Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Matarleifarnar verða að mold í blómapottana Morgunblaðið/Golli Ungir íbúar í Bökkunutn settu fyrstu matarleifarnar í jarðgerðarvélina undir vökulu auga Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarsljóra, Hrannars B. Amarssonar, for- manns umhverfis- og heilbrigðisnefndar, og Kjartans Valgarðssonar, hjá Vistmönnum. Breiðholt ÍBÚUM við Kóngsbakka og Leirubakka gefst nú kostur á að búa til moltu úr lífræn- um úrgangi frá heimilum sínum í tilraunaverkefni sem Reykjavíkurborg stendur nú fyrir. Komið hefur verið fyr- ir sérstakri jarðgerðarvél í 18 fm húsi sem reist heíúr verið og íbúum um 150 íbúða við göturnar tvær afhentir lyklar að henni. Að sögn Hrannars B. Arn- arssonar, formanns um- hverfis- og heilbrigðisnefnd- ar Reykjavíkur, er þarna að finna fyrstu jarðgerðarvél- ina, sem tekin er í notkun á landinu. Ætlunin er að þeir sem áhuga hafa á þátttöku í verkefninu losi í vélina h'f- rænan úrgang, hvort sem eru bein, grænmetishýði, blómaafgangar eða annar lífrænn úrgangur, sem ann- ars færi í ruslatunnuna. Hágæðajarðvegsbætir á fjórum vikum Jarðgerðarvélin tætir úrganginn niður og blandar saman þannig að loft komist að og flýttr þannig fyrir nið- urbroti efnanna án þess að bæta út í nokkrum kemísk- um efnum. Árangurinn er sá að eftir um fjórar vikur verður tilbúinn í vélinni há- gæðajarðvegsbætir. Að sögn Hrannars verður jarðvegs- bætinum komið fyrir í tunn- um á svæðinu þannig að hann nýtist íbúunum, sem lagt hafa til hráefnið, hvort sem er sem mold í pottablóm í áburð á grasflatir eða aðra uppgræðslu í hverfinu. Markmiðið með moltu- gerðinni er að minnka sorp frá heimilum og kostnað við flutning og urðun sorps. Hann sagði að moltuvélin ætti að geta annað um 80 heimilum en í Kóngsbakka og Leirubakka eru um 150 heimili. Ekki er búist við þátttöku allra og því er gert ráð fyrir að ein vél nægi fyr- ir svæðið á tilraunatímanum. Hrannar sagði að vél af þessu tagi kostaði um tvær m.kr. en borgin hefur ekki fest kaup á henni heldur leigir hana af fyrirtækinu Vistmönnum og því væri kostnaður borgarinnar lítill af verkefninu, sem stendur í þijá mánuði. íbúamir fá af- henta lykla og bréfpoka und- ir matarleifarnar og ílát undir þá. Hrannar sagði að tilraun- in væri hugsuð til þess að afla upplýsinga um hvernig borgarbúar bregðast við nýjungum af þessu tagi en reynslan af tilraunum með breytt fyrirkomulag sorp- hirðu lofi góðu. Hann sagði ekki sjálfgefið að kostnaður af almennri þróun í þessa átt myndi leggjast af þunga á borgar- sjóð. Líklegt væri að fram- vegis yrði fyrirkomulag sorphirðu þannig að þeir sem skila litlu sorpi til urð- unar greiddu lágt gjald en þeir sem henda miklu greiddu mikið. Þannig gæti það orðið hagkvæmt í heim- ilisrekstri að íbúar og húsfé- lög kæmu sér sjálf upp vél- um af þessu tagi. Góðar undirtektir Götumar Leimbakki og Kóngsbakki hafa verið vald- ar með tilliti til legu húsanna umhverfis ákveðinn mið- punkt auk þess sem þar sé í gangi tilraunaverkefni í sorplosun, sem nær til alls Breiðholtshverfis og Árbæj- ar. Hrannar sagði að áður en ráðist var í tilraunina með moltugerðina hefði öllum íbúum hverfisins verið sent bréf og kynnt áformin og óskað eftir viðbrögðum þeirra, Tveir kynningar- fundir hefðu verið haldnir og auk þess haft samband við þá sem ekki mættu þangað til að kynna starfsemina. „Við höfum satt að segja fengið ævintýralega góð við- brögð og mér sýnist þátttak- an vera mjög mikil,“ sagði Hrannar. „Þetta og fleira sem við erum að gera í sorp- málum sýnir að íbúar borg- arinnar em reiðubúnir að stíga stærri skref í þessum málum en almennt hefur verið talið.