Morgunblaðið - 12.09.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 47 .
AGUST
RUNÓLFSSON
+ Ágúst Runólfs-
son fæddist á
Höfn í Hornafirði
l.mars 1929. Hann
lést 4. september síð-
astliðinn eftir að
hafa veikst síðla síð-
astlinn vetur. Ágúst
óslst upp á Höfn og
átti allan sinn starfs-
aldur þar sem út-
gerðarmaður.
_ Árið 1955 kvæntist
Ágúst ftirlifandi
konu sinni Nönnu
Láru Ólafsdóttur.
Þau eignuðust þrjú
börn, Sigurborgu, sem á einn son,
Ásgeir Núpan, sem kvæntur er
Valgerði Egilsdóttur og eiga þau
tvo syni og Bjartmar, sem kvænt-
ur er Elínurós Jóhannsdóttur.
Þau eiga eina dóttur.
Ágúst Runólfsson var jarðsett-
ur í gær á Höfn í Hornafirði.
I hraða og önn dagsins var eins og
tíminn stæði í stað í eldhúsinu hjá
Nönnu og Gústa.
Það var alltaf gott að koma í Há-
tún. Gústi frændi sagði ekki margt
en manngæska hans og hlýja skilaði
sér til okkar krakkanna.
Hann var einn af hornsteinunum í
lífi okkai’. Það fór margt af okkar
fólki á undan Gústa á nýjar slóðir, við
vitum að honum verður tekið opnum
örmum. Tárin okkar eni saltari en
sjórinn.
Sjávamiður þungur
kyrrir æstar öldur.
Mávar löngu lentir
tilbúnir að nýju,
að fylgja þeim,
þeimsemvið unnum.
Báran blá
úfin grá.
Sjómaðurinn sefur.
(S.H.Ó.)
Elsku Nanna, Bogga, Ásgeir,
Bjartmar og fjölskyldur, við vitum að
söknuður ykkar er mikill, við sam-
hryggjumst ykkur.
Einnig viljum við senda Hauki
frænda samúðarkveðjur.
Krakkarnu uppi í Hátúni,
Þráinn, Valdís, Hafdís,
Óli og Olgeir.
Sú kalda staðreynd vitnaðist síðla
vetrar að Ágúst Runólfsson fyi-rum
útgerðai-maður á Höfn gengi ekki
heill til skógar. Síðan er sumarið lið-
ið, bjart og hlýtt svo að fá dæmi eru
um. Við lok þess var Gústi allur.
Ágúst var fæddur á Höfn, þar átti
hann þroskaárin og starfsævina alla.
Á fyrri árum byggðar á Höfn voru
íbúðarhúsin nefnd tilteknum nöfn-
um. Laufás var eitt þessara frum-
herjabýla. Þar ólst upp stór barna-
hópur, böm hjónanna Runólfs
Bjarnasonar sem átti uppruna sinn í
Suðursveit og Sigurborgar Ágústs-
dóttur sem fluttist hingað frá Eski-
firði. Það var tápmikil æska sem óx
úr grasi á Laufási. Þar sem uppruni
Gústa var, eins og hann var jafnan
nefndur. Umhverfið á Höfn var mót-
andi fyrir þá sem á þessum tíma ól-
ust þar upp. Fjörðurinn skóp ungum
athafnamönnum margháttuð tæki-
færi bæði í leik og starfi og var þann-
ig mikilvægt athvarf fyrir þá sem
þroskuðust á þessum vettvangi.
Þessi ævintýraheimur var einkar
hugleikinn Gústa og hefur efalaust
átt mikinn þátt í að móta framtíðar-
sýn og lífshlaup. En strax eftir ferm-
ingu var boðanna ekki beðið en þá
réðist Gústi á báta sem reru frá Höfn
og fóm einnig til síldveiða, var hann
þá um tíma formaður á þessum bát-
um.
Árið 1955 urðu mikil kaflaskil á
æviferli Gústa en þá hóf hann útgerð
með Hauki tvíburabróður sínum og
félaga þeirra, Ásgeiri Þ. Núpan. Það
ár létu þeir smíða skip, Akurey sem
svo var nefnd. Var það systurskip við
Helga sem smíðaður var samtímis og
kom síðar í eigu bræðra þeirra,
Bjarna og Ólafs. Um þessar mundir
var mikill uppgangur í útgerð á Höfn
sem varð hin raunveru-
legi aflgjafi fyiTr þá öfl-
ugu fiskvinnslu sem þá
kom til sögunnar og at-
vinnulíf á Höfn nærðist
á. Þessar framfarir á
Höfn vöktu verðskuld-
aða eftirtekt víða um
land. Þátttaka þessara
félaga, og annarra út-
gerðarmanna sem um
þessar mundir sóttu
sjóinn frá Hornafirði,
lagði þannig grundvöll
að þessu blómlega sam-
félagi. Það verður seint
þakkað eins og vert er.
Víst eru það ekki nýmæli að sjór-
inn bæði gefur og tekur og vissulega
fékk Laufásfjölskyldan að reyna það
þegar sá sorglegi atburður gerðist í
september árið 1961 að mótorbátur-
inn Helgi fórst á heimleið úr siglingu.
Með honum fórust sex vaskir sjó-
menn, tveir Laufásbræðra, auk mágs
þeiiTa og bróðursonar. Þá var dimmt
yfir byggðum hér eystra en eftirtekt
vakti hugrekki og dugnaðm- þeirra
er efth' stóðu. Ekki létu tvíbura-
bræðurnir hlut sinn eftir liggja í að
efla útgerð sína. Árið 1963 fengu þeir
nýja og öfluga Akurey og svo kom
Skógeyjan til sögunnar árið 1973.
