Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fiskiðjan Skagfirðingur hf.
Úr ársreikningi 2000
Rekstrarreikningur sePt. - ágúst 1999/20001 1999/98 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 2.403 2.399 +0,2%
Rekstrargjöld 1.777! 1.703 +4,3%
Afskriftir 317 313 +1,3%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -91 -198 -54,0%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 218 185 +17,8%
Skattar 5| 2 +150,0%
Aðrar tekiur oq qiöld -5 2
Hagnaður ársins 208 185 +12,4%
Efnahagsreikningur 30.06.00 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 3.020 2.967 +1,8%
Eigið fé 1.1651 940 2.027 +23,9%
Skuldir 1.854 -8.5%
Skuldir og eigið fé samtals 3.020 2.967 +1,8%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Eiginfjárhlutfall 38,0% 32,0%
Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri Milljónir króna 1,8 2,2
535 577 -7,3%
FISKmeð 208
milljónir í hagnað
HAGNAÐUR Fiskiðjunnar Skag-
íxrðings hf., FISK, nam 208 milljón-
um króna á síðasta rekstrarári, frá 1.
september 1999 til 31. ágúst 2000, en í
fyrra nam hann 185 milljónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað er 626 milljónir króna
eða 26% af veltu. Er það 70 milljónum
króna minni hagnaður en á síðasta
rekstrarári.
Að sögn Jóns Eðvalds Friðriksson-
ar, framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar
Skagfirðings, er hann þokkalega sátt-
ur við afkomu félagsins en hún er um
Kaupþing
hækkar
um 46,3%
KAUPÞING hf. var skráð á Verð-
bréfaþing íslands í gær og voru við-
skipti með bréf félagsins fyrir 61
milljón króna. Lokaverð bréfanna
var 15 eða 46,3% hærra en útboðs-
gengi þeirra, sem var 10,25. Sé mið-
að við lokagengi bréfanna í gær þá er
markaðsvirði félagsins 14,5 milljarð-
ar kr.
Alls urðu 180 hlutabréfaviðskipti á
Verðbréfaþingi í gær og þar af voru
115 með hlutabréf Kaupþings.
181 milljónar kr. viðskipti voru
með hlutabréf á Verðbréfaþingi ís-
lands í gær og hækkaði úrvalsvísi-
talan um 1,14% og er nú 1.440 stig.
20 milljónum lakari en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Tekjumar hækka nánast
ekki neitt. Þar sem félagið selur mest
í evrum þá hefur sú gengisbreyting
gagnvart krónunni sem hefur átt sér
stað á tímabilinu talsverð áhrif. „Við
vinnum töluvert á löngum samning-
um þannig að þar er hluta skýringar-
innar að finna. Hækkun hráefnis-
kostnaðar og hærra olíuverð hefur
einnig áhrif til hækkunar á rekstrar-
gjöld. Olíukostnaðurinn hækkar um
60 milljónir á árinu, fór úr 80 milljón-
um í 140 milljónir króna. Þannig að
það eru aðallega þessir tveir þættir
sem eru að auka rekstrarkostnað
FISK. Að öðru leyti emm við sátt við
reksturinn,“ segir Jón Eðvald.
Síðustu vikur hafa verið daprar í
þorskveiðinni, að sögn Jóns Eðvalds.
Léleg veiði og sá þorskur sem hefur
verið að veiðast er smár. Þannig að
þar þyrfti að verða breyting á, segir
Jón Eðvalds. Hann segist að sjálf-
sögðu vonast til þess að þetta lagist
en ástandið hafi verið frekar dapurt í
talsverðan tíma.
FISK gerir út fjögur skip, þar af
eitt frystiskip og þijá ísfisktogara. Á
Grandarfirði rekiir félagið rækju- og
skelfiskvinnslu og landírystingu á
Sauðárkróki. Mikið af þeirri fram-
leiðslu fer í neytendapakkningar en
helstu markaðssvæði FISK era í
Evrópu. Fiskiðjan Skagfirðingur er
að mestu leyti í eigu Kaupfélags
Skagfirðinga og FB A.
