Morgunblaðið - 24.09.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 24.09.2000, Síða 48
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Hundalíf HVAt) EIGUM VTÍ) Afi FA OKKUR ? SKONSUR, FRANSKBRAUt), RÚNSTYKKI? Ljóska ER™ BUIN AÐ AKVffiA HVA6 PU ÆTLAR *E>£EFA DESI IJ0LA6JÖF ? Ferdinand Smáfólk “Verður frumsýnd Ekki of nærri, í nágrenninu fljótlega.” vona ég. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Htis héraðsskólans á Laugarvatni. Bakhlið íþróttahúss héraðsskólans. Hvað á að gera við gamla skólahúsið á Laugarvatni? Frá Sigtryggi Porlákssyni: FYRIR RÚMU ári kom ég að Laugarvatni. Eg varð bæði hrygg- ur og reiður þegar ég leit niður- níðslu - niðurlægingu gamla, fal- lega skólahússins. Það var eins og að koma að býli sem staðið hefði í eyði í áratug. Þetta stóra myndar- lega hús hýsti á sínum tíma héraðs- skólann þar sem hátt á annað hundrað manns stundaði nám sam- tímis. Húsið er sérstætt, teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsameist- ara ríkisins, og hefur mikið sögu- legt gildi. Ég gerði mér ferð að Laugar- vatni nú í sumar. Þar hafði ekkert breyst. Gluggar hafa ekki verið málaðir lengi og margir orðnir fún- ir. Veggir íþróttahússins mikið sprungnir og múrhúðin farin af stórum flekkjum. íþróttamann- virkin mættu að vísu hverfa, enda byggð við skólahúsið í allt öðrum stíl. Hverjir eiga þessar byggingar? Er það ríkið eða sveitarfélögin? Sama er, enginn virðist hafa hug á að halda þessum húsum við. Laugarvatn er mikið menntaset- ur, eitt af höfuðbólum Suðurlands. En hvað væri Laugarvatn án gamla skólahússins? Það er tákn staðar- ins. Hvað hugsa Sunnlendingar - hvað hugsa Arnesingar? Ætla þeir að láta eyðilegginguna viðgangast? Auðvitað kostar það töluvert að halda húsinu við. En það hlýtur að vera hægt að finna því hlutverk. Ég sendi alþingismönnum Suð- urlandskjördæmis erindi í fyrra varðandi þetta áhugamál mitt. Enginn þeirra hefir látið svo lítið að ansa mér hvað þá að aðhafast eitthvað í málinu. Hvað segja Laugvetningar? Á ég þá við alla þá sem stunduðu nám í héraðsskólanum. Hvað getum við gert? Ég heiti á ykkur, ekki aðeins á skólasystkini mín heldur alla vel- unnara skólans að stuðla að því með mér að þessu merkilega húsi verði haldið við, þannig að það geti verið prýði Laugarvatns um langa framtíð. SIGTRYGGUR ÞORLÁKSSON, gamall Laugvetningur, Svalbarði, Þistilfirði. Tillitssamir fjölmiðlar Frá Þór Jónssyni: UMFERÐARRÁÐ hefur í forvama- skyni til sýnis bílflök við helstu þjóð- vegi landsins. Af sömu ástæðu birta fjölmiðlar myndir með fréttum sín- um af slysum. Almenningur á ský- lausan rétt á að fá eins nákvæmar upplýsingar og kostur er um málefni sem varðar hann jafnmiklu og um- ferðin á vegum úti. Venjan á íslensk- um fjölmiðlum hefur á hinn bóginn verið sú að ganga fremur skemmra en lengra í myndbirtingum af tillits- semi við aðstandendur hinna slösuðu eðalátnu. Birnu Ósk Björnsdóttur, sem misst hefur bróður sinn í bílslysi, virðist hins vegar sem fréttafólk sé tilfinningalaust, tillitslaust og ómennskt! Hún telur nóg að sagt sé frá slysunum, en fréttaflutningurinn snúist um að sýna sem mest. (Mbl. 19/9). Ég hef fulla samúð með Birnu Ósk vegna fráfalls bróður hennar, en ekki með málflutningnum, enda byggist hann í hennar tilviki á ósönn- um og ósanngjörnum ásökunum í garð blaðamannastéttarinnar, sem ég leyfi mér að mótmæla mjög ákveðið. Birna Ósk segist hafa séð í frétt- um „þegar verið var að draga hálf- látnar ef ekki látnar manneskjur úr flugvélarflakinu" í Skerjafirði mánu- daginn 7. ágúst. Slíkar myndir eru vissulega til, en þær voru ekki sýnd- ar í fréttum. Hinar marglofuðu fréttastofur Sky og CNN hefðu hins vegar ekki hikað við að birta slíkar myndir. Sömuleiðis fóru fjölmiðlar varlega í myndbirtingar af skelfilegu banaslysi við Hellu fáum dögum eftir flugslysið - hitt dæmið sem Bima Ósk nefnir um ómannúðlegan frétta- flutning - þó án þess að bregðast skyldum sínum við almenning. Dæmin eru miklu fleiri um tillits- saman fréttaflutning hér á landi. T.d. þögðu íslenskir fjölmiðlar klukku- tímum saman um mikla leit að báti, sem sökk út af Akranesi, af tillits- semi við aðstandendur trillusjó- manna, þótt færi ekki fram hjá hundruð sjónarvotta að eitthvað mikið væri um að vera. Spyija má heldur hvort íslenskir fjölmiðlar hafi þá staðið vörð um rétt fjöldans. í vanmætti sínum beina aðstand- endur fórnarlamba slysa oft reiði sinni að fjölmiðlunum. Mikið skortir á að lögreglumenn og eftir atvikum prestar búi þá nægjanlega undir að um slysin verði fjallað. Mín reynsla er að aðstandendum þyki sárast að heyra ónákvæmar eða rangar frétt- ir. Skiptir þess vegna miklu að fjöl- miðlar eigi greiðan aðgang að upp- lýsingum um slys og óhöpp og að allir viðkomandi geri sér grein fyrir að starfsemi þeirra, á þessum vett- vangi sem öðrum, sé bæði eðlileg og nauðsynleg. ÞÓRJÓNSSON, varaformaður Blaðamanna- félags íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.