Morgunblaðið - 02.09.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 51
--------------------------------*e;
SKOÐUN
Með nýjum lögum um
mat á umhverfísáhrif-
um, segir Friðrik Soph-
usson, hefur verið lagð-
ur grunnur að nýjum
vinnubrögðum við und-
irbúning framkvæmda
hér á landi.
verður sérstakt fyrirtæki um þær
sem yrði jafnvel í eigu erlendra
orkufyrirtækja að hluta. Þessi mál
eru til sérstakrar skoðunar, en þau
eru flókin og ýmsar leiðir koma til
greina. Aðalatriðið er að ekki verður
ráðist í virkjunarframkvæmdir án
þess að fyrir liggi útreikningar, sem
sýna nægilega arðsemi að teknu til-
liti til áhættu.
Rammaáætlun og
þjóðgarðshugmyndir
Á sl. ári hófst gerð rammaáætlun-
ar ríkisstjórnarinnar. Ætlunin er að
raða virkjunarkostum í forgangs-
röð, þar sem tekið er tillit til mis-
munandi sjónarmiða og þarfa þjóð-
félagsins. Rammaáætlun er
mikilvæg þegar til lengri tíma er lit-
ið, en ekki er gert ráð fyrir að hún
fresti þeim framkvæmdum, sem Al-
þingi samþykkir og iðnaðarráðu-
neytið heimilar áður en niðurstaða
hennar liggur fyrir. Stefnt er að því
að fyrstu niðurstöður verkefnis-
stjórnar rammaáætlunar verði til-
búnar í upphafi árs 2002. Verði sú
raunin fellur það ágætlega að tíma-
áætlun virkjunarundirbúningsins.
í tilefni virkjunaráforma við
Kárahnjúka hafa orðið nokkrar um-
ræður um það hvort gera eigi þjóð-
garð norðan Vatnajökuls. Því hefur
verið haldið fram að slík hugmynd
útiloki virkjun fallvatna á svæðinu.
Frá mínum bæjardyrum séð þarf
þjóðgarðshugmyndin síður en svo
að útiloka virkjun. Fjölmörg dæmi
eru um að ýmiss konar starfsemi sé
stunduð í þjóðgörðum. Og fátt fer
betur saman en ferðamennska í ís-
lenskum víðernum og lón til
raforkuframleiðslu úr hreinum, end-
urnýjanlegum orkulindum landsins.
Að mínu viti er eðlilegt að
vii'kjunaraðili styðji við ferða-
mennsku í nágrenni virkjunarsvæða
og taki tillit til þess í virkjunará-
formum sínum.
Hvenær verður
ákvörðun tekin?
Samkvæmt fyrirliggjandi yfirlýs-
ingu álfjárfesta, Landsvirkjunar og
íslenska ríkisins er gert ráð fyrir að
hægt verði að taka endanlega
ákvörðun um framkvæmdir við
virkjanir og álver snemma árs 2002.
Verði niðurstaðan sú að efna til
framkvæmdanna gæti starfsemi
hafist á árinu 2006. Þessi tímaáætl-
un byggist á því að skýrsla um mat
á umhverfisáhrifum virkjananna
verði send Skipulagsstofnun í mars
á næsta ári og kostnaðaráætlun
ásamt drögum að orkusamningi
liggi fyrir í september á því ári.
Þessi tímaáætlun miðast við aiT
allur undirbúningur gangi snurðu-
laust fyrir sig, en í yfirlýsingunni er
gert ráð fyrir að verkið kunni að
tefjast ef einstakir undirbúnings-
þættir taka lengri tíma en ætlað var.
Á þessari stundu verður ekkert sagt
um það, hvort tímaáætlunin stenst,
en kostað verður kapps um það án
þess að það komi niður á faglegum
vinnubrögðum við undirbúninginn.
Ný Iög - ný vinnubrögð
Með nýjum lögum um mat á um-
hverfisáhrifum hefur verið lagður
grunnur að nýjum vinnubrögðum
við undirbúning framkvæmda hér á
landi.
