Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 39
IM
orð hafa verið tengd fornu írsku
orði „cail“ sem merkti ’spjót’ og
gríska orðinu „kelon“ í merking-
unni ’stöng, skaft’.
Af því sem hér hefur verið
dregið saman má sjá að öll orðin
eiga einhverjar rætur á Norður-
löndum þótt merking sé ekki í öll-
um tilvikum hin sama og hér.
Það er eðli orða að geta tekið
við nýjum og yfirfærðum merking-
um og virðist íslenska þróunin
hafa verið sú að greina á milli
’rófna’ á hinum ýmsu dýrategund-
um. Þannig hefur kötturinn rófu
eða stýri, hundurinn skott, kýrin
hala og hesturinn tagl.
Guðriín Kvaran prófessor og for-
stöðumaður Orðabókar Háskóla íslands
Eru vötn á tunglinu?
SVAR:
Nei, það eru ekki vötn á tungl-
inu. Tunglið hefur engan lofthjúp
og vegna lofttæmisins sjóða vökv-
ar þar samstundis og „gufa upp“
og gösin rjúka út í geiminn. Ný-
lega hefur hins vegar fundist
vatnsís í djúpum gígum nálægt
norður- og suðurpól tunglsins.
Yfirborði tunglsins má skipta í
tvennt. Annars vegar eru gömul,
ljósleit hálendissvæði, alsett gíg-
um. Inni á milli þeirra eru yngri,
dekkri svæði sem kallast tunglhöf
(enska ’mare’ í eintölu, ’maria’ í
fleirtölu, komið úr latínu). Þessi
nafngift á rætur að rekja til sautj-
ándu aldar, þegar stjarnvísinda-
menn töldu að þarna væri um að
ræða höf sem líktust höfum jarð-
ar. Nú er vitað að efnið í höfunum
er ekki vatn heldur miklar hraun-
breiður.
Tunglhöfin þekja um 16% af yf-
irborði tunglsins. Þau urðu til við
geysimikla árekstra geimgrýtis
eða smástirna við tunglið. Við
árekstrana mynduðust stórar
dældir, sem síðar fylltust af
blágrýtishrauni meðan tunglið var
enn eldvirkt. Aldursgreiningar
sýna að berg tunglhafanna er
yngra en berg hálendisins og er
talið að höfin séu 3,8-3,1 milljarða
ára gömul. Dökkleitt bergið í höf-
unum endurkastar ekki eins miklu
sólarljósi og bergið á hálendis-
svæðunum og virðast því höfin
dekkri. í árekstrunum sem mynd-
uðu höfin þrýstist mikið efni upp
við gígbarmana og er því oft að
finna fjallgarða í útjöðrum haf-
anna, eins og sést á myndinni hér
að neðan. Á höfunum eru all-
margir loftsteinagígar en þó er
þéttleiki þeirra mun minni en á
hálendissvæðunum. Þar sem loft-
steinar ættu að lenda nokkuð jafn-
dreift á tunglinu er það önnur vís-
bending um að höfin séu yngri.
Hraunið í höfunum rann yfir eldri
gíga og nú sjást aðeins þeir sem
mynduðust eftir það.
Stærst tunglhafanna er Mare
Imbrium eða Regnhafið og er það
um 1100 km í þvermál. Vísinda-
menn hafa komist að því, sér til
furðu, að höfin eru nánast ein-
göngu á þeirri hlið tunglsins sem
snýr að jörðu. Ástæður þess eru
enn ókunnar.
Þrátt fyrir að ekkert fljótandi
vatn sé á tunglinu eru nýlegar
niðurstöður frá Lunar Prospector,
geimfari Bandarísku geimvísinda-
stofnunarinnar, NASA, taldar
staðfesta að vatnsís sé þar að
finna. Hann leynist í djúpum gíg-
um við norður- og suðurpól
tunglsins sem sólin nær aldrei að
skína ofan í.
Sœvar Helgi Bragason nemandi og
Tryggvi Þorgeirsson, eðlisfræðinemi og
starfsmaður VísindaveQarins
Bakverkinn burt
Abvrgð atvinnurekenda -
abyrgð starfsmanna!
7i
BAKVERKUR
er eitt aðalein-
kenni álags og
má rekja 65%
af bakvanda-
málum til
vinnu. Stærstu
áhættuhóparn-
ir eru erfiðis-
vinnufólk og
sitjandi starfs-
menn. Hverjir
bera ábyrgð á því að koma í veg
fyrir atvinnutengd álagseinkenni?
Samkvæmt vinnuverndarlögunum
eru almennar skyldur atvinnurek-
enda að tryggja að fyllsta örygg-
is, góðs aðbúnaðar og hollustu-
hátta á vinnustað sé gætt.
Vinnuaðstæður skulu vera full-
nægjandi á þann hátt að starfs-
menn séu verndaðir gegn heilsu-
tjóni, þeir fái verkefni við hæfi og
stuðlað sé að andlegri og líkam-
legri vellíðan þeirra. Gera þarf
starfsmönnum ljósa slysa- og
sjúkdómahættu sem kann að
fylgja störfum þeirra og þeir
þurfa að fá nauðsynlega þjálfun í
að leysa störf sín þannig að ekki
stafi hætta af. Atvinnurekendur
eiga að stuðla að samstarfi um
vinnuverndarmál á vinnustaðnum
og tilnefna ber öryggisvörð, ör-
yggistrúnaðarmann eða öryggis-
nefnd allt eftir stærð fyrirtækis.
Starfsmenn bera einnig ábyrgð á
eigin vinnuumhverfi og afmarkast
skyldur þeirra einkum við eigin
vinnu. Þeim ber að stuðla að því
að starfsskilyrði innan verksviðs
þeirra séu fullnægjandi og ráð-
stöfunum til úrbóta sé framfylgt.
