Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 58
,58 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
»----------------------- -------
MORGUNBLAÐIÐ
mOGGFÍSLJEDin
FÓLK í FRÉTTUM
Nettilboð 3.200 kr.
Almennt verð 3.500 kr.
NETVERSLUN
0 mbl.is
NáttúruLegt
C-vftamfn!
eilsuhúsið
* Skólavörustíg, Kringlunni
og Smáratorgi
BRYN]A V
Um grafíska hönnun kynningarplakatsins sá Óm-
ar Sverrisson en fyrirsætan heitir George Leit.
Ljósmynd/Ari Magg
Brynja Sverrisdóttir og sköpunarverk hennar „Umvafín trú.
Brynja Sverrisdóttir styður Amnesty International
Trúarbrögð
tengjast
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN
Amnesty International hafa í gegn-
um tíðina notið liðsinnis og velvilja
fólks af öllum stigum þjóðh'fsins.
Rithöfundar, leikarar og annað
listafólk hafa unnið og tileinkað
samtökunum verk til styrktar bar-
áttunni fyrir auknum mannréttind-
um um veröld alla.
Listamaðurinn Brynja Sverris-
dóttir hefur nú bæst í þennan sívax-
andi og styrka hóp velunnara Amn-
esty International. Hennar framlag
til samtakanna er verkið „Umvafin
trú“ eða „Embracing Faith“, arm-
band sem samanstendur af tuttugu
trúartáknum sem öll tengjast í
gegnum alþjóðlegt merki friðarins.
Hatrammar styrjaldir í aldanna
rás hafa oftar en ekki átt rót að
rekja til átaka ólíkra trúar- og
menningarhópa þar sem svfvirðileg
mannréttindabrot hanga eins og
svartur skuggi yfír lífi heilu þjóð-
anna.
Hugmynd Brynju að baki arm-
bandinu er að sti'ga skref fram á við,
burt frá óeirðum fortíðar og tengja
hin ólíku trúarbrögð og kynþætti
með boðskapi friðar og stuðla þann-
ig að gagnkvæmum skilningi og
virðingu manna á meðal. Verkið er
því „ákall til fólks um að virða rétt-
indi allra til samvisku og trúar sem
og að styrkja samskipti milli ólíkra
trúar- og menningarhópa. Trúin á
að tengja okkur - ekki sundra.“
Þess má geta að tónlistarmenn-
imir Dave Stewart og Annie Lenn-
ox bera „Umvafín trú“ armbönd á
Peace-tónleikaferð sinni auk þess
sem Vigdís Finnbogadóttir fyrrver-
andi forseti og Björk Guðmunds-
dóttir hafa fengið gullbandið að
gjöf.
Með gripnum fylgir lítil bók sem
útskýrir táknin tuttugu. Þar er
einnig að fínna upplýsingar um
starfssvið og inarkmið Amnesty Int-
ernational.
Happdrætti um Græna
kortið í Bandaríkjunum
Lærðu, starfaðu og njóttu lífsins í Bandaríkjunum
50.000 Græn kort í boði. Möguleiki á ríkisborgararétti.
Frestur fyrir DV-2002 verður tilkynntur seinna... Ekki missa af því!
ÓKEYPIS OPINBERAR upplýsingar - sendið nafn, heiti fræðingarlands og fullt heimilsfang til:
National Visa Registry Eða sækið um á:
PMB 725,16161 Ventura Blvd., www.nationalvisaregistry.com
Encino, CA 91436 Netfang: info@nationalvisaregistry.com
USA Sími: 001 818 784 4618
vetrurlitunum LÉGENDE
BOURJOIS
Jlfij
jff
(ílljiiIiIijM
Styrktartónleikar á Ingólfstorgi
Hjálmprýddir,
leðurskrýddir
riddarar
BIFH JÓLAMENN og -freyjur eru ekki allsendis sátt við
þau háu iðgjöld sem lögð eru á fáka þeirra. Hinar leður-
klæddu valkyrjur og víkingar veganna hafa því tekið
hanskahuldum höndum saman og ákveðið að halda tón-
leika til styrktar tryggingafélögunum. „Sú hugmynd kom
upp að vera með virkar aðgerðir til að vekja athygli á
hvernig tryggingamálin standa en meðal bifhjólamaður
er að greiða hátt á fimmta hundrað þúsund króna í trygg-
ingar á ári, án tillits til aldurs eða reynslu," segir Víðir
Hermannsson, einn meðlima Bifhjólasamtaka lýðveldis-
ins, Sniglanna, um tilurð tónleikanna. Hugmyndin er nú
orðin að bláköldum veruleika því tónleikarnir verða í dag
á Ingólfstorgi og hefjast kl. 14. Hljómsveitimar sem koma
fram eru KFUM and the andskotans, Stimpilhringimir
og Hundslappadrífa en fleiri sveitir og óvæntir gestir
gætu einnig átt það til að stíga á stokk. Hljómsveitar-
meðlimir eru flestir bifhjólaáhugamenn og stendur því
málefnið hjarta þeirra nærri. Þess má geta að allar sveit-
imar gefa vinnu sína í þágu málefnisins. Það er þó ekki að-
eins tónlistarflutningurinn eða manngæskan sem ætti að
fá fólk til að flykkjast á Ingólfstorg því einnig verða glæsi-
legir og afar margvíslegir mótorfákar úr bifhjólaflotanum
Síðustu smáatriðin yfirfarin áður en
haldið er á Ingólfstorg.
til sýnis. Breiddin er mikil því íslenskir knapar hrífast af
öllum útgáfum hjóla allt frá sófasettum til drullumallara.
Ef einhver hváir yfír þessum lýsingum vefst Víði ekki
tunga um tönn við að útskýra nafngiftirnar og segir skelli-
hlæjandi: „Sófasett er stórt hjól sem er þægilegt að sitja á
og hefur stereó-græjur og síma fest við settið. Drullumall-
arar eru svo að sjálfsögðu hjól sem eru notuð í drullumall-
inu, torfæm og þvflíku.“ Þeir mótorhljólaklúbbar og -fé-
lög sem standa að uppákomunni em Bifhjólasamtök
lýðveldisins, Sniglar, Vélhjólaklúbburinn Vík, MC Fafnir
Grindavík og Vélhjólafélag gamlingja. Hjólamenn og aðr-
ir áhugamenn um sportið eru hvattir til að fjölmenna og
eru allir velkomnir á meðan torgrými leyfir. Þó ekki sé
mkkað inn sérstakt aðgangsverð má hafa í huga að um
styrktartónleika er að ræða og því tekið við frjálsum
framlögum á tónleikasvæðinu. Allur ágóði af samkomunni
rennur að sögn Víðis óskertur til tryggingafélaganna „svo
þau eigi auðveldara með að tryggja mótorhjól."
Lestur er undirstaða...
niHþ Allra starfa í nútíma þjóðfélagi. Því betri sem þú ert í lestri, þeim mun
betri möguleika hefur þú á að ná góðum árangri í starfi.
Alls náms. Því betri sem þú ert í iestri, þeim mun betri möguleika hefur
þú á að ná góðum árangri í námi.
Hafðu undirstöðuna í lagi. Margfaldaðu lestrarhraðann. Lestrarhraði
fjórfaldast að jafnaði og eftirtekt batnar.
Næsta námskeið hefst 26. september. Við ábyrgjumst árangur.
Sími 565 9500
HRAÐLESTRARSKOLINN
www.hradlestrarskolinn.is