Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 34
34 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Dagskrá í tilefni komu
Jörgens Nash
Verðkönnun á líkamsræktarstöðvum
Helmingur
líkamsræktar-
stöðva hækkar
verð um 3-15%
Af 15 líkamsræktarstöðvum sem gerð var
verðkönnun hjá í vikunni eru 8 að hækka
verðskrá sína og nemur hækkunin á bilinu
3-15%. Bryndís Sveinsdóttir kannaði hvað
kostar að stunda líkamsrækt.
f TILEFNI af sýningu Jörgen
Nash í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi og komu hans hingað
til landsins, efnir Listasafnið til
sérstakrar dagskrár í dag, laug-
ardag, ki. 14 í Hafnarhúsinu.
Danski listamaðurinn Jörgen
Nash og kona hans Lis Zwick
hafa í gegnum árin rekið listamið-
stöð á Skáni í Svíþjóð sem nefnd
er Drakabygget. Þar hafa starfað
og dvalið fjölmargir listamenn en
sýningin dregur upp góða mynd
af afrakstri þeirrar vinnu.
Nýtt gallerí og
listvinaklúbbur
NÝLEGA var opnað nýtt gallerí,
Jera gallerí og verður sérstök
áhersla lögð á að taka inn unga og
upprennandi listamenn.
Jera gallerí er á horni Miklu-
brautar og Lönguhliðar (við hlið
blómabúðarinnar Hlíðarblóm).
Nafnið Jera er dregið af einum vík-
ingarúnanna og þýðir vonir og
væntingar um frið og velsæld.
Verk um 20 listamanna eru í gall-
eríinu m.a. eftir Margréti Elías-
dóttur, Ingibjörgu Rán, Berg Thor-
berg, Elísabetu Stefánsdóttur,
Möggu Iddu, Guðjón Guðlaugsson,
Erlu Albertsdóttur, Rannveigu
Helgadóttur o.fl. Málmlist eftir El-
ínborgu Kjartansdóttur, glerlist
eftir Ingunni Eydal, Dröfn Guð-
mundsdóttur og Rebekku Gunn-
arsdóttur, leirlist eftir Guðfinnu
Elínu, Maríu Auði o.fl., leðurlist
eftir Önnu Gunnarsdóttur, trélist
frá Martin Thógarði frá Færeyjum.
Fyrsta myndlistarsýning í Jera
gallerí verður á verkum Margrétar
Elíasdóttur sem hefst 9. septem-
ber. í nóvember og desember verða
samsýningar ýmissa listamanna á
englum og einnig verður starfrækt-
ur á vegum gallerísins listvina-
klúbbur.
Jara gallerí er opið alla daga kl.
12-19 og sunnudaga kl. 16-19.
Sýning í
Lóuhreiðrinu
GUNNAR Jóhannsson opnar mál-
verkasýningu í Lóuhreiðrinu Kjör-
garði 2. september nk. sýningin
stendur út septembermánuð og er
opin á venjulegum verslunartíma. A
sýningunni eru olíu-, pastel- og
vatnslitamyndir flestar málaðar á
þessu ári. Þetta er önnur einkasýn-
ing Gunnars, sú fyrri var í Tilverunni
árið 1994. Gunnar stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1986-1990 og útskrifaðist 1990 sem
grafískur hönnuður.
Innanstokks-
myndir
MYNDLISTARSÝNING sem ber
yfirskriftina Innanstokksmyndir
verður opnuð á laugardag, kl. 13, í
Listasafni Borgarness. Þar sýna
þeir Ólafur Sveinsson og Jóhannes
Dagsson akríl- og olíumyndir sem
þeir segja að fjalli um manngert um-
hverfi sem tíminn og minnið hafi
leikið um áður en skrásetning (mynd
á striga) á sér stað. Með þessari nýju
framsetningu komi þau öfl sem á fyr-
irmyndina hafa verkað fram og
verða jafnáþreifanleg og hlutirnii-
sjálfir.
Ólafur og Jóhannes hafa báðir
stundað nám við Myndlistarskólann
á Akureyri og víðar. Þeir hafa haldið
sýningar víða um land og erlendis,
meðal annars héldu þeir samsýning-
una Konur í Safnahúsinu á Húsavík
1998.
Listasafn Borgamess er til húsa í
Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjaraar-
braut 4-6, Borgamesi, og verður
sýningin opin kl. 13-18 virka daga og
kl. 20-22 á fimmtudagskvöldum.
Sýningin stendur til 30. september.
Dagskráin í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsi er í anda
Jörgens Nash, sem sjaldan fetar
troðnar slóðir. En meðal atriða er
Ijóðaupplestur (gjörningur) Jörg-
ens Nash og Triztan Vindtorn,
Ijóðaupplestur (gjörningur) Cecil-
iu Nash á hljóðaljóði Jörgens.
Gjörningur Jörgens og Trirztans
Vindtorn og ljóðasöngur Elfi
Svárdrup. Einnig má vænta þess
að fslenskir vinir Jörgens Nash
stígi á stokk og heiðri listamann-
inn.
