Morgunblaðið - 02.09.2000, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 02.09.2000, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 73 — ............ — ■■■ ! T j Coldplay er heitasta hljómsveitin í Bretlan Aldreiof Coldplay er að margra mati spútniksveit ársins í bresku rokki. Ólafur Páll Gunnarsson spjall- aði við tvo af meðlimum sveitarinnar skömmu áður en þeir stigu á svið á Glastonbury-tónlistar- hátíðinni fyrr í sumar. SAMKVÆMT vinsældalistum, út- varpsstöðum og öðrum fjölmiðlum í Bretlandi um þessar mundir er hljómsveitin Coldplay ein af þeim mest spennandi í dag. Coldplay er kvartett skipaður tveimur Englendingum, einum Skota og einum frá Wales - einskon- ar popp-rokk hljómsveit sem var stofnuð fyrir þremur árum vegna þess að nokkrir vinir höfðu ekkert betra að gera þegar þeir voru ekki í háskólanum í London sem þeir kynntust í. Fyrsta plata sveitarinnar Para- chutes kom í búðir á dögunum og gerði sér lítið fyrir og settist í toppsæti breska vinsældalistans. Það er talað um Coldplay sem „næstu“ Travis en auðvitað neita meðlimir hljómsveitarinnar öllum slíkum sögum og segja að Coldplay sé bara Coldplay. Áhrif úr öllum áttum Strákarnir sem eru á aldrinum 21-23 ára hafa líka fengið að heyra það í fjölmiðlum að þeir hljómi eins- og „nettur" Jeff Buckley og þess vegna fannst mér liggja beinast við að spyrja þá Johnny gítarleikara og Guy bassaleikara þegar ég hitti þá fyrir tónleika sveitarinnar á Glastonbury-tónlistarhátíðinni á dögunum hverjh’ væru þeirra helstu áhrifavaldar í tónlistinni. Johny: „Þeh- eru svo margir, ég hlusta t.d heilmikið á Neil Young - Bob Dylan og Nick Drake, en líka bönd einsog Leftfield og Massive Attack." _ Guy: „Ég hlusta á allt mögulegt og það eina sem við í hljómsveitinni eig- um sameiginlegt er áhugi á allskyns tónlist.“ - Hver er uppáhaldsbassaleikar- inn,þinn Guy? „Ég er hrifnastur af gömlu Tamla - Motown bassaleikurunum, td. Bootsy Collins.“ - Þar sem þú nefndir Neil Young áðan, Johnny, geri ég ráð fyrir að hann sé einn af uppáhaldsgítarleik- urunum þínum. „Já hann er einn af þeim, hann er frábær.“ Coldplay eru Chris Martin söngvari, Goy Berryman á bassa, Jonny Buckland gítar og Will Champion á trommur. CH, ta* ÖJ GhMo— Þeir voru búnir að vera á Glastonbury frá því daginn áður, höfðu sofið ágætlega um nóttina, eina sjö tíma eða svo, á hóteli í bæn- um Glastonbury sem er skammt frá hátíðarsvæðinu. -Hvernig er þetta vegalíf sem tónleikaferðir eru og að fá að spila fyrir svona marga eins og á Glastonbury? Johny: „Við höfum aldrei spilað áður fyrir svona marga þannig að þetta er dálítið geggjað.“ Guy: „Að vera á tónleikaferðalagi getur tekið á, það fer mikill tími i bið og almennt hangs sem getur verið ansi leiðinlegt en við elskum að spila og það er hálfgerð synd að minnstur tíminn fer í það, en þetta er samt þess virði.“ Plata Coldplay var ekki komin út þegar þetta spjali fór fram og ég spurði strákana hvernig hún væri og hvemig þeim þætti hún. Johnny: „Góð.“ (hlátur) Guy: „Hún er frábær, meiriháttar. Það em margir stílar í gangi, hún er mjög „lífræn“ og upplífgandi." Johnny: „Dálítið þung- lyndisleg á köflum en við vonum að hún sé ekki of mik- ið þannig." Enginn tími fyrir drauma - Nú er búin að vera mikil eftir- vænting vegna plötunnar ykkar og fjölmiðlar búnir að fjalla mikið um ykkur síðustu mánuði - fínnst ykkur álagið of mikil? Johnny: „Nei, vegna þess að áður en við fengum þessa miklu athygli Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Fantasi Design í Gerðubergi FANTASIDESIGN heitir sam- norræn sýning á hönnun og upp- finningum barna og unglinga sem opnuð verður í Gerðubergi f dag, laugardag, kl. 14. Á sýningunni eru hlutir frá Finn- landi, Svíþjóð, Danmörku og ís- landi. Sýningargripir eru rúmlega 50 og þar af 18 íslenskir. Á sýningunni má sjá hluti eins og bakteríusfmann frá Danmörku en hann gerir tjáskipti við bakteríur