Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 9 FRETTIR Breytt inntökupróf í læknadeild HI UNDIRBUNINGUR er hafinn að grundvallarbreytingum á inntöku- prófi í læknadeild Háskóla Islands sem gæti stytt læknanámið um allt að hálft ár. Einnig eru fyrirhugað- ar breytingar á námskrá lækna- deildarinnar til að námið geti sem best svarað kröfum tímans og sam- félagsins. Talsverður skortur er á menntuðum læknum í heilsugæsl- unni og einnig vantar yngri spítalalækna, sem margir hverfa til útlanda til sérnáms. Reynir Tómas Geirsson prófess- or, deildarforseti læknadeildar, segir að fjöldatakmarkanir í læknadeild HI eigi sér langa sögu. Þær hafi verið settir á vegna takmarkaðrar getu spítalanna til að anna kennslu læknanema. Læknanám sé auk þess dýrt nám og takmörk fyrir því hve marga sé hægt að mennta. Engu að síður jókst fjöldi þeirra sem hélt áfram námi í læknadeild að loknum sam- keppnisprófum í lok fyrsta misser- is um 10% á síðasta ári, úr 36 manns í 40. Utlit er fyrir að um enn frekari aukningu verði að ræða á næsta ári. „Það er í stöðugri endurskoðun hjá Háskólanum hvernig eigi að halda á þessum málum. Núna er- um við að undirbúa nýtt form á inntökuprófum sem verður vænt- anlega hleypt af stokkunum árið 2002,“ segir Reynir Tómas. Inntökupróf strax að loknu stúdentsprófi Breytingarnar felast í því að inntökupróf verður haldið að vori að loknum stúdentsprófum og verða þá strax þeir valdir sem hefja nám og halda því áfram til loka þess. Markmiðið er að einfalda ferlið og stytta. I stað þess að stúdentar innritist að vori í læknadeild, verji sumrinu og haustinu til lesturs og undirbúnings og þreyti síðan sam- keppnispróf, er ætlunin að stúd- entar þreyti strax inntökupróf að vori. Þeir sem nái því hefji síðan nám að hausti. Með þessu móti og með breyttri námskrá er unnt að stytta námið um jafnvel allt að hálfu ári, sem Reynir Tómas segir að sé þjóðhagslega hagkvæmt. Inntöku- prófið verður sömuleiðis með nýj- um hætti og verður það byggt á námsefni menntaskólanna. Gefnar verða út leiðbeiningar um það hvaða fög nemendur þurfa að leggja áherslu á í menntaskóla til þess að standa sem best að vígi þegar kemur að inntökuprófi í læknadeild. I breytingum á nám- skrá er m.a. litið til þess að minni tíma verði varið til kennslu vissra faga sem þegar hafa verið kennd í menntaskóla. Um 200 manns sækja um nám í læknadeild á hverju ári og segir Reynir Tómas að einhverja aðferð verði að hafa til þess að velja nem- endur til áframhaldandi náms. Há- skólinn sé engan veginn í stakk búinn til að taka á móti öllum um- sækjendum miðað við fjármagn til læknadeildar háskólans og aðstöðu til kennslu. Hann segir að miðað við núver- andi fyrirkomulag sé hugsanlegt að fjölga eitthvað þeim sem kom- ast í læknanám, en með breyting- um í kjölfar samninga um háskóla- sjúkrahús gæti fjöldi nýrra lækna- nema aukist enn frekar. Samræmd stúdentspróf Bjarni Þór Eyvindsson, formað- ur Félags læknanema, segir að sér lítist vel á fyrirhugaðar breytingar. „Inntökuprófin hafa reynt á þolrif margi-a sem hafa undirbúið sig í þrjá mánuði og sitja svo kannski eftir. Þetta gefur þeim tækifæri sem ekki komast inn að hafa heilt ár til að mennta sig í einhverju öðru,“ sagði Bjarni Þór. Hann seg- ir að með þessu sé læknadeildin í raun að gefa undir fótinn þeirri Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face ^ Ji' " % I ■* % 2* • I P Sfe Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14 Franskar buxnadragtir frá stærð 34 TESS JczJMk V Neðst við Dunhagu \ sími 562 2230 Opið virka daga kl. 10-18 Opið laugardaga kl. 10-14 Glœsilegt úrval af samkvœmiskjólum Ný sending Allir jylgihlutir Fataleiga Garðabæjar, sími 565 6680. Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga kl. 10 til 14. stefnu að komið verði á samræmd- um stúdentsprófum. Stúdentar frá vissum skólum, einkum Mennta- skólanum í Reykjavík, njóti óneit- anlega ákveðins forskots á inn- göngu í læknadeild þangað tii komið verði á samræmdu stúdents- prófi í öllum greinum. Bjarni Þór segir að það sé ekki raunhæf hug- mynd að útrýma öllum fjöldatak- mörkunum í læknadeild. „Til þess að svo mætti verða yrði að verða til mikil aukning á kennslustöðum á spítölum. Eins og staðan er í dag er hægt að fjölga um 10-20 manns á hverju ári en með meiri fjölgun yrði óhjákvæmilega mikil náms- skerðing hjá hverjum einstakl- ingi,“ sagði Bjarni Þór. Loðskinnshúfur °9 -treflar 1 PELSINN rfti Kirkjuhvoli - sírai 5520160 I J MÍI TIMALAUS FATNAÐUR Hönnun frá Eistlandi |f" *^'v^**' LIIVIALEéKIN TALLINN COLLECTION SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22 - SÍMI 511 1611 Lagersala á Bíldshöfða 14 Skór, töskur, belti, leðurhanskar, nærföt o.fl. Mikið úrval. Alltaf eitthvað nýtt! Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19, laugardaga milli kl. 12 og 16 og sunnudaga milli kl. 13 og 17. www.sokkar.is oroblu@sokkar.is Nýkomið mikið úrvai af peysum Rita Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, TtSKU VERSLUN lau. 10-15. Síðir kjólar, samkvæmisjakkar og samkvæmispils Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Einn fallegasti skutbíll landsins... ...er til sölu. BMW 520i touring 1996, svartur metallic, 6 cyl, 150 hö, ekinn 60 þús, "M" leðursæti, sumar- og vetrardekk, 16 tommu' álfelgur, geislaspilari... Bíll sem sameinar notagildi og ánægju í akstri. Hagsteett verð: kr 1.990 þús. eða kr. 1.800 þús. staðgreitt. Til sýnis hjá Bílasölu Guðfinns v/Vatnsmýrarveg, sími 562 1055 Solusyning á nýjum og gömlum, handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel í Sigtúni föstudag 20. okt. kl. 13-19, laugardag 21. okt. kl. 12-19, sunnudag 22. okt. kl. 13-19. Glæsilegt úrval - gott verð 10% staðgreiðslu- afsláttur HOTEL REYKJAVÍK PS: LS RADEREIÐSLUR sími 861 4883
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.