Morgunblaðið - 12.09.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 25
Breskir hermenn bjarga
gíslum í Sierra Leone
London. AP, Reuters, The Daily TelegTaph.
AP
Brezkur hermaður stendur vörð við brezka herskipið Sir Percivale í Freetown-höfn. Hlúð var að hermönnum,
sem frelsaðir voru úr gíslingu skæruliða í Sierra Leone, um borð í skipinu.
BRESKUR hermaður beið bana og
annar særðist alvarlega þegar 150
breskir hermenn réðust á herbúðir
uppreisnarmanna í frumskógi í
Sierra Leone á sunnudag. Hermenn-
irnir frelsuðu sjö gísla, sex breska
hermenn og liðsmann stjórnarhers
Sierra Leone, sem höfðu verið í haldi
uppreisnarmannanna frá 25. ágúst.
25 uppreisnarmenn biðu bana í
árásinni og átján til viðbótar, þar af
þrjár konur, voru teknir til fanga.
Tólf breskir hermenn særðust í
árásinni, þar af einn alvarlega, en
hann var þó ekki í lífshættu.
Hótuðu að myrða gíslana
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Ahmed Tejan Kabbah,
forseti Sierra Leone, heimiluðu
árásina eftir að uppreisnarmennirnir
höfðu „ítrekað hótað að drepa gísl-
ana“, að sögn Geoffs Hoons, varnar-
málaráðherra Bretlands.
Foringi uppreisnarmannanna,
Foday Kallay, var á meðal þeirra
sem voru teknir til fanga. Julius
Spencer, upplýsingamálaráðherra
Sierra Leone, sagði að fangarnir
yrðu sóttir til saka. „Þetta var mjög
erfið aðgerð,“ sagði hann. „Við von-
um að hún verði til þess að uppreisn-
arhreyfingarnar í Sierra Leone leggi
niður vopn.“
Þaulskipulögð aðgerð
Björgunaraðgerðin beindist eink-
um að búðum uppreisnarmannanna í
Occra Hills, um 72 km frá höfuðborg-
inni, Freetown. Hermennirnir voru
fluttir þangað með þyrlum frá Free-
town í dögun á sunnudag og aðeins
tuttugu mínútum eftir komuna höfðu
þeir frelsað gíslana og tekið foringja
uppreisnarmannanna til fanga. Her-
mennimir leituðu síðan að uppreisn-
armönnum í skóginum en talsmenn
breska hersins vildu ekki svara því
hvort markmiðið hefði verið að upp-
ræta hreyfinguna. Jórdanskir her-
menn lokuðu vegi að búðum upp-
reisnarmannanna til að hindra að
þeir kæmust undan eða fengju liðs-
auka. Aðgerðin tók alls tíu klukku-
stundir.
Uppreisnarmennirnir tóku ellefu
hermenn í gíslingu 25. ágúst og
slepptu fimm þeirra nokkrum dögum
síðar í skiptum fyrir gervihnattasíma
og ýmis tæki. Fimmmenningarnir
aðstoðuðu við undirbúning árásar-
innar og veittu ítarlegar upplýsingar
um búðir uppreisnarmannanna.
Einnig var stuðst við upplýsingar frá
njósnurum úr röðum íbúa á þessum
slóðum, auk þess sem símasamtöl
uppreisnarmanna voru hleruð.
Hermennirnir höfðu æft árásina í
viku áður en þeir létu til skarar
skríða. Þeir vissu nákvæmlega hvar
gíslunum var haldið, hvemig vömum
búðanna var háttað og hvar foringi
uppreisnarmannanna dvaldi.
Fyrsta verkefni hermannanna var
að handtaka Kallay og síðan að frelsa
gíslana. Uppreisnarforinginn var
sofandi þegar árásin hófst og greið-
lega gekk að fella verði hans og gísl-
anna. Uppreisnarmenn hófu skot-
hríð með vélbyssum á hermennina
þegar þeir færðu gíslana í þyrlu og
einn hermannanna féll í árásinni.
