Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrstu íslensku vefverðlaunin voru afhent í gær
Mbl.is besti fjölmiðla-
o g upplýsingavefurinn
Fulltrúar þeirra fyrirtækja sem unnu til verðlauna. Frá vinstri: Þórhall-
ur Kristjánsson, Egill Vignisson og Hilmar Halldórsson, allir frá auglýs-
ingastofunni Gullna hliðið, Geir Þórðarson, forstöðumaður nb.is, Hug-
rún Hrönn Ólafsdóttir, ritstjóri hjá leit.is, Viggó Ásgeirsson, vefstjóri
hjá bi.is, Margrét Sigurðardóttir, markaðsstjóri á Morgunblaðinu, fris
Björg Kristjánsdóttir, vefstjóri hjá Strik.is, Tómas Ragnarsson, mark-
aðsstjóri hjá Strik.is, og fris Björnsdóttir, vefstjóri hjá posturás.
Strik.is valið
besta íslenska
vefsetrið
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins,
mbUs., var valinn besti fjölmiðla- og
upplýsingavefurinn þegar Islensku
vefverðlaunin voru afhent fyrsta
sinni í Þórshöll í gær. Þá var Strik.is
valið besta íslenska vefsetrið árið
2000. Um 3.000 tilnefningar bárust til
keppninnar en sérstök dómnefnd
valdi 35 vefsíður til að keppa til úr-
slita í sjö flokkum. Fyrirtækið
Vefeýn hf. hafði veg og vanda af verð-
launaafhendingunni en með framtak-
inu vill það stuðla að markvissari
vefsíðugerð og auknum metnaði í
vefmálum á íslandi.
Eins og fyrr segir var keppt í sjö
flokkum og var besta vefeíðan valin í
hverjum flokki. Auk viðurkenningar
mblis fyrir að vera besti fjölmiðla-
og uppiýsíngavefurinn var vefeíða
Netbankans, nb.is, valin arðvænleg-
asti vefurinn. Vefsíða auglýsingastof-
unnar Gullna hliðsins, gh.is, var valin
frumlegasti vefurinn. Strikis var val-
in besti afþreyingarvefurinn. Leit.is
var vaKn besti leitarvefurinn. Vefeíða
Búnaðarbanka íslands, bi.is, var val-
in besti fjármálavefurinn og vefeíða
Islandspósts, posturás, besti fyrir-
tælqavefurinn. Þá var strikis valið
besta íslenska vefsetrið árið 2000,
eins og áður segir.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra afhenti verð-
launin, sem voru líkön af tölvum,
mótuð úr Ijósu líparíti, firá Alfasteini.
Ráðherra sagði u við þetta tæki-
færi að efnahagsleg framtíð okkar
byggðist að miklu leyti á hagnýtingu
þeirra gríðarlegu tækifæra sem biðu
okkar á Netinu. Þá sagði hún: „Mót-
un og framsetning efnis á Netinu er
oft sá einstald þáttur sem ræður
Morgunblaðið/Júlíus Siguijónsson
Margrét Sigurðardóttir, markaðsstjóri á Morgunblaðinu, tekur við
verðlaununum úr hendi Valgerðar Sverrisdóttur.
mestu um viðtökur neytandans og
árangur eiganda efnisins. Vegna
þess er ástæða til að fagna því að þeir
sem skarað hafa fram úr í vefsíðu-
gerð fái viðurkenningu fyrir störf sín.
Slíkt framtak er hvetjandi fyrir aðra
og má búast við að þær vefsíður sem
með þessu móti eru dregnar fram í
dagsljósið verði öðrum til fyrirmynd-
ar.“ Þakkaði hún að lokum fyrirtæk-
inu Vefsýn fyrir það frumkvæði að
veita Islensku vefverðlaunin.
Aftur að árí
Einar Solheim, framkvæmdastjóri
Vefsýnar, sagði m.a. við afhending-
una að því miður hefðu mörg íslensk
fyrirtæki verið smeyk við að fjárfesta
í verfsíðum á Netinu. „En það er okk-
ar að breiða út boðskapinn um Netið
þannig að íslenskt þjóðfélag fái fyrir
alvöru að njóta þess hagræðis sem
Netið býður upp á. Við hjá Vefsýn
höfum lagt okkur fram við að gera
hátíðina sem veglegasta og síðast en
ekki síst sem sanngjamasta. Ég lofa
því að þetta verður árlegur viðburður
um ókomin ár.“
Dómnefnd Islensku vefverðlaun-
anna, eða Islenska vefakademían
eins og hún er köUuð, er skipuð þeim
Guðmundi Ólafesyni, lektor við Há-
skóla íslands, Jakobi Jóhannssyni,
grafískum hönnuði hjá Félagi ís-
lenskra teíknara, Margréti Gunnars-
dóttur, framkvæmdastjóra ímark,
Ragnheiði Hauksdóttur, fram-
kvæmdastjóra ACO, Stefáni Baxter,
starfsmanni Gæðamiðlunar, Stefáni
Hilmarssyni, sjálfstæðum vefara, og
Steingrími Ámasyni, hugbúnaðar-
vefetjóra hjá ACO.
