Morgunblaðið - 12.09.2000, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Kjarasamningar framhaldsskól-
ans eru kapphlaup við tímann
Menntastefna í orði
Á SÍÐUSTU árum hafa snarpir
vindar blásið um íslenskan
framhaldsskóla. Með lagabreyting-
um árið 1996 var skólunum fengin
mun ríkari ábyrgð á rekstri sínum en
áður tíðkaðist. Ábyrgðinni og skyld-
unum fylgdu því miður ekki nægileg-
ir fjármunir eða svigrúm til þess að
stýra eigin málum.
Með sömu lögum voru gerðar ýms-
ar þær breytingar á starfsemi fram-
haldsskólans sem nú eru að koma til
framkvæmda af fullum þunga með
nýrri námskrá. Má hér t.d. nefna
lagaskyldu framhaldsskóla til að inn-
leiða sjálfsmatsaðferðir, ákvæði um
ritun skólanámskrár, ákvörðun um
að umbylta námsbrautum fram-
haldsskóla, inntökuskilyrði í fram-
haldsskóla og samræmd próf. Fram-
haldsskólinn hefur ennfremur axlað
auknar skyldur gagnvart yngi'i nem-
endum vegna hækkunar sjálfræðis-
aldurs. Svona mætti raunar lengi
telja en er ekki áformað hér.
Allt of lítil almenn umræða hefur
farið fram um inntak þessara breyt-
inga, kosti þeirra og galla og áhrif á
líf og starf nemenda og kennara.
Fremur hljótt hefur einnig verið um
þá staðreynd að undanfarin tvö ár
hefur mjög sigið á ógæfuhlið um laun
og starfskjör kennara, námsráðgjafa
og stjórnenda framhaldsskóla.
Mannauður framhalds-
skólans vanmetinn
Kennarar og aðrir starfsmenn
framhaldsskóla bera uppi alla skóla-
þróun og nýbreytnistarf á hverjum
tíma og bera ábyrgð á því sem mest
er um vert að koma nemendum sín-
um til nokkurs þroska. Yfirvöldum
sem leyfa sér að gleyma því að góð
laun og starfskjör kennara eru mikil-
vægur þáttur í menntastefnu til
framtíðar er því líkt farið og bóndan-
um sem slátrar bestu mjólkurkúnni
sinni. Menntastefna í orði dugir ekki
til þess að skapa skóla
21. aldarinnar.
Það er til skammar
að skólameistarar
framhaldsskóla sem
skv. lögum eru skil-
greindir sem forstöðu-
menn ríkisstofnana séu
nær bjargarlausir
vegna umboðs- og fjár-
skorts þegar reyndir
kennarar taka pokann
sinn og hverfa til betur
launaðra og stundum
áreynsluminni starfa.
Þeir eltast allt sumarið
við að ráða kennara þar Elna Katrín
sem nýútskrifaðir há- Jónsdóttir
skólamenn líta ekki á
kennslu í framhaldsskólum sem val-
kost um störf - ekki vegna kennara-
starfsins sem slíks því það er sannar-
lega mikilvægt og gefandi, heldur
aðeins vegna launa og starfsskilyrða.
Kjarasamningar eru
kapphlaup við tímann
Kjarasamningar framhaldsskól-
ans renna út 31. október næstkom-
andi. Samningaviðræður standa nú
yfir samkvæmt viðræðuáætlun
samningsaðila frá 30. júní. Sam-
kvæmt áætluninni eiga samningavið-
ræður m.a. að snúast um launasetn-
ingu félagsmanna KÍ í fram-
haldsskólum, áhrif nýrrar aðal-
námskrár á störf þeirra, vinnu-
tímakafla kjarasamninga og fyrir-
komulag þeirra.
í þessari sameiginlegu vinnuáætl-
un kennarasamtaka og ríkisins er
svo ráð fyrir gert að hafi aðilar ekki
lokið gerð kjarasamnings fyrir 2.
október verði metið hvort málinu
verði vísað til sáttameðferðar hjá rík-
issáttasemjara.
