Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNB L AÐIÐ Búferlaflutningar til og frá höfuðborgarsvæðinu janúar - september 1999 og 2000 Höfuðborgarsvæðið Færri flytja af landsbyggðinni en í fyrra Samið um smíði 350 tonna fiskiskips hjá Ósey í Hafnarfirði Bjarmi BA 326 verður einstakt skip í íslenzka flotanum; það eina sem vinnur um borð ferskan fisk í flug. Morgunblaðið/Ásdís Samningurinn undirritaður. Hallgrímur Hallgrímsson, framkvæmda- sljóri Oseyjar, Níels Ársælsson útgerðarmaður og Baldur Jónasson, fulltrúi Skipatækni. FÆRRI fluttu af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins á fyrstu níu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Enn flytja þó fleiri til höfuðborgarsvæðisins en frá því. I fyrirsögn fréttar í Morgunblað- Síbrota- maður í 4 ára fangelsi HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 35 ára mann, Garðar Garðars- son, sem búsettur er í Hvera- gerði, í 4 ára fangelsi fyrir þjófn- að, tilraun til þjófnaðar og fíkniefnalagabrot. Brot hans nú voru allt frá því að stela útvarpi og sparibauk í að stela skart- gripum, myndavél og geisla- diskum, auk þess sem fíkniefni fundust í fórum hans. Ástæða þess að hann fær jafn þungan dóm og raun ber vitni er sú, að brot hans eru ítrekuð, auk þess sem hann rauf skilorð reynslu- lausnar vegna fyrri brota. Maðurinn á langan sakarferil að baki. Frá átján ára aldri hef- ur hann hlotið tvo tugi refsi- dóma á íslandi og erlendis. Síð- ast var hann dæmdur hér á landi með dómi Hæstaréttar 3. desember 1992 íyrir þjófnað og umferðarlagabrot. í eilefu skipti hefur hann gengist undir sátt fyrir vopnalagabrot, umferðar- lagabrot, fíkniefnalagabrot, þjófnað og nytjastuld. Hann var- dæmdur í Þýskalandi árið 1989 til að sæta fangelsi í eitt ár og tíu mánuði fyrir hegningarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Þá hlaut hann þijá dóma í Danmörku á árunum 1993 og 1994 fyrir ýmis hegningarlagabrot, þar á meðal auðgunarbrot, og vopnalaga- brot, en með þeim dómum var honum gert að sæta fangelsi í samtals fimm ár og níu mánuði. I nóvember 1998 var mannin- um veitt reynslulausn í þrjú ár á tveggja og hálfs árs eftirstöðv- um refsingar, samkvæmt áður- nefndum dómi Hæstaréttar frá 1992 og tveimur dönskum dóm- um frá 1994. Með brotunum, sem hann var nú sakfelldur fyr- ir, sem voru þjófnaðir, rauf hann skilyrði reynslulausnar og var því gerð refsing í einu lagi. Um- ræddir dómir höfðu allir ítrek- unaráhrif. inu í gær var því ranglega haldið fram að fleiri flyttu nú frá höfuð- borgarsvæðinu en til þess. Hið rétta er að fyrstu níu mánuði þessa árs fluttu 3.125 til höfuðborgar- svæðisins af landsbyggðinni á með- an 2.456 fluttu þaðan og út á land. Sambærilegar tölur fyrir fyrstu níu mánuði síðasta árs er 3.511 að- fluttir til Reykjavíkursvæðisins og 2.190 frá svæðinu. Því má lesa út úr þessum tölum að 11% færri hafi flutt til höfuðborgarsvæðisins nú en í fyrra og 12% fleiri hafi flutt út á land en á sama tíma í fyrra. Fjöldi aðfluttra umfram brottflutta nú í ár er 669 en var 1.321 í fyrra. „Það má segja að þetta sé batn- andi viðskiptajöfnuður en neikvæð- ur samt,“ sagði Magnús S. Magn- ússon, skrifstofustjóri hagskýrslu- sviðs hjá Hagstofu íslands, í samtali við Morgunblaðið en töl- urnar sem stuðst var við í blaðinu í gær eru unnar af Hagstofunni og var greint frá þeim í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar á miðvikudag. