Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 64
64 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Skógrækt o g hrossabeit fara vel saman ef varlega er farið Gyða Bergþórsdóttir og Guðmundur Þorsteinsson, bændur í Efri-Hrepp í Borgarfírði, voru meðal þeirra sem hlutu Land- græðsluverðlaunin á þessu ári. Það vakti athygli Ásdísar Haralds- dóttur að til þess að minnka eldhættuna í skóginum beita þau hrossum þar á haustin. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Þetta land var grætt upp eingöngu með vægri áburðargjöf þannig að náttúrulegnr gróður náði sér upp. Einnig hefur trjám verið plantað. Asýnd landsins var áður eins og landsins í bakgrunninum. Morgunblaðið/Asdís Haraldsdóttir Skógræktarlandið í Staliaskógi er orðið mun skemmtilegra yfirferðar eftir að hrossin fóru að bíta þar á haustin. AU GYÐA og Guðmundur hafa verið ötul við upp- græðslu lands og skóg- rækt. Fyrir um það bil hálM öld hófu þau ræktun túna á ógr- ónum melum. Þá er Guðmundur einn af brautryðjendum í að nota eingöngu áburð í litlum skömmtum til að koma af stað náttúrulegum móagróðri í ör- foka landi. En skógræktin hefur hka skipað stóran sess í Efri-Hrepp. Miklum fjölda trjáa hefur verið plantað. í garðinum heima við bæ og í Stalla- skógi við rætur Skarðsheiðar eru stærstu trén og enn er plantað í Stallaskógi og einnig í nýju landi sem grætt hefur verið upp á melunum. Gyða segir að þegar ákveðið hafí ver- ið að planta trjám „undir Stölium" íafi landið strax fengið nafngiftina, afnvel áður en fyrsta trénu var plant- að. Komst ekkert áfram fyrir mosa og sinu Það var einmitt í Stallaskógi sem vinafólk þeirra hjóna ákvað að tjalda eitt sinn. Þau voru með h'tið bam með sér og ætlaði fólkið að njóta þess að dvelja í skóginum. Ánægjan varð þó t ekki eins mikil og til stóð því litla barnið komst ekkert áfram í skógar- botninum fyrir mosa og sinu. „Þetta varð til þess að ég ákvað að gera eitthvað í málinu,“ segir Guð- mundur. „Svona gat þetta ekki geng- ið. Mér varð Ijóst að svona mikil sina og mosi gæti skapað mikla eldhættu í skóginum, en fyrir utan áfóh af völd- um náttúrunnar svo sem vont veður og snjó, er eldur mesti áhættuvaldur- inn í skógrækt. Stór skógarsvæði geta fuðrað upp á stuttum tíma þar sem mikil sina er. Auk þess var svo komið að skógurinn gat ekki orðið til ánægju og útivistar eins og hann átti að vera.“ „Guðmundi kom til hugar að beita hrossunum í skóginn. En margt þurfti að vega og meta. Honum var Ijóst að hrossin gætu valdið skemmd- um en honum þótti þó vænlegt að gera athugun á því hvort svo yrði því til mikils var að vinna. Einnig er tahð að beit flýti íyrir niðurbroti gróðurs, grasið breytist fyrr í jarðveg með því að fara í gegnum meltingarveg..“ Hrossunum beitt á haustin þegar plöntur hafa fellt fræ „Beitin hefur því ýmsa kosti, en auðvitað verður að fara varlega því fyrir utan skógarplöntumar vildi ég hka vemda ýmsar blómplöntur sem vom famar að vaxa í auknum mæh í skóginum, svo sem blágresi. Eg fór þá að velta fyrir mér á hvaða tíma ársins best væri að beita hross- unum og ég heid að ég hafí vahð rétt- an tíma. Á haustin em allar plöntur að búa sig undir veturinn. Blómplönt- ur era búnar að fella fræ, trén em að fella laufin og grasið byijað að visna. Hrossabeitin hefur því ekki haft nein hamlandi áhrif á útbreiðslu plantna í skóginum, frekar öfugt. Ég set því yf- irleitt hrossin í skóginn í byijun októ- ber og hef þau þar þangað til fyrsti snjór fellur og þá tek ég þau strax af landinu. Ástæðan fyrir því er sú að þama era plöntur af öllum stærðum, allt frá því að vera nýplantaðar upp í 6-6 metra há tré. Með þessari aðferð verða htlar sem engar skemmdir, en ef hrossin fá að vera í skóginum eftir að spjór fellur fara þau að krafsa og skemma þá htlu plöntumar sem ná ekki upp úr snjón- um.