Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á myndinni eru, talið frá vinstri, dr. Han Van Dissel, prófessor og forstöðumaður þróunarseturs leiðtogaþjálfunar við Erasmus-háskólann í Rotterdam, Agnar Hansson, deildarforseti við-
skiptadeildar Háskólans í Reykjavík, dr. Niels Björn-Andersen, prófessor og forstöðumaður rannsóknarstofu í rafrænum viðskiptum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn og dr. Richard
Welke, prófessor og forstöðumaður rannsóknarstofu í rafrænum viðskiptum við Fylkisháskóla Georgíu í Bandaríkjunum.
I
!
!
Framtíðin liggur
í rafrænni
kaupsýslu
Taliö er að rafræn viöskipti, eöa þaö sem á ensku er
kallað eCommerce, veröi ein helsta uppspretta hag-
vaxtar á 21. öldinni. Vegna hnattvæðingarinnar
skipta fjarlægðir ekki lengur máli og Ijóst er að slíkt
gefur íslendingum og öörum smáþjóöum ýmis ný
sóknarfæri. Sigurður Ægisson fór á stúfana til aö
kanna nánar eðli hinna nýju viðskiptahátta, en bylt-
ingaráhrifa rafrænna viöskipta er þegar fariö aö
gæta um heim allan.
HÁSKÓLINN í Reykjavík efndi til
námstefnu um rafræn viðskipti fyr-
ir hóp stjórnenda úr íslensku at-
vinnulífi fostudaginn 22. septem-
ber sl. Námstefnan var haldin í tilefni af
heimsókn þriggja brautryðjenda í rafrænum
viðskiptum frá virtum erlendum háskólum í
Evrópu og Bandaríkjunum, en Háskólinn í
Reykjavík gerði nýverið tímamótasamkomu-
lag um aðild að GEM (skammstöfun fyrir
Global eCommerce Masters), sem er alþjóð-
legt samstarfsverkefni nokkurra leiðandi há-
skóla í Evrópu og Bandaríkjunum um rann-
sóknir og kennslu á meistarastigi í raírænum
viðskiptum.
Þremenningarnir, sem um ræðir, voru dr.
Niels Bjöm-Andersen, prófessor og forstöðu-
maður rannsóknarstofii í rafrænum viðskipt-
um við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn,
dr. Richard Welke, prófessor og forstöðumað-
ur rannsóknarstofu í rafrænum viðskiptum við
Fylkisháskóla Georgíu í Bandaríkjunum, og
dr. Han Van Dissel, prófessor og forstöðumað-
ur þróunarseturs leiðtogaþjálfunar við Er-
asmus-háskólann í Rotterdam.
Áður en til umræddrar námstefnu kom,
settust þeir niður með blaðamanni og út-
skýrðu fyrir honum, hvað hér væri um að
ræða.
Netið er viðskiptavettvangur
framtíðarinnar
„Ég lít á þetta sem algjörlega nýja aðferð
við að stunda viðskipti," sagði dr. Niels Björn-
Andersen. „Flestir tengja rafræn viðskipti
eingöngu við verslun á milli fyrirtækis og
neytanda, en ég held að sú skilgreining sé of
þröng. Rafræn viðskipti koma við allt svið
verslunar eða kaupsýslu, allt frá minnstu ein-
ingu og upp úr. Þetta gerir það að verkum, að
menn verða að hugsa allt ferlið upp á nýtt:
framleiðsluna, kynninguna, söluna, dreifing-
una, þjónustuna o.s.frv."
Dr. Richard Welke og dr. Han Van Dissel
taka undir orð Niels Björn-Andersen og segja
tölvubyltinguna auðvitað vera grundvöllinn að
þessu nýja starfsumhverfi og viðskiptaháttum.
Möguleikarnir séu allt aðrir nú en fyrrum, og
Netið sé viðskiptavettvangur framtíðarinnar.