Fjármálaráðherra hefur ekki
skipað samninganefnd
í ljósi þess sem að ofan er sagt
hlýtur það því að vekja furðu að fjár-
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Einstakur þjónustukjarni með veltu up á 7 millj. pr. mán. Selur
mikið af ísréttum, skyndibitum, sælgæti og leigir myndbandspólur.
Arðsamt fyrirtæki sem allir þekkja,
Framköllunarfyrirtæki sem er vel staðsett og með mikla viðskipta-
vild. Óteljandi möguleikarvið vinnslu á filmum og myndum. Góður
tækjakostur. Engin sérþekking. Arðsamt fyrirtæki fyrir fólk með
þjónustulund og skemmtilegt starf.
3. Þjónustufyrirtæki fyrir einstakling eða hjón. Góð og snyrtileg
vinnuaðstaða. Fyrirtæki sem gefur vel í aðra hönd. Engin sér-
kunnátta. Góður vinnutími.
4. Verslun með föndurvörur sem hún flytur inn að mestu sjálf. Góð
aðstaða í eigin húsnæði sem einnig er til sölu. Mikið af góðum
tækjum og góðum umboðum fylgja. Góð aðstaða og kennsla fyrir
nýjan kaupanda. Það er annasamur og gjöfull tími framundan.
5. Heildverslun með efnavörur sem stendur traustum fótum með
fasta trausta viðskiptavini. Frábærforvinna að baki. Góð arðsemi.
Tvö störf.
6. Einn þekktasti veitingastaður landsins sem leigir út sali, er með
veisluþjónustu og selur hversdagsmat í hádeginu bæði á staðn-
um og í matarbökkum. Eigið húsnæði sem einnig ertil sölu. Stað-
ur sem allir þekkja og er með mikið af föstum og traustum við-
skiptavinum.
7. Skyndibita- og sælgætissala sem opin er frá kl. 8 til 18 virka
daga. Lokað um helgar. Ný og fullkomin tæki, mjög snyrtilegur.
Siðlegur vinnutími. Góð staðsetning í fyrirtækjahverfi.
8. Fullkomin sólbaðsstofa með 10 bekkjum, mjög góðum bekkjum i
eigin húsnæði sem einnig getur verið til sölu. Sérstaklega snyrti-
leg stofa sem dregur fólk að sér með smáverslun í afgreiðslu.
Massíft parket á gólfum. Mikið að gera, enda á frábærum stað.
9. Þjónustustaður sem selur sælgæti og helstu nauðsynjar enda
eina hverfisverslunin. Það er ótrúlega mikið að gera enda mjög
góð velta. Einstaklega ódýrt miðað við veltu. Lottó og spilakassi
gefa góðar aukatekjur. Laust strax af sérstökum ástæðum.
10. Matvælaframleiðslufyrirtæki sem selur um 450-500 matarbakka
á dag og hefur frábært eldhús og góða aðstöðu fyrir veisluþjón-
ustu og sölu til félagasamtaka og hópa. Eigið húsnæði sem einn-
ig getur verið til sölu. Laust strax. Mikill annatími framundan.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUOURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
málaráðherra hefur
enn ekki skipað form-
lega samninganefnd
vegna endumýjunar
kjarasamninga fram-
haldsskólans eins og
honum er skylt skv.
lögum um kjarasamn-
inga opinberra starfs-
manna. Á samninga-
fundi hafa því af hálfu
fjármálaráðherra maett
fiilltrúar í sam-
starfsnefnd samkvæmt
kjarasamningi. Þessi
vinnubrögð benda ekM
til miMllar alvöru af
hálfu ríkisins um að
ljúka gerð kjarasamn-
ings fyrir 31. október - hvað þá fyrir
2. oMóber.
Staðreyndir um slaka
þróun kennaralauna á
borðinu í meira en ár
Réttir 15 mánuðir eru nú síðan
samtök kennara vöktu athygli fjár-
málaráðherra og menntamálaráð-
herra á því að forsendur kjarasamn-
ings framhaldsskólans frá 7. júní
1997 væru brostnar. Það rökstuddu
kennarasamtöMn með opinberum
tölum frá Kjararannsóknanefnd op-
inberra starfsmanna sem sýndu
glögglega að gjá hafði myndast milli
dagvinnulauna kennara og annarra
háskólamanna hjá ríM sem um árabil
höfðu verið fastur samanburðarhóp-
ur með svipaða menntun og ábyrgð í
starfi.
