Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 43

Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 43 + Kristín Björg Gunnarsdóttir fæddist á ísafirði 10. október 1918. Hún lést á Droplaugar- stöðuni 28. ágúst síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 1. september. Eftirfarandi minn- ingargrein birtist 22. september og er end- urbirt vegna mistaka við vinnslu blaðsins, þar sem nafn grein- arhöfundar féll nið- ur. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Hinn 28. ágúst sl. lézt í Reykjavík Kristín Björg Gunnarsdóttir eða Kristín Baarregaard eins og hún var líka nefnd. Á ísafirði var fallegur síðsumar- dagur, Pollurinn spegilsléttur og lit- brigða haustsins farið að gæta í hlíð- unum. Við sumarbústaðina í Tunguskógi blakti íslenzki fáninn í hálfa stöng i virðingar- og kveðju- skyni við látna samferðakonu. Mér varð hugsað til bemskuár- anna, er ég átti heima í Neðsta- kaupstaðnum á ísafirði, ásamt for- eldrum mínum og móðurfjölskyldu, og frá fyrstu tíð tengist Kristín minn- ingunum. Ef gengið var fram á svo- kallaða Háu-bryggju, var gott útsýni yfir að byggðinni hinum megin við Pollinn. Að vísu var þá ekki mjög þéttbýlt og engar voru landfyllingar sem nú era. En þarna hinum megin, á Torfnesinu og alveg niður við sjó- inn, blasti við hvítt hús með rauðu þaki og umhverfis það svolítill rækt- aður garður. í minningunni finnst mér, að á þessum stað hafi alltaf ver- ið glampandi sól og hann sveipaður ævintýraljóma. Húsið nefndist Sói- byrgi og þar bjuggu hjónin Elísabet Andrésdóttir og Gunnar Kristinsson, ásamt börnum sínum fimm, þeim Kristínu, Maríu, Kristni; Andrési og Aðalsteini. Með þeim Astu móður- systur minni og Kristínu var góð vin- átta og samgangur á milli heimilanna töluverður. Síðar kvæntist svo Finn- ur, móðurbróðir minn, Maríu, næst- elztu dótturinni. Á þessum árum áttu þeir móðurbræður mínir kajaka og mun það jafnvel hafa verið stundað að róa yfir Pollinn í heimsóknirnar, enda töluvert styttra en að ganga. Kristín kynntist eiginmanni sínum, Alfred Baarregaard tannlækni, hér á ísafirði og hér bjuggu þau sér heimili og eignuðust synina þrjá, þá Gunnar Anker, Harald og Björn. Baarre- gaard hafði fljótlega eftir að hann kom til ísafjarðar komið sér upp sumarbústað í Tunguskógi, þar sem hann gróðursetti tré og margvísleg- ar plöntur og þannig varð Lynghóll, eins og staðurinn var kallaður, að sannkölluðum unaðsreit, þar sem fjölskyldan bjó á sumr- in og naut samveru og útivistar. Á vetuma var farið á skíði og voru drengirnir ekki háir í loftinu, þegar þeh- fóru að fara með mömmu sinni á „Dalinn“. Krist- ín var félagi í Skíðafé- lagi ísafjarðar og tók reyndar virkan þátt í félagslífi bæjarins. Var hún félagi í kvennadeild Slysavarnafélagsins og í kvenfélaginu Osk og sat í stjóm beggja fé- laganna. Sinnti hún þeim störfum af alúð og áhuga og minnast félagar hennar þeirra starfa með þökk. Þá var Kristín félagi í Sunnukórnum á Isafirði og eftir að hún flutti suður fór hún með kórnum í söngferðalag til Ungverjalands og varð sú ferð henni til mikillar ánægju og ferðasagan oft rifjuð upp. Eftir að eiginmaður Kristínar féll frá flutti hún ásamt sonum sínum til Reykjavíkur, en á hveiju sumri, á meðan heilsa og aðstæður leyfðu, kom hún vestur til að dvelja í Lyng- hóli í Skóginum. Synirnir og fjöl- skyldur þeirra komu líka, stundum voru baraabömin með ömmu, alltaf var nóg við að vera, sama hvemig viðraði. Ef ekki viðraði til útivera var setið við borðið við stofugluggann, íylgst með smáfuglunum í trjánum, spjallað saman og rifjaðar upp minningar liðinna stunda. Engum duldist, að staðurinn var þeim einkar kær. Samband Kristínar við synina og fjölskyldur þeirra var einstaklega Opið hús í dag Lyngmóar 3 - Garðabæ Mjög björt og falleg 74 fm, 2ja herb. íbúð á 3. hæð ásamt bílskúr. Parket og flísar á gólfum. Svalir yfirbyggðar að hluta. Glæsilegt útsýni. Sameign nýlega standsett. (búðin er laus. Áhv. bygg.sj. 3,1 millj. Verð 10,1 millj. Jón Pétur tekur vel á móti ykkur