Fyrirhuguð Kárahnjúkavirkjun
er langstærsta framkvæmd, sem
hér hefur verið undirbúin. Lands-
virkjun hefur ákveðið að vinna að
mati á umhverfisáhrifum virkjunar-
innar á eins opinn hátt og kostur er.
Það er gert til að fá sem víðtækastar
upplýsingar um mikilvæga um-
hverfisþætti á áhrifasvæði virkjun-
arinnar, en einnig til að upplýsa al-
menning um framvindu málsins og
koma þannig í veg fyrir ástæðulausa
árekstra síðar meir. Seint verða
menn sammála hér á landi um virkj-
anir og orkufrekan iðnað, en sátt
ætti að geta ríkt um þau vinnor'
brögð, sem viðhöfð eru við undir-
búning ákvörðunarinnar.
Þeim, sem vilja fylgjast með
matsferlinu og öðrum virkjunarund-
irbúningi og fá frekari upplýsingar,
er bent á slóðina: www.karahnjukar.
Höfundur er forstjári
Landsvirkjunar.
• •
NY VINNUBROGÐ
VIÐ UNDIRBUNING
VIRKJANA
SKOMMU fyrir
þinglok á sl. vori voru
samþykkt ný lög um
mat á umhverfisáhrif-
um. I örstuttu máli má
segja að með nýju lög-
unum sé stefnt að víð-
tæku samráði milli
framkvæmdaaðila,
skipulagsstjóra og um-
sagnaraðila um fram-
kvæmdir frá upphafi.
Þetta er m.a. gert til að
tryggja að fram-
kvæmdaaðili eyði ekki
miklum fjármunum í
undirbúning fram-
kvæmda í langan tíma
án þess að fá vilyrði
um að framkvæmdin verði heimiluð.
Nýju lögunum verður fylgt við mat
á umhverfisáhrifum þeirra virkjana,
sem ætlað er að framleiða rafmagn
fyrir álver í Reyðarfirði.
Breytt áform - meiri áhugi
Sem kunnugt er hefur orðið nokk-
ur breyting á virkjunaráformum á
Austurlandi. I viðræðum stjórn-
valda, álversfjárfesta og virkjunar-
aðila fyrr á þessu ári kom í ljós að
fjárfestarnir lögðu mikla áherslu á
að fá haldgóða tryggingu fyrir því
að geta stækkað álverið úr 120 þús.
tonna í allt að 480 þús. tonna árs-
framleiðslu. Þegar úrskurður skipu-
lagsstjóra um mat á umhverfisáhrif-
um álversins var ógiltur í lok
febrúar varð ljóst að upphaf fram-
kvæmda mundi frestast um ár af
þeim sökum. I framhaldi af því
komu fram þau sjónarmið af hálfu
fjárfestanna að rétt væri að athuga
hagkvæmni þess að hefja rekstur
stærra álvers en áður var ætlað. Af-
leiðing þessara nýju hugmynda eru
breytt virkjunaráform, sem byggj-
ast á virkjun Jökulsár á Brú við
Kárahnjúka með veitu frá Jökulsá í
Fljótsdal.
Hinn 24. maí undirrituðu aðilar
málsins yfirlýsingu og samkvæmt
henni er stefnt að því að lokaákvörð-
un um hvort ráðist verður í fram-
kvæmdir verði tekin snemma árs
2002, þannig að hægt verði að hefja
starfrækslu álvers árið 2006. Er þá
gert ráð fyrir að álverið hafi a.m.k.
360 þús. tonna ársframleiðslugetu
og verði byggt í tveimur áföngum.
Ljóst er að fjárfestarnir sýna
mikinn áhuga á verkefninu og hafa
staðfest það með ýmsum hætti. í
fyrsta lagi liggur nú fyrir samning-
ur milli Hæfis hf. og Hydro Alumin-
ium, þar sem þeir skipta milli sín
undirbúningskostnaðinum. I öðru
lagi hefur Hydro Aluminium lýst
áhuga á stærri eignarhlut í álverinu
en áður hafði komið fram. I þriðja
lagi mun undirbúningskostnaður
fjárfestanna verða verulegur án
þess að trygging sé fyrir að sá
kostnaður skili sér aftur. Slík
áhætta lýsir því að þeim er alvara.
