Morgunblaðið - 12.09.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræðingur og Haraldur Ólafsson
í pallborðsumræðum á laugardag.
Heiðruðu
s
Harald Olafsson
HARALDUR Ólafsson, prófessor í
mannfræði, var heiðraður af sam-
starfsmönnum sínum og fyrrver-
andi nemendum með ráðstefnu í
Háskóla Islands síðastliðinn laug-
ardag en Haraldur lauk störfum
við háskólann í júlí á þessu ári.
Var rætt sérstaklega um framlag
Haraldar sjálfs til íslenskrar
mannfræði, stöðu fræðagreinar-
innar f dag og þau fræðilegu við-
fangsefni sem Haraldur hefur lát-
ið til sín taka á ferli sínum, m.a.
trúarbrögð, bókmenntir, samfélag
þjóðveldisaldar og mannvist á
norðurslóðum. Að ráðstefnunni
stóðu mannfræði-og þjóðfræði-
skor við Háskóla Islands, Mann-
fræðistofnun, Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar og félagsvísinda-
deild. Fluttir voru tveir opinberir
fyrirlestrar og fjögur stutt erindi
um efni sem Haraldi hafa verið
hugleikin en að þvf loknu fóru
fram pallborðsumræður um stöðu
íslenskrar mannfræði.
Slysalausi dagurinn í Reykjavík
60% færri tjón hjá
Sj ó vá-Almennum
Tjónatilkynningar til Skipting tjóna
Sjóvár-Almennra fimmtudaginn "^fur
24. ágúst og 10 fimmtudaga
þaráundan _____________ 26 Bakkaðá
23
Forgangur \15%^
ekki virtur
Annað
Meðalkostnaður
á hvert tjón
kr. 407.000
82.000
626.000
250.000
Meðaltal
15.6. 22.6. 29.6. 06.7. 13.7. 20.7. 27.7. 03.8. 10.8. 17.8. 24.8.
í umdæmi
lögreglustjórans
í Reykjavík
SLYSALAUSI dagurinn í
Reykjavík þann 24. ágúst sl.
virðist hafa skilað umtalsverðum
árangri að minnsta kosti ef mið-
að er við tölur frá tryggingafé-
laginu Sjóvá-Almennum hf. Sam-
kvæmt samantekt fyrirtækisins
fækkaði tjónum á bifreiðum sem
eru tryggðar hjá félaginu um
60% þennan tiltekna dag. Að
jafnaði hefur verið tilkynnt um
ein 15 óhöpp á fimmtudögum í
sumar en á slysalausa deginum
voru þau aðeins sex talsins. Ef
miðað er við meðalkostnað við
hvert tjón þá má ætla að um 2,9
milljónir hafi sparast á slysa-
lausa deginum. A ársgrundvelli
nemur sú fjárhæð um einum
milljarði króna.
Þarf auknar fjárveitingar
til löggæslu
Sumarliði Guðbjörnsson, deild-
arstjóri bifreiðatjóna hjá Sjóvá-
Almennum segir það vera greini-
legt að aukið eftirlit lögreglunn-
ar á slysalausa deginum hafi
skilað sér í færri umferðarslys-
um.
„Það er hægt að fækka um-
ferðarslysum. Það er þjóðhags-
lega hagkvæmt, jafnvel þótt við
þurfum að leggja í nokkurn
kostnað við aukna löggæslu,"
segir Sumarliði. Fækkun slysa
myndi skila sér í lægri sjúkrahú-
skostnaði, lækkuðum tryggingar-
iðgjöldum og á margvíslegan
hátt annan.
Undir ökumönnum
komið
„Þessir lögreglumenn sem eru
að störfum eru að gera sitt
besta. En það er greinilegt að
það er ekki fylgni á milli fjölgun-
ar lögreglumanna og fjölgunar
ökutækja," segir Sumarliði.
Þessu verði stjórnmálamenn sem
vilja fækka umferðarslysum að
gera sér grein fyrir. Það þurfi að
koma til auknar fjárveitingar frá
ríkisvaldinu til löggæslu og eftir-
lits. Hann bætir því við að mann-
leg mistök séu orsök umferðar-
slysa í 98 af hundraði tilvika. Það
sé því undir ökumönnunum sjálf-
um komið að fækka umferðar-
slysum og auka öryggi í umferð-
inni.
LJ0NIÐ A VEGINUM
F10TT 0G FREISTANDI
Tákn nýrrar kynslóðar. Fallegt og kraftalegt útlit
endurspeglar fjörið sem einkennir Peugeot 206.
Mikið rými og flott hönnun gera Peugeot 206 að
fjörmíklum farkosti unga fólksins.
VERÐ FRA 1099.000
Vatnagörðúnj 24 • s. 520 1100
Sýning.ar og prufubilar eru einnig á eftirtöldum stöðum
Biiasala Akureyiar s. 461 2533, Vestmannaeyjar: Bifaverl
:: Bifver s. 431 1985, Akureyri:
ragginn s. 481 1535, Keflavik: Bílavík ehf. s. 421 7800.