Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 62
62 FIMMT UDAGUR 13. JÚLÍ 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Sleipnir o g
Vegagerðin
OTTO pöntunarlistinn
, Laugalækur 4 • S: 588-1980,
ÞAÐ HEFUR ekki farið fram hjá
neinum sem kemur að ferðaþjónustu
á Islandi þessa dagana að verkfall
Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis
stendur yfir. Margt bendir til þess að
lausn deilunnar strandi á einum
manni, nýjum framkvæmdastjóra
SA, Ara Edwald. Þessi samtök og
framkvæmdastjórinn eru farin að
verða ferðaþjónustu á íslandi ansi
dýr. Þau láta sér í léttu rúmi liggja
að valda þessari ungu starfsgrein
milljarða tjóni á nokkrum vikum,
upphæðum sem jafnvel hefðu getað
tryggt bifreiðastjórum ráðherralaun
í áratug - en nei, ekki skal samið.
Það er því alveg ljóst að eitthvað
annað hangir á spítunni en kröfur
Sleipnismanna. Á sama tíma og SA
er að reyna að knésetja stéttarfélag
bifreiðastjóra eru þeir greinilega að
stokka upp innan dyra hjá sjálfum
sér, að beita verkfallinu gagnvart
fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Þetta
er kunnugleg aðgerð af hálfu at-
vinnurekenda við vissar aðstæður.
En hefði það nú ekki verið farsælla
til lausnar mála að sinna þessum
vandamálum atvinnu-
greinarinnar með öðr-
um hætti? Hefði ekki
mátt byrja á að koma
upp gæðakerfi í fólks-
flutningum með svip-
uðu sniði og gerst hefur
í nágrannalöndunum
þar sem rútur eru
gæðastimplaðar eftir
þægindum? Þar er ekki
um neina 30% til 50%
afslætti að ræða um há-
annatímann eins og
raunin er hér á landi. Ef
afslættir væru af-
numdir í rútuþjónust-
unni þá væri hægur
vandi að hækka laun
bifreiðastjóra í samræmi við þá
miklu ábyrgð sem þeir bera á lífi og
limum farþeganna.
En það er allt á sömu bókina lært.
Nú eru bifreiðastjórum greidd mun
hærri laun fyrir að flytja varning
milli landshluta, dauða hluti, en fyrir
að flytja lifandi fólk! Það hafa hins
vegar verið settar reglur um hvíldar-
tíma bifreiðastjóra. Það er ef til vill
vert að benda á að þetta hefur verið
gert af öryggisástæðum. Ekki hvað
síst gagnvart öryggi farþega þó að
þessi ákvæði eigi einnig við um vöru-
flutningabílstjóra. Og þessi ákvæði
gilda hvort sem um eiganda bifreiðar
er að ræða eða ekki. Það var því
ánægjulegt að verða
þess var sl. vor að
Vegagerðin gerði
gangskör að því að
kanna hópferðaleyfin
og skífurnar í fylgd
lögreglu. Það sem hins
vegar stingur í augun
nú er að þessir eftir-
litsmenn Vegagerðar-
innar eru gjörsamlega
horfnir, ásamt lög-
reglumönnunum, eins
og jörðin hafi gleypt
þá. Hvað varð um þá?
Það læðist að manni sá
grunur að atvinnurek-
endur hafi haft afskipti
af þessari starfsemi
Vegagerðarinnar - og lögreglunnar.
Það væri vel ef svo væri ekki.
Verkfall
Ég óttast, segir
Borgþór S. Kjærnested,
að lífi og limum farþega
og leiðsögumanna geti
verið hætta búin við nú-
verandi aðstæður.
Borgþór
Kjæmested
Bylting!
hjoinota oyggingapiatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIR0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIR0C byggingaplatan er eidþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi.
VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIR0C byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8, 10,16,19, 22, 25, 32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Viroc utanhússklæðnlng
ÞP
&CO
Leitið upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100
Werther's
og Toffifee
/r
mmt
f
^gasgri//
1. vinningur
Ferð fyrir fjóra til
Benidorm í 1 viku
Samvinnuferðir
Landsýn
2.-4. vinningur
Char-Broil CB6000
gasgrill að verðmæti
kr. 23.900.-
Aukavinningar
20 sælgætiskörfur
Kauptu
Werther's
og Toffifee.
Taktu þátt í
spennandi
sumarleik í
næstu verslun.
KAELK.KASUSS>1
Sendu þátttökuseðil ásamt kassakvittun til Karls K.
Karlssonar hf., Skútuvogi 5, 104 Reykjavík.
Dregið í byrjun ágúst