Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Sárreiður sam- I leit að gönguráðherra Á VEFSETRINU „sturla.is" sem Jakob Fjalar Garðarsson að- stoðarmaður ritstýrir birtist á mánudag grein eftir Sturlu Böðvarsson sem nú er samgönguráðherra. Greinin lýsir sárind- •Kin Sturlu Böðvar- ssonar vegna Kast- ljóssþáttar í Sjón- varpinu þar sem ég rakti skilmerkilega að ráðherrann hefur undanfarið verið að segja þingi og þjóð ósatt um mikilsverðar framkvæmdir í Reykjavík. Sturla Böðvarsson hélt því fram í ræðustól alþingis og aftur í Sjón- varpi að samgönguverkefni sem átti að ráðast í á næsta ári, 2001, væru ekki tilbúin af hálfu borgar- yfirvalda. Sannleiksgildið í um- mælum Sturlu Böðvarssonar jafn- ^st með góðum vilja á við nokkur hálmstrá. Tilgangur Sturlu Böðv- arssonar var að koma af sjálfum sér pólitískri ábyrgð á því að skerða vegafé höfuðborgarinnar um nærfellt 430 milljónir á næsta ári, og sverta í leiðinni meirihluta Reykjavíkurlistans í borgarstjórn. Þegar fingrum er sprottið að þessu háttalagi bölsótast Sturla Böðvarsson á vefsetri sínu, og brá- ir vonandi af honum fyrr en síðar - hitt er verra að þótt Sturla Böðvarsson dragi nú í land í mik- "‘'fteverðum atriðum heldur hann enn uppi blekkingum um hlut Reykjavíkurborgar við þessar framkvæmdir. Þó vildi ekki einu sinni Guðlaugur Þór Þórðarson grípa til varna fyrir ráðherrann í téðum sjónvarpsþætti. En Guð- laugur Þór Þórðarson er nú borg- arfulltrúi á vegum Sjálfstæðis- flokks, áður varaþingmaður Sturlu Böðvarssonar á vegum sama flokks. Það sem hann sagði Sturla Böðvarsson sagði í ut- andagskrárumræðu sem Bryndís Hlöðversdóttir hóf í þinginu á fimmtudaginn í síðustu viku að ^rfjú verkefni - færsla Hringbraut- ar, framkvæmdir við Hallsveg, mislæg gatnamót á Víkurvegi og Vesturlandsvegi - stæðu þannig hjá Reykjavíkurborg að skipulag væri ekki klárt og kröfur uppi um umhverfismat. Því væri alveg ljóst að þessar framkvæmdir mundu frestast, vegna þess að vinnu við skipulag og umhverf- ismat væri ekki lokið. Þessi orð úr munni Sturlu Böðvarssonar merkja einfaldlega að ríkið geti ekki ráðist í framkvæmdirnar af því borgin sé ekki til- búin með sinn part. Sturla Böðvarsson beri því ekki ábyrgð á frestuninni heldur Reykvíkingar og for- ystumenn þeirra. Það sem er satt Förum nákvæmlega yfír hið meinta slugs borgarinnar. í fyrsta lagi er færsla Hring- brautar austast sem lengi hefur beðið og er nú ein af forsendum þess að barnaspítalinn nýi komist í gagnið, fyrir utan þann létti sem fylgdi breyttri aðkomu að Land- spítalasvæðinu fyrir íbúa í gömlu hverfunum norðan og vestan þess. Gert var ráð fyrir 84 milljónum til framkvæmdarinnar á næsta ári. Hér fínnur Sturla Böðvarsson það til að Landspítalinn hefur ekki gengið frá deiliskipulagi á lóð sinni. Vissulega er æskilegt að þessi heilbrigðisstofnun, sem er í eigu ríkisins og heyrir undir sam- ráðherra Sturlu Böðvarssonar, Ingibjörgu Pálmadóttur, gangi frá sínu skipulagi áður en Hringbraut- in er færð. Það er hins vegar eng- an veginn skilyrði fyrir því að koma Hringbrautinni á framtíðar- stað sinn, og auðvitað hrein blekk- ing að ráðast að borgaryfirvöldum vegna tafa hjá Landspítalanum. I öðru lagi er Hallsvegur, mikil- væg umferðartenging í Grafar- vogshverfunum milli Strandvegar og Víkurvegar í stað þess þunga umferðar í miðju íbúðarhverfi einsog fólkið í Húsahverfínu þarf nú að búa við. Þetta er fram- kvæmd sem nemur um 34 milljón- um á næsta ári. íbúar við nyrstu húsaröðina hafa andæft