Morgunblaðið - 12.09.2000, Side 14

Morgunblaðið - 12.09.2000, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Stefnt að efldu foreldrasamstarfí í grunnskólum Reykjavíkur Samskipti heimilisins og skólanna er lykillinn að góðu skólastarfí Reykjavík STEFNT er að því að efla foreldrasamstarf í grunn- skólum Reykjavíkur í vetur og hafa Engjaskóli og Breið- holtsskóli verið valdir til að gegna hlutverki móðurskóla við þróun aukins foreldra- samstarfs. Fékk hvor skóli um sig 550.000 króna styrk úr þróunarsjóði grunnskóla Reykjavíkur til að sinna þessu verkefni í vetur. Hildur Hafstad, skólastjóri Engjaskóla, segir að reynsl- an hafi sýnt að gott samstarf milli heimila og skóla bæti skólastarfið. „Foreldrar geta haft veru- leg áhrif á námsárangur barna sinna,“ segir Hildur, og við höfum fundið fyrir því að foreldrar hafa mikinn áhuga á að fylgjast vel með börnunum sínum.“ Hildur segir að síðan Engjaskóli tók til starfa hafi margir kennarar boðið for- eldrum nemenda sinna upp á samstarf af ýmsu tagi sem hafi bæði reynst gagnlegt og skemmtilegt. Hún segist binda vonir við að með móð- urskólaverkefninu eigi for- eldrasamstarf eftir að fá fast- an sess í skólastarfinu og þykja sjálfsagður hluti þess. Foreldrasamstarf eðli- legur hluti skólastarfs í Engjaskóla er ætlunin að fella foreldrasamstarfið að öðrum starfsáætlunum skól- ans þannig að samstarfið verði eðlilegur hluti skóla- starfsins. Sett verður fram skilgreining á hlutverki heimili annars vegar og skóla hins vegar og jafnframt verða sameiginleg verkefni þeirra skilgreind sérstaklega. Áhersla verður lögð á upplýs- ingmiðlun og samskipti við foreldra, með tölvupósti. Sex manna kennarahópur mun mynda stýrihóp verk- efnisins og er hlutverk hans meðal annars að skipuleggja vinnuhópa og verkefni sem kennarar skólans vinna í þágu verkefnisins, leiðbeina öðrum kennurum í tölvu- vinnslu og ritstýra vef skói- ans. Getum ekki án foreldra verið Ragnar Þorsteinsson, skólastjóri Breiðholtsskóla, segist fagna því að fá tæki- færi til að efla foreldrasam- starf innan skólans enn frek- ar. „Samstarf heimila og skóla er lykillinn að góðu skóla- starfi. Rannsóknir og reynsla sýna að aðkoma foreldra að námi barnanna þeirra eykur námsárangur þeirra og bætir auk þess skólastarfið. Við vit- um að við getum ekki án for- eldra verið og viljum það ekki.“ Ragnar segir að í þeim ár- göngum, þar sem vel hefur tekist til með foreldrasam- starf, sé yfirleitt mjög góður andi og að samskipti nem- enda innan þeirra séu að jafn- aði mjögjákvæð. í Breiðholtsskóla er ætlun- in að efla samskipti heimila og skóla með gagnkvæmu flæði upplýsinga. Foreldrum verður boðið á skóla- og nám- skynningu í öllum árgöngum og verður foreldrum 6 og 7 ára barna boðið upp á tveggja kvölda námskeið. Einnig er foreldrum nemenda í 8. bekk boðið upp á tveggja kvölda námskeið undir yfirskriftinni „unglingurinn minn“. Helstu upplýsingar um skólastarfið er að finna á vef skólans og einnig í skóla- handbók sem er endurskoðuð árlega og dreift til allra nem- enda. Foreldrar nemenda í 8. til 10. bekk fá handbók um skólasókn, aga og samskipti og í 7. til 10. bekk er notuð sérstök skóladagbók eða samskiptabók til að tryggja samskipti heimilis og skóla. Morgunblaðið/Ásdís Þvottastöð Skeljungs á gatnamótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar hefur verið rifin niður. Istak byggir stór- hýsi við Laugaveg Reykjavík FRAMKVÆMDIR vegna byggingar nýs sex hæða þjónustu- og skrifstofuhúss á horni Laugavegar, Kringlumýrarbrautar standa nú yfir, en búið er að rífa þvottastöð Skelj- ungs sem stóð á lóðinni. Það er byggingarfyrir- tækið Istak sem sér um framkvæmdirnar við nýja húsið, sem verður um 4.200 fermetrar. Húsið verður einangrað að utan og klætt með nátt- úrusteini og bílageymsla fyrir 33 bfla verður neðan- jarðar. Lífríki Elliðavatns og fyrir- huguð byggð í Vatnsenda Potturinn nefndur •• Orlygshöfn Vesturbær NÝR heitur pottur var nefnd- ur og tekinn formlega í notk- un á fóstudagsmorgun, af hópi þeim sem hittist í Vest- urbæjarlauginni klukkan hálfsjö á morgnana, alla virka daga. Sr. Pétur Þorsteinsson skenkti félögum hópsins lýsi á laugarbakkanum og var skál- að fyrir nýja pottinum. Pétur segir að hópur þessi hafi átt nokkum þátt í að pott- urinn var byggður og að sá sem hafi átt mest frumkvæði í því máli hafi verið Örlygur Hálfdánarsyni. Því hafi verið ákveðið að nefna pottinn Ör- lygshöfn og afhjúpaði Örlyg- ur skilti með nafni pottsins. