Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA ÍDAG
Ljósmynd/Gísli Sig.
Kapcllan á Kirkjubæjarklaustri.
Húmar
að hausti
Birta og myrkur seg;ia til sín í huga fólks
_____sem í umhverfí þess. Stefán_
Friðbjarnarson staldrar við átök
ljóss og myrkurs í mannlífínu.
ÞAÐ húmar að hausti. Framund-
an er árstími kulda, myrkurs og
vályndra veðra. Við, sem eldri er-
um, þekkjum af langri reynslu
þennan kapítula í hringrás árs-
ins. Kunnum tökin á honum að
eigin áliti - með hlý hús, hlýjan
klæðnað, hlýja bíla, raflýst um-
hverfi og nútímatækni að vopni.
Vitum samt sem áður að varlega
verður að fara. Náttúruöflin eru
enn óbeyzluð og láta ekki að sér
hæða. En vissan um vor að baki
vetrar, sól og sumartíð, hjálpar
okkur til að þreyja þorrann og
góuna.
Verra er að það húmar á
stundum í mannshuganum -
dimmir í sál og sinni. Sagt er að
við sáum rökkri, mannkindurnar,
í eigin huga og annarra, vísvit-
andi eða ómeðvitað. Sigurbjöm
biskup Einarsson víkur að þessu
myrkri, myrkri af mannavöldum,
í lítilli bók um mikið efni (Sárið
og perlan - hugleiðingar á föstu),
sem Hallgrímskirkja gaf út í
fyrra. „Þetta gerist,“ segir bisk-
upinn, „það er enginn skáldskap-
ur. Það er hægt að sá rökkri.“
Hann vitnar í hendingar Þor-
geirs skálds Sveinbjamarsonar:
„Hjarta þú sáir rökkri, uppsker
nótt.“ Og bætir við: ,AHt skugga-
legt, öll myrkraverk spretta upp
af því, sem hjarta sáir í sjálft sig
og lætur sá sér og festa rætur.“
Hvemig er hægt að sá myrkri,
kvöl og sársauka? Það er víst
hægt að gera með ýmsum hætti.
Siðblindur maður, sem selur ung-
viði eitur, sáir kvöl, jafnvel
dauða, í samferðarfólk sitt og
umhverfl. Myrkursáning af þessu
tagi er því miður ekki fátíður
gjörningur, hvorki í velferðar-
ríkjum heims, svokölluðum, né í
hinum vanþróaðri. Island er fyrir
löngu komið inn á eiturkortið.
Sölumenn dauðans sáu um þá
kortlagningu. Og þeir era sagðir
iðnir við kolann.
Það er líka hægt að sá depurð
og dimmu í eigin hug og annarra
með kæraleysinu einu saman.
Sigurbjörn biskup komst svo að
orði í föstuhugleiðingu í Hall-
grímskirkju: „í kvöld, á þessari
stundu, er bam að fá kalblett eða
meinvarp í sál sína. Af því að það
er gleymt, vanrækt. Kannski á
það metnaðarfulla foreldra, en
þeir gleyma þessari gersemi
sinni. Akveðnin við að komast
áfram og njóta lífsins blindar. -
Margt barn er í sakleysi sínu að
uppskera nótt, sem rökkvað
aldarfar og brenglað lífsmat sáir
til.“
Já, við mannfólkið sáum á
stundum kulda og myrkri, bæði
vísvitandi og ómeðvitað. Styrj-
aldir, hryðjuverk, eiturlyf, for-
dómar, öfgvar og ofstæki setja
svip sinn á mannkynssöguna. En
myrkurhliðin er ekki eina hlið til-
verunnar. Því fer víðs fjarri.
Birtuhliðin ræður einnig ferð í
breytni manna - og sem betur
fer oftar en sú myrka. „Hjartað
sáir,“ segir Sigurbjörn biskup,
„en ekki rökkri einu. Engin nótt,
ekkert dægur, engin stund líður
svo, að ekki sé góðu sáð, birtu og
ljósi. - Um það mætti rekja
dæmin margfalt fleiri en um
hitt...“ - Og það þarf stundum
ekki mikið til að koma góðu til
leiðar. Jafnvel bros gestur
dimmu í dagsljós breytt. Eftir
stendur samt sem áður að allt of
margir þjást og deyja af völdum
hins illa í veröldinni.