Haustið 1999 áttu kennarasam-
Kennarasamningar
Kennaralaunin í
framhaldsskólanum eru
í sögulegu lágmarki,
segir Elna Katrín
Jónsdóttir, og stefnir
í hreint óefni ef ekki
verður myndarlega
tekið á því að
bæta kjörin.
tökin fundi með fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra þar sem meg-
ináhersla var lögð á að stíga skref í
átt til þess að rétta hlut kennara
enda voru grundvallarforsendur
kjarasamninga kennara 1997 að sam-
bærileg þróun yrði á launum þeirra
og annarra háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna. Kennarar töluðu fyrii’
daufum eyrum og hafa fram til dags-
ins í dag ekM fengið neina leiðrétt-
ingu mála sinna ef frá er talin ein-
greiðsla síðastliðinn vetur til að
mæta auknu vinnuálagi vegna nýn-ar
aðalnámskrár.
Vandinn hefur því vaxið og mun
erfiðara verður að stíga nauðsynleg
skref til kjaraleiðréttingar í einu lagi
í kjarasamningum í haust en raunin
hefði orðið ef ráðamenn hefðu sýnt
þá framsýni og þann kjark sem þurfti
til að takast á við hluta vandans varð-
andi lág grunnlaun kennara í fyrra.
Byrjunarlaun framhaldsskóla-
kennara með 4 ára háskólanám og
kennsluréttindi eru nú tæp 110.000
kr. á mánuði. Starfsreynsla og við-
bótarmenntun sem kennarar eru sí-
fellt að afla sér bætir svo í raun
myndina lítið þar sem meðaldag-
vinnulaunin eru um 135.000 kr. á
mánuði. Þetta er því alvarlegra sem
meðalstarfsaldur er hár meðal fram-
haldsskólakennara og menntun
verulega umfram þá lágmarks-
menntun sem þarf til að öðlast
kennsluréttindi á framhaldsskóla-
stigi. Á sama tíma eru meðaldag-
vinnulaun annarra háskólamanna
hjá ríki rösMega 180.000 kr. á mán-
uði þannig að til þess eins að jafna
þann mun þyrftu kennaralaunin
strax að hækka um næstum 35%.
Slík leiðrétting þýddi þó aðeins að
kennaralaunin færðust nær því horfi
sem laun annarra háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna komust í á yfir-
standandi samningstímabili.
Óvenjuleg staða krefst
óvenjulegra lausna
Kennaralaunin í framhaldsskólan-
um eru í sögulegu lágmarki og stefn-
ir í hreint óefni ef ekM verður mynd-
arlega teMð á því að bæta kjörin
þannig að kennsla verði eftirsóknar-
vert starf og framhaldsskólar betur í
stakk búnir í harðri samkeppni um
vel menntaða starfsmenn. Samn-
ingagerð verður að taka föstum tök-
um á næstu vikum og alvara og ein-
lægni að ríkja um að leiða viðræður
til lykta þannig að varanleg lausn sé
fengin á þeim illvíga vanda sem afleit
grunnlaun kennara, námsráðgjafa og
skólastjórnenda baka nú skólanum
og samfélaginu.
Höfundur er formaður Félags fram-
haldsskólakennara og varaformaður
Kennarasambands Islands.
Island í neðsta sæti
I NYUTGEFINNI
skýrslu OECD um
menntamál kemur ým-
islegt fróðlegt í Ijós
varðandi íslensM
menntakerfi. Fjárfram-
lög til grunn- og fram-
haldsskólastigsins virð-
ast vera í lagi og eru
rétt fyrir ofan meðaltal
OECD-landanna. Þeg-
ar litið er á fjárframlög
til háskólastigsins kem-
ur aftur á móti allt ann-
að í Ijós. íslendingar
eru með lægsta fjár-
framlag af öllum Haukur Þór
OECD-löndunum og Hannesson
eru þau einungis tæp
54% af meðaltalinu. Aðeins 0,7% af
landsframleiðslu íslands fer til há-
skólastigsins á meðan meðaltal
OECD-ríkja er 1,3%.