möguleg og er þannig mikilvægt innlegg í læknavísindin. Ferðastóll- inn frá Finnlandi ferðast með mann hvert á land sem er og minnir þann- ig óneitanlega á fijúgandi teppi æv- intýranna en stóllinn er náttúrlega mun þægilegri. Bananaflysjarinn frá Svíþjóð og laukgleraugun frá ís- landi - eru afskaplega þarfir hlutir í eldhúsið, sem ættu að vera til á hveiju heimili. Sýningin hefur þegar verið sett upp í Kalmar í Svíþjóð og í Helsinki þar sem hún var hluti af dagskrá Helsinki - menningarborgar Evrópu árið 2000. Þema Fantasi Design er hönnun barna fyrir nánasta umhverfí sitt. Iiönnun og hugmyndavinna barn- anna var unnin á vorönn 1999 og var öllum grunnskólanemendum á fslandi heimil þátttaka um leið og þau tóku þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda, en Fantasi Design hefur verið í nánu samstarfi við Nýsköpunarkeppnina. í apríl 1999 var hugmyndum skilað inn og dómnefnd valdi úr þeim áhugaverð- ustu tillögurnar sem sendar voru til Kalmar í Svíþjóð haustið 1999 þar sem norræn dómnefnd skipuð hönn- uðum frá hverju landi valdi þau rúmlega 50 verk sem prýða sýning- una úr þeim rúmlega 400 hugmynd- um sem bárust frá Danmörku, Finnlandi, Islandi og Svíþjóð. Fjölmörg fslensk fyrirtæki hafa styrkt sýninguna með gerð frum- gerða af uppfinningum íslensku barnanna. Þeirra á meðal eru: Blikkás, Barnasmiðjan, Gks hús- gögn, Gull- og silfursmiðjan, Rafhit- uno.fi. Fantasi Design er hluti af dag- skrá Reykjavíkur - menningar- borgar Evrópu árið 2000. Sýningin stendur til 30. septem- ber. fjölmiðlanna vorum við sjálfir búnir að setja á okkur heilmikla pressu og vorum ákveðnir í að gera góða plötu þannig að við fundum engan mun þegar boltinn byrjaði að rúlla.“ Guy: „Við settum markið hátt og höfum ekki látið fjölmiðlana hafa nein áhrif á okkur.“ -Finnst ykkur eins og gamall draumur hafi ræst? Guy: „Ég held að enginn okkar hafi verið að spá í það vegna þess einfaldlega að það hefur enginn tími gefist til þess, það er svo mildð að gerast. Það væri gaman að geta sest aðeins niður og fara yfir þennan tíma í huganum, en jú, auðvitað er þetta einsog draumur að rætast.“ Johnny: „Ég vil ekki vera að hugsa um hvað þetta sé nú allt frá- bært að svo komnu máli - rússíban- inn okkar er bara nýfarinn af stað. Við förum yfir þetta alltsaman þegar við erum lentir." Coldplay spilaði líka á Glaston- bury í fyrra og þá lentu strákarnir í smáævintýri. Guy: „Við komum inn á svæðið á kolröngum stað, hálftíma áður en við áttum að spila og þurftum að hlaupa yfir endilangt hátíðarsvæðið og bein- ustu leið uppá svið. Við vorum laf- móðir þegar við byrjuðum að spila, blautir af svita og fengum krarnpa." Johnny: „Ég hef ekki hlaupið svona mikið síðan í skóla.“ - Hvernig verða lögin ykkar til ? Guy: „Það er misjafnt. Stundum kemur Chris (söngvari) með grunn eða laglínu sem við pijónum svo við en önnur lög verða til frá grunni á æfingum eða þegar við gerum hljóðprufur fyrir tónleika og tíminn sem það tekur lag að verða til er mjög misjafn. Lagið „Yellow“ varð t.d. til á mjög skömmum tíma á með- an önnur eru marga mánuði að gerj- ast.“ - En um hvaðerlagið„Yellow"? Guy: „Það fjallar um tryggð^ tryggð við einhvern eða eitthvað sem þér þykir vænt um, og almenna gleði.“ - Eruð þið með einhver skilaboð til íslendinga? Guy: „Sjáumst vonandi fljótlega, okkur langar mikið að koma og spila á íslandi og íslendingar eiga marga frábæra tónlistarmenn einsog Björk, Bellatrix og fleiri.“ - Ég held að þið ættuð að koma áður en þið verðið of„frægir“! Johnny: „Við verðum aldrei of frægir til að koma til íslands.“ JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 2 -10. SEPTEMBER 2000 http://%o. to/roykjcivikjazz I dag laugardag 2. sepf. IÞvP-bÞ | l'fín I f\'!úVil • ■ . ^ fi'K € sjó nonar ó vefsídu A morgun sunnudag 3. sept. r. • S Kaffl Reykjavík frsegir fyrir Island
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.