Morgunblaðið - 02.09.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 65
Morgunblaðið/Sverrir
A myndinni má sjá sýnishorn af því sem í boði er á bdkaútsölunni í versl-
uninni Frábært verð en þar eiga bækurnar að seljast á 50 kr.
Bækur seldar á 50 krónur
RITFANGAVERSLUNIN Frábært
verð, Langholtsvegi 42, verður
með útsölu á bókum 2.-3. septem-
ber og 9.-10. september.
I boði er 20-30 ára gamall lag-
er og verða t.a.m. seldar bækur
eftir Halldór Kiljan Laxness,
ferðafélagsbækur, bækur Árna
Óla og margir fleiri titlar og allt
verður þetta selt á 50 kr. stykkið.
Tilgangurinn er að rýma fyrir
nýjum vörum og gildir tilboðið
einungis milli kl. 11 og 17.
I versluninni er einnig að finna
ódýr pennaveski, gjafapappír og
ýmislegt fleira.
Eigandi verslunarinnar er Guð-
rún Lára Guðmundsdóttir.
Fyrirlestur
í verk-
fræðideild
DR. DAVID A. Landgrebe, prófess-
or í rafmagns- og tölvuverkfræði við
Purdue University í West Lafay-
ette, Indiana; heldur tvo fyrirlestra
við Háskóla Islands dagana 4. og 6.
september.
Fyrri fyrirlesturinn, Fjarkönnun
sem verkfræðilegt viðfangsefni, er í
boði rektors Háskóla íslands, Land-
mælinga íslands og hinnar nýstofn-
uðu Islandsdeildar alþjóðlega raf-
magns- og rafeindaverkfræði-
félagsins IEEE. Þessi fyrirlestur er
almenns eðlis og verður haldinn í
hátíðarsal Háskóla íslands mánu-
daginn 4. september kl. 14.
Seinni fyrirlesturinn, Notkun
merkjafræðiaðferða til greiningar
fjarkönnunargagna með mörgum
tíðniböndum, er í boði rafmagns- og
tölvuverkfræðiskorar Háskóla ís-
lands og nemendadeildar IEEE á
Islandi. Sá fyrirlestur verður hald-
inn í húsakynnum Verkfræðideildar
Háskóla íslands (VR-II), stofu 157,
miðvikudaginn 6. september kl.
16:15.
Allir eru velkomnir á bæði erind-
in.
Gengið
að Glym
ÁTTHAGASAMTÖK Héraðsmanna
standa fyrir gönguferð laugardaginn
2. september. Verður gengið að foss-
inum Glym í Hvalfirði og er þetta
síðasta gönguferð sumarsins.
Lagt verður af stað frá Shellstöð-
inni í Smáranum kl. 10.30. Farið
verður á einkabílum og reynt að
samnýta bíla. Fararstjóri er Oddur
Sigfússon.
■ TIMARITIÐ Sumarhúsið er gef-
ið út af Riti og rækt í Mosfellsbæ
og hefur síðastliðin átta ár verið
dreift frítt til allra sumarbústaða-
eigenda sem skráðir eru hjá Fast-
eignamati ríkisins. Fyrstu árin
voru á skránni um 4-5 þúsund
sumarhúsaeigendur en þeim hefur
fjölgað mikið og eru í dag liðlega
8000. Nýjasta tölublaðið er það
síðasta sem dreift er frítt. Af því
tilefni er áskriftasamkeppni í
gangi þar sem í boði eru vinningar
sem dregnir verða úr hjá Bylgj-
unni 15. september nk. Blaðið
miðlar þekkingu, reynslu og upp-
lifun, bæði leikna og lærða, um allt
er varðar dvöl í sumarhúsum, seg-
m í fréttatilkynningu. Útivistar-
möguleikum í umhverfi bústaða
eru gerð skil, fjallað um gróður,
húsbyggingar, öryggismál og inn-
anstokksmuni ásamt viðtölum við
sumarhúsaeigendur.
Sunnudags-
göngur
Utivistar
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir til
tveggja gönguferða á sunnudaginn
3. september kl. 9.
Um er að ræða gönguferð á
Hlöðufell sem er 8. fjall í fjallasyrpu
Útivistar. Ekið verður að Hlöðuvöll-
um og gengið þaðan á fjallið.
Einnig er í boði gönguferð um
Brúarárskörð og verður gengið frá
Rótarsandi um skörðin niður í Mið-
húsaskóg.
Brottför er frá BSÍ kl. 9 og eru all-
ir velkomnir í ferðirnar.
