Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 76
76 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Súkkulaði og pylsur
RAPPROKKARARNIR ógurlegu frá Kaliforníu,
Halta kexið (Limp Bizkit). hafa náð að bruna
beina leið á topp tónlistans með þriðju breið-
skífuna sína sem heitir því því þjála nafni
Chocolate Starfish & The Hotdog Flavored Wat-
er. Þessi árangur ætti svo sem að korna lítið á
óvart þar sem síðasta breiðskífa þeirra, Signi-
ficant Other, sem út kom i fyrra, hefur notið
mikilla vinsælda hjá unglingafjöld landsins
sem og öðrum á undanförnum misserum. Má
gera því sköna að þáttur Freds Durst og félaga
í síðustu Mission Imposs-
iJlljmBk ible-mynd h.afi einnig hjálp-
, að hér upp á en þar léku
[Sr þeir eigin útgáfu af hinu sí-
s'giida upphafsstefi
/ myndaflokksins. Þess
/ / má geta að platan hef-
~<0 ■ J ur selst hraðar en
■ jg nokkur önnur rokkplata
% 'Wffl í sögu Bandaríkjanna.
_—sló þarmeð metVs.,
/jjw -w sem er önnur skífa
' gruggarannaí
, -vÆaC: PearlJam.
Nuddar ýsu!
HLJÓMPLÖTUR með töluöu og spiluðu gríni var
að því er virtist deyjandi menningarform fyrir
nokkrum árum síðan. Fyrir réttum tveimur ár-
um síðan gáfu svo þeirfélagar
í útvarpsþættinum Tvíhöfða, ■
þeir Sigurjón Kjartansson og 1
Jón Gnarr, út geislaplötuna Til I ^ . '~-r
hamingju og blésu þar með
nýju lífi í formið. Hafði annað ESí
eins ekki heyrst síðan Útvarp Int
Matthildur og Halli og Laddi
voru upp á sitt besta. Þriðja
platan er nýkomin í búðir, upp- ' I
íull af háði, spotti, spéi, skopi. ; Jj
glensi og gríni. Heitir hún hinu
geðþekka nafni Sleikirhamst-
urog fer beint í þriðja sæti
Tónlistans. BM B
mt-
Nr.; var jvikuri ’ i Diskur i Flytjandi i Útgefandi ; Nr.
•1.: - ; 1 i N i Cfiocolale Starfish & The Hot Dog :Limp Bizkit iöniversal i 1.
2. i 2. i 2 i : Annor móni iSólin hans Jónsmíns iSpor ! 2.
«3. i • i 1 i 1 Sleikir homstur iTvíhöfði iDennis i 3-
4. : 1. : 3 : : Kid A i Radiohead ;emi : 4.
5. ; 4. : 5 : i Pottþétt 21 JÝmsir i Pottþétt Í.5.
*• ] V-í 72 i Ö i Ágætis byrjun ÍSigur Rós iSmekkleysoi 6.
7- i 7. i 11 ! i Parachutes i Coldplay ÍEMI i 7.
8. i 3. i 2 i i Black Morket Music ÍPIocebo :EMI i 8.
9. i 6. i 4 ! i Ó Borg mín Borg : Haukur Morthens iísl. fónar : 9.
10. i 9. i 5 : i Music iMadonna iWarner Music! 10.
11.: 11.: 30: iSögur 1980-1990 IBubbi :ísl. tónar : 11.
12. i 16.: 11 : ! Tourist ! St Germain ;emi :i2.
13.: 13.: 3 : i Best iTodmobile iísl. tónar ;i3.
14. ■ 8.; 22; i Morsholl Mathers LP ÍEminem iöniversal i 14.
15- i 10. i 7 i i Morc Anthony ÍMarcAnthony iSony i 15.
16. i 20. i 8 i i Born To Do It iCraig David ÍEdel i 16.
17.! 12. i 28 i i Play :Moby :Mute i 17.
18.; 14 i 4 i 1 Soiling To Philadelphia :Mork Knopfler iUniversal i 18.
19. i 15.! 23 i : Oops 1 Did If Agoin : Britney Spears ;emi ! 19.
20.! 61.! 2 1 H: Lucy Pearl jLucy Peorl ;emi ! 20.«
21.: 2).; 3 ; i Infest iPapa Roach iöniversal ! 21.
22.; 24.; 14; i Fuglinn er floginn i Utangarðsmenn Jísl. tónar i 22.
23.; 17.; 2 ; i Warning ÍGreen Day iWarner i 23.
24.; 18.; 3; i Primitive Digi iSoulfly ;Roadrunner : 24.
25.Í 47.! 5; i Yesterdoy Wos Dramotic Todoy Is OKiMúm iThule :25.«
26.; 5. r~6 í : Selmosongs (Doncer In The Dork): Björk :Smekkleysa: 26.
27.: - i 1 ; ! In The Mode :Roni Size iUniversal :27.
28. i 22.: 3 : : Stúlkan meú lævirkjaröddinn \ Erlo Þorsteinsdóttii ■ ;ísl. tónor : 28.
29.: 36.; 39; i Best Of i Cesaria Evora ;bmg 129.