Skógeyjan var stærst skipa þeirra
bræðra sem auðveldaði sókn á fjar-
lægari mið. Þegai- svo þeir bræður
höfðu gert út þessi tvö skip um nokk-
urt skeið seldu þeir Akurey og fluttu
sig á Skógeyna þar sem þeir störfuðu
enn saman þar til þeir seldu Skóg-
eyna árið 1993.
Þar með lauk útgerðarferli þess-
ara samrýndu tvíburabræðra sem
stunduðu störf sín af einstakri trú-
mennsku og dugnaði. Mestan tímann
stjórnaði Haukur skipum þeirra fé-
laga, Gústi annaðist lengst af véla-
vörslu en Ásgeir sá um störfin sem
tengdust útgerðinni í landi. Þetta
eignarfyrirkomulag hefur sett svip
sinn á margar útgerðir hér á Höfn og
jafnan gefist vel.
Gústi var afar vel verki farinn,
ósérhlífni og dugnaði við brugðið.
Hann var góður vinnufélagi og hon-
um fylgdi því jafnan góður vinnu-
andi. Nærri má geta hversu þessir
eiginleikar hafa verið mikilvægir í
löngu og farsælu sjómanns- og út-
gerðarstarfi.
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
http://www.kerfisthroun.is/
Legsteinar
í Lundi
SÖttSíffilSsljiMS viS Nýbýlaveg, Kópavogi
Sími 564 4566
Á árinu 1955 urðu mikil þáttaskil í
lífi Gústa en það ár kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni, Nönnu Láru
Ólafsdóttur. Þar eignaðist hann þann
förunaut sem svo vel hefur dugað á
annasamri starfsævi og erfiðu ævi-
kvöldi. Þau eignuðust þrjú börn, Sig-
urborgu, hún einn son, Áseir Núpan,
kvæntur Valgerði Egilsdóttur, þau
eiga tvo syni og Bjartmar kvæntur
Elínurós Jóhannesdóttur og eiga þau
eina dóttur.
Það urðu auðvitað miklar breyt-
ingar á lífsferli Gústa þegar hann
hætti sjómennsku og kom í land. Þá
kom sér vel að eiga fjörðinn sem
athvarf eins og var á æskuárunum.
Meira að segja á þessu erfiða sumri
þegar sú kalda staðreynd lá fyrir
sem nú er orðin að veruleika var bát-
urinn málaðm- og haldið út á fjörð,
þangað sóttur fiskur og góðum vin-
um fært í soðið eins og áður fyrr.
Okkur á Seljavöllum heimsótti hann
aðeins tveimur dögum áður en hann
lagðist til hinstu hvíldar, hann þurfti
þá enn að fylgjast með Íífinu í sveit-
inni eins og hann komst svo oft að
orði.
Við leiðarlok eru góðar minningar
um þennan heilsteypta dugnaðar-
mann og þakklæti fyrir tryggð hans
efst í huga.
Þrátt fyrir að hvfldin hafi verið
Gústa kærkomin eins og heilsu hans
var komið er þó missirinn mikill fyrir
þá sem eftir standa. Nanna og Gústi
áttu góða vegferð saman og síðustu
árin fylgdust þau jafnan að svo sam-
rýnd voru þau. Til Nönnu er því
hugsað héðan frá Seljavöllum á þess-
um erfiðu tímum, henni og öðrum
ástvinum að ógleymdum tvíbura-
bróður færðar innilegar samúðar-
kveðjur.
Egill Jónsson.
• Fleirí minningargreinar
um Ágúst Runólfsson biða birting-
arogmunu birtast íblaðinu næstu
daga.
Varanleg
minning
er meitluö
ístein.
• ‘ ^ .- y
L:> ':»>■
KS.HHfiASONHF
STHNSMHUfl
Skemmuveqi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LILJA TH. INGIMUNDARDÓTTIR,
Grensásvegi 60,
sem iést laugardaginn 2. september sl., verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
þriðjudaginn 12. september, kl. 13.30.
Helgi fvarsson, Jónína Steiney Steingrímsdóttir,
Rannveig fvarsdóttir, Otti Kristinsson,
Guðbjörg fvarsdóttir, Þórarinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
STEINGRÍMUR ODDSSON
málarameistari,
Blómvallagötu 12,
lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 29. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjördís Jónsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR ÁRNASON,
frá Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð,
lést að kvöldi sunnudagsins 10. september
á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ.
Hildur Árnason og börn.
m.
+
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR EYJÓLFSSON,
Hvoli,
Mýrdal,
lést föstudaginn 8. september.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurbjörg Guðnadóttir.
+
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR ÞÓRMUNDSSON,
Bæ,
Bæjarsveit,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 10. september.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Auður Þorbjörnsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN JÓNATANSSON
vélvirkjameistari,
Melabraut 29,
Seltjarnarnesi,
lést á hjartadeild Landspítalans í Fossvogi að kvöldi sunnudagsins
10. september.
Bára Vestmann,
Jónatan Guðjónsson,
Ottó Vestmann Guðjónsson, Elfn Kolbeins,
Valborg G. Guðjónsdóttir, Wim Verheul,
Guðjón Sig. Guðjónsson, Hrefna Þórðardóttir,
Ásta Kristjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
k~
+
BALDUR STEINGRÍMSSON,
Skeggjagötu 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 14. september kl. 13.30.
Steingrímur Baldursson, Fríða Vala Ásbjörnsdóttir,
Höskuldur Baldursson, Magdalena Jórunn Búadóttir,
Margrét Jóna Höskuldsdóttir, Torfi H. Pétursson,
Magdalena Anna Torfadóttir,
Baldur Steingrímsson, Kyeong Rho,
Héðinn Steinn Steingrímsson,
Baldur Búi Höskuldsson,
Gunnar Steingrímsson.
«r