Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 6

Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Austurendi austur-vestur-brautarinnar var opnaður um síðustu helgi og því er fluguniferð nú með eðlilegu móti. Austur-vest- ur-brautin tilbúin LOKIÐ er áföngum þessa árs við endumýjun Reykjavíkurflugvallar og hefjast framkvæmdir aftur í byijun næsta árs. Var flugumferð nýlega hleypt á austur-vestur- flugbrautina, sem nú hefur verið endurnýjuð að fullu. Ólafur Hilmar Sverrisson verk- ef'nissljóri segir að austur-vestur- brautin sé nánast búin, unnið sé að lokafrágangi vegna ljósa en umferð hafi þó verið hleypt á brautina um síðustu helgi. Hann segir hlé verða á framkvæmdum líklega fram í jan- úar á næsta ári. Verður þá ráðist í gerð nýrrar akstursbrautar með- fram syðri enda norður-suður- brautarinnar en hún á að liggja austanvert við flugbrautina. Þarf að skipta þar um jarðveg áður en brautin verður lögð. Næsta sumar verður siðan ráðist í endurnýjun suðurhluta norður- suður-brautarinnar. Sumarið 2002 verður norðurhlutinn tekinn og lýkur framkvæmdunum þar með. Hald lagt á jafn- margar e-töflur og allt árið í fyrra ÞAÐ sem af er þessu ári hefur lög- reglan í landinu lagt hald á rúmlega 41 kg af fíkniefnum, mest af hassi eða tæplega 24 kg og amfetamíni, eða rúmlega 10 kg. Alls hefur lögreglan lagt hald á fíkniefni í 825 fíkniefna- málum, að því er fram kemur í upp- lýsingum frá embætti ríkislögreglu- stjórans en sambærileg tala allt árið í fyrra er 767 og er í því tilviki raunar um að ræða bæði handlögð efni og áhöld til neyslu. í flokki kannabisefna hefur alls verið lagt hald á 23,784 kg af hassi og 4,287 kg af maríjúana það sem af er þessu ári og í flokki örvandi efna hef- ur verið lagt hald á 10,130 kg af amfetamíni og rúmlega 780 g af kóka- íni. Lögreglan hefur ennfremur lagt hald á 21.468 stykki af e-töflum en hafa ber í huga hvað það varðar að u.þ.b. 14 þúsund taflnanna voru tekn- ar af manni sem handtekinn var þeg- ar hann millilenti hér á landi íyrir skemmstu á leið frá Hollandi til Bandaríkjanna. Þessar pillur voru því ekki ætlaðar til sölu eða notkunar á íslandi. Séu þessar 14 þúsund e-töflur dregnar frá kemur því í ljós að á íyrstu tíu mánuðum þessa árs hefur lögreglan lagt hald á svipaðan fjölda e-taflna og allt áríð í fyrra eða um 7.500, ef miðað er við upplýsingar sem fram komu í skýrslu um fíkniefnamál á íslandi á árinu 1999 sem fíkniefna- stofa ríkislögreglustjórans gaf út í júlí. Ekki leikur vafi á að fíkniefna- smyglarar hafa verið að gerast æ kræfari í tilraunum sínum til að koma efnum til landsins. Beita meim nú orðið öllum hugsanlegum brögðum, að sögn Ásgeirs Karlssonar, aðstoð- aryfirlögregluþjóns í fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Ásgeir segir það bragð, að koma fíkniefnum fyrir innvortis, hafa færst mjög í aukana á síðustu misserum. Menn séu tilbúnari en áður til að gleypa efnið eða troða því í sig, jafn- vel þó þeim megi vera ljóst að þeir séu að stofna sjálfum sér í lífshættu. Ennfremur segir Ásgeir að það blasi við að um æ skipulagðari afbrot sé að ræða, það hafi t.a.m. sést af stóra fíkniefnamálinu nýlega þar sem nokkrir aðilar keyptu inn fíkniefni í Danmörku og fluttu síðan hingað til lands með skipafélaginu Samskipum. Þar hafi þeir getað stýrt flutningun- um á öllum stigum ferlisins og ljóst sé að um raunverulegan smyglhring hafí verið að ræða. Sagði Ásgeir að sjá mætti vísi að skipulögðum glæpa- heimi hér á landi í tengslum við fíkni- efnamálin. Um helgina Stórsýning Opnum nýjan og betri sýningarsaL Stórsýning á Nýbýlaveginum, taugardag kL 12-16 og sunnudag kl. 13-16. TOYOTA Betn notadir bflar www.toyota.is ALLJ AÐ SPvt BYRGÐ Róttækar breytingar lagðar til á skipulagsmálum BSRB Stjórn verði skipuð for- mönnum aðildarfélaga RÓTTÆKAR breytingar verða að öllum líkindum gerðar á skipulags- málum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á þingi bandalagsins sem nú stendur yfir í Reykjavík. Er ráðgert að stjórn BSRB verði framvegis sjálfkrafa skipuð for- mönnum aðildarfélaga bandalags- ins, auk formanns og varafor- manna, en verði ekki sérkjörin á hverju BSRB-þingi