Hallsveg- inum af ástæðum sem hér verða ekki raktar en fáir telja að kalli á breytingar sem máli skipta. Þeir hafa ekki haft erindi sem erfiði á fyrri stigum máls en nú kært til umhverfisráðherra. Sá er búinn með allan frest sem lög veita og Samgöngur Ráðherrann virðist ekki þora að horfa framan í kjósendur í Reykjavík, * segir Mörður Arnason, og færa fram rök fyrir að fresta hér mikilvæg- um vegaframkvæmdum. verður að skera úr á næstu dög- um. Það er þessvegna eintómt bellibragð hjá Sturlu Böðvarssyni að telja þetta mál í uppnámi fyrir árið 2001. í þriðja lagi er svo sú brýna stórframkvæmd að gera gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar mislæg, gríðarleg samgöngubót fyrir Grafarvogs- og Borgarholts- búa og nánast skilyrði fyrir því að nýja hverfíð á Grafarholti byggist eðlilega. Framkvæmdin kostar rúmar 300 milljónir og átti að klár- ast. Reykjavíkurborg setti þessa framkvæmd af sjálfsdáðum í um- hverfísmat en það mat seinkar ekki framkvæmdum - þótt það kynni auðvitað að hafa í för með sér einhverjar endurbætur. Þetta er svo einfalt að sjálfur Sturla Böðvarsson sér þann kost vænstan að viðurkenna það í umræddri grein sinni: „Þrátt fyrir seinkun ætti verkið að geta hafist á árinu.“ Sturla Böðvarsson hefur því að þessu leyti étið ofan í sig ósann- indin frá því í þinginu á fimmtu- dag. Maður í vanda Sturla Böðvarsson er ber að því að hafa reynt að skjóta sér undan ábyrgð á pólitískum ákvörðunum með því að beita ósannindum. Ráð- herrann virðist ekki þora að horfa framan í kjósendur í Reykjavík og höfuðborgarsvæðinu og færa fram eigin rök fyrir því að fresta hér þessum mikilvægu framkvæmdum. Þegar svo er komið er mönnum hollast að skammast sín. Og þegar fólk dirfist að benda á þetta á venjulegri íslensku bregst Sturla Böðvarsson við með ofstopa - sárreiður sannleikanum. Höfundur er varaþingmaður Sam■ fylkingarinnar í Reykjavík. Mörður Árnason Að vinna ókeypis í GREIN minni fyrir skömmu var það tón- listarfólkið í Sinfón- íuhljómsveit íslands sem blés mér byr í .djöóst. Eins og fram hefur komið eru þeir ekki einir um að halda uppi öfiugu og aðdáun- arverðu tónlistarlífi á íslandi á lúsarlaunum. Viðtekið viðhorf í sam- félaginu er að tónlistar- fólk á Islandi eigi jafn- vel að vinna kauplaust. Þeir hafa nefnilega svo gaman af vinnu sinni. Þetta viðhorf endur- speglast í eftirfarandi sögu: “*'i I bæjarfélagi einu var nýlega opn- uð menningarhátíð með hátíðardag- skrá þar sem margt gott fólk lagði hönd á plóginn, bænum til mikils sóma. Tónlistarskólakennari var beð- inn um að leika á píanó með atriði barna á dagskránni, en þegar hann spurði um greiðslu var svarið þetta: „Nei, við ætlum bara að greiða lista- rn@nnum.“ Hverjir eru lista- menn? Eru tónlistar- skólakennarar ekki listamenn? Samkvæmt launatölum er tónlistar- fólk á íslandi ekki lista- menn, jafnvel ekki þeir sem starfa með Sinfón- íuhljómsveit íslands, því tónlistarfólk á ís- landi lifir ekki af heild- arlaunum sinum 126- 130.000 krónum á mán- uði. Tónlistarfólk á íslandi er að gefa vinnu sína! Tónlistarskólakenn- arar eru listamenn. Þeir koma iðulega fram við ýmis tækifæri og miðla af list- rænni kunnáttu sinni, innsæi og reynslu. Þeir eru engu minni lista- menn fyrir það eitt að halda uppi og sinna tónlistarflutningi í heimabyggð, þótt þeir stígi aldrei á sviðið í Salnum eða spili með Sinfóníuhljómsveit Is- lands. Allir eru þeir þátttakendur í að skapa þann ótrúlega þrótt sem auð- kennir íslenskt tónlistarlíf. Það