“ Þegar Guðmundur ákvað að gera þessa athugun leitaði hann til Bænda- skólans á Hvanneyri og bað þá að taka hana út Það var gert í nokkur ár að vetri eða vori. í skýrslu frá árinu 1992 segir meðal annars að af 225 plöntum sem athugaðar vora í októ- ber 1992 og reyndust heilar var 21 eitthvað skemmd í apríl 1993. í flest- um tilfehum var hægt að rekja skemmdir til snjóþyngsla, og einung- is í 7 tílfehum var talið að um skemmdir af völdum hrossabeitar gæti verið að ræða Niðurstaðan varð sú að athugunin benti til að hrossa- beit og skógrækt gætu mjög vel farið saman þar eð hrossin skemmdu htið sem ekkert jafnvel minnstu trjá- plöntur. Guðmundur segist meta þetta svo að þessar htlu skemmdir séu miklu minni en sú áhætta sem fylgir því að hafa sinuna og beita ekki í skóginum. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Gyða Bergþórsdóttir og Guö- mundur Þorsteinsson í rjóðri í Stallaskógi þar sem hestarnir höfðu verið í hálfan mánuð. Hálfur dagur getur skipt sköpum „En það er erfitt að ráðleggja og það getur virkað eins og að fá óvita eggvopn,“ segir hann. „Ég tel ákaf- lega mikilvægt að þeir sem stunda þetta hafí mikla og góða tilfinningu fyrir því hvemig meta beri ástand lands og gróðurs og hvenær er mál að hætta beit. Jafnvel hálfur dagur get- ur skipt sköpum. Hér gildir að fara varlega. Ef farið er yfir mörkin skemmir maður landið og gróðurinn vegna álags og traðks sem getur orð- ið verulegt. Til þess að koma í veg fyr- ir skemmdir hef ég hrossin í skógin- um í mjög skamman tíma á hveiju ári þannig að landið hefur um og yfir tíu mánuði til að jafna sig á milli. Á þeim tima hverfa ummerki eftir traðk. En það er matið sem skiptir sköpum og því ekki hægt að segja hversu mörg hross mega vera á hveijum hektara því aðstæður era svo misjafnar og ár- ferðið hefur sitt að segja. Það er merkilegt hvað hestarnir skemma lítið og það kom mér á óvart að þeir skyldu ekki skemma htlu trjáplöntumar. Þeir stíga ekki einu sinni á þær. Ég ber á í kringum þær og því verður grasið í kringum þær mjög grænt. Hestamir bíta allt í kringum plönturnar en láta þær al- veg vera jafnvel þótt plantan sé mjög smá. Það verður að hafa í huga að á þessum árstíma virðast þeir engan áhuga hafa á að bíta plöntumar og eins hafa hestar mjög htla þörf fýrir að klóra sér á þessum tíma. Á vorin og sumrin klóra þeir sér meira og á vetuma er oft mikið fikt í þeim og þá naga hestar stundum allt tré sem verður á vegi þeirra. Hugsanlega stafar það af iðjuleysi. Haustin ein- kennast af rólegheitum hjá hrossun- um, ekki er mikið um hlaup og læti og hestamir hægja á sér. Þeir njóta þess að vera í skjólríkum skóginum þar sem nóg er að bíta og brenna.“ Hrossin inni eftir að þau hafa fylit sig En Guðmundur hefur gert aðrar tilraunir með hrossabeit sem ekki era síður athyglisverðar og tíl eftir- breytni. „Til að fá fulla nýtingu á beitilandi yfir sumartímann án þess að skemma það hef ég prófað mig áfram með að beita reiðhrossum í litlum hólfum og setja þau inn í hús á milli. Oft fylgir hrossabeit mikið traðk og á mikið beittu landi má oft sjá moldarflög, til dæmis meðfram girðingum eða við hhð. Ég giska á að hrossin troði niður og skemmi fjórum til fimm sinnum meira gras en þau bíta,“ segir hann. „Ég hef sjálfur notað snöggt land fc_ %. v' ’J 2000 Heildarmynd Stdðhestar Gæðingar Hryssur HUanr AOÉðBl 5777000 www.tolLis eins og svo margir hestamenn gera til að halda hrossunum í hæfilegum holdum yfir sumarið. Ég hef mjög slæma reynslu af þessu því mér fannst ég vera að eyðileggja svo mik- ið. Þá fór ég að velta fyrir