í dag milli kl. 14.30 og 17.00 F.1STSICSAS.UAII /' N\ fasteign »ia Borgartúni 22 105 Reykjavík Sími 5-900-800 Vinnubúðir mnmnmm Til sölu ný vinnubúðasamstæða, sem samanstendur af 12 eins manns herbergjum, 1 skrifstofu, 2 snyrtingum, 1 forstofu m/fatageymslu, setustofu, matsal og stóru eldhúsi m/búri. Til afgreiðslu strax. Verð kr. 10.800.000. m/vsk. Allar frekari upplýsingar hjá: Mót heiidverslun, soitum 24, s. 511 2300, 511 2360, 892 9249 og 862 0252. KRISTIN BJORG GUNNARSDÓTTIR tíf ............... ^ JÖRÐiN HVAMMUR í SKORRADAL Höfum fengiö tii sölu jöröina Hvamm í Skorradal. Stærð jarðarinnar er um 390 ha. og og liggur norðan við Skorradalsvatn, milli Vatnsenda í vestri og Dagverðarness í austri. Um er að ræða skógivaxið land í rómaðri útivistarparadís og gefur lega landsins við vatnið jörðinni aukið gildi ásamt fegurri fjallasýn þar sem Skarðsheiðin blasir við með hinu tignarlega Skessuhorni. Frábær staðsetning í um 90 km. fjarlægð frá höfuðborginni. Miklir framtíðarmöguleikar. Einstakt tækifæri. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 570 4500, FAX 570 4505 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/ =# gott og það var ljúft að vera í nálægð þeirrá. Á milli okkar Kristínar og fjölskyldna okkar hafa legið sterk vináttubönd. Að leiðarlokum þökk- um við í Silfurgötunni þá vináttu og munum varðveita ljúfar minningar og rifja upp á góðum stundum. Sonum Kristínar, tengdadætran- um og ástvinum öllum sendum við einlægar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa minningu hennar. Auður H. Hagalín. Lindasmárí 57 - opið hús í dag kl. 15-17 Vorum að fá í einkasöiu þetta glæsilega 190 fm 2ja hæða endaraðhús i Smáranum. Á jarðhæðinni eru rúmgóðar stofur og sólskáli, eldhús, baðherbergi og rúmgóóur bílskúr með millilofti. Á efri hæðinni eru 3 svefnherb. og baðherb. Fallegur garður i mikilli rækt. Verð 22,6 millj. Daði, sölumaður á Holti, tekur vel á móti ykkur i dag. OPIÐ HÚS í dag, sunnudag, frá kl. 14-16 íYrsufelli 14, Reykjavík Mjög gott endaraðhús á einni hæð ásamt miklu rými í kj. og sérbyggðum bílskúr. Húsið skiptist í 4 góð herbergi. Góðar stofur. og stórt fjölskyldurými. Hús klætt að utan og í góðu ástandi. Frábær staðsetning. Góður garður. ATH: Skipti á minni eign möguleg. Verð 17,2 millj. Verið velkominn milli kl. 14 - 16. í dag. Sími 533 4040 Fax 533 4041 Armúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. V Skrifstofan opin í dag frá kl. 12-14 Þingholtsstræti 29A Reykjavíkurborg auglýsir fasteignina Þingholtsstræti 29A til sölu og óskar eftir kauptilboðum. Húsið er byggt árið 1916 og er ytra byrði þess friðað. Það er steinsteypt, 474m2 að stærð og skiptist í kjallara, tvær hæðir og risloft. Aðalinngangur er á norðurhlið en tveir inngangar í kjallara. Af Grundarstíg er innkeyrsla, nýlega hellulögð með hitalögn. Húsið stendur á 1196m2 eignarlóð en lóð- in er skilgreind sem stofnanalóð samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Steyptur veggur umlykur garðinn sem er í góðri rækt. Engin tán hvíla á eigninni. Nánari lýsing er á vefsíðu Reykjavíkurborgar http://www.reykjavik.is og á skrifstofu borgarlögmanns. í kauptilboði skal tilgreina heildarandvirði tilboðs og gera skýra grein fyrir greiðsluskilmálum (upphæð útborgunar, lengd lánstíma, vöxtum og trygg- ingum), ef ekki er um staðgreiðslu að ræða. Þá skulu tilboðsgjafar tilgreina í kauptilboði fyrirhuguð not hússins því sérstaklega mun litið til þeirra við mat kauptilboða. Húsið verður til sýnis frá kl. 13.00-15.00 mánudaginn 25. og þriðjudaginn i 26. september nk. eða eftir samkomulagi við skrifstofu borgarlögmanns. Tilboð merkt Þingholtsstræti 29A skulu berast skrifstofu borgarlög- manns, Ráðhúsi Reykjavíkur, eigi síðar cn kl. 14.00, miðvikudaginn 4. október 2000. Tilboðin verða opnuð á framangreindum stað og tíma að viðstöddum þcim tilboðsgjöfum er það kjósa. Tilboð eru bindandi í 10 daga frá opnunardegi. Áskilinn er réttur tii að (aka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.