30.; 44,| 7 ! i Nútíminn i Þursaflokkurinn iísl. tónar J30,
Á Tónlistanum eru plötur yngri en tveggja óro 05 eru í verðflokknunrt .fui veiðt
Tónlistinn er unninn of PricewaterhouseCoopers fyrir Sombond hljómplötuframloiðonda og Morgunbloðið í somvinnu
við eftirloldar verslonir: Bókvol Akureyri, Bónus, Hogkoup, jopís Broutorholfi, Jopís Kringfímni, Jopis Lougovegi, Músik
og Myndir Austurstræti, Músík og Myndir Mjódd, SomtónBst Kringlunni, Skffon liringiunni, Skifon Lougovegi 26.
Sálarperlur!
HLJÓMSVEITIN Lucy
Pearl er í dag það
alira heitasta í geira
R’n'B-tónlistarinnar.
Samsuða þeirra af
R'n’B, hip-hoppi, sál-
artónlist ogallra
'handásválhéitúm: ”:
þykirsvinvirka á grill-
iö, ógépakirtfhéhh:::
segja að hér sé sann-
arlega á feröinni R’n'B-tónlist sem búi yfir heil-
miklu kjöti á beinum. Sveitin er skipuð þremur
valinkunnum sálarlistamönnum eins og söng-
konunni íðilfögru Dawn Robinson, fyrrum En
Vogue dívu. Raphael Saadiq. sem var heilinn á
bak viö sveitina Tony! Torii! Toné! og Ali Shah-
eed Muhammad, sem fyllti eitt sinn raöir hinn-
ar virtu rappsveitar A Tribe Calied Quest. Frum-
buróur sveitarinnar er hástökkvari Tónlistans
þessa vikuna, fer úr 61. sæti í þaö 20.
Dramatísk
endurkoma
TÓNLISTINN segirjátakk! í þessari viku ogvel-
ur íslenskt. Tvíhöfði fer beint í þríðja sæti list-
ans, nýja piatan með Sálinni hans Jóns míns
heldur öðru sætinu og öldungur listans, Ágæt-
is byrjun Sigur Rósar, hækkar sig um heil 20
sæti og er nú 16. sæti, búin að vera heilar 72
vikur á listanum! Athygli vekur að krakkarnir
yndislegu í tilraunapoppsveitinni múm gera sér
lítiö fyriroghlamma sérf 25. sætið með plötu
sfna Yesterday Was Dramatic, Today Is OK
sem út kom fyrirtæpu ári. Fjöldi tónlistarhátíða
hefur hlaöist á bök landsmanna að undanfömu
og virðast afleióingarnar hinar jákvæðustu fyrir
íslenskttónlistarlíf. Áfram ísland!
Ljósmynd/Frank Ockenfels
Everclear í popparastellingunni.
melódíur, spilaðar af natni og fag-
mennsku, ásamt fínum textum sem
frábær söngvari túlkar með ágæt-
um. Poppið er reyndar á köflum full-
íburðarmikið fyrir minn smekk,
enda heill her aðstoðarmanna feng-
inn til þess að blása í lúðra, plokka
strengi og berja bumbur, sem í einu
tilfelli verður til þess að umbúðirnar
bera innihaldið ofurliði. Þar vísa ég
til lagsins „Now That It’s Óver“ þar
sem allskyns krúsindúllur og kruð-
erí nánast skemma ágæta lagasmíð.
Lögin „Wonderful11, sem hefur
tröllriðið vinsældalistum undan-
farnar vikur, og „AM Radio“, sem er
nú þegar farið að hljóma í útvarpi,
eru mjög dæmigerð fyrir gripinn í
heild. Sá sem hefur heyrt þau upp-
götvar engan stóran sannleik þegar
hlustað er á restina af plötunni.
Lögin eru 12, velflest mjög fín. Plat-
an hefst á stuttu lagi þar sem einfalt
og gott gítarstef er í forgrunni. Lag-
ið er ekki nema 1:39 á lengd og hefði
að ósekju mátt vera lengra, enda ein
burðugasta smíðin á plötunni. Síðan
fylgja lögin „Here We Go Again“ og
„AM Radio“, glettilega lík og gríp-
andi, reyndar svo grípandi að maður
sönglar ósjálfrátt með við fyrstu
hlustun. Þetta eru lög sem þú vakn-
ar með í heilabúinu á morgnana og
verða því vafalítið fljótt þreytt, en
þangað til raular þú með, hvort sem
þér líkar betur eða verr. Gamla Van
Morrison lagið „Brown Eyed Girl“
kemur næst. Ég var reyndar sleg-
inn óhug og kýlum þegar ég las á
plötuumslaginu að þetta lag væri
þarna, áður en ég hleypti í mig
kjarki og hlustaði. Og það lá reynd-
ar við að ég þyrfti að drekka í mig
kjark til að hlusta á lagið, því þessi
lumma er orðin svo skelfilega
þreytt, hafi hún einhvern tímann
verið svöl. En Everclear-drengirnir
breyta laginu talsvert og útgáfa
þeirra vinnur pínulítið á við hverja
hlustun, þótt manni finnist það ekki
beint bera vott um frjóa hugsun eða
listrænan kjark að atast í þessu öm-
urlega lagi, sem fyiir lifandi löngu
ætti að vera komið á hæli fyrir út-
brunnin listaverk ásamt skapara
sínum. Næst kemur „Learning How
to Smile“ og ekki kæmi á óvart ef
því yrði einn góðan veðurdag flagg-
að sem smáskífu. Frábært popp í
hæsta gæðaflokki sem ber af ásamt
lögunum „Wonderful", „The Hon-
eymoon Song“ og „Song for an Am-
erican Movie pt. 1“. Það er aðeins
eitt lag sem fer verulega í taugarnar
á mér á þessari plötu, það er lagið
„Annabella’s Song“. I því syngur
Art Alexakis til lítillar dóttur sinn-
ar, sem hann er fjarri löngum stund-
um vegna spilamennsku um allan
heim. Útkoman er svo hryllilega
væmin og vemmileg að átakanlegt
er á að hlýða. Hafi hann sungið
blessað barnið í svefn með þessum
ósköpum er deginum Ijósara að óm-
álga krakkinn hefur sofnað fljótt og
mjög fast af einskærum leiðindum,
og má heita furðulegt að hann hafí
yfirhöfuð haft fyrir því að vakna aft-
ur. Slík eru leiðindin.
