Morgunblaðið - 12.09.2000, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Vinsæl berjalönd í utanverðum Eyjafírði
Aldrei séð
annað eins
berjaland
MIKILL fjöldi fólks sækir í berja-
löndin í Olafsfjarðarmúla, Böggv-
isstaðarfjalli og á svæðum sunnan
Dalvíkur á hverju hausti. Auður
Guðjónsdóttir, kennari í Valsár-
skóla á Svalbarðsströnd, var að
tína ber í Múlanum sl. sunnudag
ásamt fleira fólki, er ljósmyndari
Morgunblaðsins var þar á ferð.
Auður, sem búsett er á Akureyri,
var að tína ber á þessu svæði í
fyrsta skipti og hún sagðist aldrei
hafa séð annað eins berjaland.
„Þetta er hreinasta gullnáma."
Auður sagði fátt skemmtilegra en
að breytast í lyngorm í svona
berjalandi, eins og hún orðaði
það sjálf.
Hún sagðist safna bláberjum til
jólanna en að hún tíndi krækiber-
in beint upp í sig, svona rétt til
að byggja sig upp af vítamínum.
Á myndinni er Auður með falleg
bláber í lófa sínum.
Morgunblaðið/Kristján
Auður Guðjónsdóttir kennari
með falleg bláber í' lófa sínum í
beijalandinu í Ólafsfjarðarmúla.
kr. 570.000-
Listaverð kr. 670.000-
Husqvarna TE 610E
Svart/gult kr. 560.000
Listaverð kr. 660.000-
Husqvarna TE 61OE
__ special edition
Gult kr. 560.000-
Listaverð kr. 660.000-
18 lítra bensíntankur
Husqvarna TE 610
Husqvarna CR 250
kr. 450.000-
Listaverð kr. 560.000-
Husky boy krakkahjól • kf. 98.000- Listav. kr. 148.000- • Aðeins 1 stk.
gn kureyri ni@centri 1
umboðsaðili Husqvarna á ísiandi Tungusíöa 21 • Pósthólf 24 • 602 A | Sími: 461 4025 • Fax: 461 4026 • Netf.: gag V jm.is
Forgangsverkefni á sviði heilbrigðismála í
aðgerðaráætlun Eyþings
Ahersla á skipulagt
samstarf heilbrigðis-
stofnana í héraðinu
BRÝNT er að koma nýbyggingu
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri sem fyrst í notkun og ná þarf
samkomulagi við stjórnvöld um að
árlega verði ein hæð í byggingunni
innréttuð og tækjavædd. Þetta er
á meðal forgangsverkefna á sviði
heilbrigðismála í aðgerðaáætlun
Eyþings, samtaka sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu en
hún var til umræðu á aðalfundi um
helgina.
Af fleiri forgangsverkefnum má
nefna að komið verði upp sjúkra-
hóteli við FSA, hugað verði að
tækni- og hugbúnaðarmenntun á
svæðinu, m.a. upplýsingatækni
með áherslu á gagnagrunnsfræði
og hins vegar rafeindatækni. Þá er
áhersla lögð á að komið verði á
kennslu í landsbyggðarlækningum
við Háskólann á Akureyri, einnig
að samgöngubótum milli Norður-
og Austurlands verði hraðað til að
styrkja stöðu FSA sem hátæknis-
júkrahúss og bæta þjónustu þess
við Austurland. Nefnt er að vinna
þurfi að uppbyggingu heilsulindar
í Mývatnssveit með samtengingu
við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
og að koma þurfi upp háhraða-
tengingu milli sjúkrastofnana á
svæðinu vegna öryggissjónarmiða.
Miðstöð sjúkraflugs
verði á Akureyri
Helstu verkefnin á sviði heil-
brigðismála eru, að því er fram
kemur í skýrslu Péturs Þórs Jón-
assonar framkvæmdastjóra Ey-
þings, að koma á skipulegu sam-
ráði heilbrigðisstofnana á svæðinu
og þar með að efla samvinnu
þeirra og einnig að skoða samstarf
á ákveðnum sviðum við heilbrigð-
isstofnanir utan svæðisins, s.s. á
Norður- og Austurlandi. Annað
sem lögð er áherslu á á sviði
heilbriðgismála er að miðstöð
sjúkraflugs í landinu verði á Akur-
eyri og þar verði sérútbúin flugvél
til að sinna því. Aðgerðaáætlun
Eyþings sem kynnt var á aðalfun-
dinum fjallar einnig um ýmis önn-
ur svið, eins og atvinnumál, skóla-
og menningarmál, samgöngur,
ferðaþjónustu og menntamál.
Fram kemur í skýrslu Péturs Þórs
að þær raddir hafi heyrst að að-
gerðaráætlunin þyki of Akureyr-
armiðuð. Segir hann þá gagnrýni
ekki koma á óvart. „Þegar að er
gáð má þó ljóst vera að flest sókn-
arfærin liggja í langstærsta þétt-
býlisstað landshlutans," segir Pét-
ur Þór í skýrslu sinni. Mikilvægt
sé að Akureyri vaxi og dafni á
sama hátt og leita verði allra leiða
til að bakland bæjarins dafni en
það bakland nái yfir allt svæðið,
þ.e. Norðurland.
Viðkvæm umræða
um vaxtarsvæði
„Því er auðvitað ekki að neita að
við erum hér komin að þessari við-
kvæmu og vandmeðfömu umræðu
um vaxtarsvæði. Að undanförnu
hefur verið vaxandi umræða um
áherslu á eflingu skilgreindra
vaxtarsvæða á landsbyggðinni. Til
þess að sú umræða geti skilað okk-
ur fram á veginn þarf að nást sátt
milli sveitarstjórna um það hvar
vaxtarsvæðin skuli vera og hverjar
skuli vera áherslur innan þeirra og
utan og með hvað hætti önnur
svæði skuli tengjast vaxtarsvæð-
unum,“ segir í skýrslu fram-
kvæmdastjóra Eyþings.
Víðir EA og Akureyrin EA með ágætan afla
Aflaverð-
mætið um
140 milljón-
ir króna
VÍÐIR EA og Akureyrin EA,
frystitogarar Samheija hf. á Ak-
ureyri, komu til heimahafnar um
helgina úr ágætis veiðiferðum.
Skipin voru hvort um sig með um
70 milljónir króna í aflaverðmæti
eftir um eins mánaðar veiðiferðir
á svipuðum slóðum fyrir vestan
land. Afli upp úr sjó var 400-500
tonn af blönduðum afla hjá hvoru
skipi en uppistaðan var þorskur,
grálúða og karfi.
Á myndinni er Víðir EA að
koma til hafnar á laugardag,
skömmu fyrir brottför Vilhelms
Þorsteinssonar EA, hins nýja fjöl-
veiðiskips Samheija í sfna fyrstu
veiðiferð.
Morgunblaðið/Kristján
Víðir EA, frystitogari Samheija hf., kemur til hafnar á laugardag
skömmu áður en Vilhelm Þorsteinsson EA fer í sína fyrstu veiðiferð.
KOSTABOÐ
Allt oð
30%
afsláttur
Fagleg rábgjöf
Fullkomin tölvuteiknun
Fyrsta flokks hönnunarvinna hátúniga(íhúsn. Fönix)slMi: 5524420
riform
REYKIAVIK-AKUREYRI - REYKIAVIK . Jljúgðufrekar
Atta sinnum a
Bokaðu í síma 57V 3030 og 460 7000
.930 kr . tneð flugvallarsköttuir
FLUGFELAG ISLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is