Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Li Peng, forseti kínverska þjóðþingsins
Fyrrverandi for-
sætisráðherra með
umdeildan orðstír
LI PENG, forseti kínverska þjóð-
þingsins, hefur lengi verið í röð
æðstu valdamanna Kína. Priggja
daga opinber heimsókn hans til Is-
lands í boði forseta Alþingis hefst í
dag, laugardag. í rúmlega áratugar
langri forsætisráðherratíð sinni
1987-1998 naut hann vafasams orð-
stírs á Vesturlöndum, ekki sízt fyr-
ir það hlutverk sem hann lék við að
berja niður fjöldamótmæli lýðræð-
issinna á Torgi hins himneska frið-
ar í Peking í júní 1989.
Li Peng fæddist í Chengdu-hér-
aði í Kína árið 1928. Faðir hans var
rithöfundur, sem var tekinn af lífi
eftir uppreisnartilraun kommúnista
árið 1930. Li yngri ólst upp hjá
Zhou Enlai, sem varð fyrsti for-
sætisráðherra Kína eftir að maóist-
ar náðu völdum árið 1949.
Li gekk í kommúnistaflokkinn
árið 1945. Hann nam verkfræði í
Peking og Moskvu og vann á sjötta
og sjöunda áratugnum við bygg-
ingu og rekstur vatnsorkuvera í
Kína. Hann var aðstoðarorkumála-
ráðherra 1979-1981 og orkumála-
ráðherra 1981-1983. Varaformaður
Ríkisráðsins var hann 1983-1987.
Hann var kjörinn í stjómmálaráð
kommúnistaflokksins árið 1985 og
þegar Zhao Ziyang sagði af sér for-
sætisráðherraembættinu til að taka
við aðalritarastöðu kommúnistaf-
lokksins haustið 1987 tók Li Peng
við því, fyrst til bráðabirgða en sat
svo tvö fimm ára skipunartímabil.
Lengur heimilar stjórnarskrá Kína
Reuters
Li Peng, forseti kfnverska
þingsins, sést hér flytja ræðu
fyrir kínverskum þingheimi.
engum að gegna þessu embætti.
I marz 1998 var Li síðan kjörinn
forseti þjóðþingsins. Eftir sem áð-
ur en hann næstæðsti maður
kommúnistaflokksins á eftir Jiang
Zemin forseta, Zhu Rongji forsæt-
isráðherra er aðeins „númer þrjú“ í
valdapíramídanum. Við kjör Lis til
þingforseta vakti athygli, að 200 af
hinum 2.616 fulltrúum greiddu at-
kvæði á móti honum og 126 sátu
hjá.
I pólitískum skilningi þykir Li
Peng vera merkisberi íhaldssamari
afla flokksins. Hann hafnar ekki
umbótum eða að Kína opni sig
frekar fyrir umheiminum, en hann
vill að á þeirri braut sé fetið stigið
hægt og af varkárni.
Dálæti á risaframkvæmdum
Sem „tæknikrati", sem hlaut sína
þjálfun í Sovétríkjunum, hefur
hann mikið dálæti á risafram-
kvæmdum á borð við Þriggja-
gjúfra-stífluna í Jangtse-fljóti, sem
deilur hafa staðið um en Li er ein-
lægur málsvari fyrir.
Fyrir hlutverk sitt í atburðum
ársins 1989 vann hann sér inn titil-
inn „Tiananmen-slátrarinn" í er-
lendum fjölmiðlum og margir Kín-
verjar hafa, eftir því sem fullyrt er
í umfjöllun um hann í tímaritinu
Asiaweek á netinu, einnig illan bif-
ur á honum af sömu ástæðu, og
fyrir að vera talinn kuldalegur
persónuleiki.
En eftir að hafa setið svo mörg
ár í æðstu valdastöðum hefur hann,
m.a. með því að koma skjólstæðing-
um í áhrifastöður, gi-íðarmikil
áhrif.
Li er kvæntur og á tvo syni og
eina dóttur. Annar sonanna hefur
verið bendlaður við spillingarmál í
Guangxi-sýslu, sem í desember sl.
varð fyrrverandi bandamanni þing-
forsetans að falli, en sá var hand-
tekinn vegna ásakana um mútu-
þægni og aðra glæpi. Pó býst
enginn við öðru en að Li Peng sitji
óhaggaður í þingforsetastólnum
a.m.k. út kjörtímabilið, þ.e. til 2003.