“ Hrannar sagði að undir- tektir við tilraunaverkefninu vegna sorplosunar í Breið- holti, sem m.a. felur í sér að sorp er vigtað vikulega við hús í Neðra-Breiðholti, hefðu verið góðar og m.a. birst í því að skil á fernum og pappír í söfnunargáma í Breiðholti hefðu aukist um meira en 50% síðan í fyrra. Eins hefði komum á grennd- arstöðvar Sorpu í Breiðholti fjölgað veralega síðan til- raunin hófst. „Hvort tveggja bendir til að tilraunin sé að skila tilætluðum árangri," sagði Hrannar. Hann sagði að miklu skipti að minnka urðun líf- ræns úrgangs því að skuld- bindingar Islands vegna EES-samningsins krefjist þess að dregið verði úr urð- un lífræns úrgangs um 25% milli áranna 1995 og 2006 og um 65% milli 1995 og 2016. Strætisvagnar aka í Asland Hafnarfjördur BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar samþykkti á fundi í gær að fela Álmenningsvögnum bs. að heija akstur að Ásvöllum og í Áslandshverfi í byrjun nóvember. Á bæjarráðsfundi kom fram að framkvæmdastjóri Almenningsvagna hefur unnið að undirbúningi og könnun á kostnaði og sam- þykkti bæjarráð að fela bæj- arverkfræðingi að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að aksturinn geti hafist um mánaðamót og jafnframt að Ásland og Byggðir verði teknar sem sérleiðir Al- menningsvagna frá og með næstu áramótum. Ásland hefur byggst hratt upp undanfarin misseri og á bæjarráðsfundinum var jafnframt samþykkt að fela bæjarverkfræðingi að aug- lýsa lóðir í síðasta hluta annars áfanga í Áslandi. Morgunblaðið/Arni Sæberg Hundaeigendur söfnuðust saman í Öskjuhlíð í gær þegar hundagerðið var formlega afhent. Afgirt svæði fyrir hunda í Hlíðarfæti í Öskjuhlíð HUNDAEIGENDUR fengu í gær afhent afgirt svæði í Hlíðarfæti í Öskjuhlíð, þar sem útbúin hafa verið tvö rúmgóð hundagerði. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri afhenti Ingibjörgu R. Guðmunds- dóttur, fulltrúa hundaeig- enda, svæðið sem er útbúið samkvæmt tillögu Hunda- ræktarfélags íslands. Gert er ráð fyrir að hundaeigend- ur geti leyft hundum sínum að hlaupa þarna frjálsum á afgirtu svæði og eins hefur Hundaræktarfélagið gert það að tillögu sinni að annað gerðið verði einkum notað til kennslu og þjálfunar. Svæðið er alls um 3000 fermetrar. Það er tyrft og afgirt með lágri netgirðingu og á næsta ári er ætlunin að setja trjágróður umhverfis girðinguna til skrauts og skjóls. Landmótun annaðist skipulag og landslagshönnun á svæðinu fyrir garðyrkju- deild borgarverkfræðings. Morgunblaðið/RAX Ævintýri í skóginum ÞAÐ er ekki skrýtið að svo mörg ævintýri skuli gerast úti í skógi, í skjóli trjáa og runna, þar sem allt verður auðveldlega bæði dularfullt Hafnarfjörður og spennandi. Þeim fannst skemmtilegt að klifra 11 trjánum, strákunum, sem urðu á vegi ljósmyndara í Hafnarfirði í gær og hafa þeir áreiðanlega lent í ýmiss konar ævintýmm í leik sín- um. Ódýr Græn kort fyrir ungl- ingana í Bessastaðahreppi Bessastaðahreppur UNGLINGUM á gmnn- skólaaldri í Bessastaða- hreppi gefst kostur á græna kortinu í strætisvagna á höf- uðborgarsvæðinu fyrir um 1.600 krónur á mánuði frá og með 1. nóvember. Hreppsnefndin sam- þykkti þetta á fundi nýlega. Um 90 unglingar á grann- skólaaldri, þ.e. í 8.-10. bekk, búa í Bessastaðahreppi. Að sögn Gunnars Vals Gísla- sonar, sveitarstjóra, hefur sveitarfélagið látið þeim endurgjaldslaust í té 48 strætisvagnamiða á mánuði, í stað skólaaksturs, en ungl- ingamir sækja skóla í Garðaskóla í Garðabæ, sam- kvæmt samningi Bessa- staðahrepps og Garðabæjar. Gunnar Valur sagði að hins vegar þyrftu ungling- arnir að komast að heiman á kvöldin til að sækja félags- starf í skólanum og fleira. Því hefði hreppsnefndin ákveðið að fara þessa leið og bjóða unglingunum græna kortið, sem gildir ótakmark- að í strætisvagna á höfuð- borgarsvæðinu. Græna kortið kostar fullu verði 3.900 krónur á mánuði en Bessastaðahreppur hyggst niðurgreiða það sem nemur skólaakstrinum þannig að unglingamir þurfa að greiða 1.600 krónur á mánuði, kjósi þeir að af- sala sér miðunum 48 og fá kortið í staðinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.