En platan er býsna góð, þótt
fjölmargir gamlir aðdáendur sveit-
arinnar snúi vafalítið baki við band-
inu vegna skorts á groddalegum og
hráum hávaða. Everclear hafa
reyndar látið hafa eftir sér að platan
Songs From an Amerícan Movie,
Vol. 2: Good Time for a Bad Atti-
tude komi út bráðlega og verði sú
þyngsta og kröftugasta sem þeir
hafa gert.
Þangað til hlustum við á popp-
plötuna þein-a. Poppplötu sem á
ekki eftir að breyta eða bylta tón-
listarheiminum en auðgai- hann
pínulítið.
ERLENDAH
★★★★☆
Sigmar Guðmundsson veltir
fyrir sér plötunni Songs from
an Amerícan Movie, Vol. One:
Learning How 10 Smile með
rokksveitinni Everclear.
Poppplata
rokksveitar
NÝJASTA plata Portland-sveitar-
innar Everclear heitir löngu og
vondu nafni: Songs from an Amer-
ican Movie, Volume One: Learning
How to Smile. Ég reyndar man ekki
eftir verra nafni á hljómplötu í svip-
inn, nema ef til vill plötu Bítlanna,
fp,. Pepper’s LoneiyHearts Club
and. Songs from an Amerícan
Movie... er fjórða plata Everclear.
Sú fyrsta hét Woríd ofNoise og
kom út árið 1993. Skífan sú vakti
nokkra athygli og duldist fáum sem
heyrðu að þarna var á ferðinni
hljómsveit sem var allrar athygli
verð. Hrátt, kröftugt og á köflum
melódískt rokkið hljómaði vel á
þeim frjósama akri sem Nirvana og
Pearl Jam höfðu þá nýverið plægt
og var bandarískum ungmennum
svo gjöfull. Stóru útgáfufyrirtækin
sperrtu eyrun og 1995 kom út platan
Vparkle and Fade undir merkjum
Capitol. Tæplega tvær milljónir
Bandaríkjamanna sáu ástæðu til að
kaupa gripinn, enda urðu lögin
„Heroin Girl“ og „Santa Monica"
sérlega vinsæl, sérstaklega það síð-
amefnda sem nauðgað var hressi-
lega á MTV. Textar söngvarans og
gítarleikarans Art Alexakis féllu
rHdgmennum vel í geð enda orti hann
af mikilli innlifun og reynslu um
fíkniefni, sjálfsmorðstilraunir, fá-
tækt, barsmíðar og aðra eymd, sem
hefur næstum því selt ungmennum
fleiri hljómplötur í gegnum tíðina en
sjálf ástin. Og rám og sjarmerandi
rödd hans í kröftugu og melódísku
gítarflóðinu þótti töff. Lagið „Local
God“ jók svo enn á hróður sveitar-
innar, en það hljómaði í bíómyndinni
Romeo and Juliet. Gagnrýnendur
og almenningur tóku næstu plötu
Everclear einnig vel, So Much for
the Afterglow, sem kom út árið
1997. Með henni festi Everclear sig í
sessi sem ein besta rokksveit sam-
tímans, þótt allra mesta hungrið
væri horfið og áferð tónlistarinnar
orðin nokkuð mildari. Og það verður
að segjast alveg eins og er að þegar
maður hlustar á nýju plötuna, þá
sem hér er til umfjöllunar, er erfítt
áð ímynda sér að Everclear hafí eitt
sinn verið flaggberi kröftugrar og
hrárrar tónlistar. Þetta er popp-
plata rokksveitar, og sem slík bara
skratti góð. Rokkskórnir fara
reyndar Everclear best, en popp-
gallinn hangir síður en svo utan á
þeim eins og illa sniðin tuska.
Þvert á móti er aðal sveitarinnar
áfram til staðar; góðar og grípandi