Morgunblaðið - 27.10.2000, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bréfmiði með lýsingu á síðustu mínútunum fannst á einu líkanna í flaki kafbátsins Kúrsk
„Ég skrifa
þetta í niða-
myrkri“
Múrmansk. AP, AFP, Reuters.
BRÉFMIÐI sem fannst ó líki um
borð í rússneska kjarnorkukafbátn-
um Kúrsk á botni Barentshafs sýnir
að minnst 23 af
118 manns um
borð lifðu af
sprenginguna í
skipinu, að sögn
talsmanna rúss-
neska flotans í
gær. Tekist hefur
að bjarga fjórum
líkum úr bátsflak-
inu, einu í gær og
þrem á miðviku-
dag og var aðgerðum björgunar-
mannanna haldið áfram um sinn í
gær þrátt fyrir slæmt veður á staðn-
um. Er leið á daginn var þeim hins
vegar frestað.
Vladímír Kúrojedov flotaforingi
sagði að miðinn hefði fundist í vasa
Míkhaíls Kolesníkovs lautinants er
stjómaði túrbínudeild bátsins. Kúr-
ojedov sagði að efnið hefði aðallega
verið skilaboð til ættingja hins látna
en á miðanum hefðu einnig verið
þessar setningar: „Allir skipverjar
úr hólfum númer sex, sjö og átta fóru
yfir í níunda hólf. Hér eru 23 menn.
Við tókum þessa ákvörðun í kjölfar
slyssins. Enginn okkar getui- farið
upp á yfirborðið."
Síðar sagði annar flotaforingi og
yfirmaður Norðurflotans, Míkhaíl
Motsak, að miðinn hefði verið ritað-
ur milli klukkan 13.34 og 15.15 eftir
hádegi að staðartíma 12. ágúst en
rússnesk og erlend skip hafa skýrt
frá því að tvær miklar sprengingar
hafi orðið/ á svæðinu um klukkan
11.30 um morguninn þann dag.
Kafbátnum var skipt niður í all-
mörg hólf og hægt að loka vatnsþétt-
um dyrum á milli þeirra ef slys bar
að höndum. Níunda hólf er í stafni
skipsins.
Reyndu að komast út
um neyðarlúgu
„Miðinn bendir til þess að klukkan
12.58 hafi flestir skipverjar í sjötta,
sjöunda og áttunda hólfi farið yfir í
níunda hólfið," sagði Motsak. „Einn-
ig sagði þar að tveir eða þrír menn
myndu reyna að komast út úr kaf-
bátnum um neyðarlúgu á níunda
hólfinu." Hann taldi að tilraunin gæti
hafa mistekist vegna þess að níunda
hólfið hefði smám saman fyllst af sjó.
Norskum köfurum tókst að opna
neyðarlúguna utan frá viku eftir
slysið og staðfesta að allir skipverjar
væru látnir.
Að sögn Kúrojedovs, sem hélt
fund með fjölskyldum hinna látnu í
Múrmansk í gær, voru tölurnar 13
og 5 ritaðar á miðann án skýringa en
síðan bætt við: „Ég skrifa þetta í
niðamyrkri."
Ekki er Ijóst hve lengi mennirnir
voru á lífi eftir slysið en ljóst að nú
munu menn fara aftur í saumana á
mótsagnakenndum yfirlýsingum
rússneskra stjórnvalda fyrst eftir
slysið. Undanfarnar vikur hafa þau
> M
Reuters
Rússneskir björgunarmenn um borð í köfunarpallinum Regaliu athuga
bút úr skrokki Kúrsk sem kafarar Qarlægðu til að komast inn í skipið.
sagt að allir mennimir hafi farist
þegar í stað við sprenginguna.
Fyrst var skýrt frá slysinu í Rúss-
landi 14. ágúst eða tveim dögum eftir
að það varð. Var þá sagt að áhöfn
Kúrsk hefði þurft að slökkva á
kjarnaofni bátsins og leggja honum á
hafsbotni vegna bilana sem uppgötv-
aðar hefðu verið daginn áður. Síðar
sama dag viðurkenndi talsmaður
flotans að slys hefði orðið um borð en
veitti ekki meiri upplýsingar um
málið.