Enginn gíslanna særðist í björg-
unaraðgerðinni. Talsmaður hersins
sagði að bresku gíslarnir hefðu verið
„örmagna bæði andlega og líkam-
lega“ þegar þeim hefði verið bjargað.
Uppreisnarmennirnir hefðu hvað
eftir annað hótað að taka þá af lífi og
jafnvel sett á svið aftöku til að hræða
þá. Gíslunum var haldið í moldarkof-
um og þeir fengu lítið sem ekkert að
borða og drekka.
Alræmdir fyrir grimmd
Hreyfing Kallays, sem kallar sig
The West Side Boys, er m.a. skipuð
fyrrverandi hermönnum sem
steyptu Kabbah forseta af stóli árið
1997. Margir af liðsmönnum hennar
eru mjög ungir og hreyfingin er al-
ræmd fyrir grimmd, agaleysi,
drykkju og eiturlyfjaneyslu. Hreyf-
ingin hefur bæði barist gegn stjórn-
arher Sierra Leone og stærstu upp-
reisnarhreyfingu landsins og verið
sökuð um að hafa myrt og limlest
óbreytta borgara í borgarastríðinu
sem hefur geisað frá 1991.
Talsmenn breska hersins sögðu að
þrátt fyrir agaleysi hreyfingarinnar
hefði hún veitt harða mótspyrnu.
The Daily Telegraph sagði að skipu-
lagning og framkvæmd aðgerðarinn-
ar hefði verið til fyrirmyndar og
spáði því að næstu árin yrði litið á
hana sem skóiabókardæmi um
hvernig standa ætti að slíkum björg-
unaraðgerðum. Manntjón breska
herliðsins hefði verið ótrúlega lítið í
ljósi þess að jafnvel bai-nungur her-
maður, vopnaður árásarriffli, gæti
nú skotið jafnmörgum byssukúlum
og heil flokksdeild fullorðinna her-
manna í síðari heimsstyrjöldinni.
Rúmlega 200 breskir hermenn eru
í Sierra Leone og helsta verkefni
þeirra er að þjálfa nýjan stjórnarher
sem var stofnaður eftir að friðar-
samningur var undirritaður í fyrra.
Rússland
Atök um
fjölmiðla
Moskvu. AP.
HÖRÐ átök eru í Rússlandi um
yfirráð einu sjónvarpsstöðvar-
innar sem nær til alls landsins,
ORT. Á laugardag skýrði yfir-
maður ORT, Konstantín Ernst,
frá því að vinsæll, vikulegur
fréttaskýringaþáttur blaða-
mannsins Sergeis Dorenkos
hefði verið tekinn af dag-
skránni.
Ernst sagðist hafa beðið
Dorenko um að fjalla ekki um
átök milli ráðamanna í Kreml
og auðkýfingsins Borís Ber-
ezovskí sem á 49% í stöðinni.
Ríkið á 51% hlut og sakar Ber-
ezovskí Kremlverja um að
reyna að bola sér út. Hann
studdi á sínum tíma Viadímír
Pútín forseta en hefur nú skipt
um skoðun og segir að Pútín sé
ekki lýðræðissinni. Hann vilji
reyna að koma í veg fyrir gagn-
rýni á stjórnvöld í fjölmiðlum.
Interfax-fréttastofan rúss-
neska hafði hins vegar eftir
Dorenko að Ernst hefði ekki
gefið sér nein fyrirmæli og
skipun um dagskrárbreyting-
una hlyti að hafa komið frá
voldugri mönnum. „Ég tengi þá
ákvörðun að taka þátt minn af
dagskrá eingöngu við Vladímír
Pútín,“ sagði Dorenko.
Nicotmell
vörur með afslætti 12.-19. september
VLyf&heilsa
J A P Ó T E K
Nú býðst korthöfum VISA
heimagæsla á sérstöku
tilboðsverði.
Einungis er greitt fyrir
10 mánuði á ári.
Bjóðum einnig
þráðlausan búnað.
Síml533 2400