Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Associated Press
Myndatökumenn fylgjast með hinu daglega lifi á indónesísku eyjunni Pulau Tiga þar sem
upptökur á þáttunum Survivor fóru fram.
Sjónvarp raunveruleik-
ans eða skráargata-
áráttan á æðra stigi?
i
Hvað gerist þegar ofurvenjulegt fólk
hlýtur stjörnuathygli? Það verður stjörnur,
eins og sjá má í metvinsælum þáttum
í Bandaríkjunum og Evrópu, þar sem
meðaljónarnir keppa um að komast af,
segir Sigrún Davíðsdóttir.
HVERNIG er að lifa með
sjónvarpsvélar yfír sér
24 tíma sólarhrings vik-
um saman? Þetta hafa
útvaldir hópar venjulegs fólks
fengið að reyna undanfarin miss-
eri, bæði í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Þetta „raunveruleikasjónvarp“
eins og hinn hollenski upphafsmað-
ur þáttanna, John De Mol, kallar
það, hefur náð þvílíkum tökum á
sjónvarpsáhorfendum að annað
eins hefur ekki gerst í lengri tíma.
Aðrir halda því þó fram að þetta
efni gangi fremur út á að græða á
skráargataáráttu fólks og lífið fyr-
ir framan sjónvarpsvélarnar eigi
lítið skylt við raunveruleikann.
Raunveruleikasjónvarpið felst í
því að fólk er einangrað, látið leysa
þrautir og svo fækkar keppendum
í útsláttarkeppni með atkvæða-
greiðslum hópsins þar til einn
stendur eftir sem sigurvegari með
verulegar fjárhæðir að launum.
Leikurinn gengur því mjög út á
hæfileikann til að fá aðra til að líka
við mann. Og einnig reynir á sálar-
þol þátttakenda, að halda út hvort
sem þeir vinna eða tapa.
En þó sigurvegarinn standi að
lokum með upphæðir taldar í tug-
um milljóna íslenskra króna græða
allir keppendur því sökum vin-
sælda þáttanna hljóta allir þátttak-
endur umbun í formi auglýsinga-
tekna og annarra tekjumöguleika
sem falla í skaut hinna þekktu og
eftirsóttu. En með þessari ofurat-
hygli eru það kannski sjón-
varpsstöðvarnar sem græða allra
mest.
Spilað á allar hvatir
Ramminn er mismunandi en fel-
ur í öllum tilfellum í sér útsláttar-
keppni. í Bandaríkjunum, Dan-
mörku og Svíþjóð snerist keppnin
um að komast af á eyðieyju og upp
úr dvölinni þar voru síðan gerðir
sjónvarpsþættir. I nýafstöðnum
enskum þáttum voru þátttakendur
lokaðir inni í húsi undir vökulu
auga sjónvarpsvélarinnar 24 tíma
sólarhrings í síútsendingu á Net-
inu og samandregnum daglegum
sjónvarpsþáttum.
Viðbrögðin hafa verið gífurleg.
Á CBS, sem í sumar sýndi „Sur-
vivor“ til að vinna gegn venjuleg-
um sumardoða áhorfenda, óx
áhorfendaskarinn frá 15 milljónum
í upphafí í um 50 milljónir þegar
síðasti þátturinn var sýndur. Við-
brögðin annars staðar hafa verið á
svipaða lund.
Onnur eins athygli hefur vart
náðst með sjónvarpsefni frá því
ríkisstöðvar voru upp á sitt besta
og allir horfðu á sömu stöðina.
Þetta hefur vakið endalausar
vangaveltur um hvað sé svona
heillandi við að horfa á venjulegt
fólk í leikjum af öllu tagi. Við
þessu er ekkert einhlýtt svar en
það sem virðist heilla er að sjá fólk
í mannlegum samskiptum undir
ýmsum kringumstæðum. Sjá reiði
og gleði sem síðan má deila um
hvort sé nærri raunveruleikanum
við svo óraunverulegar aðstæður.
Líka af því þetta er venjulegt fólk
sem hefur enga aðra hæfileika en
að hafa valist til þátttöku.
Og svo kemur kynlífið við sögu.
Spilað er á að þátttakendur nái
saman og eigi mök fyrir opnum
tjöldum, öllu heldur að það sjáist
einhver hreyfing undir sængunum.
En eins og komist var að orði í
umræðuþætti í BBC nýlega þá
hljóta þeir að vera aumlega staddir
sem örvast af því að horfa á slíkt.
Og reyndar spyrja margir hvort
vinsældir þessara þátta sýni að
margir lifi svo óáhugaverðu lífi að
þeir þurfi að horfa á aðra lifa líf-
inu.
Snilldarformúla De Mol
Sá sem hrinti þessari flóðbylgju
sjónvarpsefnis af stað er hollensk-
ur athafnamaður, John De Mol, al-
inn upp í skemmtanaiðnaðnum, því
pabbi hans var meðal dáðustu
dægurlagasöngvara Hollendinga.
