Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
9
Vinkonurnar Sóley Jóhannsdóttir og Eyrún Guðbergsdóttir eru að byrja í fimmta bekk.
Fyrsta verkefni fyrsta skóladagsins var að skrifa frásögn af sumarfríinu.
Kristján Einarsson, Davíð Valdimar Valsson og Jökull Tandri Ámundason eru að byrja í
fimmta bekk. Það vildi svo til að Jökull Tandri átti tíu ára afmæli í gær, fyrsta skóladaginn.
Skemmti-
legt að
byrjaí
skólanum
FYRSTA skóladagsins á nýjum vetri
er jafnan beðið með mikilli eftir-
væntingu og þrátt fyrir að örlítil eft-
irsjá kunni að vera að sumrinu, er
óneitanlega spennandi að koma aft-
ur í skólann eftir þriggja mánaða
hlé.
Grunnskólar voru settir í gær um
allt land og hófst kennsla strax í
sumum þeirra.
Margir nemendur voru að stíga
sín allra fyrstu spor á skólagöng-
unni, en samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu Islands má áætla að
um 4.500 börn hefji skólagönguna
nú í haust. Nemendur á grunnskóla-
aldri eru um 43.730 talsins og hefur
þeim fjölgað nokkuð frá því í fyrra.
Nýtt skólaár í nýju skólahúsi
Á Álftanesi var nýtt skólahús tek-
ið í notkun í gær. Þegar litið var inn
í kennslustund hjá fimmta bekk í
Álftanesskóla voru krakkamir önn-
um kafnir við að skrifa frásögn af
því sem þau gerðu í sumar. Vinkon-
umar Sóley Jóhannsdóttir og Eyrún
Guðbergsdóttir sögðu að þeim þætti
mjög skemmtilegt að byija f skólan-
um. Þær vom ánægðar með fyrsta
verkefni vetrarins því þeim þykir
„mjög skemmtilegt að skrifa þegar
maður má ákveða sjálfur um hvað“.
Beklgarbræður þeirra, þeir Krist-
ján Einarsson, Davfð Valdimar Vals-
son og Jökull Tandri Ámundason,
sögðu að þeim þætti „svoiítið leiðin-
legt“ að sumarfríið væri búið. Samt
fannst þeim „ekkert svo leiðinlegt"
Dagur Freyr Bjarnason og Heiðar Snær Jónasson eru að byija í öðrum bekk og sögðust ánægðir með að vera byijaðir í skólanum. Fyrsta verkefni
þeirra var að skreyta möppu sem kallast skilaboðaskjóðan.
að vera komnir aftur í skólann og
leist þeim afar vel á nýja skólahúsið.
Þegar litið var inn í kennslustund
hjá öðmm bekk voru krakkamir
önnum kafnir við að skreyta möppu
sem kölluð er „Skilaboðaskjóðan",
og geymir stundaskrána þeirra, um-
slag undir skilaboð til foreldra og
fleira. Vinkonurnar Alina Vilhjálms-
dóttir og Marey Jónasdóttir sögðust
hafa hlakkað „rosalega mikið til að
byija í skólanum," og sagði Alina að
undanfarið hafi hún stöðugt verið
að spyija mömmu sína að því, hve-
nær skólinn byijaði eiginlega.
Það sem Mareyju finnst skemmti-
legast að gera í skólanum er að mála
og læra á tölvur, en Alinu finnst
skemmtilegast að búa til sögur, eins
og þau hafi oft gert í fyrravetur
Morgunblaðið/Jim Smart
Alina Vilhjálmsdóttir og Marey Jónasdóttir eru að byija í öðrum bekk.
Þær vora búnar að hlakka mikið til að byija í skólanum og langar báð-
ar til að verða ballerínur þegar þær verða stórar.
þegar þau vom að læra stafina.
Bæði Alina og Marey segjast vilja
verða ballerínur þegar þær eru
orðnar stórar.
Heiðar Snær Jónasson og Dagur
Freyr Bjarnason vom líka ánægðir
með að vera byijaðir í skólanum.
Heiðari Snæ finnst skemmtilegast í
matreiðslu og sundi og Degi Frey
finnst skemmtilegast í sundi, íþrótt-
um, myndmennt og stærðfræði.
Hann hlakkar líka til að fara í tón-
mennt í vetur því þar muni þau fá að
læra á blokkflautu. Heiðar Snær
segir að sig langi til að verða kettl-
ingasölumaður þegar hann er orð-
inn stór, en Dagur Freyr segist ekki
vera búinn að ákveða sig. Enda væri
líklegt, ef hann væri búinn að því, að
hann ætti eftir að skipta um skoðun.
Fræðslumiðstöð Reykjavflmr kynnir nýjungar í starfí grunnskólanna í vetur
Tölvur notaðar
til kennslu í mjög
auknum mæli
Nemendur Grunnskóla Reykjavíkur eru nú um 15.200.
Þeim hefur fjölgað um 200 frá því á síðasta skólaári og
er gert ráð fyrir því að þeim fari enn fjölgandi. I gær
voru kynntar ýmsar nýjungar í starfí skólanna.