Sigurbjörn biskup talar einnig
i sínu gefandi kveri um auga
hjartans - innri sjón okkur. „Ef
auga líkamans er sjúkt eða
blint,“ segir hann, „þá gagnar
engin ytri birta. Eins er um sjón
hjartans ..." Þess vegna er mikil-
vægt að varðveita heilbrigði
trúarlegrar sýnar okkar á lífið og
tilverana.
Þegar myrkur fyllir huga okk-
ar torveldar það sýn okkar á hið
góða í tilverunni. Þá og endra-
nær er mikilvægt að tendra ljós
trúarinnar í eigin huga og í sam-
félaginu. Hleypa honum að sem
er ljós lífsins. Muna fyrirheitið
mikilvæga: „Sá sem fylgir mér
hefur ljós lífsins“ (Jóh.8,12).
Átök birtu og myrkurs eru
ekki einungis í umhverfi okkar;
nótt - dagur, skammdegi - nátt-
laus voraldarveröld. Þau birtast
okkur með margvíslegum hætti í
samskiptum þjóða og einstakl-
inga. Og í átökum eigin hugar.
Leiðin út úr þeim átökum er ein-
föld, þótt hún vefjist fyrir okkur
flestum: Að taka afstöðu, einarða
afstöðu, með Ijósinu - gegn
myrkrinu.
VELVAKAMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
íslendingar í
fornbflavíking
í FRÉTTABRÉFI Forn-
bílaklúbbs Islands frá 6.
sept. sl. er stutt grein um
fyrirhugaða ferð 18 forn-
bílafélaga á bflasýningar í
Bandaríkjunum. I grein-
inni segir m.a: ,,Er þetta
stærsti hópur Islendinga
sem lagst hefur í fornbfla-
víking til þessa...“
Ekki getum við látið
þessi skrif afskiptalaus. I
nóvember ’98 fór rúmlega
20 manna hópur frá Islandi
til Daytona Beach á Florida
gagngert til að taka þátt í
Turkey Run og í nóvember
99 fóru 45 manns.
Turkey Run hefur verið
haldin á Daytona Beach í 26
ár og er hún stærsta bfla-
sýning sinnar tegundar í
suðausturhluta Bandaríkj-
anna. Þegar mest var á
sýningunni í fyrra var fjöldi
gesta 100.000, fjöldi
skráðra fornbfla var rúm-
lega 5.000 og þar að auki
voru rúmlega 4.000 fornbíl-
ar á svæðinu. Turkey Run
er algjör Mekka fornbfla-
áhugafólks. Einn ferða-
langur varð svo hrifinn að
þegar heim var komið var
hans fyrsta verk að senda
Fornbflaklúbbi Islands
greinargerð um ferðina.
Stiklaði hann á stóru um
það sem fyrir augu bar og
nefndi fjölda ísl. þátttak-
enda. Greinarhöfundi barst
kveðja og þakklæti fyrir
bréfið undirritað af Émi
Sigurðssyni sem er annar
ábm. fréttabréfs Fornbíla-
klúbbs Islands.
Því erum við vægast sagt
mjög hissa á þeirri fullyrð-
ingu að félagar úr Fom-
bflaklúbbi Islands séu
stærsti hópur Islendinga
sem lagst hefur í fornbfla-
víking til þessa.
Ef til vill er átt við að
Hvar er málverkið?
Er einhver sem veit hvar þetta málverk eftir Bjarna
Jónsson sem málað var 1953 er niðurkomið? Málverk-
ið glataðist í flutningum fyrir 8 árum síðan. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar era beðnir að hafa samband
við Jón Bjarnason í síma 588-7826 eða listmálarann
Bjama Jónsson í síma 551-2774.
þessi 18 manna hópur sé
stærsti hópur sem hefur
farið á vegum Fornbíla-
klúbbsins. Ef svo er verða
aðilar að athuga að á Is-
landi er þó nokkur fjöldi
manna sem hefur áhuga á
fornbflum en eru ekki
skráðir félagar í Fornbíla-
klúbbnum.
Enn verður haldið til
Daytona Beach á þessu ári
og hefur brottför verið
ákveðin 20. nóvember nk.