Sjálfur byrjaði hann sem sendill
hjá sjóræningjaútvarpsstöð sem
útvarpaði á Norðursjónum á þeim
tíma þegar slíkar stöðvar sóttust
eftir að vera utan landhelgi en fór
síðan að vinna hjá sjónvarpsstöð.
Með tímanum byggði hann svo
upp fyrirtæki er framleiddi sjón-
varpsefni og heitir Endemol eftir
að það sameinaðist öðru slíku fyr-
irtæki. Endemol er stórveldi á sínu
sviði með starfsemi í þrettán
Evrópulöndum og tveimur löndum
utan Evrópu en hefur auk þess
fært út kvíaarnar sem síma- og
netfyrirtæki eftir að það var keypt
af Telefonica, stóru spænsku síma-
fyrirtæki.
Raunveruleikinn hefur lengi ver-
ið vinsælt sjónvarpsefni. Faldar
myndavélar og heimamyndbönd
hafa um árabil verið vinsælt efni.
En De Mol datt í hug að fara
lengra. Biosphere var vísindaverk-
efni þar sem fólk var lokað inni í
gróðurhúsi og látið inna af höndum
ýmsar tilraunir.
Þetta varð De Mol innblásturinn
að „Big Brother“-þáttunum, Stóra
bróður-þáttunum sem hafa heltek-
ið Breta undanfarnar vikur. Snilld-
arbragð De Mol er að þróa hug-
myndir að þáttum sem hann selur
sjónvarpsfyrirtækjum og þau síðan
framleiða. Þannig er um Stóra
bróður-þættina sem Channel 4 í
Bretlandi hefur gert. Hugtakið um
Stóra bróður, sem fylgist með öll-
um gerðum manns og hugsunum,
er fengið að láni úr bók breska rit-
höfundarins George Orwell, 1984,
þessari hryllingsímynd af þróuðu
einræðisþjóðfélagi. I þáttunum er
hugmyndin útfærð með myndavél-
um í húsinu og svo er rödd sem
ávarpar þátttakendur þegar á ein-
hvern hátt er gripið inn í leikinn.
Gerð þátta af þessu tagi er um-
svifamikil framkvæmd. í Stóra
bróður voru valdir tíu þátttakend-
ur, fimm af hvoru kyni, sem
spanna breytt svið þjóðfélagsins.
Þeir eru látnir gangast undir sál-
fræðileg próf af öllu tagi til að
tryggja að þeir þoli álagið sem
fylgir, bæði keppnisálagið og álag-
ið af frægð í einni svipan.
Því frægir verða þátttakendur
umsvifalaust. Fyrst var þáttunum
hrint af stað með víðtækri fjöl-
miðlakynningu. Auk upplýsinga
um persónulega hagi fylgdi sál-
fræðimat á styrk þeirra og veik-
leikum. Og svo eru það vefsíður
þáttarins.
Það tók ekki langan tíma áður
en þátttakendur og frammistaða
þeirra var orðin umtalsefni fólks
um allt Bretland. Biskupar tóku
afstöðu til þáttanna. I búðum á
morgnana mátti heyra starfsfólkið
og viðskiptavinina ræða frammi-
stöðuna kvöldið áður og eins og
fræga fólkið eru þátttakendur
kunnir undir fornöfnum. Frægt
fólk þarf engin eftirnöfn. Hér var
skyndilega orðinn til hópur sem
allir þekktu og höfðu skoðanir á og
kynni af.
Uppáhöld og
uppáhaldsóvinir
Fljótlega beindist öll athyglin að
„nasty Nick“, andstyggilega Nick.
Hann hafði ætlað sér að hafa áhrif
á atkvæðagreiðsluna og það mátti
hann ekki. Afleiðingin var reiði-
þrungið uppgjör við hina þátttak-
endurna sem vönduðu honum ekki
kveðjurnar. Hann var á endanum
tekinn á beinið af ógnþrunginni
rödd Stóra bróður og rekinn á dyr.
Með tárin í augunum játaði hann
á sig svindlið fyrir augum milljóna
áhorfenda áður en hann var drif-
inn út í einn af fimm glæsivögnum
með svarta glugga sem síðan
þeystu allir hver í sína áttina út í
nóttina svo æsiblöðin með ávísana-
heftin á lofti hefðu síður upp á
honum.
Seinna um kvöldið var Nick þó
kominn í sviðsljósið á skemmtistað
og stal athygli frá fólki sem er
frægt fyrir eigið ágæti, ekki aðeins
fyrir að vera í sjónvarpi dögum
saman. Hann fékk síðan um millj-
ón íslenskra króna frá The Sun
fyrir að rekja sögu sína og á vísast
aðrar tekjur í vændum.