Undirbúningskostnaður
Landsvirkj unar
Kostnaður vegna virkjunarund-
irbúnings Kárahnjúkavirkjunar er
eðli málsins samkvæmt afar mikill
enda er um geysistóra framkvæmd
að ræða. Það sem réttlætir það að
lagt sé út í slíkan kostnað er að
nauðsynlegt er að fyrir liggi hvaða
orka er til ráðstöfunar
og hver framleiðslu-
kostnaðurinn er. Mat á
umhverfisáhrifum
þessa virkjunarkosts
er í raun óháð því hver
er væntanlegur kaup-
andi.
Stjórn Landsvirkj-
unar fjallaði nýlega um
kostnaðaráætlun
vegna undirbúnings
Kárahnjúkavirkjunar
með veitu úr Fljótsdal.
Þótt til sé veruleg
þekking á vatnasvæði
Jökulsár í Fljótsdal og
náttúrufari svæðisins
er nauðsynlegt að
rannsaka fjölmarga þætti vegna
nýrra virkjunaráforma. Gert er ráð
fyrir að kostnaður Landsvirkjunar á
þessu og á næsta ári vegna rann-
sókna og undirbúningsframkvæmda
verði u.þ.b. 1,1 milljarður og þar af
kosta rannsóknir, sem nauðsynlegar
eru vegna mats á umhverfisáhrifum,
240-250 m.kr. Þessar rannsóknir
eru unnar af íslenskum vísinda-
mönnum og skila þjóðinni verð-
mætri grunnþekkingu á náttúrufari
landsins, þótt gert sé ráð fyrir að
rannsóknirnar verði eign fram-
kvæmdaaðila.
Vegna þess hve lítil grunnþekk-
ing er til um náttúrufar á íslandi
verða virkjunaraðilar og þar með
raforkukaupendur að bera kostnað,
sem annars staðar er greiddur af
skattborgurum. Landsvirkjun hefur
þannig í gegnum tíðina kostað
kortagerð og rannsóknii’, einkum á
hálendi og jöklum landsins og þær
hafa gagnast miklu fleiri aðilum en
þeim sem hafa beinan hag af virkj-
unum.
Mörg mál óleyst
Þótt virkjunaráform norðan
Vatnajökuls séu komin á góðan rek-
spöl er málið síður en svo í höfn.
Undirbúningsvinnan hefur gengið
samkvæmt áætlun og matsáætlanir
liggja fyrir vegna virkjunar og ál-
vers. Gert er ráð fyrir að hægt sé að
leggja fram skýi-slu um mat á um-
hverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjun-
ar á fyrri hluta næsta árs.
Nokkur vandi er að tengja saman
byggingu virkjunar og álvers og
samræma framkvæmdaáfanga. Frá
sjónarhóli virkjunaraðilans skiptir
máli í fjárhagslegu tilliti, að strax
frá upphafi sé gengið út frá því að
álverið verði fljótlega stækkað úr
240 þús. tonna ársframleiðslugetu í
360 þús. tonna álver. Ástæðan er sú
að æskilegt er að byggja stíflur við
Kái'ahnjúka í endanlegri hæð og
nauðsynlegt er að hafa aðveitugöng-
in nægilega víð til að taka við vatni
úr Fljótsdalsveitu. Orkuframleiðsla
Kárahnjúkavirkjunar með veitu úr
Fljótsdal fellur vel að orkuþörf 360
þús. tonna álvers.
Þá má ekki líta fram hjá því að
forsenda virkjunarframkvæmdanna
er að þær skili nægilegri arðsemi.
Raforkuverð liggur ekki fyrir á
þessari stundu, en samningsaðilar
hafa skipst á ýmsum upplýsingum
til að geta nálgast niðurstöðuna í
samningum. Miklu máli skiptir
hvort Landsvirkjun stendur ein að
framkvæmdunum eða hvort stofnað
Friðrik
Sophusson