Starfsmönnum er skylt að fylgja
öryggisreglum fyrirtækisins, op-
inberra eftirlitsaðila eða ráðu-
neyta. Verði starfsmaður var við
ágalla eða vanbúnað sem leitt get-
ur til skerts öryggis skal hann
umsvifalaust tilkynna það örygg-
istrúnaðarmanni fyrirtækisins.
Forvörnum gegn atvinnutengd-
um álagseinkennum má skipta í
þrjú stig. Að fjarlægja hættu úr
vinnuumhverfi áður en hún veldur
veg fyrir að kvillar taki sig upp
eða ágerist og að koma í veg fyrir
að sjúkdómar leiði til örorku eða
dauða. Gera má svokallaðar
vinnustöðvagreiningar í samvinnu
við starfsmenn. Starfsaðstæður
eru þá metnar af fagaðila og gert
áhættumat og áætlanir til úrbóta.
Frá árinu 1993 hafa Sjóvá-Al-
mennar látið gera slíkar greining-
ar á þriggja ára fresti. Reynslan
af þeim er góð en fyrirtæki þurfa
að gera sér grein íyrir tilkostnaði.
Hann er tvíþættur: greiningar-
kostnaður og afleiddur kostnaður.
Greiningarkostnaður felst í út-
tektinni en afleiddur kostnaður í
úrbótum sem gera þarf. Reynsla
Sjóvár-Almennra er að afleiddi
kostnaðurinn var umtalsverður í
upphafi en lækkaði við síðari út-
tektir. Greiningin getur leitt í ljós
að gera þurfi lagfæringar á vinnu-
aðstöðu, s.s. að skipta um stóla,
bæta aðstöðu við lyklaborð, kaupa
viftur, draga úr hávaða, breyta
lýsingu, kenna starfsmönnum á
stillingar á stólum, tölvuskjám,
lyklaborðum o.s.frv. Náin tengsl
eru milli innra starfsumhverfis og
rekstrarlegrar afkomu fýrirtækja.
Eftirsóknarverðir vinnustaðir
geta valið úr hæfasta starfsfólk-
inu og dregið úr starfsmanna-
breytingum. Gott vinnuumhverfi
dregur úr álagi og streitu, eykur
almenna starfsánægju og leiðir til
færri veikindadaga og hærra
manna eykur nýjungar í rekstri
og þróun verður árangursríkari.
Fyrirtækið verður betur í stakk
búið að takast á við breyttar sam-
keppnisaðstæður og ímynd þess
verður sterk meðal starfsmanna
og almennings. Gott er að hvetja
starfsmenn til að stunda líkams-
rækt en skattlagning á heilsu-
vernd leiðir til aðstöðumunar hjá
fyrirtækjum. Vilji fyrirtæki niður-
greiða líkamsrækt starfsmanna
sinna í forvarnarskyni geta þau
ekki gjaldfært kostnaðinn í
rekstri nema telja hann fram sem
hlunnindi starfsmanna, sem
greiða þá hlunmndaskatta. Stærri
fyrirtæki sem hafa bolmagn til að
setja upp eigin Ukamsræktarað-
stöðu geta dregið þann kostnað
frá í rekstri en það er oft kostn-
aðarsamara en að niðurgreiða
íþróttaiðkun hjá líkamsræktar-
stöðvum.
Árangur er hægt að mæla með
könnunum innan fyrirtækja eða
könnunum sem stéttarfélög eins
og VR gera. Kannanir varpa ljósi
á starfsumhverfi og starfskjör. í
könnun VR fá starfsmenn innsýn
í starfsumhverfi annarra fyrir-
tækja, þeir geta borið saman
starfsskilyrði mismunandi fyrir-
tækja jafnframt því sem niður-
stöðurnar veita fyrirtækjum mik-
ilvægt aðhald. Ljóst er að ekkert
fyrirtæki verður góður vinnustað-
ur fyrir slysni. Ánægjulegt er að
nefna að Sjóvá-Almennar urðu,
þriðja árið í röð, í fyrsta sæti í
VR-könnuninni í flokki fyrirtækja
með yfir 100 félagsmenn. Niður-
staðan er að ábyrgð starfsmanna
og atvinnurekenda til að koma í
veg fyrir atvinnutengd álagsein-
kenni er sameiginleg. Virk þátt-
taka starfsmanna í könnunum, út-
tektum og ábéndingum um það
sem betur má fara skilar þeim
bættum lífsgæðum og fyrirtækj-
unum bættum rekstri.
Lá ra Jríhannsddttir, gæðastjóri hjó
Sjóvá-AIniennum tryggingum hf.
og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í
samstarfsnefnd um Vinnuverndar-
vikuna 2000.
Pfodbiu;
Tannl*knarin*i
medWwJíSr*
O'-tftffifS
IJíSIIOHOW
1 r)entaí Flossers
P "•"wraiw
a\ \ '■P&ÍJaLm,
%; • <
Heildsöludreifing:
LYPJADREiFING
S: 588 6700
Útsölustaðir.
Rollingar Kringlunni
Ólavfa og Óliver Glæsibæ
Spékoppar Grafarvogi
Embla Hafriarfirði
Esmeralda Mosféllsbæ
Palóma Grindavfk
K-Sport Keflavík
Fríhöfriin Keflavfk
Ozone Akranesi
Leggur og skel ísafirði
Prfl Hvolsvelli
Lónið Höfri
Sentrum Egilsstöðum
Heildsöludreifing
WW'
sími 510 2400
1
= rrÝJl-f i 11 í n g s e f 1 a n(jsar~iol s SINDRI Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is ]