Morgunblaðið - 24.09.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 24.09.2000, Síða 8
8 SUNN UDAUUK 24. SEFPEMBEK 200U MORGUNBLADIÐ FRÉTTIR Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra á ráðstefnu f Luxemborg Hvað ert þú að blaðra um mína peninga í útlandinu, góði?? Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Hross voru höfð á beit í a.m.k. þrjá daga í mýrinni í Landmannalaugum fyrir um viku síðan. Lausaganga hrossa í Landmannalaugum Náttúruvernd skoð- ar ummerkin UM 100 hross gangnamanna voru á beit í mýrinni við Landmannalaug- ar í a.m.k. þrjá daga fyrir um viku en landið er friðland og þar gilda mjög strangar reglur um umgengni og óheimilt er að beita þar hestum. Árni Bragason, forstjóri Nátt- úruverndar ríkisins, sagði að svæð- ið í kringum laugarnar væri mjög viðkvæmt og maður frá stofnuninni væri á leið á þangað til þess að skoða ummerkin eftir hrossin. Hann sagði að Náttúruvernd myndi ekki aðhafast neitt þangað til því væri lokið. „Menn telja sig eiga einhvern rétt á að beita þarna,“ sagði Árni. „En það að vera með 100 hross og halda þeim til beitar á þetta viðkvæmum stað er hlutur sem maður hélt að menn myndu ekki gera.“ Ráðgjafanefnd kölluð saman Árni sagði að eftir að svæðið hefði verið skoðað yrði ráðgjafa- nefnd um friðlandið, en í henni eiga sæti fulltrúar sveitarstjórna, kölluð saman og málið rætt. Hann sagði að viðbrögð Náttúruverndar myndi liggja fyrir eftir þann fund. I reglum um friðland að Fjalla- baki segir: „Gangandi fólki er heimil för um friðlandið, enda fylgi það merktum stígum í Landmanna- laugum og annarsstaðar þar sem það á við. För á hestum er aðeins heimil á merktum reiðslóðum og afmörkuðum áningarstöðum. Óheimilt er að beita hestum í Landmannalaugum og annars stað- ar þar sem [Náttúruvemd ríkisins] kann að ákveða." Fyrsti alþjóðlegi hjartadagurinn Látum hjartað púla IDAG er fyrsti alþjóð- legi hjartadagurinn. Þema dagsins er al- menn hreyfing. Hjarta- vemd vekur athygli á þess- um degi. Rannsóknarstöð Hjartavemdar hefur skoð- að gildi hreyfingar gegn hjarta- og æðasjúkdómum og liggja niðurstöður þeirr- ar rannsóknar nú fyrir. Uggi Agnarsson er læknir hjá Hjartavemd, hann var spurður um gildi alþjóð- legs hjartadags. „Kjörorð dagsins er gildi reglubundinnar áreynslu og á að minna fólk á að hugsa vel um hjartað sitt. Muna að gott hjarta er lyk- ill að heilbrigði og al- mennri vellíðan. Aliir geta fundið það á sér ef hjart- anu líður ekki vel. Við viljum sér- staklega minna á gildi hreyfingar að þessu sinni en einnig á þau sjálfsögðu atriði að borða rétt fæði, gæta líkamsþyngdar og reykja ekki. Hjartavemd hefur mælt kólesteról hjá fólki og er gildi þess að hafa vitneskju um sitt eigið kólesterólgildi ótvírætt.“ - Er mjög nauðsynlegt að hreyfa sig reglubundið? „Já, margar rannsóknir hafa stutt þá tilgátu að líkamleg hreyf- ing hafi heilsubætandi áhrif og hafa einnig sýnt fram á mælanleg- an ávinning í lífslengd og aukinni starfsgetu. Frumkvöðlum rann- sóknar Hjartavemdar var strax ljóst í upphafi rannsóknarinnar 1967 þessi sannleikur og ákváðu því frá byrjun að afla upplýsinga um líkamshreyfingu meðal þátt- takenda rannsóknarinnar og lögðu þar með grunninn að þeim upplýs- ingum sem við nú búum yftr rúm- lega þijátíu ámm síðar. Við höfum skoðað gildi hreyfingar hjá rúm- lega níu þúsund körlum og tæp- lega tíu þúsund konum, þátttak- endum í hóprannsókn Hjai-ta- vemdar og nú síðast höfum við einnig notað svo til sömu spum- ingar í nýjasta verkefni rannsókn- arstöðvarinnar: Afkomendarann- sókninni." - Hvers konar rannsókn er