Morgunblaðið - 12.09.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐJD
1“
FRETTIR
Aðstoðaði
við fæðingu
í gegnum
síma
SUMIR eru hreint ekki á að láta
bíða eftir sér og má með sanni segja
að sú hafi verið raunin hjá stúlku-
bami sem kom í heiminn laust fyrir
hálfsex í gærmorgun. Að sögn Krist-
jáns Hoffman, varðstjóra hjá Neyð-
arlínunni sem aðstoðaði við fæðing-
una, hringdi faðirinn á sjúkrabíl
vegna þess _að móðirin hafði misst
legvatnið. „Ég boðaði sjúki-abfl eins
og venjulega og hann leggur af stað.
Þá hringir pabbinn aftur og barnið
þá bara komið í heiminn, það gerðist
bara einn, tveir og þrír. Þetta er um
sjö mínútum eftir fyrri hringinguna.
Ég var svo með hann í nokkrar mín-
útur í símanum og leiðbeindi honum.
Sagði honum að hreinsa úr vitunum
á stúlkunni og um leið og hann gerði
það þá upphófst þetta rosalega öskur
þannig að hún tók vel við sér stúlkan,
þetta verður áreiðanlega óperusöng-
kona.“ Kristján segist svo hafa leið-
beint um framhaldið, t.d. að láta
naflastrenginn bíða þar til sjúkra-
bfllinn var kominn og hlúa vel að
móður og dóttur. Kristján segir föð-
ur stúlkunnar hafa staðið sig aðdá-
anlega vel og meðtekið vel fyrirmæl-
in sem hann gaf honum, sem hafi
verið mjög mikilvægt. Kristján hefur
hjálpað til við tíu til fímmtán fæðing-
ar. Hann hlaut sína þjálfun hjá 911 í
Bandaríkjunum og þar var m.a. farið
yfir aðstoð við fæðingu.
„Þetta gekk ótrúlega vei. Sjúkra-
bíllinn kom líka nokkrum mínútum
síðar þannig að þetta var eins og best
varð á kosið,“ segir Kristján sem
hefur aðstoðað við fæðingu við mun
erfiðari aðstæður þar sem lengra er í
hjálp en í miðri Reykjavík. „Þetta er
mjög gefandi starf þegar svona vel
gengur. Það veitir manni auðvitað
mikla gleði að hjálpa nýjum einstakl-
ingi í heiminn."
Lést
í fjárleit
MAÐURINN sem lést í fjárleit í
Ófeigsfirði á föstudag hét Sigurjón
Guðfinnsson, til heimilis að Reykási
49, Reykjavík. Sigurjón var 41 árs,
tölvunarfræðingur, fæddur 18. októ-
ber 1968. Hann lætur eftir sig eigin-
konu og þrjú börn, þriggja, níu og tíu
ára.
Áhöfn Islendings vel tekið í Boston og nágrenni
Ljósmynd/ Kathy Sharp Frisbee
Ethel Kennedy, ekkja Roberts Kennedy, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, bauð áhöfn Islendings til móttöku. Hér er hún
ásamt Einari Benediktssyni sendiherra og Gunnari Marel Eggertssyni,
eiganda víkingaskipsins.
Þáðu heimboð
Ethel
Kennedy
í Cape Cod
ÁHÖFN víkingaskipsins íslendings
hefur verið grfðarlega vel tekið af
íbúum Boston-borgar og nágrennis
í Bandaríkjunum en þar verður
skipið fram á fimmtudag. Pétur Þ.
Óskarsson, viðskiptafulltrúi hjá
Viðskiptaþjónustu utanríkisráðu-
neytisins í New York, segir að
heimsókn víkingaskipsins veki
mikla athygli og áhugi almennings
á að berja skipið augum sé mikill.
Islendingur hefur verið í höfn í
Boston síðan á fimmtudag en að
sögn Péturs hefur áhöfnin haft í
nógu að snúast, aðsókn að skipinu
verið mikil og eins hafi þurft að
sinna mörgum boðum borgaryfir-
valda. „Svo skemmtilega vill til að
Ethel Kennedy, ekkja Roberts
Kennedys, fyrrverandi dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, býr á
þessum slóðum enda eru þetta höf-
NÆR 150 fleiri erlendir gestir
komu til landsins á hverjum degi
fyrstu átta mánuði ársins, að með-
altali, en á sama tíma í fyrra. Alls
lögðu leið sína tii landsins á þessu
tímabili 233.939 erlendir gestir en
voru á sama tíma í fyrra 198.686 og
er þetta fjölgun um 35.000 farþega
eða 18%. Þessu til viðbótar koma
nálægt 20 þúsund viðdvalarfarþeg-
ar með skemmtiferðaskipum.
Tekjur af erlendum ferðamönnum
hafa sömuleiðis aukist um 12,7%,
voru 11.729 milljónir króna fyrstu
Bryndreki
til björgun-
arstarfa í
• •
Oræfasveit
ÞÝSK stjórnvöld hafa gefið björgun-
arsveit félagsins Kára í Oræfum
brynvarinn hjóladreka eins og not-
aður er í hernaði og af þýsku lög-
reglunni þegar óeirðir brjótast út.
Tækið er lítið notað og í góðu standi.
Þar sem um hernaðartæki er að
ræða var það form haft á að þýska
innanríkisráðuneytið afhenti bryn-
drekann íslenska utanríkisráðuneyt-
inu sem síðan framseldi og afhenti
björgunarsveitinni hann til afnota.
