Morgunblaðið - 02.09.2000, Side 50

Morgunblaðið - 02.09.2000, Side 50
50 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Grafarvogsbúar, til hamingju með daginn í DAG er haldinn í þriðja sinn árlegur Grafarvogsdagur. Að venju verður margt í boði í hverfinu. Dag- skráin hefst kl. 9.30 á gönguferð frá fþrótta- miðstöðinni Dalhúsum. Fyrir hópnum fer sög- ufróður leiðsögumaður sem segja mun frá áhugaverðum stöðum. Fyrir hádegi gefst mönnum einnig tæki- færi á að hita upp fyrir daginn með því að fara í jóga eða taka þátt í vatnsleikfimi í íþrótta- miðstöðinni í Grafar- vogi. Um miðjan dag hefst hátíð við gamla Gufunesbæinn sem stendur fram á kvöld. Tvær keppnir fara þar Grafarvogur Foreldrar, segir Gerla, gefíð ykkur tíma til að fara með börnum ykkar á Grafarvogshátíðina. fram, annarsvegar eru það starfs- menn stofnana í hverfinu sem reyha með sér í þeirri þjóðlegu íþrótt glímu og hins vegar ætla ungir hverfisbúar að keppa í mun alþjóðlegri keppnis- grein: Kassabílaralli. A svæðinu 4fcrður „opið svið“ þar sem börn og ungmenni koma fram og skemmta sjálfum sér og öðrum með söng og dansi. Fyrir yngstu gestina verða leiktæki og þeim gefst einnig tæki- færi á að fara á bak hestum, á meðan geta þeir sem eldri eru spreytt sig á klifri. Bæði er hugað að list og lyst á hátíðinni, því skáld úr hverfinu lesa fyrir börnin í söguherbergi Gufunes- bæjar og nokkrir kunnir hverfisbúar hafa tekið að sér að grilla pylsur. Þegar kvölda fer ætla skátar að standa fyrir fjöldasöng við varðeld og flugeldasýning verður kl. 20.30. Máttarstólpi Heimildir segja frá því að kirkja hafi staðið í Grafvoginum árið 1150 % í dag státar hverfið af annarri stærstu kirkju landsins. Þar verður messa sem hefst kl. 13. í tilefni Graf- arvogsdagsins verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að ungmenni úr Fjölni aðstoða við messuna. Ætlunin er að gera það að árlegum viðburði, að ungmenni úr hverfinu taki virkan þátt í helgihaldinu þennan dag. Við at- höfn, að messu lokinni, verða veitt hvatningar- verðlaun sem kallast „Máttarstólpi" og eru þau viðurkenningar- skjal og peningaverð- laun hverfisnefndar Grafarvogs og Mið- garðs. Verðlaunin eru veitt til einstaklings eða hóps sem skarað hefur framúr og verið öðrum góð fyrirmynd innan hverfis- ins og/eða aukið hróður hverfisins út á við. Árið 1998 hlaut Unglingakór Grafarvogskirkju verðlaunin og í fyrra féllu þau í skaut Útskáldanna, hóps átta þekktra skálda sem búa í hverfinu. Hátíðisdagur fjölskyldunnar Hátíðinni lýkur með balli í félags- miðstöðinni Fjörgyn. Að gömlum sið er dansleikurinn einnig opinn fyrir börn í fylgd fullorðinna og greiða þau sem yngri eru en tólf ára ekki aðgangseyri. Drykkja hefur ekki verið vandamál á Grafarvogsdegin- um. En minnug þess að annars mjög vel heppnuð menningarnótt endaði með drykkju nokkurra þeirra sem hana sóttu og að þar mátti jafnvel sjá einstaka drukkna foreldra með börn sín er ekki úr vegi að vekja athygli á að Garfavogsdagurinn er hátíðisdag- ur fjölskyldunnar þar sem ekki er viðeigandi að vín sjáist á nokkrum manni. Foreldrar, gefið ykkur tíma til að fara með bömunum ykkar á Grafar- vogshátíðina og njótið þess sem í boði er. Foreldrar sem setja samverustundir með börnum sínum í forgang eru með því að leggja sitt af mörkum til forvama. Það er sannað mál að því stærri hlut sem fjölskyld- an á í lífi ungmennis, þeim mun betur er það fært um að standa gegn þrýstingi umhverfisins á að hefja neyslu áfengis og annarra vímuefna. Að lokum hvet ég íbúa Grafarvogs sem og aðra borgarbúa til að bregða undir sig betri fætinum og taka þátt í Grafarvogsdeginum. Höfundur er formaður hverfísnefndar Grafarvogs. Guðrún Erla Geirsdóttir Aukaaðalfundur Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga boðar til aukaaðalfundar á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík, þriðjudaginn 19. september 2000 kl. 17.15. Fundarefni: 1. Breytingar á samþykktum. 