Bráðabirgðaskýrsla Concorde-slyssins
Skoðun flu g-
brautar frestað
París, Le Bourget. Reuters, AP.
SLÖKKVILIÐSÆFING varð til
þess að seinkun varð á reglubund-
inni athugun á flugbrautinni sem
Copcorde-þota Air France fór á loft
frá þegar hún fórst 25. júlí sl., að
því er fram kom í máli yfirmanns
frönsku flugslysarannsóknarnefnd-
arinnar (BEA) á fréttamannafundi í
gærmorgun. Ekki er þó víst að
þessi seinkun tengist því að málm-
bútur, sem talið er að hafi gert gat
á hjólbarða
þotunnar, var á
brautinni.
Bráðabirgða-
skýrsla um
rannsókn BEA
á slysinu var
lögð fram í
fyrrakvöld.
Alls fórust 118
þegar þotan
hrapaði. Yfir-
maður BEA,
Paul-Louis
Arslanian, vildi
ekkert segja
um það á
fréttamanna-
fundinum í gær hvenær Coneorde
fengi aftur að fara í loftið, en í síð-
asta mánuði námu bresk og frönsk
flugmálayfirvöld lofthæfisskírteini
þotnanna úr gildi.
I skýrslunni er lögð áhersla á að
framhjólbarði á hjólabúnaði undir
vinstri væng þotunnar hafi sprung-
ið - skorist í sundur af völdum ut-
anaðkomandi málmhlutar - og að
líkindum sett af stað keðjuverkun
sem leiddi til þess að vélin fórst. Af
samtölum áhafnarinnar og flugum-
ferðarstjóra verður ekki ráðið að
áhöfnin hafi haft hugmynd um að
neitt væri að fyrr en flugumferðar-
Mynd úr bráðabirgðaskýrslu BEA,
er sýnir 40 sentímetra langan
málmbút er fannst á flugbrautinni í
kjölfar slyssins.
stjóri tilkynnti henni að eldur væri
laus í þotunni.
Arslanian sagði að enn væri ekki
ljóst hvernig málmhluturinn hefði
borist út á brautina, en allt útlit
væri fyrir að um væri að ræða hlut
úr flugvél. Ekki er talið að hlutur-
inn hafi verið úr þotunni sem fórst.
Ekkert flugfélag, sem rekur vélar
er notuðu þessa flugbraut þennan
tiltekna dag, hefur tilkynnt að neitt
hafi losnað af
vélum þess.
Þá sagði
Arslanian að
enn ætti eftir
að kanna um-
rædda brautar-
skoðun. Daginn
sem þotan
fórst var braut-
in fyrst skoðuð
klukkan hálf-
fimm að
morgni, og síð-
an var hluti
hennar skoðað-
ur klukkan
hálfþrjú sí-
ðdegis vegna þess að talið var að
fugl hefði lent á flugvél. Fullri skoð-
un, sem átti að fara fram klukkan
þrjú síðdegis, var frestað vegna
slökkviliðsæfingar sem fram fór frá
kl. 14.35 til 15.10. Því hafði brautin
ekki verið fyllilega skoðuð í tólf
klukkustundir þegar þotan fór á
loft klukkan 16.42.
í skýrslu BEA (sem hægt er að
nálgast á Netinu á slóðinni
www.bea-fr.org) eru engar niður-
stöður og sagði Arslanian að endan-
leg skýrsla yrði ekki birt fyrr en í
fyrsta lagi eftir nokkra mánuði.
Rússnesk stjórnvöld segjast hafa uppi ráðagerðir um að ná Kúrsk upp á yfírborðið
Moskva, Vladivostok. AP, AFP.
RÚSSNESK stjórnvöld áttu á
fimmtudag enn í viðræðum við
norska olíufyrirtækið Stolt um
hvort Norðmenn taki þátt í tilraun-
um til að ná upp líkum hinna 118
áhafnarmeðlima kafbátsins Kúrsk,
sem sökk í Barentshafi 12. ágúst sl.
