Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
20 vísindamenn við rannsóknir í vorleiðangri Jöklarannsóknafélagsins í Grímsvötn
Morgunblaðið/RAX
Þegar vísindamennirnir fóru á gúmmibát út á vatnið vildi ekki betur til en báturinn sprakk. Engin dhöpp urðu á fólki og mennirnir voru fljótir að laga bátinn. Mikill hitamunur er í vatninu og
ísinn getur verið beittur. Til vinstri má sjá reyk sem stígur úr hlíðum Grímstjalls.
Stórt lón hefur
myndast í
Grímsvötnum
MYNDAST hefur allstórt ión í Grímsvötn-
um á þeim stað sem gaus árið 1998. Magn-
ús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
segir að jarðhitavirkni hafi aukist mikið í
Grímsvötnum en það hafi aftur leitt til þess
að Grímsvatnahlaup, sem falla niður á
Skeiðarársand, séu aðeins svipur hjá sjón
miðað við það sem áður var. Hlaupin séu
minni og tíðari.
Magnús Tumi er nú í hópi 20 vísinda-
manna sem eru við mælingar og rannsóknir
í Grfmsvötnum. Leiðangurinn er farinn á
vegum Jöklarannsóknafélagsins. Magnús
Tumi sagði að markmið leiðangursins væri
að mæla breytingar í Grímsvötnum og við
Gjálp og einnig að mæla ísmyndun í jöklin-
um.
Magnús Tumi sagði að vegna jarðhita
hefði myndast lón rétt vestan við þann stað
sem gaus 1998. Það væri rúmlega 500
metrar á lengd og 300-440 metrar á
breidd. „Það er mjög fróðlegt að sjá þetta
og sýnir okkur hvernig eldgos, sem verða
öðru hverju, verða til þess að efla jarð-
hitann, en jarðhitinn í Grímsvötnum er ein-
hver sá öflugasti sem við þekkjum. Jarð-
hitinn hefur aukist það mikið að ísstíflan,
sem lokar Grímsvötnum, nær ekki nema
upp í 1.380-1.390 metra vatnshæð áður en
fer að hlaupa. Það er frekar lítið vatn í
Grímsvötnum núna vegna þess að það koma
reglulega smáhlaup, sem hafa verið 1-2 á
ári. Stóra gosið í Gjálp 1996 breytti aðstæð-
um þarna töluvert mikið en nú verður jarð-
hitinn í Grímsvötnum til þess að ísstífian
veikist ennfrekar. Grfmsvatnahlaup núna
eru því ekki nema svipur hjá sjón en samt
er jarðhitavirknin f Grfmsvötnum miklu
meiri en hún hefur verið í nokkra áratugi."
Magnús Tumi segir að hitinn í lóninu
væri breytilegur en meðaltalið væri í
kringum 4-5 gráður. Mestur er hiti vatns-
ins um 60 gráður og ís sem reglulega fellur
niður í lónið bráðnar á aðeins nokkrum
klukkutímum. Þetta fshrun kemur fram á
jarðskjálftamælum sem væru við Gríms-
vötn. Vatnið enn þess vegna enn að stækka
og sagði Magnús Tumi að ekki sæi fyrir
endann á þessari atburðarás. Hann sagði að
vatnið væri rúmlega 80 metra djúpt þar
sem það væri dýpst. Vatnið væri hins vegar
uppi við Grímsfjall og þess vegna væri botn
þess um 200 metrum hærri en botn Gríms-
vatna þar sem þau eru dýpst, en þar eru
vötnin þakin fshellu.
íshellan við Gjálp 20-30 ár að „gróa“
Magnús Tumi sagði að fshellan við Gjálp
væri smámsaman að „gróa“. ís væri að
skri'ða inn í sprungurnar sem mynduðust í
gosinu 1996. Hann sagðist hins vegar spá
að það tæki 20-30 ár fyrir jökulinn að afmá
ummerki gossins á yfirborði hans. Hann
sagði að það mætti vel sjá öskudreif á jökl-
inum. Þessi dökku svæði færu ekki öll í kaf
í vetrarsnjóum og þau sæjust vel þetta
snemma vors. Það væri jarðhiti þarna und-
ir en hann sagðist ekki vera kominn með
upplýsingar um hvað hann væri mikill.
Magnús Tumi sagði að mælingar bentu
til að fsmyndun á Vatnajökli við Grfmsvötn
hefði verið með minna móti í vetur. Ástæð-
an væri sú að snjókoma hefði verið undir
meðallagi.
Magnús Tumi sagði að fara þyrfti með
varúð upp að Grímsvötnum. Miklar breyt-
ingar hefðu orðið á jöklinum og væru sum-
ar hefðbundnar leiðir upp jökulinn ófærar.
Menn ættu því ekki að leggja á jökulinn
nema að leita sér upplýsinga um aðstæður.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur stendur við vatnið sem myndast hefur frá
því að gaus í Grímsvötnum fyrir tveimur árum.
MikiII hiti er í vatninu og skelltu nokkrir sér út í, en menn þurftu að vara sig á því að
sumstaðar var hætta á að menn brenndu sig.