31 af 37 Grunnskólum Reykjavíkur eru ein-
setnir nú þegar þetta skólaár hefst og er
stefnt að því að þeir verði það allir haustið
2002. Nú í haust eru nemendur Grunnskóla
Reykjavíkur um 15.200 talsins og hefur nem-
endum fjölgað um 200 frá því á síðasta skóla-
ári.
Gerður Óskarsdóttir fræðslustjóri sagði, á
blaðamannafundi í gær, að spár gerðu ráð
fyrir því að nemendum héldi áfram að fjölga
fram til ársins 2004 en eftir það myndi fjöldi
þeirra líklega standa í stað um sinn.
í Grunnskólum Reykjavíkur eru um 1.250
stöðugildi kennara og nú við upphaf skólaárs
vantar enn um 10 kennara til starfa. Gerður
sagði að þetta væri svipuð staða og var við
upphaf skólaárs í fyrra, en svo virtist samt
sem erfiðara væri að fá kennara til starfa nú
en þá. I fyrra hefði tekist að ráða í allar stöð-
ur á fyrstu dögum septembermánaðar og
sagðist hún eiga von á því að það tækist einn-
ig nú.
Hlutfall leiðbeinenda
hækkar úr 5% í 10%
Gerður segir að erfitt reynist að manna
þessar stöður meðal annars vegna þess að
stöðugildum hafi fjölgað um 200 frá árinu
1996, vegna þessa að skólum hefur fjölgað,
skóladagur lengst, nemendum fjölgað og
einnig hafi 70 stöðugildi bæst við þegar bætt
var við stundum til sveigjanlegs skólastarfs.
Á móti kæmi að útskrifuðum kennurum
hvert ár hefði ekki fjölgað í um þrjátíu ár.
Hún sagði einnig að samkeppni væri um gott
starfsfólk í öllum greinum og skólamir stæðu
höllum fæti þar sem laun kennara væru lægri
en hjá flestu öðru háskólamenntuðu fólki.
Að sögn Gerðar má gera ráð fyrir því að í
vetur verði hlutfall leiðbeinenda upp undir
10% af kennaraliði skóla, en á síðasta skóla-
ári hafi þetta hlutfall verið um 5%. Hún sagði
þessa þróun áhyggjuefni, en benti jafnframt
á að 60% leiðbeinenda í Grunnskólum
Reykjavíkur væru með háskólapróf, væru
leikskólakennarar, þroskaþjálfar eða í námi
til kennsluréttinda.
Á fundinum voru kynntar ýmsar nýjungar
í skólastarfi Grunnskóla Reykjavíkur.
Tölvur verða notaðar við kennslu í mjög
auknum mæli í vetur, en samningur borgar-
innar við Línu.Net, sem undirritaðar var fyr-
ir skömmu, gerir ráð fyrir margföldun á
bandbreidd þannig að hægt verði að nota
Netið í kennslu í heilum bekkjardeíldum í
einu. í haust hafa verið keyptar 300 tölvur
fyrir skólana og era nú um 12 nemendur um
hverja tölvu og um 3,5 kennarar um hverja
tölvu fyrir kennara. Samkvæmt stefnu
Fræðsluráðs Reykjavíkur er stefnt er að því
að haustið 2004 verði 5 nemendur um hverja
tölvu og að allir kennarar verði komnir með
eigin tölvu haustið 2003.
Settir hafa verið á stofn byggingahópar um
hönnun nýrra skólabygginga, með fulltrúum
skóla, iðnaðarmanna og foreldra. Hlutverk
þeirra er að móta hugmyndir um hvers konar
starfsemi eigi að vera í viðkomandi byggingu
áður en arkitekt er falið að teikna hana.
Stefnt að aukinni þátttöku
foreldra í skólastarfi
Stefnt er að því að auka þátttöku foreldra }
skólastarfi og verða gerðar tilraunir með
aukið samstarf foreldra og skóla í vetur.
Breiðholts- og Engjaskóli verða svokallaðif
móðurskólar þess verkefnis.
Tilraun verður gerð með breytt fyrirkomr -
lag skóladagvistar og fer hún fram í Breic-
holtsskóla. Eftir að kennslu lýkur verður
nemendum í öðram til fjórða bekk boðið upp
á ókeypis heimanámsaðstoð og nemendum í
fyrsta bekk boðið upp á íþróttir og tónlist.
Eftir klukkan 15 verður tómstundastarf á
vegum ÍTR í boði.
Einnig verður fleiri skólum gert kleift að
stofna nýjar stjórnendastöður, en á síðasta
skólaári fengu sjö skólar fjármagn til að ráða
millistjórnendur á borð við deildarstjóra yfm
skólastigum, yfirmenn sérkennslu og skrif-
stofustjóra. í vetur bætast tíu skólar í hópinn
og haustið 2001 er gert ráð fyrir að allir skól-
ar hafi breytt stjórnskipulagi sínu þannig að
slíkir millistjórnendur verði ráðnir.