Hinn 18. ágúst tjáði Vladímír Pút-
ín, forseti Rússlands, sig í fyrsta sinn
opinberlega um slysið. Hann stað-
festi þá orðróm sem verið hafði á
kreiki í fjölmiðlum þess efnis að
Kúrsk hefði í reynd sokkið 12. ágúst.
Embættismenn segja að samband
við kafbátinn hafi rofnað klukkan
11.30 að morgni að staðartíma 12.
ágúst.
Síðar sama dag skýrði norska
jarðskjálftastofnunin frá því að hún
hefði orðið vör við tvær sprengingar
á svæðinu þar sem Kúrsk fórst 12.
ágúst. Önnur sprengingin hefði orðið
um 11.30 og styrkleikinn verið á við
eitt til tvö tonn af TNT-sprengiefni,
en tveim mínútum og 15 sekúndum
fyrr hefði orðið minni sprenging.
Rússneskir embættismenn hafa
hvorki staðfest þessar upplýsingar
né vísað þeim á bug.
21. ágúst gaf rússneski flotinn út
yfirlýsingu þar sem sagði að spreng-
ingarnar, sem nú voru sagðar hafa
orðið um borð í bátnum, hefðu verið
svo öflugar að flestir skipverjar
hefðu látist á fáeinum mínútum.
Fyrstu dagana eftir að skýrt hafði
verið frá slysinu í ágúst sögðu sumir
embættismenn Rússa að haft væri
samband við skipverja með mors-
merkjum sem þeir og björgunar-
menn gætu sent hver öðrum með því
að berja í skrokk skipsins. Aðrir
embættismenn vísuðu þessu á bug
og bentu á að högg sem hlustunar-
tæki höfðu heyrt gætu verið frá
braki inni í bátnum eða önnur hljóð
frá bátnum sem væri að grafa sig
niður í hafsbotninn.
Talið er að þeir sem lifðu spreng-
ingarnar af hafi fljótlega drukknað,
dáið úr kulda eða af völdum háþrýst-
ings. Líkamsleifar tveggja þriðju
hluta af áhöfninni hafa að líkindum
dreifst um hólfin við sprenginguna
öflugu sem varð í vopnarými bátsins.
Rússneskir embættismenn full-
yrða sem fyrr að mestar líkur séu á
að orsök slyssins hafi verið árekstur
við erlendan kafbát en nefna einnig
árekstur við tundurdufl úr seinni
heimsstyrjöld eða bilun í bátnum.
Vestrænir sérfræðingar eru hins
vegar margir á því að bilun í tund-
urskeyti hafi valdið slysinu.
Mdtmæli gegn NPD við Brandenborgarhliðið í Berlín. AI
Öfgaflokkurinn NPD
verði bannaður
Diisseldorf. Reuters.
Innanríkisráðherrar þýzku sam-
bandslandanna 16 urðu í gær sam-
mála um að styðja beiðni sambands-
ríkisstjómarinnar um að hægriöfga-
flokkurinn NPD verði bannaður.
,Árásargjam flokkur eins og NPD
á ekki að fá að njóta neins lagalegs
svigrúms," sagði Fritz Behrens, inn-
anríkisráðherra Nordrhein-West-
falen, eftir fund ráðherranna 16 í
Diisseldorf. „Við höfum sent út ótví-
ræð skilaboð um að áróður hægri-
öfgasinna, kynþátta-, útlendinga- og
gyðingahatara eigi ekkert erindi í
Þýzkalandi," sagði hann.
Pess verður farið á leit við stjóm-
arskrárdómstólinn að leggja bann við
starfsemi NPD. Ákvörðun ráðherr-
anna átti sér nokkurn aðdraganda og
vom skoðanir skiptar framanaf.
NPD, sem vill að í Þýzkalandi sé
fylgt stefnu sem hafi hagsmuni
„sannra" Þjóðverja í íyrirrúmi og að
endir verði bundinn á aðflutning
fólks frá fjarlægum löndum, er mjög
lítill jaðarflokkur sem hvergi á kjör-
inn fulltrúa í opinberu embætti. Um
6.000 manns em skráðir í hann.