2. Önnur mál. Reykjavík, 1. september 2000. Stjórnin. Friðurinn úti á sfj órnarheimilinu EKKI hefur ríkt fullkominn friður á stjórnarheimilinu und- anfarið. Ríkisstj órnarflokk- ana hefur greint á í ýmsum grundvallar- málum og má þar nefna skólagjöld við Háskóla íslands, Evrópumálin og einka- væðingu Landssím- ans. Og enn er kominn upp ágreiningur innan stjórnarflokkanna. I Morgunblaðinu í gær mótmæla tveir þing- menn Sjálfstæðis- flokksins, báðir full- trúar í heilbrigðisnefnd Alþingis, yfirlýsingum heilbrigðisráðherra um að ekki sé frekari einkavæðing á döfinni í heilbrigðiskerfinu. Þing- mennirnir vísa í stjórnarsáttmálann máli sínu til stuðnings um að fara skuli í frekari einkavæðingu og setja ofan í við heilbrigðisráðherra. Einkavæðing - hingað og ekki lengra Það er mikilvægt að við stöndum vörð um velferðarþjónustuna og heilbrigðiskerfi okkar sem ýmsar þjóðir líta til sem fyrirmyndar. Sátt hefur verið um það hér á landi að heilbrigðisþjónustan flokkist undir samfélagsþjónustu og að henni skuli allir hafa jafnan aðgang. Ráð- deild með opinbert fé er nauðsynleg og í því tilliti er hægt að leita til utanaðkomandi aðila um rekstur á stoðstarfsemi sjúkrahúsa með sér- stökum samningum. Við þekkjum ástandið í þeim lönd- um þar sem heilbrigð- isþjónustan hefur ver- ið einkavædd að stórum hluta. Þar er fólki mismunað í að- gangi að þjónustunni, m.a. eftir efnahag og efnalítið fólk fær enga, litla eða lélega þjón- ustu. Það má aldrei verða hér að almenningur fái ekki þjónustu vegna fátæktar. Fólki mismunað eftir efnahag Því miður er það svo að í velferðarsamfélagi okkar er fólk sem ekki getur nýtt sér heilbrigðis; þjónustuna vegna fjárskorts. I fréttum í vikunni var rætt við konu, einn af forsvarsmönnum nýstofnaðs Félags fátækra, sem sagði frá því að hún hefði ekki getað leyst út nauðsynleg lyf vegna fjárskorts. Lyfjakostnaður hefur hækkað verulega í tíð þessarar ríkisstjórn- ar. Ég veit líka að fólk dregur að fara til læknis vegna þess að það hefur ekki efni á því. Þarna er um að ræða barnafólk, aldraða og ör- ykja sem hafa orðið útundan í góð- ærinu. Þessu þarf að snúa við og það gerist ekki með aukinni einka- væðingu, það sýnir reynslan. Ingibjörg standi vörð um jöfnuð A síðasta kjörtímabili setti heil- brigðisráðherra á laggirnar nefnd Stjórnmál Nú verður Ingibjörg að spyrna við fótum, segir Asta R. Jóhannesdóttir, gegn Sjálfstæðisflokkn- um og einkavæðingar- ______áráttu hans í______ heilbrigðiskerfinu. um forgangsröðun í heilbrigðismál- um og áttu allir flokkar á þingi áttu fulltrúa í nefndinni. Hún skilaði til- lögum til ráðherra og var sammála um að réttlát heilbrigðisþjónusta ætti að byggjast á samábyrgð þegn- anna og vera að mestu kostuð af al- mannafé. Ráðherra er með orðum sínum í Degi 24. ágúst sl. um að ekki verði um frekari einkavæðingu að ræða í heilbrigðis- þjónustunni að standa við þessa stefnumótun og ber að þakka það og hvetja hana til að láta ekki Sjálf- stæðisflokkinn teyma sig út í frek- ari einkavæðingu. Ég tek undir orð ráðherra um að „allir skuli vera jafnir gagnvart heilbrigðisþjónust- unni og enginn geti í krafti peninga komist fram fyrir annan“. Um þetta verður hún að standa vörð og spyrna við fótum gegn Sjálfstæðis- flokknum og einkavæðingaráráttu hans í heilbrigðiskerfinu. Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar íReykjavík. Ásta Ragnheiður Jóhannesddttir Kennari eða kassadama? EFTIR að hafa les- ið grein Ingu Þóru Geirlaugsdóttur í Mbl. þann 30/8 sl. settist ég niður og fór að hugsa minn gang. Það er nefnilega ekkert af- skaplega gaman að vera 24 ára, í blóma lífsins, eiga alla ævina framundan og hafa það að markmiði að starfa sem kennari! Allt það mótlæti sem mætir mér byggir mig alls ekki upp heldur þvert á móti. Því miður erum við ekki mörg í Kennara- háskóla íslands sem erum staðráð- in í að „eyða“ starfsævi okkar í kennarastarfið. En nú er svo komið að ég sit hér og velti fyrir mér hvort ég sé tilbúin til að fá 118.000 krónur í grunnlaun eftir 10 ára starfsferil. Hef ég efni á því næsta haust að byrja að vinna á byrjunar- launum kennara? Því miður er þetta eina starfið sem ég get hugs- að mér og þetta er mín drauma- vinna. En af hverju að vera að hugsa um hvað mann langar og langar ekki? Af hverju fer ég ekki frekar að vinna hjá Bónusi með mun hærri laun og get þá kannski haft efni á því að borga námslánin sem ég tók þegar ég hafði þá hug- sjón að verða kennari? Get ég virkilega enst í því að kenna börn- um á þessum launum? En nóg um mig, ég vil ekki höfða til stj órnmálamanna, bæjarstjóra eða skóla- yfirvalda. Ég vil höfða til ykkar foreldra. Er ykkur alveg sama hver kennir börnum ykkar? I Aðalnámskrá grunnskóla kemur fram: „Eitt grundvall- arviðmið í skólastarfi er jafnrétti til náms sem er fólgið í því að bjóða nemendum nám og kennslu við hæfi og gefa þeim tækifæri til að spreyta sig á við- Menntun Standið með kennurum, segir Jónína Einars- dóttir, og gerið það að markmiðum ykkar að börn ykkar fái menntaða kennara. fangsefnum að eigin vali. í þessu felast ekki endilega sömu úrræði fyrir alla heldur sambærileg og jafngild tækifæri.“ Eru börn ykkar sem hafa leiðbeinanda í stað menntaðra kennara að fá sömu eða jafngild tækifæri? Sumir segja að Jónína Einarsdóttir mbl.is [ kennarastarfið sé svo auðvelt að allir geti leyst það! Hvað vita t.d. rúmlega tvítugir einstaklingar, nýbúnir með stúdentspróf, um lestraraðferðirnar LTG og Hljóða- aðferð? Þetta eru þær grundvallar- aðferðir sem notaðar eru til lestr- arkennslu á yngsta stigi grunnskólans. Getur hver sem er kennt þetta? Til hvers er ég þá að eyða tíma mínum og peningum til að læra þetta í mínu háskólanámi? A okkar litla landi á ekki að skipta máli í hvaða skóla barn þitt er, heldur eiga kennarar að leitast við að þroska hvert og eitt barn á þann hátt sem nýtist því best. Þetta er það sem Kennaraháskólinn leitast við að kenna og benda á lausnir á þessum þáttum. Manneskja sem ekki hefur neina menntun á þessu sviði getur vart verið í stakk búin að takast á við þessa ábyrgð. Það er líka sorglegt að hugsa til þess að vinna við afgreiðslu í verslun gefi jafnmikið eða meira í aðra höndina en að mennta framtíð íslands. Met- um við ekki börn okkar að verðleik- um? Er ekki meira í húfi en svo? Ágætu foreldrar, börnin ykkar eru framtíð íslands! Þetta eru næstu forsetar, forsætisráðherrar, forstjórar FBA, ræstitæknar, sjó- menn, hjúkrunarfólk, kennarar ... Það skiptir ykkur máli og það skiptir þau máli að þau fái góða menntun. Öll menntun í grunn- skóla er undirstaða allrar mennt- unar síðar á lífsleið þeirra. Takið nú höndum saman, standið með kennurum og gerið það að markm- iðum ykkar að börn ykkar fái menntaða kennara og þar með sömu tækifæri og allir aðrir. Eitt er víst að hvort sem ég gef upp drauminn að verða kennari og enda sem kassadama hjá Bónusi eða ekki, mun ég frekar vilja setja son minn í bekk hjá menntuðum kenn- ara en leiðbeinanda. Ágætu kennarar, gangi ykkur vel í komandi kjarabaráttu og megi barátta ykkar færa mér betri laun á næsta ári! LLTAf= eiTTHXTAO /V Höfundur er nemi á þriðja ári í Kennaraháskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.