Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður Félags eldri borgara um breytingar á kjörum ellilífeyrisþega
Eldri borgarar óánægðir
og hyggiast mótmæla
Öryggi á
hausthá-
tíð Breið-
holtsskóla
FJÖLBREYTT dagskrá var á
hausthátíð Brciðholtsskóla í
Reykjavík í gær en hún er árlegur
viðburður og haldin til að bjóða
alla vclkomna til starfa í upphafi
skólaársins. Meðai dagskráratriða
var heimsókn slökkviliðs og lög-
reglu til að sýna í hverju starf
þeirra væri fólgið, trúðar komu í
heimsókn, júdókappar sýndu fimi
sína og veitingar voru í boði. Hér
fá nemendur ábendingu um
hversu þýðingarmikið er að nota
öryggisbelti í bílum.
ÓLAFI Ólafssyni, formanni Félags
eldri borgara í Reykjavík, þykja
þær breytingar á kjörum ellilífeyr-
isþega, sem kynntar voru af Ingi-
björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra í fyrradag, ekki ganga nógu
langt.
„Þetta var spor í rétta átt þótt
stutt hafi verið stigið því við höfðum
vænst mun meira - okkur þótti
þetta þunnur þrettándi," sagði ðlaf-
ur. „Eg átti fund með formönnum
félaga eldri borgara í nágrenni
Reykjavíkur eftir að kjarabreyting-
arnar voru kynntar í fyrradag og
menn þar voru mjög óhressir og
hyggjast mótmæla. Vandinn er sá
að allar götur frá 1991 hefur bilið
milli eftirlauna og lægstu launa-
taxta gliðnað og það er nú um 18
prósenta munur þar á.“ Ólafur sagði
að breytingin, sem ráðherrann hefði
kynnt, leiðrétti á engan hátt þennan
mikla mun. Breytingarnar, sem
taka gildi um mánaðamótin, fela í
sér hækkun á frítekjumörkum ör-
yrkja- og ellilífeyrisþega auk þess
sem dregið er úr tengingu upphæð-
ar bóta við tekjur maka. Samkvæmt
breytingunum hækkar almennt frí-
tekjumark ellilífeyrisþega úr 20.916
krónum í 22.380 krónur og frítekju-
mark ellilífeyrisþega sem eiga úti-
vinnandi maka hækkar úr 33.570
krónum í 44.760 krónur.
Ólafur sagði að sérstök nefnd
væri að endurskoða kjör aldraðra
og að Félag eldri borgara væri að
bíða eftir áliti nefndarinnar. Hann
sagði að félagið myndi áfram vinna
að bættum kjörum aldraðra, sér-
staklega þar sem enn væri mikill
munur á kjörum aldraðra hér og í
nágrannalöndunum. Hann sagði að
aldraðir sættu sig illa við hækkun
þjónustugjalda, trygginga og mikla
hækkun lyfjaverðs. Þá sagði hann
að Félag eldri borgara myndi einnig
skoða stöðu hjúkrunarþjónustunnar
en nú er 231 maður á biðlista eftir
rými á hjúkrunarheimilum í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Þorkell
Aðalfundur Neytendasamtakanna
Jóhannes áfram
formaður
JÓHANNES Gunnarsson var endur-
kjörinn formaður Neytendasamtak-
anna á aðalfundi þeirra á Grand Hótel
Reykjavík í gær. I kjöri til formanns
hlaut hann 77% greiddra atkvæða, en
90 manns kusu. Mótframbjóðandinn,
Sverrir Amgrímsson, gjaldkeri sam-
takanna, hlaut 23% fylgi.
Eftir að úrslitin lágu fyrir þakkaði
Jóhannes fundarmönnum traustið.
Það væri sér hvatning til frekari dáða
í starfi. Sverrir óskaði Jóhannesi til
hamingju með kjörið og sagðist von-
ast eftir ánægjulegu samstarfi við
hann áfram. Jón Magnússon lögmað-
ur gaf ekki kost á sér áfram sem vara-
formaður samtakanna og var Markús
Möller kosinn í hans stað.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
átti eftir að kjósa 21 manns stjóm
Neytendasamtakanna sem fer með
æðsta vald þeirra.
Skjár einn til Akureyrar
SJÓNVARPSSTÖÐIN Skjár einn
hóf í vikunni útsendingar á Akur-
eyri. Stöðin er í samstarfi við
Skjávarpið á Akureyri og sendir út
á sömu tíðni frá kl. 19-2 en Skjá-
varpið nýtir senditíðnina á öðrum
tíma sólarhringsins.
Ari Karlsson hjá Skjávarpinu á
Akureyri sagði að þetta væri sama
fyrirkomulag og væri við lýði á Sel-
fossi og að fyrirhugað væri að Skjár
einn yrði í samstarfi við Skjávarpið
víðar á landsbyggðinni. Stefnt væri
að því að hefja útsendingar síðar,
m.a. á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði,
Sauðárkróki og Húsavík.
Yfírmaður peningamálasviðs Seðlabankans um evruna
Styrking hefur lítil
áhrif til langs tíma
Laus em-
bætti við
Dómkirkju-
og Arbæj-
arsóknir
BISKUP íslands hefur
auglýst laus til umsóknar tvö
sóknarprestsembætti í
Reykjavík, í Dómkirkju-
prestakalli og Árbæjarpresta-
kalli. Séra Guðmundur Þor-
steinsson, sóknarprestur í
Árbæjarsókn, og séra Hjalti
Guðmundsson, sóknarprestur
í Dómkirkjunni, láta af störf-
um kringum áramót fyrir ald-
urs sakir.
