Morgunblaðið - 24.09.2000, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.09.2000, Qupperneq 20
MORGUNBLAÐIÐ 20 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 LISTIR Öttinn við að nefna hlutina á nafn MYNPLIST Gallerí Kambur, Landsveit BLÖNDUÐ TÆKNI WILLIAM ANASTASI Til 1. október. Opið daglega frá kl. 10-22. Lokað miðvikudaga. GALLERÍ Kambur, einhver at- hyglisverðasti sýningarstaður landsins, bregður um þessar mundir ljósi á verk bandaríska listamanns- ins William Anastasi, í tengslum við Galleri Stalke í Kaupmannahöfn. Sennilega eru þeim sem fylgdust með listhræringum á sjöunda ára- tugnum minnisstæðar hinar afger- andi sýningar í Dwan Gallery í New York og Los Angeles þar sem naum- hyggjunni og hugmyndlistinni var komið á framfæri með miklu harð- fylgi- I hópi þeirra listamanna sem fylktu liði hjá Dwan var Anastasi. Meðal þess sem vakti athygli frá hans hendi var ljósmynd á stærð við stórt málverk af veggnum þar sem myndin hékk. Þannig kom lista- maðurinn veggjum sýningarsalar- ins á framfæri í verkum sínum. En eins og svo margir listamenn af minimalíska concept-skólanum hef- ur Anastasi ekki látið mikið fyrir sér fara. Hann hefur alltaf verið að en fremur í kyrrþey en með brambolti. Nú er hann kominn austur í Landsveit til að sýna fáein verk sem eru sláandi þótt ekki fari mikið fyrir þeim á veggjum hins litla hvíta og bjarta salar Kambs. Fyrri myndröð- in á veggjum salarins eru „Blind Drawings“ - Teikningar í blindni - sem listamaðurinn gerði með aðstoð neðanjarðarlestarinnar í New York, á leið sinni í heimsókn til tónskálds- ins John Cage. Þeir Cage tefldu reglulega áður en tónskáldið lést, en kynni þeirra má rekja aftur til miðs sjöunda áratugarins þegar Anastasi vann að hljóðteikningum sínum og öðrum hljóðverkum. Teikningarnar í blindni bera með sér að hristingurinn í neðanjarðar- lestinni hafi átt hvað mestan þátt í gerð þeirra. Það er merkilegt að skoða þessar teikningar og bera þær í huganum saman við sumar teikn- ingar annars Bandaríkjamanns, Cy Twombly, og nærtækari listamann; hann Kristján okkar Davíðsson. Öllu áleitnari og óhugnanlegri er hin syrpan þar sem listamaðurinn tönnlast á orðinu „gyðingur“ - á ensku Jew og á þýsku Jude - í ýms- um gerðum og á ýmsa vegu. Þótt AWORD words Ljósmynd/Halldór Bjöm Runólfsson Untitled, frá 1979. Eitt af fjölmörgum athyglisverðum verkum Williams Anastasi í Galleríi Kambi. ekkert annað standi á myndunum - þær eru smáar, og gerðar með margvíslegri tækni - vekja þær samstundis ólgu hjá sýningargest- um. Anastasi er ekki gyðingur, en á dögunum hrelldi hann þýska sýning- argesti með þessum myndum sínum og vissu þeir ekki beinlínis hvernig þeir áttu að takajiessu annars mein- lausa pródúkti. I meðfylgjandi sýn- ingarskrá rekur hinn þekkti banda- ríski listfræðingur Thomas McEvilley baksvið þessara mynda og annarra skyldra á sýningunni, og vitnar um leið í tuttugu þekkt tilsvör varðandi gyðingdóminn. Þar á með- al eru hin fleygu orð Einstein: „Ef kenning mín um afstæðið reynist rétt munu Þjóðverjar telja mig til sona sinna og Frakkar munu hylla mig sem mætan heimsborg- ara. Reynist hún röng munu Frakk- ar kalla mig Þjóðverja og Þjóð- verjar stimpla mig sem gyðing." Onefnt verk Anastasi með orðun- um ,A- WORD“ og „words“ segir allt sem segja þarf um ótta okkar við að nefna hlutina á nafn og vamarleysi okkar gagnvart máttugum orðum á borð við „gyðingur". Og þó sýnir verkið okkur að tungumálið er varla nokkur skapaður hlutur heldur að- eins stundleg hljóð sem hverfa út í buskann. Gaman væri ef menn sæju sér fært að skoða þessa litlu en umhugs- unarverðu sýningu. Milli hinna áleitnu verka visa gluggar Gallerís Kambs svo út í íslenska fegurð eins og hún gerist tígulegust með Þjórsá þar sem hún breiðir úr sér eins og Efrat fyrir sjónum hinna herleiddu. Menning og náttúra haldast í hend- ur í merkilegri stillingu í Galleríi Kambi. Halldór Björn Runólfsson Kór Flensborgarskólans í Hafnarfirði. Tónleikar Kórs Flens- borgar- skólans KÓR Flensborgarskólans í Hafn- arfirði heldur tónleika í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju, í dag, sunnudag, kl. 17. Þar mun kórinn