helst í hendur að því meira skapandi og Tónlistarkennarar Það er sorglegt að verða vitni að því, segir Sig- ríður Jónsdóttir, hve aðstæður tónlistar- skólakennara á Islandi eru langt á eftir. virkir tónlistarmenn sem þeir eru, þeim mun auðugri kennarar eru þeir og betri fyrirmyndir.I Bandaríkjun- um þar sem ég lærði er kappkostað að þær aðstæður séu íyrir hendi að kennarar tónlistarskólanna geti hald- ið áfram á þeirri þroskabraut sem ferill tónlistaimanns krefst. Gert er ráð fyrir því að þeir séu virkir í kennslufræðilegri umræðu og að þeir séu starfandi tónlistarmenn utan skóla og innan. Oft á tíðum eiga því nemendur þessara skóla aðgang að fólki sem hefur af stórbrotinni list- rænni reynslu að miðla. Því er ekki Sigríður Jónsdóttir hugarró ALÞJÓÐLEGI geð- heilbrigðisdagurinn var 10. október. I fjölmiðla- umræðunni þann dag kom skýrt fram að mörgum hér á landi líð- ur illa, um það vitnar út- breitt þunglyndi, fíkni- efnaneysla og tíð sjálfs- víg. Heilbrigðisyfirvöld ætla að gera átak til að draga úr þessari þróun. Ég óska þeim velgengni í þeirri vinnu. En þetta snertir líka þig og mig. Hvað um okkar eigin andlegu líðan og geð- heilsu? Mig langar til þess að koma með smá- innlegg í hina stöðugu og sígildu um- ræðu um hvemig við getum öðlast og viðhaldið hugarró og innri friði í um- róti og áhyggjum daglegs lífs. Við les- um hér á síðum Morgunblaðsins margvíslegar greinar og auglýsingar um þessi mál svo að þetta er auðsjá- anlega mörgum ofarlega í huga. Vegna starfs míns sem prestur kynn- ist ég mörgu fólki sem er undir miklu álagi og fær sinn skammt af áhyggj- um og vandamálum og sjálfur er ég vitaskuld líka í þeim hópi. Til að halda hugarró og viðvarandi starfsþreki hef ég því orðið að leita leiða til að takast á við álagið. Leiðin sem ég hef farið hefur reynst mér vel og orðið mér stöðug uppspretta innri friðar og kraftar. Hvaða leið er það? spyrð þú kannski, en áður en ég svara langar mig að útskýra með örfáum orðum hugmyndafræðina þar að baki. Andleg og huglæg orkulind Hvað sem menn segja um trú á Guð og kenningar trúarbragðanna held ég að þeirri skoðun vaxi fylgi meðal allra hugsandi manna, ekki síst vísindamanna nútímans sem eru að ljúka upp fyrir okkur leyndardómum erfðaefnis mannsins, að á bak við þessa ótrúlega flóknu og fullkomnu tilveru hljóti að vera virkur hugur og skapandi máttur. Við getum kallað þennan mátt Guð. Sumir fomgrískir spekingar tengdu hann hugtakinu „logos“ sem þýðir orð. Þar er „orðið“ hin orkufyllta rökhugsun að baki til- verunni. Gyðingar áttu hugtakið „davar“ um hið máttuga skapandi „orð“ eða orkuflæði út frá Guði. En hvað sem því líður hefur verið til og hlýtur enn að vera til þessi orka sem kom öllu þessu af stað og viðheldur því. Það ætti því að vera eftirsóknar- vert að tengjast þessari orku. Og gleymt að tónlist er lifandi listform. Það er sorglegt að verða vitni að því hve aðstæður tónlistarskólakenn- ara á íslandi eru langt á eftir. Vinnu- skylda þeirra og vondur vinnutími gerir þeim erfitt um vik að halda sjálfum sér í þjálfun. Þó er því tekið sem sjálfgefnum hlut að þeir séu flytjendur tónlistar, sérstaklega á pólitískum menningarárum, en það er langt frá því að tónlistarflutningur þeirra sé réttlátlega verðlagður, hvað þá að reynsla þeirra af tónlistarflutn- ingi sé metin til launa þegar að kennslu kemur, eða að þeir séu hvatt- ir til að halda sér í þjálfun og koma fram. Það gera þeir ókeypis! Og fyrir langan og krefjandi vinnudag fá þeir greiddar 