Afrísk tónlist
á myndlistar-
sýningu
HEIT jörð er yfirskrift mynd-
listarsýningar Jóhönnu Bogadóttur í
Listaskálanum í Hveragerði. ídag,
laugardag, kl. 15, verður leikin tón-
list frá Afríku og Ástralíu. Tónlistar-
maðurinn Alseny frá Gíneu leikur á
djembe trommur og enski tónlistar-
maðurinn Buzby mun leika á sérstök
horn sem kallast didgeridoo og eru
hefðbundin hljóðfæri frumbyggja
Ástralíu, en þar dvaldist hann við
tónlistarnám.
Á sýningunni eru málverk frá síð-
ustu 6-8 árum. Þetta er nokkurs
konar yfirlitssýning á verkum sem
falla að þema sýningarinnar en um
það segir Jóhanna í sýningarskrá:
„Undur sköpunaiverksins, ólgan,
krafturinn og átökin í náttúrunni og í
samspili manns og náttúru eru með-
al annars það sem ég finn mig knúna
til að fjalla um í myndum...“.
Sýningin Jóhönnu er opin alla
daga frá kl. 13-17 og lýkur lO.sept-
ember. Aðgangur er ókeypis.
Dósla sýnir
í Lónkoti
MYNDLISTAMAÐURINN Dósla,
Hjördís Bergsdóttir, hefur opnað
málverkasýningu i Gallerí Sölva
Helgasonar í Lónkoti í Skagafírði. Á
sýningunni eru olíumálverk unnin á
árunum 1999-2000. Þetta er 11.
einkasýning Dóslu, sem auk þess
hefur tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum. Dósla er myndlistarkennari
við Fjölbrautarskóla Norðurlands
vestra og Árskóla á Sauðárkróki.
Sýningin stendur til 16. september.
Sýningum
lýkur
Ilallgrímskirkja
Kirkjulistarsýningu Sigrúnar
Jónsdóttur lýkur á þriðjudag.
Á sýningunni eru höklar, altaris-
dúkar, glerlistaverk o.íl., sem lista-
konan hefur unnið á undanfomum
áratugum. Að lokinni guðsþjónustu á
sunnudag, kl. 12.30, mun listakonan
veita leiðsögn um sýninguna.
Landsbókasafn íslands -
Háskólabókasafn
Sýningunni Reykjavík í bréfum og
dagbókum lýkur miðvikudaginn 6.
september.
Sýningin veitir almenningi innsýn
í hugarheim alþýðufólks eins og
hann birtist í bréfum þeirra frá 19.
öld til fyrri hluta 20. aldar.
• Á sýningunni eru einnig ljósmynd-
ir og munir sem eru í eigu afkom-
enda bréf- og dagbókarritara, auk
annarra muna sem hafa sögulegt
gildi fyrir tímabilið.
Safnið er opið mánudaga-fimmtu-
daga kl. 8:15-22, föstudaga til kl. 19,
laugardaga 10-17 og sunnudaga 11-
17.
Norður-
gluggar
MYNDLISTARSÝNING Antoniu
Phillips „Norðurgluggar" verður
opnuð í dag, laugardag, í Galleríi
Smíðar og skart, Skólavörðustíg
16A, milli kl. 15 og 17. Sýningin
stendur til 23. september. Opnunar-
tímar eru á verslunartíma, frá klukk-
an 10 til 18 virka daga og klukkan 10
til 14 laugardaga.
Antonia er Lundúnarbúi á fer-
tugsaldri. Hún nam myndlistina við
Bournemouth & Poole College of
Art. Á sýningu hennar eru 23 mynd-
ir, 17 vatnslitamyndir og 6 olíumál-
verk, og eru þær allar málaðar á
þessu ári. Efni myndanna er ís-
lenskt, íslenskir fuglar í íslensku
landslagi.
Meðal einkasýninga hennar í Eng-
landi má nefna Wildfowl and Wet-
lands Trust, Glouchestershire 1995,
Royal Society, London 1997 og Ice-
land Exhibition, Cox’s Yard Gallery,
Stratford 1999. Auk þessa heldur
hún sýningar árlega hjá Society of
Wildlifeartists, Mall Galleries, Lond-
on og British Birdwatching Fair,
Rutland. Antonia tekur líka þátt í
nokkrum samsýningum árlega.
Myndlistar-
sýning á Hótel
Kiðagili
NU stendur yfir myndlistarsýning
Einars Emilssonar á Hótel Kiðagili í
Bárðardal og gefst gestum kostur á
að virða fyrir sér 26 verk eftir lista-
manninn.
Einar ólst upp á Seyðisfirði, en
hefur búið á Dalvík um langt árabil.
Hann fór á myndlistarnámskeið hjá
Erni Inga Gíslasyni 1994 og útskrif-
aðist úr myndlistarskóla hans þar á
eftir.
Einar hefur unnið við myndlist í
frístundum og tekið þátt í tveimur
samsýningum auk þess að vera með
sjö einkasýningar, m.a. á Kaffi
menningu, ráðhúsi Dalvíkur, og Fé-
lagamiðstöð BSRB í Reykjavík.
