeistari í
Hér stilla þær Helga Matthildur Við-
arsdóttir og Auður Þorsteinsdóttir
sér upp mcð hinni heimsfrægu fim-
leikatjörnu Nadiu Comenechi og eig-
inmanni hennar Bart Connors.
Islensku keppendumir voru
samheldnir og kátir á Special 01-
ympics-leikunum í Hollandi.
Kristjánsson, Ösp, var í knattspyrnuliði
Islands á Special Olympics.
Edda Sighvatsdóttir og
Helga Matthildur Viðars-
dóttir, Gerplu/Ösp, stóðu
sig vel í keppni í fimleikum.
liðakeppni í keilu spilaði sýningar-
leik við íslenskan keppanda í keilu,
Ásu Björk Gísladóttur, og vakti
þeirra viðureign mikla athygli.
Forsvarsmaður Special Olympics
samtakanna, Timothy Kennedy
Shriver, og stofnandi þeirra, Eunice
Kennedy Shriver, ásamt eiginmanni
sinum Sargent Shriver, voru við-
stödd leikana og afhentu m.a. ís-
lenskum keppendum verðlaun sín.
Vakti mikinn áhuga meðal allra
keppenda þegar þekkt íþróttafólk
heimsótti keppnisstaði og tók þátt í
dagskránni, m.a. fimleikastjarnan
Nadia Comaneci og eiginmaður
hennar.
Islenski hópurinn bjó í Vlag-
tvedde, sumarhúsahverfi sem var í
40 mínútna akstursleið frá skiptistöð
í Groningen sem flutti fólk á keppn-
isstaði.
Islenska liðið var vakið alla daga
klukkan sex að morgni og keppnis-
deginum lauk ekki fyrr en komið var
undir kvöld. Þrátt fyrir annasama
daga og mikla þreytu stóð hópurinn
allur saman að því að njóta ferðar-
innar sem best. Ferðir sem þessar
reyna mikið á aga og þolinmæði og
ekki síst sjálfsbjargarviðleitni þátt-
takenda. Það er því annað og meira
en þátttaka í íþróttakeppni sem þarf
að takast á við.
Lokahátíðin fór fram utanhúss 3.
júní og tókst mjög vel þrátt fyrir
rigningu. Það var því kátur hópur
keppenda og aðstandenda sem hélt
heim á leið að árangursríkum Spec-
ial Olympics loknum.
CHAUMET
Úfsölustaðir: Hygea Kringlunni og Laugavegi, Nana Hólagarði, Spcs Háaleitisbraut,F/na Mosfellsbác, Hagkaup Kringfunni, Skeifunni, Smáratorgi
og Akureyri, Lyf og hcilva Kringlunni, Háaleitisbraut, Hveragcrði og Selfotsi, Snyrtistofan Tara, Gallerí Förðun, Akrancs.s Apótek,
Apótek Veítmannaeyja. Hafriarapótek, Stykkishólms Apótek, fsaíjarðar Apótek, Kaupfélag Húnvetninga og Kaupfélag Vestur-Hútrvetninga.