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á Akureyri hefur í Héraðsdómi Norð- urlands eystra verið dæmt til að greiða tæplega fertugri konu skaða- bætur að upphæð tæplega 3 milljón- ir króna ásamt vöxtum frá mars 1996. Þá var sjúkrahúsið dæmt til að greiða málskostnað að upphæð 550 þúsund krónur. Læknir, sem gerði aðgerð á konunni, var sýknaður í héraðsdómi af kröfum konunnar. Konan höfðaði mál á hendur Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og lækni sem hún leitaði til og starf- aði þar. Hún fór fram á bætur að upphæð um 9,5 milljónir. Dómkröfur FSA voru þær aðallega að vera sýknað af öllum kröfum. Málavextir eru þeir að konan var lögð inn bráðainnlögn á fæðingar- og kvensjúkdómadeild FSA í júní árið 1994 vegna kviðverkja og gruns um fósturlát. Gerð var útskröpun og sá- ust þungunarbreytingar í útskafi. Konan var útskiifuð tveimur dögum síðar. Við eftirskoðun kom í ljós vöðva- Ætla að fimm- falda aflaverð- mætið ÞEGAR á allt var litið var tilboðið frá Ósey langhagstæðast. Það komu tiiboð frá nokkrum Iöndum og það lægsta kom frá Kína. Það var um þriðjungi lægra en tilboðið frá Ósey, en vegna þess hver reynslan er af skipasmíðum í Kína fyrir íslendinga ákváðum við að taka tilboði Óseyjar," segir Níels Ársælsson, útgerðarmaður frá Tálknafirði, í samtali við Morgun- blaðið. Níels undirritaði gær smíða- sanming við Ósey um smiði á um 350 tonna sérhönnuðu snurvoðar- skipi. Skipið mun kosta fullbúið um 500 milljónir króna og verður af- hent um áramótin 2001/2002. Skrokkur skipsins verður smiðaður í Póllandi, en smiðinni lokið hér heima. Skipið er sérstakt að því leyti að í því verða þijú þilför og um borð verða unnin kæld flök og heill hausaður fiskur til útflutnings með flugi. Aflinn verður tekinn inn á stjórnborðssíðu að aftan, blóðg- aður í sjókælda geyma, síðan er fiskurinn hausaður og slægður, flakaður og snyrtur og afurðunum pakkað isuðum í frauðplastkassa. Skipatækni hf. hannaði skipið. Stærsta íslenska nýsmíðin frá 1981 Þetta er fyrstastóra fiskiskipið sem smíðað er á íslandi í langan tima. Ottó N. Þorláksson var smíð- aður árið 1981 í Stálvík, en hann er 485 tonn að stærð. Nýja skipið, sem fær nafnið Bjarmi, er um 370 tonn að stærð. Þá smíðaði Slippstöðin á Akureyri skipin Bylgju og Þórunni Sveindóttur fyrir Vestmannaey- inga árin 1991 og 1992 en þau mæl- ast 277 tonn að stærð. „Við ætlum okkur að fimmfalda aflaverðmæti skipsins, með því að flaka og hausa fiskinn um borð og flytja beint út með flugi,“ segir Ní- els. „Við erum búnir að reikna hnútur í legi en hann var að mati læknis talinn eðlilegur. Konan fann áfram til vanlíðanar, en ekkert varð af frekari rannsókn. Gerð var vefjaskoðun á FSA, svo- nefnd PAD-skoðun í því skyni að staðreyna hvemig til hefði tekist. Komið hafi í Ijós að ekki hafi verið neinar fósturleifar í útskafi og því líklegt að um utanlegsfóstur hafi verið að ræða. Konunni var hins veg- ar ekki tilkynnt um þessa niðurstöðu skoðunarinnar, en læknar á FSA fullyrtu að reynt hefði verið ítrekað að ná í konuna til að tilkynna henni niðurstöðuna. Utanlegsfóstur kom í Ijós við rannsókn Konan fann áfram til vanlíðanar fram eftir sumri og leitaði lækninga. Við bráðaaðgerð síðar um sumarið kom í ljós utanlegsfóstur. Konan var illa á sig komin andlega, fékk ítrekað hræðslutilfinningu og mikinn kvíða. Fyrir þykir liggja að vegna þess hve seint utanlegsfóstrið