Morgunblaðið - 12.09.2000, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
f
ÚRVERINU
ERLENT
Vilhelm
Þorsteins-
son til veiða
NÝJASTA fiskiskip flotans, Vilhelra
Þorsteinsson EA, er nú haldið til
veiða. Það lét úr höfn síðastliðinn
laugardag og er nú á kolmunnaveið-
um við miðlínuna milli Islands.
Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri
Samherja, sagði í samtaJi við Verið í
gær að búið væri að taka eitt prufu-
hol og skipið væri með annað hol á
siðunni og allt virtist ganga vel fyrir
sig. Kolmunninn verður ekki frystur
um borð, heldur kældur í lestum
skipsins og landað í mjölvinnslu hér
heima, líklega í Grindavik. Skýring-
in á því er tvíþætt, annars vegar er
ekki búið að ganga frá öllum
vinnslubúnaði um borð og hins veg-
ar sú að engir kjarasamningar eru
til fyrir veiðar og vinnslu af þessu
tagi. Lítil sem engin hreyfíng er á
samningaviðræðum sjómanna og út-
vegsmanna en samningsgerð fyrir
skipið er hluti þeirra. Skipið verður
á kolmunna fram í miðjan október,
en þá er stefnt að því að fara á sfld
og frysta um borð. Það er eftir sem
áður háð því að samningar hafí ver-
ið gerðir að sögn Kristjáns.
Morgunblaðið/V íðir Björnsson
Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samheija, leysir hér
landfestar Vilhelms Þorsteinssonar er hann fer í sína fyrstu veiðiferð.
Jörgen Niclasen, sjávarútvegsráðherra Færeyja
Oánæg’ður með
dönsk afskipti
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
Færeyja, Jörgen Nielasen, gagn-
rýnir nú dönsku ríkisstjórnina fyrir
afskipti af sjávarútvegsstefnu Fær-
eyja. Þessi afskipti hafa leitt til þess
að þríhliða samningur íslands, Fær-
eyja og Grænlands hefur ekki orðið
að veruleika. Markmiðið með þess-
um þríhliða samningi er að vernda
sameiginlega fiskistofna gegn of-
veiði, meðal annars karfa, grálúðu
og kolmunna. Vinna við undirbún-
ing að samkomulaginu hefur því
stöðvazt, vegna kröfu danska utan-
ríkisráðuneytisins um að það verði
að leggja blessun sína yfir allar
breytingar á samkomulaginu. Það
sættir Jörgen Niclasen, sjávarút-
vegráðherra Færeyja, sig ekki við.
„Það kemur hreinlega ekki til
greina að Danir eigi að leggja bless-
un sína yfir þetta samkomulag okk-
ar. Hér er um að ræða veiðar Fær-
eyinga innan færeyskrar lögsögu og
það kemur Dönum hreinlega ekkert
við,“ segir Niclasen, sem jafnframt
undrast kröfu Dana um að þurfa að
staðfesta samkomulagið.
„Við Færeyingar höfum í fjölda
ára, án þátttöku danska utanríkis-
ráðuneytisins, gert samninga um
fiskveiðar við ísland og Grænland
hvort fyrir sig. En þegar svo kemur
að þríhliða samkomulagi, segjast
Danir verða að staðfesta samkomu-
lagið, sem er afar óheppilegt. Við
höfum árum saman mótað okkar
eigin fiskveiðistefnu og jafnframt
erum við í þeiiTÍ stöðu að vinna að
sjálfstæði okkar. Þess vegna er ekki
hægt að sætta sig við að Danir skuli
þurfa að eiga aðild að samkomulagi
sem snýst meðal annars um okkar
eigin fiskveiðilögsögu. Þetta virkar
á mig eins og þeir treysti okkur
ekki,“ segir Niclasen.
Ráðherrann segir einnig að hann
undrist kröfu danska utanríkisráðu-
neytisins, þar sem dönsku ríkis-
stjórninni sé fullkunnugt um það að
umræðurnar um sjálfstæði eyjanna,
leiði til þess að sjálfstjórn Færeyja
aukizt.
„Það fer ekki saman við það að
Danir krefjist þess að allar breyt-
ingar á samningum um fiskistofna
innan lögsögu okkar, þurfi staðfest-
ingu þeirra," segir Niclasen.
Verði samningsdrögin um þrí-
hliða samkomulag milli Islands,
Færeyja og Grænlands að veru-
leika, verða þjóðþing allra þjóðanna
að staðfesta það áður en það öðlast
gildi.
----------------
Tíu sviptir
veiðileyfi
FISKISTOFA svipti 10 báta veiði-
leyfi í ágústmánuði vegna afla um-
fram heimildir. Allir bátarnir hafa
fengið leyfið að nýju eftir að
aflamarksstaða þeirra hafði verið lag-
færð. Eftirtaldh- bátar voru sviptir
leyfinu: Styi-mir KE 11, Austurborg
GK 91, Gústi í Papey SF 188, Ólafur
GK 33, Dagur ÍS 400, Bjarmi VE 66,
Valm- ÍS 420, Suðurey VE 500, Jón
Pétur RE 411 og Röst SH134.