Fyrir þá sem langar að
fræðast um Turkey Run
má finna ýmsar upplýsing-
ar um sýninguna á netinu,
t.d. á vefslóðinni http://
www.earshows.org
Sigurður Ó. Lárusson,
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Brckkulandi 8, Mosf.
Spænski boltinn á Sýn
VEGNA skrifa Örvars í
Velvakanda sl. miðvikudag
vill undirritaður koma
nokkrum upplýsingum til
skila. Um nokkurt skeið
hefur Sýn verið með beinar
útsendingar frá spænska
boltanum og svo verður
áfram í vetur. Á þessu
keppnistímabili eru fyi-ir-
hugaðar tíu beinar útsend-
ingar frá sérvöldum leikj-
um í 1. deildinni þar sem
toppliðin koma við sögu.
Fyrsti leikurinn er á dag-
skrá Sýnar laugardaginn
30.september klukkan
18.50 en þá taka meistarar
Deportivo La Coruna á
móti Barcelona. Sömuleiðis
má vekja athygli á leik
erkifjendanna Barcelona
og Real Madrid sem sýnd-
ur verður beint á Sýn laug-
ardaginn 21. október. Að
auki verða fréttir af Luis
Figo, Rivaldo og öllum hin-
um snillingunum í Heklu-
sporti, nýjum íþróttaþætti
sem er á dagskrá Sýnar
alla virka daga. Örvar og
aðrir áhugamenn um
spænsku knattspyrnuna
eiga því von á góðri
skemmtun á Sýn í allan vet-
ur.
Kveðja,
Gunnar R. Sveinbjörns-
son, kynningarfullt. IU.
Þakkir til
Vestfirðinga
VIÐ hjónin vorum á tíu
daga ferðalagi um Vestfirð-
ina fyrir stuttu og getum
ekki orða bundist yfir feg-
urðinni sem alls staðar
blasti við okkur. Breiða-
fjörðurinn var alveg speg-
ilsléttur og þarna var fólk
upp um allar hlíðar að tina
ber. Við erum afar hissa að
blöðin skuli ekki birta
meira af myndum frá þess-
um landshluta. Okkur lang-
ar að senda starfsfólki
Flókalundar okkar bestu
þakkir fyrir frábæra þjón-
ustu og hlýlegt viðmót og
einnig til allra Vestfirðinga
fyrir einstaka þjónustu.
Veitingastaðirnir gefa ekk-
ert eftir veitingastöðum
Reykjavíkurborgar.
Kærar þakkir fyrir okk-
ur,
Fríða og Örn.
Þakkir - bókin
er fundin
VIÐ viljum þakka öllum
þeim sem stóðu að því að
drengurinn, sem tapaði
bókinni á landsleik Dana og
Islendinga, hefur fengið
hana aftur. Sérstakar
þakkir til Harðar og Einars
á Skjá 1 því þeir eiga heiður
skilið fyrir framgöngu sína
í þessu máli. Kærar þakkir,
Fjölskylda drengsins og
eigandi bókarinnar.
Stiginn
er fundinn
KONAN, sem fékk
hamstrabúr hjá Ingibjörgu
í Æsufelli, er vinsamlegast
beðin að hafa samband í
síma 697-7183.
Víkverji skrifar...
SVONEFND kostun á efni Ríkis-
sjónvarpsins hefur nokkuð verið
til umræðu að undanförnu, ekki síst
eftir að Sjónvarpið fékk kostunarað-
ila á einstaka sjónvarpsþætti sína,
eins og þá vinsælu þáttaröð Bráða-
vaktina. Kostun er svosem ekki nýtt
fyrirbrigði og hefur tíðkast um ára-
bil erlendis, en Ríkisútvarpið hefur á
síðustu áram fært sig í auknum mæli
yfir á þennan markað, fyrst með
kostun stærri viðburða, t.d. á sviði
íþrótta í beinni útsendingu, en síðar
á fleiri sviðum, t.d. frá útsendingum
á atburðum í menningar- og listalíf-
inu.
NÚ ER það svo að Víkverji telur
nákvæmlega ekkert mæla
gegn því að einkaaðilar í útvarps- og
sjónvarpsrekstri leiti leiða til að fjár-
magna einstaka dagskrárliði með
stuðningi utanaðkomandi aðila. Það
getur jafnvel verið stórsniðugt ef um
stóra og dýra viðburði er að ræða.