Samanburðurinn verður enn meira
sláandi ef borið er saman við hin
Norðurlöndin en framlag íslands nær
ekM helmingi af framlagi nágranna-
þjóða okkar. Danir eyða 1,2% af
landsframleiðslu, Norðmenn 1,4%,
Finnar og Svíar eyða 1,7% af lands-
framleiðslu sem er 143% meira en ís-
lendingar sem veita einungis 0,7%
landsframleiðslu til háskólastigsins.
Það er sama hvert litið er, alls stað-
ar kemur íjársveltið fram. Kennslu-
rými er langt frá því að vera boðlegt
fyrir rúmlega 6.000 stúdenta. Háskól-
inn hefur ekM bolmagn
til að byggja kennslu-
húsnæði í því umhverfi
sem hann býr við. Líf-
fræðihúsið í Vatnsmýr-
inni er enn óMárað og
ekM sér fyrir endann á
þeirri byggingu. Há-
skólinn getur ekM leng-
ur fjármagnað bæði
nýbyggingar og haldið
við gömlu húsnæði með
peningum frá Happ-
drætti Háskólans. Það
verður einfaldlega að
koma auMð fjánnagn
frá stjómvöldum til að
Háskólinn eigi mögu-
leika á að mæta þeim
Möfum sem rúmlega 6.000 manna
Háskóli gerir í dag.
Skólagjöld ekki lausn
Um 66% háskólastúdenta eru í Há-
skóla Islands á meðan hann fær að-
eins 60% af fjárframlagi til skóla á há-
skólastigi. Þessar tölur eru lýsandi
fyrir þann litla sess sem Háskóli ís-
lands hefur fengið á fjárlögum undan-
farin ár. Afleiðingin er sú að ástandið
versnar jafnt og þétt og umræður um
skólagjöld verða sífellt meira áber-
andi innan Háskólans. Eg held að það
sé deginum Ijósara að vilji mennta-
málaráðherra er að Háskóli íslands
biðji um leyfi fyrir skólagjöldum enda
hefur ráðherra lýst því yfir að hann sé
Hómópatanám
Um er að ræða 4 ára nám í hómópatíu sem byrj-
ar í Reykjavík í haust á vegum College of Prac-
tical Homoeopathy í Bretlandi.
Kenndar eru 10 helgar á ári, auk heimanáms og
verklegrar þjálfunar. Námið veitir réttindi.
D.Howell skólastjóri C.P.H. kynnir námið
13., 14. og 15. sept. í Ármúla 44, 3. hæð.
Upplýsingar gefur Martin
í síma 567 8020 eða 897 8190
Fjársvelti
íslendingar, segír
Haukur Þór Hannes-
son, leggja minnst til
háskólamenntunar af
öllum OECD-löndunum.
sammála tillögu Háskólans um skóla-
gjöld í nýju MBA-námi. Útgönguleið
Háskólans má ekM vera skólagjöld,
heldur verður ríMð að axla þá ábyrgð
að halda uppi öflugum skólagjalda-
lausum ríMsháskóla eins og tíðkast
annars staðar á Norðurlöndunum.
Fjárfesting til framtíðar
Þrátt fyrir það ástand sem Háskól-
inn býr við geta stjómmálamennirnir
enn snobbað fyrir framhaldsmenntun
í ræðum sínum. Þeir tala um hversu
mikilvæg menntun sé fyrir ísland og
framtíð þess en þegar kemur að því
að veita peningum til háskólastigsins
kemur allt annað í ljós.
Það sem þarf er breyting á
hugsunarhætti. Það á ekM að líta á
fjárframlög til háskólastigsins eins og
hver önnur útgjöld heldur á að hugsa
þau sem fjárfestingu. Með því að fjár-
festa í menntun er um leið verið að
fjárfesta í framtíðarvelsæld. Þetta er
nauðsynlegt að alþingismenn hafi í
huga við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið
2001.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Stúdentaráðs.
skólar/námskeið
myndmennt
un, teiknun. Undirstöðuatriði og tækni.
jendur og framhaldsfólk.
lýsingar og innritun kl. 15—21 alla
i. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.