Talsmenn NPD, sem var stofnaður
árið 1964, hafa heitið því að veijast
íyrir dómstólum hvers kyns tilraun
til að banna flokkinn.
Það hefur aðeins tvisvar gerzt áður
í sögu eftirstríðs-Þýzkalands, að
stjómmálaflokkur hafi verið bannað-
ur. Á sjötta áratugnum úrskurðaði
stjómarskrárdómstóll Vestur-
Þýzkalands, að beiðni stjórnvalda,
bann við starfsemi kommúnista-
flokksins (KPD) og „Sósíalíska ríkis-
flokksins" (SRP), sem var flokkur
sem veitti gömlum nazistum athvarf.
Morðið á tveggja ára dreng vekur enn deilur
Fangelsisvist morð-
ingjanna stytt
Lundúnum. AFP.
Á þessari mynd af myndbandi eftirlitsmyndavélar í verzlunarmiðstöð í
Liverpool frá árinu 1993 sést hvar hinn tveggja ára gamli James Bulger
er leiddur burt af tíu ára gömlum morðingjum sínum.
DRENGIRNIR tveir, sem fyrir sjö
áram myrtu tveggja ára drenginn
James Bulger með hrottafengnum
hætti í Liverpool í Englandi, gætu
losnað úr fangelsi strax á næsta ári,
eftir að dómari úrskurðaði í gær að
refsivist þeirra skyldi stytt í átta ár.
Morðingjarnir, Robert Thompson
og John Venables, voru tíu ára gaml-
ir er þeir lokkuðu Bulger út úr verzl-
unarmiðstöð og börðu hann til dauða.
Eftir úrskurð dómarans, Harrys
Woolfs, sem gegnir tignarstöðunni
Lord Chief Justice og er æðsti mað-
ur brezkra dómstóla, er það undir
sérskipaðri náðunarnefnd komið að
ákveða hvenær drengimir verða
látnir lausir. Móðir Bulgers for-
dæmdi úrskurð dómarans í gær og
rannsóknarlögreglumenn og fyrr-
verandi ráðherra gagnrýndu hann
einnig harkalega.
Woolf var tilkynnt um fordæm-
ingu móður Bulgers á því að morð-
ingjar sonar hennar skyldu eiga að fá
frelsi svo fljótt. Hún fór fram á að
þeim yrði haldið ævilangt bak við lás
og slá.
Morðið á Bulger vakti gríðarsterk
viðbrögð almennings í Bretlandi á
sínum tíma. Fyrst þegar dómur var
felldur yfir hinum komungu morð-
ingjum hljóðaði hann upp á átta ára
fangelsisvist. Hann var síðan þyngd-
ur í tíu ár samkvæmt úrskurði áfrýj-
unarnefndar, en þáverandi dóms-
málaráðherra, Michael Howard,
greip þá inn í og fékk refsinguna
þyngda í 15 ára fangelsi.
Mannréttindadómstóll Evrópu úr-
skurðaði í fyrra að afsldpti ráðherr-
ans af málinu hefðu verið ólögleg. Til
að leysa þetta mál fékk Jack Straw,
eftirmaður Howards í embætti,
Woolf til að taka nýja ákvörðun um
lágmarkslengd fangelsisrefsingar
tvímenninganna.
Woolf sagði við uppkvaðningu
úrskurðar síns í gær, að tillit yrði að
taka til aldurs þeirra Thompsons og
Venables er þeir frömdu glæpinn.
„Hversu alvarlegur sem glæpur
þeirra var stendur sú staðreynd eft-
ir, að hefðu þeir verið fáeinum mán-
uðum yngri en þeir vora er þeir
frömdu verknaðinn, þegar þeir voru
ekki enn orðnir tíu ára, hefði yfirleitt
ekki verið hægt að draga þá iyrir
dóm.“
Michael Howard, sem enn situr á
þingi fyrir íhaldsflokkinn, harmaði
niðurstöðu dómarans. „Ég tel ekki að
hún endurspegli það sem dómarinn í
uppranalega réttarhaldinu lýsti sem
dæmalausri fólsku verknaðarins."