Þórður Fríðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofhunar um gengisbreytingar undanfarna daga
Gengið gæti lækkað
dragi ekki úr þenslu
Gengislækkun krónunnar stuðlar að meiri verðbólgu, en jafnframt
batnar hagur útflytjenda og viðskiptahalli minnkar. Gengi annarra
gjaldmiðla hefur verið óhagstætt fyiir lántakendur á seinni hluta
ársins og má búast við að það endurspeglist í afkomu fyrirtækja.
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að gangi
teíkn um að þensla I efnahagslífinu
sé að minnka ekki eftir sé ekki ólík-
legt að gengi krónunnar lækki
meira, en gengið var í gær um 9%
lægra en það var í vor þegar það var
hæsL
Gengi bandaríkjadollars gagnvart
krónu hefur hækkað um 22% frá ára-
mótum. Þetta hefur m.a. þau áhrif að
innfluttar vörur hækka í verði, en út-
flytjendur sem flytja út vörur til
Bandaríkjanna hagnast á gengis-
hækkiminni. A fyrstu átta mánuðum
þessa árs fóm um 12% útflutnings til
Bandaríkjanna og hlutfall innflutn-
ings frá Bandaríkjunum var svipað.
Sé litið til seldrar þjónustu er hlut-
faliið þó hærra. Hlutfallslega stór
hhiti skulda íslenska þjóðarbúsins er
í dollurum og er styrking dollars því
lántakendum óhagstæð.
Stuðlar að hærri verðbólgu
Þórður Friðjónsson sagði að þótt
gengi krónunnar hefði vissulega
lækkað umtalsvert frá í vor yrði að
hafa í huga að í apríl/maí hefði gengi
krónunnar verið mjög hátt í sögu-
legu samhengi. Hann sagði að geng-
islækkun hefði að öðm óbreyttu
áhrif tfl hækkunar á verðlagi hér á
landi Ástand innanlands skipti máli
því að ef þensla væri í efnahagslífinu
mætti búast við því að gengisáhrifin
væm meiri en ef lítil þensla væri í
efnahagslífmu. „Neikvæðu áhrifin af
gengislækkun era þau að hún stuðl-
ar að meiri verðbólgu, en jákvæðu
áhrifin era að staða útflutnings- og
samkeppnisgreina batnar og gengis-
lækkun dregur einnig úr viðskipta-
halla
Það sem skiptir mestu máh er að
það séu efnahagslegar forsendur
fyrir þvi gengi sem er hverju sinni.
Það sem hefur verið að gerast á und-
anfomum mánuðum er það að í Ijósi
lakari horfna í sjávarútvegi, lakari
viðskiptakjara, m.a. vegna hækkun-
ar á olíuverði, og nokkru meiri verð-
bólgu hér á Iandi en í helstu við-
skiptalöndum okkar hefur gengi
krónunnar lækkað sem era í sjálfu
sér mjög rökrétt viðbrögð við svona
aðstæðum,“ sagði Þórður.
Þórður sagði erfitt að spá fyrir um
gengisþróun næstu vikumar. „Ef
vísbendingar um rénun þenslunnar,
sem menn hafa talið sig sjá að und-
anfömu, verða staðfestar í efnahags-
þróuninni á næstu mánuðum tel ég
að það séu góð og gild rök fyrir því að
gengi krónunnar sé í rökréttu sam-
hengi við efnahagsleg skilyrði hér á
landi. Ef þenslan færist aftur á móti í
aukana á ný er ekki ólíklegt að eitt-
hvert frekara sig verði í samræmi við
slíkar breytingar.“
Seðlabankinn fylgist vel með
Tómas Óm Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri peningamálasviðs
Seðlabankans, sagði að Seðlabank-
inn fylgdist grannt með gengisþróun
krónunnar. Hann sagði að bankinn
gæti ekkert sagt um hvort hann
myndi með einhverjum hætti grípa
inn í þróunina.
Vikmörk gengisvísitölunnar voru
hækkuð úr 6% frá miðgildi í 9% í
febrúar á þessu ári. Mörkin eru núna
104,66 og 125,36, en lokagengi vísi-
tölunnar var í gær 117,88.