„Það sem mér finnst vera þyngst á metun-
um, þegar borið er saman það sem við höfum
haft og það sem nú er að brjótast fram, þ.e.a.s.
hin rafræna kaupsýsla, er að viðskiptakostn-
aður snarlækkar,“ segir dr. Niels Bjöm-And-
ersen. „Áður þurfti ég að fara eða hringja í
bankann minn og biðja um að láta millifæra á
tiltekinn reikning, og sú aðgerð kostaði mig
ákveðna upphæð. Núna get ég framkvæmt ná-
kvæmlega sömu millifærlu í gegnum heimilis-
tölvuna fyrir lítið brot af þeirri upphæð, sem
bankinn tók áður fyrir umrædda þjónustu. Og
það sama kemur til með að gerast víðast hvar
annars staðar, á flestum eða öllum sviðum
verslunar. Hagkvæmni eykst með fækkun
þeirra milliliða sem ekki mynda virðisauka og
leiðir af sér lækkandi vöruverð. Kostimir við
hinn nýja viðskiptamáta eru því ótvíræðir.“
Þessu til viðbótar benti dr. Hans Van Dissel
á stærðarhagkvæmni við fjöldaframleiðslu
sem augljóslega er fyrir hendi í ýmiss konar
þjónustu sem lýtur að tölvu- og nettækni, eins
og til dæmis afþreyingariðnaðurinn.
Dr. Richard Welke segir erfitt að benda á
eitthvert eitt atriði, sem sé mikilvægara en
önnur í þessu sambandi. Hann er þó sammála
félögum sínum, en kveðst vilja bæta við tveim-
ur öðrum þáttum, sem vegi hér þungt.
Annars vegar getur það viðskiptasamband
sem þróast milli birgja og kaupenda á Netinu
orðið mun persónulegra en áður vegna þeirrar
vitneskju og upplýsinga sem safnast upp og
varðveitast á rafrænu formi. Hins vegar er sú
staðreynd að eðli netviðskipta dregur stórlega
úr aðgangshindrunum sem annars geta verið
hinn mesti dragbítur á almennan hagvöxt.
Hvaða möguleika á Island?
En hvaða möguleika skyldi lítið eyland í
miðju Norður-Atlantshafi hafa á að tileinka
sér þessa hluti og komast í hringiðu rafrænu
kaupsýslunnar?
„Island hefur nákvæmlega sömu möguleika
og önnur lönd og fyrirtæki í heiminum,“ segir
dr. Niels Bjöm-Andersen. „Nú geta lítil fyrir-
tæki auðveldlega velgt þeim stærri undir ugg-
um, og jafnvei orðið leiðandi á markaðnum á
ákveðnum sviðum, t.d. við framleiðslu hugbún-
aðar. Maður sem situr á skrifstofu sinni í New
York er ekki nauðsynlega í betri aðstöðu en sá
sem situr með nettengingu í Skipholtinu. Að
sitja í New York getur meira að segja verið
ókostur í sumum tilvikum, því skrifstofuhús-
næði er dýrt í þeirri borg. Það eina sem þarf til
árangurs er í raun og veru fólk sem hefur
menntun eða þekkingu á viðkomandi efni.
Staðsetning fyrirtækisins er nánast auka-
atriði. Ég veit t.d. um nokkur íslensk fyrirtæki
sem hafa náð í veigamikil verkefni og allgóðri
fótfestu í Danmörku.“
Dr. Richard Welke segir að Islendingar hafi
alla burði til að komast áfram í heimi rafrænn-
ar kaupsýslu og bendir á írland í því sam-
bandi. „Það var mjög illa komið fyrir Irum á
tímabili, þeir voru skuldum vafin þjóð. Með
samstilltu átaki ríkisstjórnarinnar, atvinnu-
lífsins og menntageirans tókst á ótrúlega
skömmum tíma að snúa blaðinu við. Núna er
staðan sú að áður burtflognir írar streyma aft-
ur til síns heima, af því að þar eru hlutimir að
gerast.“
En til að íyrirtækin nái að vaxa og dafna, er
nauðsynlegt að traust sé fyrir hendi, áréttar
Welke. Það er í raun forsendan. Einnig er orð-
spor fyrirtækja afar mikilvægt.