það? „Afkomendarannsóknin er rannsókn á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma og lífsvenjum meðal afkomenda fólks sem fengið hefur kransæðastíflu. Til saman- burðar var einnig valinn stór hóp- ur fólks sem ekki hefur fjölskyldu- sögu um kransæðastíflu. Við höfum nú þegar skoðað um 4.000 þátttakendur í þessari rannsókn sem enn er yfirstandandi. Niður- stöður Hjartavemdar á giidi reglubundinnar hreyfingar liggja nú að nokkru fyrir. Það hefur komið í ljós að veruleg aukning er nú á reglubundinni hreyfingu meðal íslendinga. Þannig má segja að milli 15 til 20 % fertugra töldu sig stunda reglubundnar íþróttir fyrir um 30 árum. En nú við aldamótin 2000 má segja að milli 60 og 70 % karla og kvenna á þessum sama aldri telji sig stunda reglubundna hreyf- ____________ ingu. Þessi gríðarlega aukning endurspeglar mikinn og vaxandi áhuga á gildi hreyfing- ar, hún kann einnig að endurspegla vissa breytingu á þjóðfélags- háttum þar sem líkam- leg áreynsla í starfi virðist minni og fólk finnur sig því meira knúið til að verja frítíma sínum með þessum hætti. Við sjáum einnig að fólk leggur í auknum mæli áherslu á fremur einfalda líkamsáreynslu, svo sem gönguferðir, sund og leik- fimi. Þessar tegundir hreyfingar Uggi Agnarsson ► Uggi Agnarsson fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1949. Hann lauk stúdentsprófí 1969 frá Menntaskólanum í Reykjavík og læknaprófi frá Háskóla Islands 1976. Hann stundaði framhalds- náms í lyf- og hjartalækningum við háskólannum í Connecticut í Bandaríkjunum. Sérfræðipróf- um (ABIM og AB cardiology) lauk hann 1983 og 1985. Félagi í Evrópusamtökum hjartalækna frá 1997. Hann hefur starfað að sérgrein sinni frá 1986 við rann- sóknarstöð Hjartaverndar, Landspitala, Sjúkrahús Akra- ness og nú á Landspítala - há- skólasjúkrahúsi, Fossvogi. Uggi er kvæntur Margréti Guðnadótt- ur listakonu og eiga þau þijú börn. Milli 60 til 70% karla og kvenna um fertugt hreyfa sig reglu- bundið hafa hins vegar verulegt gildi þótt einfaldar séu og yfir langan tíma, að meðaltali tæplega tuttugu ár, lækkar þessi ástundun áhættu gagnvart hjarta- og æðasjúkdóm- um um 25 til 30 %. Og sýnir þannig áhættuminnkun sem er í svipuð- um mæli og að mæla blóðfitu og fylgjast með blóðþrýstingi. Gildi þess að nota ekki tóbak er einnig mjög ótvírætt." -Er þessi þróun sú sama víða umheim? „Já, það er meginástæða þess að alþjóðlegi hjartadagurinn velur að taka sérstaklega fyrir líkam- lega hreyfingu og helga hana þess- um degi, 24. september. Þeir minna á að það sé margt sem vinn- ist, auk þess að draga úr hjarta- áföllum minnkar hætta á heila- áföllum og heilablæðingum og má í því sambandi geta þess að rann- sókn Hjartavemdar hefur einnig kannað það meðal íslendinga og séð gildi hreyfingar til að draga úr þeirri áhættu. Voru þær niður- stöður birtar á síðasta ári í víð- lesnu, bandarísku læknablaði: Annals of Internal Medicine. Lík- amleg hreyfing lækkar blóðþrýst- ing og hefur góð áhrif á blóðfitu með þeim hætti að æðaskemmandi lágþétt (LDL)kólesteról minnkar meðan æðaveijandi góða kólester- ólið (HDL) eykst. Vöðv- ai' og bein styrkjast og di-egur úr áhættu á brotum. Rannsóknin sýnir einnig að líkur á dauðsfalli vegna krabbameins eru um- talsvert lækkaðai' eða ....11 um 25% áhættmninnk- un. Áreynslan eykur h'fsgleði, hjálpar tií að halda réttri þyngd og bætir svefn. Fólki líður almennt betur. Þetta vita flestir en stund- um er erfitt að byija að hreyfa sig. Þá er gott að setja hófleg markmið °g byrja rólega, gjaman í góðum félagsskap annarra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.