Jafnframt verður hann að viður-
kenna hversu púkalegt honum finnst
þegar sjálfsagðir dagskrárliðir á
borð við veðurfregnir era kostaðir
með þessum hætti. Hins vegar er lít-
ið við því að gera, enda einkafyrir-
tækjum nauðsyn að sýna ráðdeild og
hugmyndaauðgi í rekstri sínum, þó
ekki væri nema til þess að ná endum
saman og geta haldið áfram að veita
þjónustu og laða að sér áhorfendur
eða áheyrendur.
HINN bóginn þykir Víkverja
aldeilis fráleitt að útvarp eða
sjónvarp í eigu ríkisins taki þátt í
„harki“ af þessu tagi. Út af íyrir sig
er fráleitt að ríkisútvarpið njóti af-
notagjalda í krafti skylduáskriftar
og herji síðan af fullum krafti á
auglýsingamarkaðinn, en úr hófl
keyrir þó fram þegar ríkið seilist
með kerfisbundnum hætti sífellt
meira í þá köku sem einkaframtakið
verður að láta sér nægja að lifa á.
Það er ekki smekklegt og raunar
beinlínis óréttlátt að þessi háttur sé
hafður á. Ekki síður er ósmekklegt
þegar auglýsingadeild ríkisíjölmiðl-
anna ellegar innheimtudeild sömu
stofnunar leggur svo út í herferð til
að sanna vinsældir sínar og mikil-
vægi - eigið ágæti.
Víkverji telur að almenningur sé
sjálfur ágætis dómari í þessum efn-
um og ekki ríkisvaldið sjálft eða
starfsmenn stofnunar þess. Raunar
veit hann ekki betur en almenningur
hafi oft og iðulega látið í ljósi skoðun
sína á innheimtu margnefndrar
skylduáskriftar án þess að nokkra
hafi verið þar um breytt.
VÍKVERJI telur að ekki sé hlut-
verk ríkisins að halda uppi
fjölmiðlum, en hann getur þó, vegna
ýmissa raka sem komið hafa fram,
fallist á mikilvægi þess að reka út-
varpsstöð, ekki síst vegna almanna-
vamarmála. Hins vegar þykir hon-
um í besta falli fyndið að heyra rök
svonefndra menningarvita fyrir mik-
ilvægi Rásar 2, sem nákvæmlega
hefur engum menningar- eða al-
mannavamargildum að þjóna og í
raun réttri hefur frammistaða Ríkis-
sjónvarpsins upp á síðkastið ekki
aukið hróður þess svo nokkra nemi.
FRÉTTIR síðustu viku um tölu-
vert tap á rekstri Ríkisútvarps-
ins, á tímum góðæris á auglýsinga-
markaði og þrátt fyrir lögbundin
afnotagjöld, sýna svo ekki verður um
villst, að eitthvað verður að gera í
þessum málum. Víkverji veit sem er
að ekki er meirihluti fyrir þvi á þingi
að kollvarpa fyrirkomulagi því sem
verið hefur um rekstur Ríkisút-
varpsins, en hann trúir því ekki að
óreyndu að við óbreytt ástand vilji
menn una. Það er margt gamaldags í
uppbyggingu Ríkisútvarpsins og í
rekstri þess er pottur að mörgu leyti
víða brotinn. Það er því spennandi
verkefni að finna þessum málum við-
unandi farveg til framtíðar.
YÍKVERJI getur þó ekki skilið
við Ríkisútvarpið án þess að
geta einnig þess sem vel er gert. Ól-
ympíuveislan sem staðið hefur yfir
undanfarna daga og sér enn ekki fyr-
ir endann á, sýnir að mati hans vel
hversu mikið afbragðsefni íþróttir
geta verið í sjónvarpi. Ekki spillii'
fyrir að myndataka og öll tækni-
vinnsla sjónvarpsmanna í Ástralíu
hefur verið til fyrirmyndar og einnig
frammistaða íslenska sjónvarps-
fólksins til þessa. Allir virðast
ákveðnir í að gera sitt besta, kepp-
endur á leikunum jafnt sem aðrir, og
afraksturinn - enn sem komið er - er
með því besta sem sést hefur í ís-
lensku sjónvarpi um langa hríð.