eins og verið hefur. Er vonast til að með þessu megi tengja aðildarfélögin betur því starfi sem unnið er á vettvangi stjórnar. Samkvæmt tillögum sem Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, stendur að auk annarra yrði fyrirkomulag skipulagsmála framvegis þannig að einungis yrði kosið um formann og varaformenn á BSRB-þingum. Stjórn yrði að öðru leyti sjálfkrafa skipuð for- mönnum aðildarfélaga, eins og áð- ur segir. Gert er ráð fyrir því í tillögum Ögmundar og þeirra Jóns Júlíus- sonar og Jónasar Magnússonar að stjórn BSRB kjósi sér framvegis sérstaka framkvæmdanefnd. Nokkur áhöld eru hins vegar um það hvar þetta skuli gert, á aðal- fundi sem haldinn er árlega eða á BSRB-þingum sem haldin eru þriðja hvert ár. Ögmundur Jónasson gefur áfram kost á sér 39. þingi BSRB verður fram haldið í dag og m.a. mun Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftir- lits ríkisins, flytja gestafyrirlestur kl. 13.15 sem fjalla mun um heilsu- vernd starfsmanna. Á morgun fer síðan fram lokaafgreiðsla mála og jafnframt verður þá gengið til kosninga. Ögmundur Jónasson, sem verið hefur formaður BSRB síðan 1988, gefur kost á sér áfram eins og þau Sjöfn Ingólfsdóttir, Starfsmanna- félagi Reykjavíkur, 1. varaforseti, og Jens Andrésson, Starfsmanna- félagi ríkisstofnana, 2. varaforseti. Var allt útlit fyrir það í gær að þau yrðu ein í kjöri. ------------------ Tveir öku- menn dæmdir vegna banaslyss HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt tvo menn í 60 daga fangelsi fyrir manndráp af gáleysi vegna bana- slyss, sem varð á einbreiðri brú yfir Vaðal í Önundarfirði í febrúar í fyrra. Refsing beggja mannanna fellur niður að þremur árum liðnum, haldi þeir almennt skilorð. Hæstiréttur taldi annan manninn bera meiri sök í málinu en hinn, en leit við sakarmatið til hörmulegra af- leiðinga siyssins, því þunguð eigin- kona mannsins lést í slysinu og varð barni þeirra heldur ekki bjargað- Maðurinn var sviptur ökuréttindum í eitt ár, en hinn ökumaðurinn í sfy- mánuði. Hæstiréttur sagði mennina hafe ekið bifreiðum sínum of hratt og án nægjanlegrar aðgæslu inn á ein- breiða brúna, annar úr norðri en hinn úr suðri. Hæstiréttur bendir á að ökumennirnir tveir hafi vitað hvor af öðrum, áður en komið var að brúnni, og hefðu átt að geta dregið svo úr hraða bifreiða sinna, að hvor- ugur hefði ekið inn á brúna án þess að vera þess fullviss, að hinn gerði það ekki jafnframt. Til þessa hafi all- ar aðstæður verið hinar ákjósanleg- ustu, en báðir voru ákærðu gjör- kunnugii' staðháttum. Hæstiréttur segir að það leysi hvorugan mannanna undan sök, að hinum hefði verið unnt með meiri gætni að afstýra árekstri. Sparisjóðsstjóri SPRON um mögu- lega breytingu í hlutafélag Hefur heilmikil áhrif á stofn- fjáreigendur GUÐMUNDUR Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, sagði á fjölmennum kynningarfundi um málefni sparisjóðsins með stofn- fjáreigendum SPRON í gær, að breyting á rekstrarformi spari- sjóða í hlutafélög væri álitlegri en aðrar þær leiðir sem skoðaðar hafa verið að undanförnu. Sagði Guðmundur að þessi mál yrðu skoðuð mjög vandlega á næstu vikum. „Við munum reyna að átta okk- ur á því, hvaða áhrif það hefur fyrir sparisjóðinn ef horfíð verð- ur frá því að byggja á stofnfé, eins og gert hefur verið, og fara yfir í hlutafé. Það hefur heilmikil áhrif á stofnfjáreigendur, því þeir fá þá væntanlega hlutabréf í skiptum fyrir stofnfjárbréf sín. Það eru bréf sem þá er hægt að eiga viðskipti með á markaði og menn geta keypt meiri hluti eða selt ef menn vilja og munu þá njóta þess ef vel gengur, því þá má ætla að markaðsverð slíkra bréfa hækki kannski mun meir heldur en er í dag, því eins og við þekkjum þá hækkar stofnfé ein- göngu með tilliti til verðlags. Til viðbótar við það þá greiðum við arð. Arðurinn undanfarin ár hef- ur verið á bilinu 12-15%, sem kemur ofan á verðtryggða eign, þannig að það er býsna góð ávöxtun í sjálfu sér, en breytir ekki því að ef við hefðum mögu- leika á að vera hlutafélag þá gæt- um við sótt okkur enn rneira fé og reynt að brjóta okkur nýtt land til sóknar,“ sagði Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.