Einar er bæði með þurrpastel-
myndir og olíumyndir á striga. Þá
eru á sýningunni þrjár myndir sem
unnar eru með litblýanti.
Á sýningunni eru margar lands-
lagsmyndir, húsamyndir og myndir
af fuglum.
Davíð Art Sig-
urðsson sýnir á
Café 22
LISTAMAÐURINN Davíð Art Sig-
urðsson opnar myndhstarsýningu á
Café 22, Laugavegi 22, í dag, laugar-
dagklukkan 17.
Davíð Art stundaði framhaldsnám
í Bandarikjunum, með áherslu á
klassískan söng. Hann er líka ljóð-
skáld og eftir hann hefur komið út
þoðabókin „Þegar Ijóð eru“ (1998).
Fyrstu ljóða- og myndlistarsýn-
ingu sína hélt hann í Deiglunni á Ak-
ureyri, haustið 1999. í sumarbyrjun
2000 tók hann þátt í samsýningu í
Nönnukoti í Hafnarfirði, en sýningin
á Café 22 er fyrsta sýning lista-
mannsins í Reykjavík. Verkin á sýn-
ingunni eru 15 talsins, unnin með
pastel- og olíulitum.
Nýr sýningarsal-
ur í Keflavík
MYNDLISTARSÝNING verður
opnuð í nýjum sýningarsal í dag,
laugardag, kl. 10 í Gallerí-Hringlist,
Hafnargötu 29 í Keflavík.
íris Jónsdóttir mun sýna „Form í
náttúrunni", verk sem unnin eru
með kísh úr Bláa lóninu, akrýl og
blandaðri tækni á striga.
íris útskrifaðist frá MHÍ 1997.
Sýningin stendur til 30. septem-
ber. Opið er daglega kl. 13-18 og
laugardaga kl. 10-16. Einnig eru til
sölu verk eftir ýmsa aðra listamenn.
Aðgangur er ókeypis.
NÝ VERÐSKRÁ tók gildi á átta
líkamsræktarstöðvum af fimmtán i
gær og hefur verð hækkað um 3%-
15%. Þetta kom í ljós þegar gerð var
verðkönnun hjá líkamsræktarstöðv-
um í vikunni. Þær stöðvar sem
hækkuðu verð voru Betrunarhúsið,
Baðhúsið, Hress, Nautilius heilsu-
rækt, Kramhúsið, World Class og
Ræktin.
Nokkrar líkamsræktarstöðvar
bjóða kortin á tilboði fyrstu dagana í
september.
Ragna Bachman framkvæmda-
stjóri Ræktarinnar á Seltjarnarnesi
segir að tími hafi verið kominn til að
hækka verðið.
Fákeppni leiddi
til verðhækkunar
„Samkeppnin á milli
ræktarstöðva var orðin
svo mikil að margar
minni stöðvarnar hrein-
lega lögðu upp laupana.
Nú er komin meiri fá-
keppni því stórir aðilar
eru komnir á markaðinn og keðjur
eru að myndast. Þetta hefur leitt til
þess að verðið hefur almennt hækk-
að en sú þróun er jákvæð fyrir mark-
aðinn og þá sérstaklega fyrir minni
stöðvar eins og okkur. Nú er ástand-
ið viðunandi," segir Ragna.
Viðmælendunum bar saman um
að þessar hækkanir væru í takt við
verðhækkanir í þjóðfélaginu, vinnu-
laun væru að hækka auk annars
rekstrarkostnaðar.
Fjölbreytt úrval
Hvort sem menn vilja hamagang
og púl í tímum eins og þolfimi, palla-
puði, taí bo, sparkboxi eða spinning,
eða rólegheit í jóga, nuddi, tækjum
eða músikleikfimi verður að segjast
að möguleikarnir fyrir þá sem vilja
komast í form eru orðnir afar fjöl-
breyttir.
Talsmenn líkamsræktarstöðvanna
segja nánast allt vera vinsælt og að
iðkendur líkamsræktar séu á öllum
aldri. „Stærsti aldurshópurinn hjá
okkur er líklega á aldrinum 23-45
ára,“ segir Ágústa Johnson eigandi
Hreyfingar. Hún segir meðaljóninn
æfa að meðaltali um það bil þrisvar í
viku. „Það er allt vinsælt í dag en það
sem hefur aukið mest í vinsældum er
tvímælalaust styrktarþjálfun, tækja-
þjálfun og tímar þar sem æft er með
lóðum. Einnig er
spinning enn mjög vin-
sælt. Þegar eitthvað
nýtt skýtur upp kollin-
um vilja flestir prófa
það en svo gengur æðið
yfir og verður fljótt einn af fjölmörg-
um valmöguleikum."
Ekki byija
með látum
Agústa segir um að gera að byrja
rólega eftir sumarfríið, fólk eigi að
forðast að fara af stað með látum og
offorsi. Hún segist taka eftir því að
þetta sé orðið mun jafnara núna en
fyrir nokkrum árum og því sé þetta
líkams-
Meðaljóninn æfir
að meðaltali
þrisvar í viku