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Leifi
Erni Leifssyni, forstöðumanni sölu-
og dreifingarsviðs Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík, um mynd sem
birtist með frétt í Morgunblaðinu 1.
september sl. með yfirskriftinni
„Umræða um orkudrykki góð fyrir
foreldra":
„Orkudrykkurinn Leppin inni-
heldur engin örvandi efni svo sem
koffín eða Guarana. Orkan í Leppin
er samansett úr flóknum kolvetnum
(fjölsykrum) sem draga úr sykur-
löngun því þau fara hægt út í blóðið
og halda þannig magni blóðsykurs-
ins jöfnu. Leppin veitir því langvar-
andi orku en er ekki „orkuskot“ í
líkingu við þá orkudrykki sem í
greininni eru nefndir. Orkan í Lepp-
in er raunveruleg og langvarandi,
hún hefur jákvæð áhrif á einbeit-
ingu og minnkar líkur á þeim óþægi-
legu sveiflum í blóðsykri sem gerir
fólk yfirspennt og kraftlaust á víxl.
Leppin hentar öllum aldurshóp-
um, jafnt börnum sem fullorðnum.
Drykkurinn inniheldur engan hvít-
an sykur og engin rotvarnarefni.
Sykurinnihald í Leppin er eingöngu
'A hluti þess sykurmagns sem er að
finna í sætum gosdrykkjum.
Á þessum forsendum tel ég Lepp-
in ekki eiga neitt sameiginlegt með
þeim drykkjum sem grein Mbl. og
myndataka gefa tilefni til að ætla.“
Blátindsfélag
stofnað í Eyjum
ÁHUGAMANNAFÉLAG um end-
urbyggingu vélbátsins Blátinds
verður stofnað í Vestmannaeyjum í
dag, laugardaginn 2. september, kl.
15 við vélbátinn Blátind sem geymd-
ur er í gamla slippnum í Eyjum.
Blátindur var byggður í Vest-
mannaeyjum fyrir miðja öldina og er
eitt síðsta eintakið af heimasmíðuð-
um fiskibátum af þessari stærð.
Hugmyndin er að koma bátnum í
sýningarhæft ástand.
Aherslu á
jafnréttismál
fagnað
KVENRÉTTINDAFÉLAG íslands
hefur sent frá sér eftirfarandi álykt-
un:
„I kjölfar ákvörðunar félagsmála-
ráðherra að flytja stjórnsýslustofnun
um jafnréttismál til Akureyrar og
stofna Jafnréttisstofu hvetur fram-
kvæmdastjóm Kvenréttindafélags
íslands (KRFI) stjórnvöld til að auka
fjárframlög til jafnréttismála þannig
að breytt staðsetning komi ekki niður
á starfseminni og málaflokknum.
Skrifstofa jafnréttismála í Reykjavík
hafði yfir miklum mannauði að ráða
sem ekki verður lengur til staðar og
því ljóst að staðsetning krefst umtals-
verðs kostnaðar við þjálfun nýrra
starfsmanna sem og aukins ferða-
kostnaðar.
Framkvæmdastjómin fagnar
þeirri áherslu sem stjómvöld hafa
lagt á jafnréttismál undanfarin miss-
eri og gerir ráð fyrir framhaldi á því
enda hefur jafnri stöðu karla og
kvenna ekki verið náð hér á landi.
KRFI lýsir sig, hér eftir sem hingað
til, reiðubúið til samstarfs við stjóm-
völd við stefnumótun í málaflokkn-
um.
Framkvæmdastjórn KRFÍ fagnar
sérstaklega nýjum lögum um
fæðingarorlof og telur þau vera spor í
jafnréttisátt þar sem staða foreldra
er jöfnuð, bæði á heimilinu og á
vinnumarkaði. Framkvæmdastjómin
telur jafnframt að nauðsynlegt sé að
bæta rétt bama einstæðra foreldra
til samvista við foreldra sína.
KRFÍ hefur átt mjög gott samstarf
við starfsmenn skrifstofu jafnréttis-
mála og er þeim þakkað sérstaklega
fyrir _ það á þessum tímamótum.
KRFÍ væntir áframhaldandi góðs
samstarfs við starfsmenn Jafnréttis-
stofu og óskar þeim velfamaðar í
þeirra mMvægu störfum."
Kennsla í
hringdönsum
KENNSLA erlendra hringdansa er
að byrja 4. september í safnaðar-
heimili Vídalínskirkju í Garðabæ.