---------------------
Heimsókn frá
Mósambík
RÁÐUNEYTISSTJÓRI sjávarút-
vegsmála í Mósambík, Roderigues
Bila, og fyrrverandi fiskimálastjóri
landsins, Herminin Tembe, komu til
landsins síðdegis í gær. Þeir munu
dvelja hér á landi til 15. september á
yegum Þróunarsamvinnustofnunar
íslands. Með í ferðinni er verkefnis-
stjóri ÞSSI í Mósambík, Gísli Páls-
son. Heimsóknin er liður í að efla
þróunarsamstarf landanna tveggja á
sviði sjávarútvegs, sem staðið hefur
yfir síðan 1995. Gestirnir munu með-
al annars ræða við ráðuneytisstjóra í
utanríkis- og sjávarútvegsráðuneyti,
heimsækja ýmsar stofnanir, skóla og
fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og
svara spurningum fjölmiðlafólks.
J) o ö a s í a r f
1
iD’piíílbkOt&Halffívii áí asiafiriiaiímn TWr>-25> ánai
Uerihrðhé; ib’ifíbbxdfBw’ríKHttw ii lung^limg^tsntiti
S^iÍfoífegiiHgsiui;, siömten fi Wm - aj#kr*a«ríHi %mir
Maafkrm'ífc: ’tönrma) að) imamniix&m- teig;
ffiwininnntt'flJíífffritanááiisni •Kfrm smajfíöi uuangí tkfoifi
Q>-W íímvar íi rmHiixibi
l^imim^iniutnáifr wfsrihifr Ifiaiflimi
H3UBH2m) ItíL 2Um)a& iHfe«ri&£iNuu 1MSL.
lU^Mn^Hi-ííáifiMtnTCiSTiB íBHIÖ) H mS. Mm
niia
urkiríf'deiid.fedcross.ís
www.redcwMJs/uhi HK
Kosningasvindl sagt hafa hjálpað Pútín
Yfír milljón til-
búinna kjósenda
á skrá í Rússlandi
BEITT var víðtæku
kosningasvindli í Rúss-
landi í vor til að tryggja
að Vladímír Pútín for-
seti þyrfti ekki að beij-
ast við frambjóðanda
kommúnista, Gennadí
Zjúganov, í annarri um-
ferð. Kom þetta fram í
langri og ítarlegri um-
fjöllun dagblaðsins
Moscow Times sem gef-
ið er út á ensku í
Moskvu.
The Sundaý Times í
Bretlandi fjallar um
skriftn um helgina og
segir að í greininni komi
fram fjöldi dæma um
meint svindl en þess má geta að al-
þjóðlegir eftirlitsmenn álitu að kosn-
ingamar hefðu í aðalatriðum farið vel
fram.
Atkvæði voru keypt, bætt við at-
kvæðum í kjörkassa og niðurstöðutöl-
um breytt af dæmalausri ósvífni í að
minnsta kosti 12 héraðum af 89. I
Dagestan var tölunum breytt og Pút-
ín þannig látinn fá um 500 þúsund at-
kvæði aukalega. Mútur voru notaðar í
Tatarstan til að fá embættismenn á
staðnum til að fleygja tilbúnum Pút-
ín-atkvæðum í kassana, í borginni
Novosíbírsk fékk hver kjósandi sem
kaus Pútín vodkaflösku að launum og
í Bashkortostan var einfaldlega skipt
á atkvæðatölum, Pútín í hag, þegar
talning benti til að Zjúganov væri að
þokast fram úr forsetanum.
Frásögnin er ekki einvörðungu
hnekkir fyrir ráðamenn í Kreml. Hún
er einnig talin geta valdið vestrænum
ráðamönnum nokkram vanda vegna
þess að þeir hafa margir veðjað á að
Pútín væri þrátt fyrir allt reiðubúinn
að halda fast við leikreglur lýðræðis.
Sé það rétt að kosningasvikin hafi
verið svo umfangsmikil verður að
draga í efa að Pútín sé rétt kjörinn
þótt fáir efist um að hann hefði sigrað
Zjúganov ef til annarrar umferðar
mUli þeirra tveggja hefði komið.
Leikið á erlenda
eftirlitsmenn?
Strax að loknum kosningum full-
yrtu kommúnistar að um sjö milljónir
atkvæða hefðu verið hafðar af Zjúg-
anov með sviksamlegum hætti. Þess-
um staðhæfingum var yfirleittvísað á
bug og talið að ekkert væri að marka
þær, kommúnistar væra einfaldlega
tapsárir. Fulltraar Ör-
yggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu,
ÖSE, á kjörstöðum
víða um Rússland
sögðu að þær hefðu í
aðalatriðum farið vel
og lýðræðislega fram.
