Morgunblaðið - 12.09.2000, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 12.09.2000, Blaðsíða 67
morgunblaðið ÞRIÐJUDAGUR12. SEPTEMBER 2000 67 ■>. /j (3 TT 553 2075 Sjáið alit um HOLLOW MAN, SCARY MOVIE ofl. stórmyndir á skifan.is. 553^75 alvöru Bfá! CCDolby S1AFRÆNT = = HLJÓBKBRH í | LJ y =—= ðLLUMSÖLUMI J Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 8. b.í.i6. www.laugarásbíó.is Halle Berry knúsar kærastann sinn, Enc Benet, en hun hlaut verðlaunin fyrir bestu frammistöðu í sjónvarpsmynd. Besta gamanþáttaröðin var Willog Graee sem fjallar um sam- Salurinn hyllti Michael J. Fox þegar hann kvaddi aðdáend- skipti samkynhneigðs manns og gagnkynhneigðrar konu. ur sína. Emmy-verðlaunin veitt um helgina Vinningshaf- arnir Reuters Leikarar, framleiðendur og höfundar Vesturálmunnar voru að vonum ánægðir með árangurinn. RAFMÖGNUÐ spennan lá í loftinu síðustu mínúturnar áður en tilkynnt- ir voru sigurvegarar virtustu verð- launa sjónvarpsins, sjálfra Emmy- verðlaunanna sem voru veitt við há- tíðlega athöfn á sunnudagskvöld. Stjörnurnar skinu skært í sínum fegursta skrúða og þótti sumum sem þær lýstu upp gangveginn á rauða dreglinum. Æstur aðdáendaskarinn stóð klukkustundum saman fyrir framan hátíðarhöllina þar sem verð- launaafhendingin fór fram til að berja goðin sín stjörnuþyrstum aug- um. Laun þolinmæðinnar voru líka ríkuleg þar sem leikkonurnar klædd- ust sínu fínasta pússi, silkikjólum og satínskóm svo að sjálfri Öskubusku hefði þótt sem álfkonan hefði svikið hana. Karlleikaramir voru einnig glæsilegir en öllu hefðbundnari en kvenskörungamir þar sem þeir skrýddust kjól og hvítu. Vesturálman sópar til sín flest- um verðlaunum í ár Úrslit hátíðarinnar voru öll á einn veg þar sem stjómmáladramað um Vesturálmuna (The West Wing) sóp- aði til sín níu verðlaunum og sló þar með öll met í sögu Emmy-verðlaun- anna. Fyrrverandi methafar voru þættirnir um Bráðavaktina (ER) og Hill Street Biues sem hvor um sig hlaut átta verðlaun á sínum tíma. eru... Flestir bjuggust reyndar við að mafíósaþátturinn The Sopranos myndi veita Vesturálmunni harðari samkeppni en þættirnir vora báðir tilnefndir til átján verðlauna. Mafíósamir fóru slyppir og snauð- ir frá hátíðinni og hlutu aðeins ein verðlaun sem féllu aðalleikara þátt- arins, James Gandolfini, í skaut. „Ég get varla útskýrt þetta með neinu öðru en að valnefndin sé hriíin af of þungum sköllóttum körlum," sagði Gandolfini og vísaði til sigurvegara undanfarinna ára. Gandolfini rændi þar með verð- laununum frá Martin Sheen sem flestir áttu von á að hlyti heiðurinn þar sem túlkun hans á Josiah Bartlet forseta í Vesturálmunni þykir næst- um skuggalega nákvæm eftirlíking á hegðun Bandaríkjaforseta nútímans. Þegar úrslitin vora orðin Ijós gætti nokkurrar biturðar í Sheen þegar hann lét hafa þetta eftir sér: „James var kannski valinn besti leikarinn en við unnum leikinn. Það er það sem skiptir mestu máli.“ Vínberin eiga það til að vera súr þegar maður nær ekki í þau sjálfur. Fox kvaddur með stæl Michael J. Fox afsalaði sér titli að- stoðarborgarstjóra New York-borg- ar í hinum vinsæla gamanþætti Ó ráðhús (Spin Citý) þegar Parkinsons- sjúkdómurinn sem hann þjáist af reyndist hamla honum um of við störf. Michael ákvað að taka sér frí frá leik til að leita sér lækninga og eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. Það kom því fáum á óvart þegar Michael var valinn besti gamanleik- arinn og hlaut hann dynjandi lófatak þar sem áhorfendur stóðu allir sem einn upp til að hylla þennan ástsæla leikara er hann tók við verðlaununum úr hendi hinnar nýgiftu Jennifer An- iston. „Takk, þetta hefur verið frá- bær skemmtiferð, haldið áfram að horfa,“ sagði Fox og steig sigurreifur niður af sviðinu. Tvenn stærstu verðlaunin fyrir kvenhlutverk féllu í skaut Selu Ward úr Enn og aftur (Once and Agairí) og Patriciu Heaton úr Allir elska Raym- ond (Everybody Loves Raymond). Sigurinn kom þeim báðum á óvart sem og lykilaðilum innan sjónvarps- iðnaðarins sem höfðu veðjað á Edie Falco og Lorraine Bracco annars vegar og Jennu Elftnan og Söru Jess- icu Parker hins vegar. Emmy-verðlaunin hafa oft verið gagnrýnd fyrir að vera fullfyrirsjáan- leg en ráku af sér slyðraorðið í ár. Það er þakkað breyttu fyrirkomulagi hjá valnefndinni sem hefúr skilað sér í stórauknum atkvæðaskilum. Áður var nefndarmeðlimum smalað saman á hótel þar sem þeir sátu klukku- stundum saman og horfðu á tilnefndu þættina en í ár var sú nýbreytni tekin upp að senda kjörnefndinni þættina heim til þeirra á myndbandsspólum svo að meðlimir gætu horft þegar þá lysti innan kunnuglegra veggja heim- ilisins en ekki á sótthreinsuðu hótel- herbergi fjarri fjölskyldunni. Með _ þessu fyrirkomulagi skiluðu 2.500* manns atkvæðum sínum í ár en 650 í fyrra. Það vora því í raun Emmy- verðlaunin sjálf sem vora helsti sig- urvegari ársins. rAphOstorgi samfilm.iíá æ!A aaafly; BWNVJ/IIJ sími 421 1170 - samfilm.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.