I báðum prestaköllunum
eru tvö embætti og verður
staða sóknarprests í Árbæj-
arsókn veitt frá næstu ára-
mótum en staða sóknarprests
í Dómkirkjuprestakalli frá 1.
febrúar á næsta ári.
Séra Guðmundur Þor-
steinsson hefur gegnt því em-
bætti frá ársbyrjun 1971 en
hann er einnig dómprófastur í
Reykj avíkurprófastsdæmi
eystra. Stöðu prests í Árbæj-
arsókn gegnir nú séra Þór
Hauksson.
Séra Hjalti Guðmundsson
hefur verið sóknarprestur í
Dómkirkjuprestakalli frá
haustinu 1976. Hinni stöðu
sóknargrests þar gegnir séra
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
YNGVI Öm Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri peningamálasviðs
Seðlabankans, segir, þegar hann er
inntur eftir viðbrögðum við víðtæk-
um inngripum nokkurra stórra
seðlabanka til styrkingar evrunni, að
inngrip orki alltaf tvimælis. Áhrifin
séu oftar til skamms tíma og varan-
leiki þessara aðgerða ekki mikill til
lengri tíma litið. Undirliggjandi
straumar eins og utanríkisviðskipti
og fjármagnshreyfingar ákvarði
gengi gjaldmiðla til lengri tíma og
svona stuðningsaðgerðir hafi aðeins
ÁKVEÐIÐ hefur verið að frestað
verði heimsókn Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra til Joscha
Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, sem standa átti dagana 11.
og 12. október næstkomandi. Tóku
ráðherrarnir um þetta sameigin-
lega ákvörðun.
tímabundin áhrif. Yngvi Örn segir
inngrip seðlabanka Bandaríkjanna
hafa komið sér á óvart miðað við fyrri
yfirlýsingar ráðamanna bankans.
Inngrip annarra banka frá Evrópu
og Japan hafi verið fyrirsjáanlegri.
Leiðir til aukinnar eftirspurnar
eftir dollurum
„Það sem kann að hafa breyst hjá
Bandaríkjamönnum er að Michael
Mussa, aðalhagfræðingur Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins, var með yfirlýs-
ingar í byrjun vikunnar um að inn-
Joscha Fischer var á ferð hér á
landi í byrjun mánaðarins, um leið
og Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, og áttu þeir Halldór
Ásgrímsson þá viðræður og fóru
yfir ýmis málefni í samskiptum
landanna, að sögn Atla Ásmunds-
sonar, blaðafulltrúa utanríkisráðu-
grip sem þessi væru nauðsynleg. Að
lækkun evrunnar raskaði stöðug-
leika í heimsbúskapnum og skilyrð-
um til áframhaldandi hagvaxtar."
Yngvi Öm segir ástæður veiking-
ar evrunnar gagnvart dollar vera
kraftinn í bandaríska hagkerfinu og
mismikill en vaxandi hagvöxtur í
Evrópu. Inngripin breyti litlu um
þetta, aðstæðumar verði þær sömu.
Þær leiði til spurnar eftir dollumm.
Aðspurður segir Yngvi Öm að
áhrif inngripanna á íslenskan gjald-
eyrismarkað verði ekki mikil.
neytisins. Á leiðtogafundi Samein-
uðu þjóðanna skömmu síðar
ákváðu utanríkisráðherramir að
fresta heimsókn Halldórs Ás-
grímssonar þar til snemma á
næsta ári þar sem ekki væri þörf á
fundi þeirra svo skömmu eftir að
þeir ræddust við hérlendis.
Dómsmála-
ráðherra til
Litháen
SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, fer á mánu-
dag í þriggja daga opinbera heim-
sókn til Litháen í boði dómsmála-
ráðherra landsins, Gintaras
Balciunas.
Samkvæmt tilkynningu frá ráðu-
neytinu munu ráðherrarnir skipt-
ast á upplýsingum um réttarkerfi
ríkjanna, löggjöf, alþjóðasamninga
og fleira. Sólveig mun einnig
kynna sér stöðu löggæslumála í
Litháen, stöðu fíkniefnamála og
ólöglegan flutning fólks milli landa.
------------------
Pitsusendill
rændur
RÁÐIST var á pitsusendil við Háa-
leitisbraut, bak við Austurver, í
Reykjavík um klukkan 2.20 í fyrri-
nótt og hann rændur. Sendillinn sat
inni í bíl að snæðingi þegar árás-
armaðurinn opnaði bfidyrnar og dró
hann út úr bflnum.
Ræningjanum tókst að ná af
sendlinum mittistösku sem í voru
20-30.000 krónur auk kreditkorta-
nótna. Sendillinn gerði lögreglu við-
vart um atvikið. Hann hlaut áverka
á enni, bólgur á vinstra gagnauga
og vinstra hné. Árásarmaðurinn,
sem var óvopnaður og einn að
verki, komst undan. Málið er í
rannsókn hjá lögreglunni í Reykja-
vík.
Þýskalandsheimsókn
utanríkisráðherra frestað