130.000 krónur á mánuði að meðaltali í heildarlaun. Tónlistarskólakennarar eiga að halda því á lofti að þeir eru listamenn, menntun þeirra er á háskólastigi, hún er sérþekking, og starf þeirra samfé- lagslega jákvætt, einstaklingsupp- byggjandi og því þjóðfélagslega hag- kvæmt. Tónlist er þeirra sérstaða og hún gerir þá að öðru og meira en attaníossum almennrar kennara- stéttar. Tónlistarskólakennarar - upp með sjálfsvirðinguna! Höfundur er tónlistarskólakennari og situr f stjóm Féiags tónlistar- skólakennara. góðu fréttimar eru að það er hægt! Að tengjast orkulindinni Meistarinn Jesús Kristur frá Nasaret birtist okkur sem tær uppspretta vísdóms, kærleika, friðar og krafts. Því miður hefur kirkjan - mennirnir - sem átti að miðla speki hans áfram til mann- kynsins ekki gert það sem skyldi en þess í stað oft og tíðum gert fólk fráhverft meistaranum og kenningu hans. Þetta er mjög miður, en góðu fréttimar era þær að enn er hægt að tengjast þeirri skapandi orkulind sem Kristur opn- aði. Ég hef leitað í þessa lind með góð- um árangri. Við mennimir emm takmai-kaðir og ef við leitum sífellt inn á við, í okkur sjálfa, eftir friði, styrk, gleði og hamingju, finnum við Bæn Enn er hægt, segir Friðrik Ó. Schram, að tengjast þeirri skapandi orkulind sem Kristur opnaði. fljótt að sú uppspretta vill þoma eins og vatnsból í þurrkatíð. Til að finna lausn á þessu hef ég notað bænina. Bæn er ævafomt tæki til að tengjast Guði og orku hans. Margir hafa þá hugmynd að bæn sé fyrst og fremst það að „að gera allar sínar óskir kunn- ar Guði“ eins og segir í heilagri ritn- ingu. Það er vissulega satt en það er þó aðeins ein hlið bænarinnar. Bæn er fyrst og fremst það að opna huga sinn fyrir Guði, hinni ótæmandi upp- sprettu, og meðtaka kraft til að halda áfram að lifa og njóta hamingju. Að opna og meðtaka Flest viljum við fá skýr svör um það hvemig hlutimir verka og gagn- ast okkur sjálfum hér og nú. Nútím- inn hefur ekki tíma til að bíða. Ég skal því í lok þessa greinarkoms tala skýrt og segja þér hvemig ég fer sjálfur að, ef það gæti hugsanlega einnig orðið þér til góðs. Þetta geri ég: Eg loka augunum og beini huganum út frá sjálfum mér og upp. Eg hugsa mér Guð sem ótæmandi „orkustöð" þar sem andlegan styrk, frið og gleði er að fá. Ég hugsa mér Guð sem nálæg- an kraft sem er allt í kring um mig. Ég fer hina fomu og ömggu leið bæn- arinnar. Bæn er einfaldlega það að opna og taka á móti. Sá sem er lokað- ur meðtekur ekkert. Við opnum lóf- ann og tökum við gjöf. Á sama hátt opnum við hugann og tökum við friði Guðs. Þannig opna ég huga minn og anda og leyfi friði og ró að koma hægt og hljótt inn í mig. Það streymir frá uppsprettunni til mín. Eftir dálitla stund hefur hugur minn orðið kyrr og rór og ég skynja nærvem Hans. Það veitir ólýsanlega andlega fullnæg- ingu. Kristur sýndi okkur hvernig ætti að gera þetta. Því er lýst í heil- agri ritningu. Hann vék frá skarkala og álagi hversdagslífsins og var einn á bæn til Guðs. Og eftir slíkar stundir var hann fylltur krafti og mætti sem læknaði sjúka, vísaði ráðvilltum veg- inn og gaf vonlausum nýja von. Þessa leið geta allir farið. Leyfðu Kristi, meistaranum mikla frá Nasaret, að leiða þig inn í nærvera Guðs. Þar er að finna hugarró, styrk og gleði til að takast á við álagið sem fylgir því að vera manneskja, styrk til að mæta þjáningu og sorg, styrk til að lifa og ná árangri. Höfundur er prestur íslensku Kristskirkjunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.