Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 55 f
FÓLK í FRÉTTUM
Sri Chinmoy færist í aukana með aldrinum
MYNDBÖND
Fagnar 69 ára afmæl-
inu með nýju heims-
EINS og mörgum má vera
kunnugt hefur Sri Chin-
moy síður en svo lagt árar
í bát þótt aldurinn sé að
færast yfír. Þvert á móti
er hann allur að færast í
aukana og vill sýna
mönnum fram á að geta
mannsins til að yfirstíga
eigin takmarkanir er
engum takmörkum háð
og að aldurinn þurfi alls
ekki að setja neinar
skorður! Þessum al-
þjóðlega friðarleiðtoga
fannst því við hæfi að
halda upp á 69 ára af-
mælisdaginn sinn um
daginn með því að
setja nýtt heimsmet.
Hann lyfti tveimur
123 kg. lóðum um 8
sm upp fyrir höfuð
sér með sitt hvorri
hendi samtímis úr
sitjandi stöðu, sam-
tals 246 kílóum.
Þessi „nútíma Herk-
úles“ bætti því eldra
heimsmet sem hann srí Chin
setti sjálfur fyrir 9
mánuðum, í nóvember í fyrra,
um hvorki meira né minna en 136 kg,
en það var 110 kg (55 kg með hvorri
hendi).
í anda fyrri tíma
Þá stjórnaði lyftingasýningunni
Bill Pearl sem fimm sinnum hefur
hlotið titilinn Herra Alheimur og
jafnframt verið kosinn Best vaxni
maður aldarinnar. Pearl varð algjör-
lega dolfallinn yfir þeirri lyftu og
sagði við það tækifæri: „í seinustu
lyftum hefur hann haldið uppi yfir
höfði sér meiri þyngd en nokkur
annar í heiminum. Þetta er það sem
lítill maður með stórt hjarta getur
gert.“
Annar forkólfur í lyftinga- og
vaxtarræktarheiminum Frank Zane,
þrefaldur Herra Ólympía og Herra
Alheimur, útskýrir lyftur Sri Chin-
moy í tímariti sínu Building the
Body. „Sú staðreynd að hann er að
lyfta sitjandi gerir þessa lyftu jafn-
vel enn ótrúlegri þar sem mjaðmirn-
ar og mjóhryggurinn, aðalkraft-
stöðvarnar í líkamanum, eru ekki
með í hreyfingunni." Zane lýsir líka
þeirri hefð sem þessar lyftur byggj-
ast á: „Fyrri tíma kraftamenn voru
vanir að lyfta gríðarlegum þunga
rétt nógu hátt til að pappír kæmist á
milli, eða á stundum lyftu þeir ekki
niáttUírUr á
einu sinni, heldur héldu uppi heljar-
þunga með líkamanum."
Heimsmet í
hverri viku
Fyrir viku setti Sri Chinmoy enn
annað heimsmet í lyftingum, en þá
lyfti hann 800 pundum eða 363 kg í
bekkpressu. Er þessi lyfta frábrugð-
in hefðbundinni bekkpressu að því
leyti að þyngdin er á tveimur hand-
lóðum, en það er innan við ár síðan
Sri Chinmoy tók að reyna fyrir sér í
bekkpressu. Síðast liðinn sunnudag
bætti hann síðan metið frá í vikunni
áður um 100 pund og er það nú 900
pund eða 409 kg.
Á leið til íslands
Sri Chinmoy er líka kunnur á öðr-
um sviðum, til að mynda sem lista-
maður, rithöfundur og tónskáld.
Hann er mikill íslandsvinur og ís-
lendingar geta hlýtt á hann fljótlega
því hann er væntanlegur hingað til
lands í lok október og verður með
friðartónleika í Háskólabíói. Slíka
tónleika hefur Sri Chinmoy haldið
viða um heim og verða tónleikarnir
hér hans sexhundruðustu friðartón-
leikai'.
Ráðagóði
Ripley
Hæfileikaríki herra Ripley
(Talented Mr. Ripley)
D r a m a
★★★
Leikstjórn og handrit: Anthony
Minghella eftir sögu Patriciu High-
smith. Aðalhlutverk: Matt Damon,
Jude Law, Gwyneth Paltrow. (137
mín.) Bandaríkin 1999. Skífan.
Bönnuð innan 16 ára.
MINGHELLA heillaði margan
upp úr skónum með síðustu mynd
sinni, Enska sjúklingnum, ekki síst
Óskarsverðlaunaakademíuna sem
veitti henni fyrir vikið drjúgan skerf
af styttunum eftir-
sóttu. Það er ekki
auðvelt að fylgja
eftir slíkri vel-
gengni og, það sem
meira er um vert;
svo vel heppnaðri
kvikmynd. Mingh-
ella ákvað að halda
sig við bókmennt-
irnar og spreyta
sig enn á því að færa vel kunnugt
bókmenntaverk í mynd og nú varð
fyrir valinu kunn bókmenntaper-
sóna, hinn lævísi Ripley, og uppá-
tæki hans. Umræddur Ripley, bráð-
vel leikinn af Damon, er ungur
lágstéttardrengur sem þráir ekkert
heitar en að tilheyra hærri stétt og
kemur fljótt á daginn að hann er
reiðubúinn að leggja æði mikið á sig
til að takast það ætlunarverk sitt.
Law og Paltrow leika ofdekraða há-
stéttarkrakka á Evrópuslæpingi
sem verða leiksoppar klækja hans.
Það eru skiptar skoðanir um ágæti
myndarinnar og hefur helst verið
sett út á frammistöðu leikara. Eg sé
hins vegar lítið athugavert við hana
og er Jude Law sérdeilis sannfær-
andi sem sjálfumglaður en sjarmer-
andi iðjuleysinginn. Kannski má
kvarta yfir fullbrokkgengri stígandi
og ofteygðum lopa, en þegar allt
kemur til alls er þetta vönduð og fín
mynd sem aldrei verður leiðinleg.
Skarphéðinn Guðmundsson
AFI/AMMA
Allt fyrir minnsta barnabamið
Þumalína, Pósthússtræti 13
milupa
■
lianijað til hlægilegasti
skelfir ársins veröur
frumsýnriur um land allt,
Hláturínn lengir lífiö
Þú cjetur drepist úr hlátri
Enga rtiiskunn. Engin feimni. Ekkert framhald
skifan.is
SkúlagÖtu 15
Sogavegi3
R'iáTj?.<eppi-Gardín'ar-l>'»il»ar-'Pii</' ar
tr
14. október
21. október
Cliff Richards sýning
11. nóvember LIIM'iiaal
18. nóvember PltflritSi
f ^ HOTELS & RESORTS
SAS
Bee Gees sýning
í Súlnasal
Radisson SAS Saga Hotel - Miðapantanir í síma 525 9900
Miði á sýningu og
þriggja rétta máltíð kr. 5.700.
Miði á dansleik með Saga Klass
| eftir sýningu kr. 1000.
cc.
o.
Bee Gees sýning
7. október