flytja hluta efnisskrár kóramóts- ins Kaggikk 2000 sem haldið var í Toronto og Ottawa í Kanada í júlí síðastliðnum en þar var kór- inn á meðal þátttakenda. Einnig verður dregið í listmunahapp- drætti kórsins að viðstöddum fulltrúa sýslumannsins í Hafnar- firði. Stjórnandi Kórs Flens- borgarskólans er Hrafnhildur Blomsterberg. Aðgangur er ókeypis. Barnakvik- myndir í Norræna húsinu FYRSTA kvikmyndasýningin á þessu hausti fyrir börn í Norræna húsinu verður í dag, sunnudag, klukkan 14. Þá verður sýnd dönsk teiknimynd sem fjallar um frum- skógardýrið Húgó og vini hans. Myndin er með dönsku tali og er fyr- ir alla aldurshópa. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Kvikmyndir ætlaðar bömum verða á dagskrá í Norræna húsinu fram á vor. Næsta sýning verður sunnudaginn 8. október og þá verður sýnd sænsk mynd um bangsann hans Max (Max Nalle). ------------- Fyrirlestur og námskeið í LHÍ FYRIRLESTUR verður haldinn í Listaháskólanum í Laugarnesi á morgun, mánudag, kl. 15 í stofu 024. Þóra Þórisdóttir og Valgerður Guð- laugsdóttir kynna rekstur og stefnu galleri@hlemmur.is, í máli og mynd- um. Einnig mun Þóra Þórisdóttir fjalla um sýningu sína „I víngarðin- um“ sem nú stendur yfir í galleríinu. Vefsíðugerð Kennd verða undirstöðuatriði HTML, vefsíðugerðar, myndvinnslu og hljóðvinnslu fyrir vefinn. Einnig verða ýmis forrit kynnt. Að nám- skeiðinu loknu eiga þátttakendur að vera færir um að hanna og setja upp einfalda vefsíðu með hljóði og/eða myndum. Kennari er Jón Hrólfur Sigurjónsson. Kennt verður í tölvu- veri LHÍ í Skipholti 1. Inngangur A. Kennslutími frá mánudegi til fimmtu- dags 9.-12. október, kl. 18-22, alls 20 stundir. Þátttökugjald 15.000 krónur. Raddbeiting Námskeið í raddbeitingu fyrir alla þá sem vilja uppgötva fleiri hliðar á rödd sinni og auka blæbrigði hennar og úthald. Tengsl öndunar, líkama og raddar könnuð gegnum öndunaræf- ingar, textavinnu og spuna. Unnið verður með röddina út frá hverjum einstaklingi og hans persónulegu þörfum. Kennari er Þórey Sigþórs- dóttir leikkona. Kennt verður í Leik- listardeild LHÍ, Sölvhólsgötu 13. Kennslutími á mánudögum og mið- vikudögum 9.-18. október kl. 17.30- 19.30 og laugardaginn 21. október kl. 10-12, alls 12 stundir. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu. Þátttökugjald 8.000 krónur. VM-2000 ( 24. september Píanótónleikar Folke Grásbeck í Salnum FINNSKI píanóleikarinn Folke Grásbeck heldur tónleika í Saln- um nk. þriðjudagskvöld, 26. sept- ember, kl. 20. Efnisskráin samanstendur af einleiksverkum fyrir píanó eftir norræn tónskáld, sem ekki eru oft flutt hér á tónleikum og feng- ur er í að heyra fyrir unnendur píanótónlistar. Flutt verða verk eftir Knut Nystedt, John Vaino Forsman, Jean Sibelius, Lille Bror Söderlundh, Jón Leifs og Poul Schierbeck. Folke Grásbeck er fæddur árið 1956 í Turku í Finnlandi. Hann nam píanóleik hjá Tarmo Huovinen við tón- listarháskólann í Turku, Mariu CurcioDiamond í London og Erik Tawastjerna við Sibeliusar akademíuna í Helsinki, þar sem hann gegnir nú stöðu prófessors í pianóleik. Hann hefur einnig lokið prófi „cum laude“ í tónvísindum frá listakadcmíunni í Aabo. Hann hefur ferðast víða um heim sem einleikari og í samleik með öðr- um tónlistarmönnum. Folke Grás- beck hefur verið listrænn sljórn- andi „Festum Finnicum" menningarhátíðarinnar f Eist- landi síðan árið 1994. Á síðasta ári kaus Sibeliusarfélagið í Bret- landi hann pfanóleikara ársins. Útgáfufyrirtækið NAXOS hefur hljóðritað leik hans og gefið út nýverið. LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR- HÚS KL. 14 cafe9.net Gestgjafar taka á móti fólki frá kl. 14. Heimsækið cafe9.net í Hafnar- hús eöa á heimasíöu. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.is VM-2000 25. september LISTASAFN REYKJAVÍKUR KL. 15 cafe9.net CopyCuit seminar, ráöstefna á veg- um belgíska hópsins Constanz, meö margskonar listrænum uppákomum þar sem fjallaö er um höfundarétt í samfélagi nútímans þar sem Netiö og aukin tækni viö upplýsingaöflun seturmark sitt á mannlífíö og stjórn- arfariö. Ráðstefnan stendur til 30. september. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.