Tómas Öm sagði að þegar doll-
arinn væri orðinn svona hár gæti
komið að því að innlendir aðilar sem
ættu dollara sæju sér hag í að selja
þá en í því fælist viðnám fyrir krón-
una.
Tómas Om sagði að hækkim doll-
ars að undanfömu styrkti stöðu
þeirra útflytjenda sem flytja út til
Bandaríkjanna og búast mætti við að
útflutningur þangað ykist á næst-
unni ef dollarinn yrði áfram sterkur.
Þróunin væri lántakendum sem
skulduðu í dollar hins vegar óhag-
stæð. Aftur á móti mætti ekki
gleyma því að þeir sem ættu eignir
erlendis högnuðust á hækkun doll-
ars. Á síðustu áram hefðu íslending-
ar ijárfest talsvert á bandarískum
hlutabréfamarkaði og verðgildi
þeirrar íjárfestingar ykist við hækk-
un dollars og vægi að einhveiju leyti
upp lækkun á gengi hlutabréfanna
aðundanfomu.
Fáir taka sér stöðu
með krónunni
Ami Maríasson, forstöðumaður
gjaldeyris- og afleiðuviðskipta Bún-
aðarbankans, sagði að erfitt væri að
spá fyrir um hvemig gengisvísitalan
þróaðist á næstunni. Hann sagði að
lítfl viðskipti hefðu verið á gjaldeyr-
ismarkaði síðustu daga og greinflegt
að markaðsaðilar héldu að sér hönd-
um. Oft þegar gengið lækkaði gengi
lækkunin að einhverju leyti til baka
innan dagsins, en það hefði ekki
gerst við þær breytingar sem orðið
hefðu á allra síðustu dögum. Svo
virtist sem nú um stundir væru ekki
margir aðilar sem væru tilbúnir til
að ganga gegn þróuninni og taka sér
stöðu með krónunni.
Ami sagði að nokkur óvissa ríkti
um hvaða lán ríkissjóður ætlaði að
greiða upp á næstunni, en ákvarðan-
ir stjómvalda um það gætu skipt
máli varðandi stöðu krónunnar.
Hætt væri við að það myndi veikja
krónuna enn frekar ef ríkissjóður
greiddi upp mikið af erlendum lán-
um á næstimni en hún gæti styrkst
ef ákvörðun væri tekin um að bíða
með þær greiðslur.
Ámi benti á að á sama tíma í fyrra
hefði verið svipuð verðbólga og nú og
viðskiptahallinn mikill en samt hefði
gengið hækkað. Aftur á móti hefði
borist mikið af neikvæðum fréttum
úr efnahagslífinu að undanfömu og
viðhorfið á markaðinum væri al-
mennt neikvætt. Þetta endurspegl-
aðist t.d. í gengi hlutabréfa.
Hefur neikvæð áhrif
á lántakendur
Erlendar lántökur hafa aukist
mikið á undanfomum misseram og
sagði Ami að lántakendur töpuðu al-
mennt á þessum gengisbreytingum.
Hann sagði að í fyrra og fram í maí á
þessu ári hefðu fjármagnshreyfingar
verið mjög jákvæðar fyrir lántak-
endur.
Hagnaður þeirra hefði hins vegar
gengið til baka á seinni hluta ársins.
Þessa myndi væntanlega sjá stað í
bókhaldslegu uppgjöri fyrirtækja
um áramótin gangi þessi þróun ekki
til baka. Ámi sagði mikilvægt að
hafa í huga að lántakendur horfðu til
langs tíma þegar þeir tækju ákvörð-
un um að taka frekar lán í erlendri
mynt en krónum. Ef horft væri til tíu
ára mætti krónan veikjast nokkuð
mikið til þess að það borgaði sig að
taka innlent lán frekar en erlent
vegna þess að vextir hér á landi væru
almennt 4-5% hærri en í nágranna-
löndum okkar.
. v [ ' 'f 'l' ' I ■Ph—1 i ;* , y. ** "fy 'TjfLjry'"' ; >- . -*^t. ^ • mj \ ■. M&ir _ _ >r . f t \—■—. *v \ \ . I . .-1
<§ Oxfordsteinn
BM-VAUÁ Breskur stíll í steinlögnum. Kynntu þér spennandi
Söludeild í Fomalundi hugmyndir fyrir garðinn þinn
Brriðhciföa 3 - Sími S8S SOSO á www.bmvalla.is
WllA A A A/n • 1 g 1/• 11 [•WpJ