uppgötvað- þetta fram og aftur og erum vissir um að dæmið mun ganga upp. Við getum betur en aðrir tryggt gæði og framboð og skipið mun verða með góðan kvóta. Við erum mjög ánægðir með að hafa samið við Ósey og vitum að Pólverjamir smiða góða skrokka. Við erum því vissir um að með þessu móti fáum við það besta sem völ er á og að skipið muni virka eins og það á að gera. Þá dregur stuttur smíðatími úr fjármagnskostnaði og það skiptir líka miklu máli. Það er góð reynsla af skipasmíðum Óseyj- ar, enda er þar vel vandað til verka,“ segir Níels Ársælsson. Varnarsigxir Hallgrímur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Óseyjar, segir að með samningi þessum sé brotið blað í sögu íslensks skipasmíðaiðn- ist hafi orðið mun meiri skemmdir á æxlunarfærum en annars hefðu orð- ið og þær valdið því að konan geti ekki átt börn, nema ef til vill með glasafrjóvgun. Varanlegur miski konunnar vegna afleiðinga þessa er metinn 25% og varanleg örorka 25% að mati örorku- nefndar. Telur konan að læknar þeir sem komu við sögu hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og gerst sekir um afdrifarík mistök við sjúkdóms- greiningu og meðhöndlun er hún var til meðferðar á FSA. FSA mótmælir því að umræddir læknar hafi sýnt af sér gáleysi, þeir hafi gert allt sem hægt hafi verið til að nálgast sjúkdómsgreiningu kon- unnar. Bent er á að þungun utan legs geri oft ekki vart við sig fyrr en allt sé komið í óefni og að á þeim tíma sem konan var til meðhöndlunar hafi ekki verið til að dreifa fullkomnum ómtækjum sem nú hjálpi mikið til við greiningu þess sjúkdóms. Fram kemur í áliti dómsins að ekki liggi annað fyrir en læknirinn aðar. „Við íslendingar erum byij- aðir að smíða alvöruskip á ný, en þetta er stærsta skipið sem hér hef- ur verið smíðað síðan Ottó N. Þor- láksson var smíðaður hér fyrir um 20 árum. Þetta er eins konar varn- arsigur og menn eru að byija að sjá að það er óþarfi að fara yfir lækinn eftir vatninu,“ segir Hallgrímur. Ósey hefur á undanförnum árum smiðað nokkra báta á bilinu 30 til 180 tonn og afhent alla á umsömd- um tíma nema einn vegna bruna í skipasmíðastöðinni. Þessir bátar eru Geir, Valur, Friðrik Bergmann, Svanborg og Esjar. Auk þess er stöðin að smíða lóðs fyrir Hafnar- fjarðarhöfn og tvo skrokka fyrir um 70 tonna skip að auki. Hall- grímur segir að mikilvægt sé að láta smíða skrokkana í Póllandi því að þannig sé hægt að stytta smíðatímann verulega. sem stefnt var í málinu hafi með- höndlað konuna á réttan hátt né heldur hafi hann sýnt af sér gáleysi við eftirskoðun sem leitt hafi til tjóns hennar og var hann því sýknaður af öllum kröfum. Eins kemur fram að óumdeilt sé að eftir að niðurstöður PAD-rannsóknarinnar hafi legið fyr- ir hafi FSA haft yfir að ráða upp- lýsingum sem bentu til að konan gengi með utanlegsfóstur og því bor- ið rík skylda til að bregðast strax við þar sem veikindin voru alvarleg og gátu haft lífshættu í för með sér. Ófullkomið skipulag á fæðing- ar- og kvensjúkdómadeild Ófullkomið skipulag á fæðingar- og kvensjúkdómadeild, m.a. skortur á upplýsingaflæði, hafi valdið því að ekki var gripið til viðeigandi ráð- stafna þegar niðurstöðurnar láu fyr- ir. Telur dómurinn að ef brugðist hefði verið við á réttan hátt hefði mátt koma í veg fyrir tjón konunnar. FSA beri fulla bótaábyrgð á þvl tjóni. FSA greiði konu þrjár milljónir í skaðabætur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.