Stærsta fyrirtæki í íslenskum hugbúnaði orðið til eftir
sameiningu Go Pro Group og Landsteina International
Markmiðið að stórefla
markaðssókn í Evrópu
STÆRSTA hugbúnaðarfyrirtæki
landsins varð til í gær, þegar fyrir-
tækin GoPro Group og Landsteinar
International vora formlega sam-
einuð undir nafninu GoPro - Land-
steinar Group hf. Auk þess að starfa
á íslandi rekur nýja fyrirtækið
skrifstofur og hugbúnaðarhús í Sví-
þjóð, Danmörku, Bretlandi og
Þýskalandi. Samanlagður starfs-
mannafjöldi fyrirtækjanna er um
550 manns og nemur heildarveltan á
þessu ári þremur milljörðum króna.
Með sameiningunni er ætlunin að
styrkja fyrirtækin enn frekar á al-
þjóðlegum markaði og er gert ráð
fyrir umtalsverðum vexti allra
rekstrareininga fyrirtækjanna á
næstu áram. Þannig er reiknað með
að velta fyrirtækisins verði rúmir
fjórir milljarðar á næsta ári og hálf-
ur sjöundi milljarður árið 2002 og
að starfsmenn verði þá orðnir eitt
þúsund.
Ólafur Daðason, framkvæmda-
stjóri hins nýja fyrirtækis, segir að
flest mæli með samrana fyrirtækj-
anna, enda hafi fyrirtækin verið að
byggja upp einingar í sömu löndum
með miklum tilkostnaði þar sem
þau hafa verið að keppa við stærri
og öflugri alþjóðleg fyrirtæki. „Við
komust einfaldlega ekki nógu hratt
hvor í sínu lagi og einingamar hvor
um sig era of litlar. Saman myndum
við hins vegar sterkt og framsækið
fyrirtæki sem getur sótt fram og
náð árangri erlendis sem innan-
lands.“
Geta nú boðið heildarlausnir
í rafrænum viðskiptum
Framkvæmdastjóri GoPro -
Landsteinar Group í Evrópu, Per
Bendix Olsen, sagðist í samtali við
Morgunblaðið telja að fyrirtækið
ætti mikla möguleika á alþjóðlegum
vettvangi. Olsen starfaði í 16 ár hjá
IBM í Evrópu, en segist hafa hrifist
af þeirri hugmyndafræði sem ríkti
hjá GoPro Group varðandi upp-
byggingu fyrirtækisins og hugbún-
aðarlausnir, og ekki drægi samein-
ingin við Landsteina úr trú hans á
fyrirtækið.
„Við höfum nú í sameinuðu fyrir-
tæki þá stöðu og þann slagkraft í
Skandinavíu sem við þurfum á að
halda til að sækja á nýja markaði,
og við höfum hafið uppbyggingu
Morgunblaöið/Kristinn
Ráðstefna ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti,
á Crand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 31. október kl. 13:00 - 15:30
Öryggi rafrænna viðskipta,
sjónarmið og kröfur ríkis og atvinnulífs
Dagskrá:
Er allt vænt sem er rafrænt?
Albert Ólafsson, viðskiptafræðingur,
starfar við endurskoðun upplýsingakerfa hjá Ríkisendurskoðun
Rafræn skírteini, rafræn viðskipti
Guðlaugur Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Auðkennis hf.
Hlé
Traust og öryggi á vefnum
Jónas Sverrisson, ráðgjafi í öryggismálum upplýsingakerfa hjá KPMG
Lagaleg sjónarmið varðandi öryggi rafrænna viðskipta
Tryggvi Axelsson, lögfræðingur hjá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Að loknum erindum verða umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri: Amaldur F. Axfjörð, forstöðumaður ráðgjafar hjá Áliti hf
Kaffiveitinga r
Aðgangseyrir er kr. 1.000
Þátttaka tilkynnist í síma 510 7100
eða icepro@chsunber.is
%
ICEPRO
nefnd um rafræn viðskipti
Per Bendix Olsen, framkvæmdasljóri GoPro -
Landsteina hf. í Evrópu, og Ingvar Kristinsson
aðstoðarframkvæmdastjóri.
Aðalsteinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Landsteina, og Ólafur Daða-
son, framkvæmdastjóri GoPro Group, takast í hendur að formlegri samein-
ingu lokinni. Davíð Oddsson forsætisráðherra fagnar sameiningunni.
rás þeirra og sókn á
erlenda markaði, og að
ennþá eigi eftir að
nýta þau tækifæri sem
geta boðist á stærstu
mörkuðunum í
Evrópu, en hingað til
hafa fyrirtækin íýrst
og fremst haslað sér
völl á íslandi og í
Skandinavíu.
„Við vitum að Bret-
ar era að kaupa meira
af hugbúnaði í upplýs-
ingatækni en megnið
af hinum löndunum í
Evrópu til samans og meira en
Þýskaland og Frakkland samanlagt.
Skandinavía nær aðeins yfir 3% af
markaðnum í Evrópu, þannig að við
eram rétt byrjaðir því okkar vöxtur
hefur að mestu verið í Skandinavíu.
Við erum núna tilbúnir að fara inn á
breska markaðinn og við vitum að
við höfum lausnir, sem byggðar eru
á þekkingu okkar héma heima, sem
gera innreið okkar á þennan mark-
að raunhæfa."
Hluthafar GoPro Group munu
eignast 60% hlut í hinu sameinaða
félagi en hluthafar Landsteina Int-
ernational hf. 40%. Hlutur íslenska
hugbúnaðarsjóðsins í sameinuðu fé-
lagi er 22%. Stjórn GoPro - Land-
steinar Group hf. skipa Jóhann P.
Malmquist, Gylfi Arnbjörnsson,
Sigurður Smári Gylfason, Leif Alm-
stedt og Garðar Garðarsson.
Hin einstöku íyrirtæki sem til-
heyra nýju samsteypunni starfa
áfram undir sínu gamla nafni en
stofnað verður nýtt eignarhaldsfé-
lag. Starfsmenn þessa eignarhalds-
félags verða Per Bendix Olsen,
Ingvar Kristinsson, Þorsteinn
Guðbrandsson, Magnús Sigurðsson
og Ólafur Daðason, sem verður
framkvæmdastjóri.
starfsemi í Þýskalandi. Þær lausnir
sem fyrirtækin bjóða nú sameigin-
lega gera að verkum að nú getum
við boðið fyrirtækjum heildarlausn-
ir í rafrænum viðskiptum."
Olsen segir að fyrirtækin hafi sett
stefnuna á ólíka hluti, ólíka markaði
og ólíka geira þekkingariðnaðarins,
en nú séu fyrir hendi möguleikar á
að samþætta starfsemina, sem bjóði
upp á mjög spennandi verkefni og
möguleika á hinum alþjóðlega
markaði. Hann segir að mikill áhugi
sé fyrir hendi hjá öðrum þekkingar-
fyrirtækjum að selja hugmyndir
GoPro og Landsteina, en hugbúnað-
arlausnir Landsteina era nú komn-
ar á markað í 22 löndum og lausnir
GoPro í sjö löndum.
„Bæði fyrirtækin vora á lista yfir
þau 500 fyrirtæki sem hafa vaxið
hraðast í Evrópu á síðasta ári. Og
ástæðan fyrir því að við getum verið
bjartsýnir, er sú að við höfum ekki
ennþá reynt fyrir okkur á stærstu
mörkuðunum í Evrópu.“
Fyrirtækið tilbúið að fara inn
á stærstu markaðí í Evrópu
Ingvar Kristinsson, aðstoðarfor-
stjóri GoPro Group, segir að sam-
eining fyrirtækjanna muni efla út-
Til leigu!
Verslunar/Skrifstofuhúsnæði
... - § ■■
g&‘
Góð staðsetning/Glæsilegt húsnæði
Til leigu eru tvær jarðhæðir
(2x435m2) við efri og neðri götu
að Stórhöfða 25, leigist allt saman
eða hvor hæð fyrir sig.
Næg bílastæði, góð sameign með
lyftu. Tilbúið um n.k. áramót.
Upplýsingar hjá:
Verkefni ehf. S. 863 1911