mér hvern- ig hægt væri að fara betur með landið en halda hrossunum jafnframt í hæfí- legum holdum. Niðurstaðan varð sú að setja hrossin inn í hús en sleppa þeim út í ákveðinn tíma á hveijum degi. Að vísu hef ég góða aðstöðu til að gera þetta. Ég set hrossin inn í skemmu sem er með taðgólfi sem er þurrt og gott á sumrin. Á steyptri stétt fyrir utan hef ég rennandi vatn og geta hrossin valið hvort þau era inni í þessu lausagönguhúsi eða úti á stéttinni. Ég hleypi þeim síðan í beit- arhólf sem ég tel vera mátulega sprottið. Ég leyfi þeim að vera á beit þar til þau hafa náð að fylla sig, en tíminn sem það tekur fer eftir að- stæðum og set þau síðan inn aftur. Þetta kostar auðvitað að maður verð- ur að vera viðlátinn. í inátulegum holdum allt sumarið En þetta gengur ótrúlega vel og það sem meira er. Hrossin virðast vera ánægð með þetta fyrirkomulag og þegar þau koma út á grasið fara þau strax að bíta. Þau fara því hægt yfir og traðka mjög lítið. Þegar horft er á þessi hólf núna að hausti sést ekkert traðk eða aðrar skemmdir eft- ir beitina. Með þessu móti er hægt að halda hrossunum í mátulegum holdum allt sumarið. Þá gerir heldur ekkert til ef aðstæður era þannig að þau era ekki sett inn í einn eða tvo daga. Það hefur ekkert að segja upp á holdafarið, enda magamálið orðið minna og þau geta ekki troðið sig út. Guðmundur skiptir svæðinu sem hann notar til beitar, um 1,5-2 hekt- ara, upp í hólf sem era 'A til % hektari hvert. Hrossin, sem oftast era 5-7 talsins, era látin í hólf og látin hreinsa það nokkuð vel, þó eru þau ekki látin þíta of nærri. Þá er það hólf hvílt og hrossin látin í það næsta og svo koll af kolli Á hvíldartímanum hefur grasið í hólfunum náð að spretta mátulega. Mikilvægt er að láta ekki naga niður í rót því þá tekur það grasið mun lengri tíma að spretta, llkt og á vorin þegar tún era mikið beitt. Með þessu móti er ormasmit einnig í lágmarki, enda skíta hrossin mest þegar þau era inni. Gyða og Guðmundur nota hrossin líka til að „slá“ garðinn á sumrin og snyrta í kringum heimreiðina. í garð- inum er mikill tijágróður en hrossin era látinn snyrta grasið mátulega. Ekki þarf að klippa í kringum trén því hrossin sjá um það lika. Guð- mundur segir að þegar þau beita hrossunum í garðinn sé það venjulega gert fljótlega eftir að komið er úr út- reiðartúr þegar þau hafa velt sér og slappað af. Þá sinna þau aðeins átinu en áður en þau hafa fyllt sig era þau tekin úr garðinum svo þau fari ekki að klóra sér á tijánum. Þegar ekið er heim að bænum er eins og farið hafi verið yfir allt með fínni sláttuvél því allt er rennislétt og jafnbitið. Hestamenn þurfa að taka beitarmálin íostum tökum „Það er dýrt að spilla landi með of miklu álagi og tekur kannski áratug eða meira að bæta slfkar skemmdir," segir Guðmundur. „Ég sé fyrir mér að einhveijir muni í framtíðinni bjóða upp á þjónustu samfara beit. Hesta- eigandi gæti þá leigt beit af einhveij- um sem sér alfarið um að nýta hana sem best og halda hrossunum jan- framt í hæfilegum holdum yfir suma- rið. Hestaeigandinn gæti svo samið um hvenær hann færi í útreiðartúr og umsjónarmaðurinn hefði þá hestana tilbúna.“ Guðmundur er sannfærður um að hestamenn verði að fara taka beitar- málin föstum tökum og hafa frum- kvæði sjálfir í að ganga vel um land sem þeir hafa til umráða og bæta ástand þess. Því sé mikilvægt að finna upp aðferðir til að nýta beitiland sem best en fá jafnframt af því hámar- ksuppskeru og gæta þess að valda ekki skemmdum á því. Hann telur að ekki sé langt í að bannað verði að fara illa með land og almenningsálitið sé farið að skipta verulegu máli hvað þetta varðar nú þegar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.