Morgunblaðið - 27.10.2000, Síða 37

Morgunblaðið - 27.10.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 37 LISTIR Slösuð kerling á séns Morgunblaðið/Ásdís „Soffía Jakobsdóttir og Erlingur Gíslason fóru vel með hlutverk „gamiingjanna" og var samleikur þeirra oft á tíðum injög skemmtilegur," segir í dómnum. LEIKLIST Draumasmiðjan GÓÐAR HÆGÐIR Höfundur: Auður Haralds. Leik- stjóri: Gunnar Gunnsteinsson. Leik- arar: Soffía Jakobsdóttir, Erlingur Gíslason, Margrót Kr. Pétursdóttir, Sveinn Þ. Geirsson, Erla Ruth Harðardóttir.Leikmynd og búning- ar: María Ólafsdóttir. Lýsing: Alfreð Sturla Böðvarsson. Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Tjarnarbíó, fimmtudaginn 26. október. AUÐUR Haralds er tvímælalaust meðal fyndnustu samtímahöfunda á Islandi. Húmor hennar er oft lúmsk- ur en alltaf ískrandi kaldhæðinn og hittir vel í það mark sem honum er ætlað. Nýja leikritið hennar, Góðar hægðir, sver sig að þessu leyti í ætt við önnur verk höfundar. Hér er gert miskunnarlaust grín að sam- bandi uppkominna bama við móður sína; tilætlunarsemi þeirra, tillits- leysi, yfirgangur og botnlaus frekja þeirra Sindra (Sveinn Þ. Geirsson) og Ylfu (Margrét Kr. Pétursdóttir) er keyrð út á ystu brún þannig að móðirin (Soffía Jakobsdóttir) á alla samúð áhorfenda, þótt sjálf sé hún svo sem ekkert ljúfmenni. Að ýmsu leyti er þetta leikrit nokkuð skylt öðru verki Auðar, leik- gerð hennar á Baneitruðu sambandi á Njálsgötunni, sem hún skrifaði upp úr samnefndri skáldsögu sinni fýrir Draumasmiðjuna og sami leik- stjóri (Gunnar Gunnsteinsson) setti upp í íslensku óperunni. Eins og hér var þar í brennidepli samband móð- ur og barns, en unglingurinn skap- stirði í því verki var ólíkt viðkunnan- legri persóna en þau systkin Sindri og Ylfa - auk þess sem skapvonsku hans mátti a.m.k. að einhverju leyti skrifa á ofurvald hormónanna. Helstu átök Góðra hægða snúast um viðbrögð „barnanna“ við því þeg- ar Elsa, móðir þeirra, tekur upp samband við Ingiberg, eldri herra- mann (Erlingur Gíslason) sem er húsvörður í blokkinni hennar og sýnir henni þá umhyggju og tillits- semi sem þau sjálf ekki kunna. Hérna kemur Auður inn á málefni sem vafalaust má teljast viðkvæmt í nútímasamfélagi þar sem ungt og fallegt fólk virðist eiga einkarétt á að njóta lífsins og kynlífsins. Ekki er þó kafað djúpt í þetta málefni, enda ræður hin svarta kómedía ríkjum í verkinu. Flétta verksins er ágætlega úthugsuð, Elsa hefur dottið úr stiga og slasað sig þannig að hún er hálf- ósjálfbjarga í stofufangelsi - sem gerir tillitsleysi barna hennar enn meira áberandi en ella. Hið hefta ferðafrelsi Elsu markar leiknum ákveðið rými og leikurinn á sér því stað innan fjögurra veggja í anda hefðbundins stofúdrama. Soffía Jakobsdóttir og Erlingur Gíslason fóru vel með hlutverk „gamlingj- anna“ og var samleikur þeirra oft á tíðum mjög skemmtilegur. Sveinn Þ. Geirsson var sannfærandi í hlutverki hins stressaða, vinnupínda, skuldsetta sonar og Margrét Kr. Pét- ursdóttir skapaði virki- lega óþolandi og ófyrir- leitna dóttur. Erla Ruth Harðardóttir brá sér í nokkur aukahlutverk og skilaði þeim öllum ágætlega. Nokk- ur frumsýningarótti virtist hijá leikarana því nokkuð bar á mismæli og ónákvæmum tímasetningum, en það kom ekki alvarlega að sök. Umgjörð leiksins, leikmynd og búningar Maríu Ólafsdóttur, var í anda hversdagslegs raunsæis, en hin ljúfsára tónlist Leonards Cohen sem spiluð var á milli atriða stakk dálítið í stúf við heildarstemmningu upp- færslunnar að mínu mati. Gunnar Gunnsteinsson leikstjóri fer hefðbundnar leiðir í uppsetning- unni á þessu gamansama stofu- drama (með alvarlegum undirtóni). Áhorfendur virtust skemmta sér vel á sýningunni en í samhengi við höf- undarverk Auðar Haralds sætir verkið ekki miklum tíðindum. Gam- an væri ef Auður tæki sér fyrir hendur að skrifa leikgerð upp úr hinni frábæru skáldsögu sinni Hvunndagshetjunni. Það verk sætti vissulega tíðindum á sínum tíma og er að mörgu leyti enn í fullu gildi. Soffía Auður Birgisdóttir Helgigripir frá Sinai FAÐIR Justin, munkur frá klaustri heilagrar Katrínar í Sinai- eyðimörkinni í Egyptalandi, pússar hér gler er skýlir íkoni af Maríu mey í Courtauld-safhinu í London. Ikonið, sem er frá þvi á 13. öld, er nú til sýnis í safninu ásamt fjölda annarra fkona frá þessu afskekkta klaustri. Er þetta í fyrsta skipti sem mörg þeirra eru til sýnis fyrir utan klausturveggina, en íkonin, auk ýmissa listmuna frá Sinai, Býsans og Rússlandi munu verða til sýnis í Courtauld-safninu á næstunni. Nýjar bækur • Bókin um risaeólur er eftir David Lambert Bókin um risaeðlur býður upp á ferðalag aftur til fortíðar. Risaeðlur og aðrar fomar skepnur vakna til lífs- ins á síðum bókarinnar og nýjustu þrívíddartækni er beitt til að endur- skapa umhverfi og gefa innsýn í eðli og lífshætti forsögulegra dýra. Risaeðlusérfræðingurinn David Lambert hefúr rannsakað ítarlega hvenær og hvemig risaeðlur og aðrar forsögulegar skepnur þrifúst og dóu og hann dregur upp mynd af því hvemig þær börðust fyrir tilverunni í fallegri en háskalegri náttúm milljón- um ára áður en mennimir urðu til. Bókin kom fyrst út hjá Dorling Kindersley fyrr á árinu, en sama fyr- irtæki gerði sjónvarpsþætti um risa- eðlur sem sýndir vora hér nýverið. Utgefandi er Mál og menning. Árni Óskzrsson þýddi. Bókin er64blaðsíð- ur, prentuð á Italíu. Verð: 2.680 krón- ur. HAGKAUP Meira úrval - betri kaup
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.