Björgunarsveitin í Öræfum er
staðsett á svæði þar sem vindur get-
ur orðið svo öflugur að klæðningin á
þjóðvegi 1 flettist af, rúður brotna í
bílum og þeir geta fokið út af vegin-
um og oltið. Af þessum sökum eru
uðstöðvar fjölskyldunnar. Hún hef-
ur mikinn áhuga á komu Islcnd-
ings og ákvað því að bjóða
áhöfninni til móttöku ásamt fleiri
góðum gestum á sunnudag. Þetta
var geysilega skemmtileg stund og
Ethei ræddi heilmikið við íslensku
sex mánuði ársins, samkvæmt töl-
um frá Seðlabanka íslands, en
10.404 milljónir króna á sama tíma
í fyrra. Hlutur fargjalda í tekju-
num var 5.038 milljónir kr„ sem er
6,2% meira en í fyrra, og hlutur
eyðslu á íslandi var 6.691 milljónir
kr. sem er 18,1% aukning.
Fargjaldatekjur aukast m.ö.o.
mun minna en aðrar tekjur. Magn-
ús Oddsson ferðamálastjóri segir
að þetta sýni það að fargjöld hafi
farið hlutfallslega lækkandi og auk-
inn hlut farþega utan háannatíma.
menn oft í hættu og legið hefur við
stórslysum á hverjum vetri vegna
þessa, segir í fréttatilkynningu frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Mjög erfitt geti verið að varast þessa
hættu og stundum fari vindur yfir 60
metra á sekúndu í verstu hviðum.
Fulltrúar björgunarsveitarinnar
og starfsmenn Landsbjai'gar hafa
skipverjana og reyndist vita heil-
margt um sögu lands og þjóðar,“
bætir hann við.
Það var Carolyn Croft hjá landa-
fundanefnd Hvíta hússins sem
kynnti áhöfn Islendings fyrir Ethel
Kennedy sem býr í Cape Cod.
Bandaríkjamenn eru fjölmenn-
astir erlendra ferðamanna, alls
höfðu 37.411 Bandaríkjamenn kom-
ið til landsins, 33.721 Breti og
29.113 Þjóðverjar.
Magnús segir að ástæða þess að
tekjuaukningin er ekki hlutfalls-
lega jafnmikil og fjölgun ferða-
manna sé sú að dvalartími gest-
anna sé styttri þar sem aukningin
sé meiri fyrri hluta árs. Þegar
aukningin verður mikil utan há-
annatíma er meðaldvölin í landinu
um fimm dagar.
lengi rætt um að fá öflugt tæki til að
aðstoða fólk í slíkum hremmingum.
Þýska sendiráðið hér á landi tók fyr-
irspurnum um slíkan búnað vel og
hafði það milligöngu um að útvega
bryndrekann. I síðasta mánuði fóru
tveu- félagar í björgunarsveitinni til
Liibeck í Þýskalandi á námskeið í
viðhaldi og meðferð tækisins.
Tölvunefnd
Yfír 600
mál það
sem af
er ári
YFIR SEX hundruð ný erindi
hafa borist tölvunefnd það sem
af er þessu ári en til saman-
burðar bárust nefndinni alls 519
erindi allt árið í fyira. Sigrún
Jóhannesdóttir, framkvæmda-
stjóri tölvunefndar, segir vax-
andi fjölda erinda m.a. skýrast
af því að fólk sé almennt meira á
varðbergi en áður þegar pers-
ónulegar upplýsingar séu ann-
ars vegar. Mörg erindanna séu
þannig kvartanir einstaklinga
vegna mála sem varða persónu-
legar upplýsingar en önnur er-
indin eru m.a. beiðnir um álit
eða umsagnir tölvunefndar. Þá
berast nefndinni reglulega um-
sóknir um heimild til að gera
vísindarannsóknir eða kannan-
ir. Þegar Sigrún er spurð að því
hvori nefndinni muni takast að
afgreiða öll þessi erindi á árinu
segir hún það munu verða erfitt
vegna þess að starfsmenn
nefndarinnar séu samhliða að
undirbúa starfsemi Persónu-
vemdar sem taka mun við hlut-
verki tölvunefndar um áramót-
in. Því sé mikið álag á
tölvunefndinni um þessar
mundir.
Bflvclta
á Norð-
austurvegi
BIFREIÐ valt út af Norðausturvegi
í Auðbjargarstaðabrekku í gser-
morgun. Astralskt par, sem var í
bflnum, slapp án teljandi meiðsla en
konan var þó færð til læknisskoðun-
ar á Húsavík. Lögreglan á Húsavík
telur að ökumaður hafi misst stjórn á K
bfl sínum í lausamöl með fyrrgreind- jjg:
um afleiðingum. Bfllinn er mikið
skemmdur.
Erlendir ferðamenn
18% fleiri en í fyrra
Morgunblaðið/Þorkell
Reinhart Ehni, sendiherra Þýskalands á íslandi, afhendir Árna Magnús-
syni, aðstoðarmanni utanríkisráðherra, lykla að bryndrekanum.
Sérblöð í dag
■ws'smt
Lukkudísirnar í herbúðum KR-inga,
sem höfðu sætaskipti við Fyiki/B8
Af „Krókódíla-Dundee“og umferðar-
vanda á ÓL í Sydney/B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is