Baráttan um fiskmarkaðinn
mun harðna
Dr. Niels Bjöm-Andersen segir, og er með
ísland í huga, að það fyrirtæki sem geti boðið
til sölu fisk, þar sem nákvæm gögn fylgja um
uppruna og veiðitíma o.þ.u.l., komi til með að
ná og halda afar góðri stöðu á markaðnum.
Bendir hann því til stuðnings á minkarækt
Dana, en um helmingur heimsframleiðslu
minkaskinna kemur þaðan. Hina sterku stöðu
rekur Niels Björn-Andersen til þess að kaup-
endur treysti því orðspori sem fari af af með-
höndluninni, en allar upplýsingar um dýrin
eru skráðar eftir nákvæmum reglum. Að gæta
vel að slíkum hlutum auðveldi leiðina fram á
við.
Hann segist álíta að baráttan um fiskmark-
aðinn, eins og marga aðra markaði, muni
harðna með tilkomu uppboðskerfa á Netinu
sem æ fleiri innkaupakeðjur eru farnar að
nýta. Lykilatriði sé að geta aðgreint sig á þeim
markaði með virðisaukandi upplýsingum.
Dr. Richard Welke tekur undir orð hins
danska kollega síns, um það að upplýsingar
skipti máli, og það hreint ekki litlu. „Segjum I
að þig vanti eitthvað til að skrifa á og ég rétti |
þér tvö blöð. í huganum greinir þú ekki á milli
þeirra, enda fylgja þeim engar upplýsingar.
En ef ég segi þér að annað blaðið sé papýrus,
1000 ára gamall, kemur annað hljóð í strokk-
inn. Við þær upplýsingar skilur á milli, svo um
munar. Og það sama gildir um alla aðra versl-
unarvöru.11
Enginn veit hvað framtíðin
ber í skauti sér
En hvemig skyldu þremenningarnir sjá fyr- •
ir sér þróunina í rafrænni kaupsýslu á allra §
næstu árum?
Niels Björn-Andersen segir, að hlutirnir
gerist svo hratt þessa stundina, að enginn viti í
raun og veru hvernig umhorfs verði á þessum
viðskiptavettvangi eftir fimm ár eða svo. En
það sé einmitt eitt af því sem hann og aðrir,
sem mest hafa kynnt sér rafræn viðskipti,
reyni að komast að til að undh-búa nemendur
sína á sem bestan máta og auðvelda þeim að
feta sig á hinni torræðu slóð inn í framtíðina.
Og til að gera þetta sé búið að hrinda af stað
ákveðinni áætlun eða samstarfsverkefni milli I
nokkurra viðskiptaháskóla, svokölluðu GEM "
samstarfsverkefni (Global eCommerce Mast-
ers). Því er ætlað að brúa bilið milli tölvutækn-
innar og viðskipta, og samstarfsskólarnir
leggja sérstaka áherslu á að þjóna einstakling-
um og fyrirtækjum sem leita eftir alþjóðlegu
sjónarhorni í umhverfi þar sem viðskipti
byggjast sífellt meira á gagnaflutningi um
tölvur eða aðra rafeindatækni. Námið er fjöl-
þjóðlegt í þeim skilningi að mikið er um kenn-
araskipti og nemendaflæði á milli skólanna, og
samstarfið skapar grundvöll fyrir náið sam- 1
starf að rannsóknum á sviði viðskiptafræði í ®
tengslum við rafrænan viðskiptamáta. Stofn-
aðilar GEM eru Erasmus-háskólinn í Rotter-
dam, Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn,
Kölnarháskóli í Þýskalandi, Viðskiptaháskól-
inn í Aþenu, Fylkisháskóli Georgíu í Banda-
rikjunum og Viðskiptaháskólinn í Bergen.
Á síðustu mánuðum hafa fjórir nýir skólar
bæst í hópinn, Monterrey-háskólinn í Mexíkó,
Háskólinn í Denver, ESADE í Barcelona á
Spáni og nú Háskólinn í Reykjavík, sem með
því verður eini háskólinn á Islandi sem býður ||
upp á alþjóðlegt MBA-nám.