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Veiðimála- stofnun gerir athugasemd Kópavogur VEIÐIMÁLASTOFNUN hefur gert athugasemd við deiliskipulagstillögur Kópavogsbæjar um fyrir- hugaða byggð í Vatns- enda. Sigurður Guðjóns- son, forstöðumaður Veiðimálastofnunar, segir athugasemdirnar fyrst og fremst snúast um lífríki vatnsins og vatnakerfis- ins. í bréfi Veiðimálastofn- unar til skipulagsyfir- valda í Kópavogi eru nefnd þrjú meginatriði sem verði að huga að vegna skipulags á svæð- inu, eigi ekki að setja líf- ríki Elliðavatns og Ell- iðaáa í hættu. I fyrsta lagi skuli veita öllum lífrænum úrgangi, bæði frá mönnum og dýr- um, burt af svæðinu. I öðru lagi skuli ekki byggja næst vatnsbakk- anum og að 100 til 200 metra svæði næst vatninu verði óbyggt. í þriðja lagi skuli koma upp olíusíum og setþróm til að leiða af- rennsli gatna burt og til að tryggja að ekki berist eiturefni með yfirborðs- vatni í Elliðavatn. Tölvuvætt eftirlitskerfí í öskubflum Reykjavfkurborgar Stefnt að endurskipu- lagningu í sorphirðu með sparnað í huga í dag er sorp hirt á sjö daga fresti og greiðir fólk 6.000 krónur í sorphirðu- gjald á ári. Einar Bjami sagði að tölvukerfið héldi utan um fjölda losana og þyngd sorps frá hverju húsnæði. Hann sagði að ef kerfið myndi reynast vel myndi fólk í framtíðinni annaðhvort greiða fyrir losun á tíu daga fresti, eða samkvæmt fjölda losana, þá væri einnig gert ráð fyrir því að fólk gæti greitt samkvæmt þyngd. Einar Bjarni sagði að þeir starfsmenn hreinsunardeild- ar sem störfuðu sem flokks- Breiðholt FJÓRIR af tólf öskubílum Reykjavíkurborgar eru út- búnir fullkomnum tölvum sem vigta og reikna út rúm- mál sorps frá íbúum borgar- innar. Einar Bjarni Bjarna- son, defldarstjóri hreinsun- ardeildar Reykjavíkur, sagði að um væri að ræða tölvu- vætt eftirlitskerfi frá Sví- þjóð, sem gerði borgaryfir- völdum kleift að fylgjast betur með sorpmagni. Hann sagðist gera ráð fyrir því að upplýsingamar yrðu notaðar til að endurskipuleggja sorp- hirðu með sparnað í huga. Einar Bjarni sagði að til- raunverkefnið hefði staðið yfir í allt sumar í Breiðholt- inu. Greitt samkvæmt þyngd „Kerfið byggist í grófum dráttum á því að fólk ákveð- ur sjálft hvenær það vill láta losa hjá sér,“ sagði Einar Bjarni. „Fólk hefur tekið þessu vel og svo virðist sem það sé farið að flokka msl í meira mæli og þá hefur um- ferð um endurvinnslustöðina í Jafnaseli aukist, sem við viljum rekja til þessa til- raunaverkefnis.“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Tryggvi Valdimarsson, flokkstjóri hjá hreinsun- ardeild Reykjavíkur, seg- ir að reynsla muni komast á nýja tölvukerfið í vetur. stjórar hefðu sótt námskeið til að læra á kerfið. Að miklu leyti sjálfvirkt kerfi Tryggvi Valdimarsson, flokkstjóri hjá hreinsunar- deildinni, sagði að þetta væra breyttir tímar, þar sem tölvuvæðingin hefði nú teygt anga sína inn í öskubílana. Sorp í Breiðholti er nú bæði vigtað og rúmmál þess mælt, en það er hluti af tilraunaverkefni hreinsunardeildar Reykjavíkur. „Maður hélt að maður væri hultur hérna í ösk- unni,“ sagði Tryggvi, sem hefur starfað hjá hreinsun- ardeildinni í 10 ár. Tryggvi sagði að kerfið væri að miklu leyti sjálfvirkt og hann þyrfti aðeins að færa inn nokkrar færslur á morgnana. Hann sagði of snemmt að segja nokkuð til um það hvernig kerfið hefði reynst. „Það er búið að vera að prafukeyra þetta alveg frá því í vor, en sorphirðan dett- ur niður á sumrin þegar fólk er í fríi og því kemur það væntanlega betur í ljós í vet- ur hvernig þetta hefur kom- ið út, en verkefnið stendur út árið.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.