Á endanum var það svo Craig
Phillips, 28 ára múrari frá Liver-
pool og uppáhald flestra, sem nú
um helgina gekk út úr húsinu með
70 þúsund pund í vasanum, tæpar
níu milljónir íslenskra króna, eftir
64 daga vist undir smásjá Stóra
bróður. En hann var fljótur að losa
sig við þær, gaf þær vini sínum
sem er vangefinn og þarf á hjarta-
aðgerð að halda.
Fjármálaáhyggjur þurfa þó vart
að hrjá Craig í bili. Fjölmiðlafróðir
spá Craig glæstri framtíð með árs-
tekjum á bilinu 60-120 milljónir ís-
lenskra króna, hugsanlega sem
kynnir í sjónvarpsþáttum um hús
og híbýli eða sem almannatengill
fyrir Liverpool-fótboltafélagið.
Aðrir þátttakendur eru byrjaðir á
nýjum velborguðum verkefnum
eða sjá fram á góðar tekjur. Ekki
síst er Ann spáð glæstri fjölmiðla-
framtíð. Hún er lesbísk og fyrrver-
andi nunna og þótti sú greindasta í
hópnum sem annars sýndi ekki
gáfnafarsleg tilþrif.
Að lifa af
En það eru fleiri en De Mol sem
gera út á raunveruleikann í sjón-
varpsformi. Hugmyndina að „Sur-
vivor“ á CBS á breski sjónvarps-
jöfurinn og keppinautur De Mol,
Charles Parson. Parson hefur
reyndar stefnt De Mol fyrir að
hafa stolið hugmynd sinni og út-
fært í Stóra bróður en þvi tekur
De Mol fjarri.
I þrettán vikur í sumar fylgdist
vaxandi fjöldi Bandaríkjamanna
með sextán þátttakendum sem
kepptu um að komast af og vinna
eina milljón Bandaríkjadala, um
áttatíu milljónir íslenskra króna.
Þessir þættir voru ekki í beinni út-
sendingu heldur unnir upp úr út-
sláttarkeppni sem stóð í vor í 39
daga á eyju í Indónesíu og fól með-
al annars í sér keppni í að snæða
skordýr og önnur kvikindi.
Og eins og New York Times
benti á tókst að halda úrslitunum
leyndum þar til síðasti þátturinn
var sýndur þótt Bandaríkjaforseti
megi þola að leyndustu hvatir hans
verði lýðum ljósar. Leyndarmálinu
var haldið með hótun til þátttak-
anda um málshöfðun og skaðabóta-
kröfur upp á fjórar milljónir dala.
Sigurvegarinn varð á endanum
elsti þátttakandinn, Richard
Hatch, sem með snjöllu kosninga-
bandalagi tryggði sjálfum sér sig-
urinn. Hatch lifði sig svo inn í
eyðieyjuhlutverkið, að hann gekk
helst um nakinn, líka eftir að þátt-
unum lauk. Skoðanakannanir
sýndu að áhorfendur vildu síst sjá
hann sem sigurvegara en héldu
með hinum 72 ára Rudy Boesche
sem var nálægt sigri og ætlar að
sækja um þátttöku í „Survivor 2“
sem nú er í undirbúningi.
Enn trylltari hugmyndir
í vændum
Nú er hins vegar spurningin
hvort vinsældirnar halda áfram
þegar sjónvarp raunveruleikans
verður daglegt brauð. Á bresku
Channel 5 er þáttaröð af þessu
tagi nýbyrjuð. Þar er ramminn
fangelsisem þátttakendur eiga að
brjótast út úr. Samskiptin við um-
heiminn verða gagnvirk því áhorf-
endur geta sent inn leiðbeiningar.
Af öðrum þáttum í undirbúningi
eru þættir um heimsreisu hóps í
þotu sem er innréttuð með öllum
hugsanlegum munaði og síðan
verða þrautir að glíma við á við-
komustöðunum.
Önnur þáttaröð gengur út á að
ferðast um landið í rútu þar sem
þátttakendur verða í sambandi við
umheiminn og geta hegðað sér eft-
ir leiðbeiningum áhorfenda. Og svo
eru það „Hlekkir ástarinnar", enn
eitt hugarfóstur De Mol þar sem
þátttakendur para sig við aðra
þátttakendur af gagnstæða kyninu
og verða hlekkjaðir þeim 24 tíma
sólarhrings í viku, lokaðir inni í
húsi í beinni útsendingu.
Hugmyndaflæði þeirra sem
unga út hugmyndunum eru lítil
takmörk sett en spurningin er
hvort áhorfendur fái ekki leið á að
glápa á fólk við hinar undarlegustu
aðstæður eða hvort þeir verða ein-
faldlega háðir því að horfa á þessa
gervispennu sem sköpuð er í þátt-
unum með uppspenntu tilfinninga-
flæði og háum verðlaunum.