„Viðræður standa nú yfir,“ sagði
Thorbjörn Jagland, utanríkisráð-
herra Noregs, en áður hafði Ilíja
Klebanov, aðstoðarforsætisráð-
herra Rússlands, sagt Rússa njóta
aðstoðar norskra sérfræðinga við
verkið og hefur þegar verið auglýst
eftir vönum köfurum til verksins í
héraðsdagblaðinu Straj Baltiki.
Að sögn Klebanovs hafa Rússar
fullan hug á að hefja aðgerðir sínar
nú í lok septembermánaðar. Er þar
tekið tillit til ráðlegginga sérfræð-
inga sem mæla með að hafist verði
handa áður en nóvembervindarnir
fara að blása um Barentshaf. Er
ekki vitað hve langan tíma mun
taka að ná líkum áhafnarinnar upp.
„Við munum taka okkur allan þann
tíma sem til þarf að ná líkunum
upp,“ sagði Klebanov, í viðtali við
fréttastofuna AFP.
Ekki hggur enn fyrir hvaða að-
ferð verður notuð við að ná áhöfn-
með heræfingu Rússa, gefa til
kynna að lítil sprenging um borð í
Kúrsk hafi valdið mun öflugri
sprengingu tveimur mínútum síðar.
Rússar sjálfir hafa þó ekki viljað
útiloka að Kúrsk hafi sokkið í kjöl-
far þess að hann rakst á aðskota-
hlut, e.t.v. sprengju frá síðari
heimsstyrjöldinni. Sagði Valerí
Manilov, hershöfðingi í rússneska
hernum, síðast nú á fimmtudag að
Kúrsk hefði rekist á annan hlut.
Sumir rússneskir fjölmiðlar
segja þá kafbátinn hafa borið nýja
gerð skotflauga, sem sé óvinsæl
meðal áhafna kafbáta, þar sem hún
sé mjög svo eldfim.
Að sögn AFP hafa rússnesk
stjórnvöld nú þegar greitt aðstand-
endum áhafnarmeðlima sem sam-
svarar 40 milljónum króna í bætur,
en heildarbætur nema 67 milljón-
um.
30 fjölskyldur hafa þó enn ekki
þegið neinar bætur þar sem þær
neita að taka við dánarvottorði ætt-
ingja síns fyrr en búið sé að ná lík-
um þeirra upp. Kveða rússnesk lög
á um að aðstandendur hermanna
fái bætur aðeins greiddar gegn
framvísun dánarvottorðs.
Vilja ná áhöfninni
upp nú í september
inni upp á yfirborðið. Nefnd á veg-
um ríkisins, sem hefur það
hlutverk að meta hvernig best
megi ná kafbátnum og áhöfn hans
upp, hefur mælt með því að göt
verði skorin á skrokk Kúrsk og lík-
unum náð þannig. Norðmenn eru
hins vegar efasamir um ágæti
þeirrar aðferðar vegna hættu á
geislavirkni. Stöðugar mælingar
norsku umhverfisverndarsamtak-
anna Bellona benda hins vegar
ekki til þess að kjarnaofn kafbáts-
ins leki.
Verk Rússa
Ríkisstjórn Rússlands hefur ekki
greint frá því hvernig ætlunin sé
að ná Kúrsk upp á yfirborðið. Upp-
hafleg kostnaðaráætlun vegna
þessa var um 40 milljarðar króna.
AP
Gennadí Ljatsfn, hinn látni skip-
herra Kúrsk. Að baki honum
sést kafbáturinn sem Rússar
hyggjast lyfta af sjávarbotni.
Nefndin telur hins vegar nú að
unnt verði að vinna verkið fyrir 8
milljarða. Sagði Klebanov þá vinnu
verða framkvæmda af Rússum þótt
erlend fjárhagsaðstoð gæti komið
til og stendur til að ná kafbátnum
upp í september á næsta ári. Kleb-
anov útskýrði þó ekki hvernig
Rússar ætluðu ná Kúrsk upp af
botni Barentshafs, en sagði aðgerð-
irnar einar þær flóknustu sem um
getur.
Orsök þess að Kúrsk sökk liggur
enn ekki fyrir. Sérfræðingar
bandaríska sjóhersins telja þó, eft-
ir að hafa hlýtt á upptökur af hljóð-
bylgjum og lesið skjálftamælingar,
að nokkuð víst sé að kafbáturinn
hafi sokkið í kjölfar tveggja
sprenginga. Mælingar þeirra frá
kafbátnum Memphis, sem fylgdist