Samkvæmt opinberam
tölum um niðurstöður
kosninganna vann Pút-
ín þegar í fyrstu um-
ferð, hlaut rúmlega
helming atkvæða og
var með 2,2 milljónir
atkvæða fram yfir
meirihlutann sem ki-af-
ist var. Moscow Times
segir í átta blaðsíðna
umfjöllun sinni að minnst jafnmörg-
um atkvæðum hafi beinlínis verið
stolið af öðrum frambjóðendum og
l, 3 milljónir atkvæða hafi verið búnar
til handa Pútín með því að skálda upp
nöfn á fólki sem ekki var til.
Embættismenn úti héraðunum,
sem neituðu að taka þátt í svindlinu,
vora sumir reknir eftir kosningamar.
Yfirkjörstjóm í Rússlandi var sama
sinnis og erlendu eftirlitsmennimii-
en að sögn Moscow Times átti hún
sjálf mikinn þátt í svindlinu. Frá því
að haldnar vora þingkosningar í des-
ember 1999 og þangað til fosetakjörið
fór fram þrem mánuðum síðar var
bætt við nær 1,3 milljónum nýrra
kjósenda á kjörskrár. Er spurt var
hvemig á þessu stæði var skýringin
m. a. að nær 500 þúsund manns, sem
orðið hefðu að flýja heimili sín vegna
átakanna í Tsjetsjníu, hefðu ekki kos-
ið í desember en gert það í mars.
Einnig sagði yfirkjörstjórnin að um
550 þúsund manns undir tvítugsaldri
hefðu bæst í hóp kjósenda á umrædd-
um þrem mánuðum en að sögn
Moscow Times er þetta rangt.
Heimilisföng margra af kjósendun-
um sem bætt var við listana reyndust
ekki tíl, sumir vora skráðir á hæðum í
fjölbýlishúsum sem hafði ofur ein-
faldlega verið bætt við veraleikann.
Er embættismennh'nir hjá yfirkjör-
stjórninni rússnesku voru spurðir
nánar út í málið vora allar upplýsing-
ar um kjörskrámar skyndilega fjar-
lægðar af heimasíðu embættisins.
The Sunday Tímes gefur í skyn að
málið minni helst á fræga 19. aldar
skáldsögu Gogols, Dauðar sálir en
þar era stunduð viðskipti með ánauð-
uga bændur sem hvergi era til.
Vladímír
Pútín
Myndsíma spáð vinsæld
um í Bandaríkjunum
New York. AP.
MYNDSIMANUM er nú spáð vin-
sælduin en hann hefur heillað al-
menning frá því fyrirtækið AT&T
kynnti hann á heimssýningunni
1964. Frá þeim tíma hefur mynd-
siminn verið kynntur við og við en
hár kostnaður og léleg myndgæði
komið í veg fyrir að hann hafi náð
almennum vinsældum.
Síminn skal hins vegar nú kynnt-
ur almenningi á ný en vinsældir
hans til þessa hafa verið bundnar við
fjarfundi fyrirtækja. Símalínur hafa
reynst illa til flutnings á flúknum
myndtáknum enda hamiaðar til
flutnings á hljúði. Myndsími jap-
anska fyrirtækisins Kyocera er gott
dæmi um þetta en sá sími getur ein-
ungis flutt fjóra myndramma á sek-
úndu.
I Bandaríkjunum er nú hins vegar
eytt milljörðum dollara í að skipta út
hefðbundnum símalinum fyrir staf-
ræna DSL-þjúnuslu. Mörg ár geta
þú liðið þar t.il þorri almennings hef-
ur aðgang að myndsímuin, m.a.
vegna þess hve kostnaðarsamir þeir
eru. „Myndsímai’ eru í raun aðeins
nytsamlegir ef þeir sem þú vilt tala
við eru með einn slíkan líka,“ segir
Sheldon Hochheiser hjá AT&T.
Gene Rosov, forstjúri fyrirtækis-
ins Talk Visual, sem nú þegar býður
myndsímaþjúnustu í gegnum ISDN-
línur, er þú bjartsýnn en viðurkenn-
ir að kostnaðurinn, sem nemur urn
120.000 krúnum fyrir hvern síma, sé
of mikill fyrir hinn almenna neyt-
anda. „Við trúum því þú að á næsta
ári munum við geta boðið fúlki upp á
úkeypis myndsíma ef það fer með
alla símaþjúnustu sína í gegnum
okkur,“ sagði Rosov.
Ilvort almenningur vill síðan láta
sjá sig í símanum er svo annað mál.
Síminn býður fúlki í dag upp á sitt
sérstaka samskiptakerfi og eru þeir
til að mynda úfáir sem tala í símann
á meðan þeir sinna öðruin verkum.
„Það er ekki vitað hvort fúlk vill lála
sjá sig í símanum," segir Hochheis-
er. „Við spurðum ekki að þessu þeg-
ar við kynntum myndsímann upp-
haflega og mér er ekki kunnugt um
að þessari spumingu hafí nokkurn
tíma verið svarað."
j
m-
i