Kennari verður Lowana Veal, en hún
hefur dansað og kennt hringdans í
mörg ár.
Tímarnir em á mánudögum milli
20.30 og 22. Hægt er að koma einu
sinni eða alltaf, og ekki er nauðsyn-
legt að vera í pömm. Tíminn kostar
200 kr.
„Hringdansar geta verið hefð-
bundnir eða óhefðbundnir. Hefð-
bundnir dansar hafa verið notaðir í
aldaraðir til að halda upp á veigamikl-
ar breytingar í lífi einstaklinga og
þjóðfélaga, t.d. brúðkaup eða ræktun
lands. Hefðbundnu dansarnir koma
frá mörgum löndum, en flestir em frá
Grikklandi, ísrael, Búlgaríu, Rúmen-
íu, Makedoníu, Rússlandi, Serbíu og
Frakklandi. Dansar sígauna em líka
til,“ segir í fréttatilkynningu.
44. starfsár
Dansskóla
Heiðars
DANSSKÓLI Heiðars Ástvalds-
sonar er nú að hefja sitt 44.
starfsár. Eins og undanfarin ár
verða kenndir allir venjulegir
samkvæmisdansar, freestyle,
salsa, línudansar, break og fieira.
Aðalkennarar verða auk Heiðars.
Svanhildur Sigurðardúttir, Harpa
Pálsdúttir og Ingibjörg Rúberts-
dúttir, allt kennarar með áratuga
reynslu. Break-kennsluna mun
Ásgeir Þúrsson annast, margfald-
ur íslandsmeistari, og Guðmund-
ur Guðmundsson sem hlaut annað
sæti. Erla Haraldsdúttir mun sjá
um freestyle og salsakennsluna.
Auk kennslu í Reykjavík er
skúlinn með kennslu á Suðurnesj-
um, Mosfellsbæ og kennarar skúl-
ans annast skyldukennslu í
nokkrum grunnskúlum. í ár eins
og undanfarin 43 ár hafa kennar-
ar skúlans sútt ráðstefnur erlend-
is og eru því eins og alltaf með
það nýjasta úr heimi dansins, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Aðalstöðvar skúlans eru í
Brautarholti 4.
Frjálslyndi
flokkurinn
Stjórnmála-
fundur á
Patreksfirði
FRJÁLSLYNDI flokkurinn verður
á ferð um sunnanverða Vestfirði á
mánudag og boðar til almenns
stjórnmálafundar á Kaffi Vatneyri á
Patreksfirði mánudagskvöldið 4.
september kl. 20.30.
Stuttar framsögur flytja Guðjón
A. Kristjánsson og Sverrir Her-
mannsson. Að því loknu verða um-
ræður. Allir eru velkomnir.
Afhenti
trúnaðarbréf
HELGI Ágústsson sendiherra af-
henti 31. ágúst Moshe Katzav, for-
seta Israels; trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Islands í Israel með að-
setur í Kaupmannahöfn.
LEIÐRÉTT
Rétt föðurnafn
I frétt um opnun Jafnréttisstofu á
Akureyri og umsóknir um ráðgjafæ---
störf hjá stofunni var rangt farið með
föðumafn eins umsækjandans, Ingólfs
Gíslasonar, en hann var sagður Guð-
mundsson í bréfi með nöfnum um-
sækjenda sem barst Morgunblaðinu.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Rangur mánuður
I frétt í Morgunblaðinu í gær um
hópferð Fyrsta flugs félagsins var
sagt að hópferð á afmælissýningu á
Duxford-flugminjasafnið yrði farið
8.-11. ágúst en átti að sjálfsögðu að
vera september. Beðist er velvirð--* -
ingar á mistökunum.
Röng fjárhæð
I frétt um afkomu Landssíma Is-
lands hf. í gær var rangt farið með
upphæð sérstakrar afskriftar vegna
viðskiptavildar á fyrri hluta árs í
fyrra. Sagt var að upphæðin hafi ver-
ið 197 milljónir króna en hið rétta er
að þessi sérstaka afskrift nam 397
milljónum króna. Útreikningar í
tengslum við hina sérstöku afskrift í
ár og í fyrra voru þó réttir. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
rnbl.is
|g||g|r^Í^ %
í tilefni af 2ja ára afmæli Föndru
bjóðum við 10 Delta liti að eigin vali
m fyrir aðeins kr. 1.900.-
Titboðið gildir í septembermánuði.
* 4
*
ymis
önnur ótrúleg
afmælistilboð.
Langtiolisve^ur 111 Sími 558 6500
www.fondra.is