Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: HI31STJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Orkubú Vestfjarða er metið á 4,6 milljarða króna Hlutur Isafjarðar ' 1,4 milljarða virði FULLTRÚAR ríkisvaldsins og sveitarfélaganna á Vestfjörðum hafa rætt um að verðleggja Orkubú Vest- fjarða á 4,6 milljarða kr. og er reikn- að með því að ríkið geri hverju og einu sveitarfélagi tilboð í sinn hlut að loldnni breytipgu fyrirtækisins í hlutafélag. Ef Isafjarðarbær ákvæði að selja fengi bæjarsjóður 1.420 miiljónir kr. í kassann. Fyrsta skrefið í því að gera hluti einstakra sveitarfélaga í Orkubúi Vestfjarða að söluvöru er að breyta — féiaginu úr sameignarfélagi í hluta- " reiag. Til þess að það nái fram að ganga þurfa öll sveitarfélögin tólf að samþykkja. Ekki liggur fyrir afstaða fámennustu hreppanna en öll fjöl- mennustu sveitaifélögin hafa ýmist samþykkt breytinguna eða forsvars- menn þeirra telja líkur á samþykki. Ríkið leggur fram tilboð Ríkið hefur lýst sig reiðubúið til að kaupa hlutabréf sveitarfélaganna og mun gera þeim tilboð ef formbreyt- ingin nær fram að ganga. Aðilar hafa komið sér saman um ákveðna upp- hæð til að setja á verðmiðann en hún hefur verið trúnaðarmál. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er verð- matið 4,6 milljarðar kr. sem þýðir að ríkið mun bjóða 2.760 milljónir kr. í 60% eignarhlut sveitarfélaganna. Vesturbyggð mun selja sinn hlut, um leið og mögulegt verður, en í hlut þess munu koma rúmar 400 milljónir kr., miðað við skiptingu eignaraðild- ar um síðustu áramót. Fleiri sveitar- félög eru skuldsett en ekki verður tekin afstaða til sölu á þeirra hlut fyrr en tilboð ríkisins kemur fram. Veruleg andstaða er við sölu innan sumra sveitarfélaganna, meðal ann- ars vegna þess að raforkuverð mun hækka í kjölfarið. Ef Isafjarðarbær seldi sín bréf fengi hann 1.420 millj- ónir kr. fyrir þau, samkvæmt þessu. Ríkið mun gera það að skilyrði fyr- ir kauptilboðum sínum að söluand- virði hlutabréfa í Orkubúi Vestfjarða verði ráðstafað til greiðslu skulda, meðal annars til að gera upp vanskil sveitarfélaga við Ibúðalánasjóð vegna félagslega íbúðakerfisins. ■ Ríkið býðst/42 Læknanámið verður stytt UNDIRBÚNINGUR er hafinn að grundvallarbreytingum á inntöku- prófi í læknadeild Háskóla Islands, sem gæti stytt læknanámið um allt upp í hálft ár. Einnig eru fyrirhugað- ar breytingar á námskrá læknadeild- arinnar sem miða að því að svara bet- ur kröfum samfélagsins. Talsverður skortur er á menntuðum læknum á heilsugæslustöðvum og einnig vant- ar yngri lækna á sjúkrahúsum, sem margir hverfa til útlanda til sérnáms. Að sögn Reynis Tómasar Geirs- sonar, deildarforseta læknadeildar, felast breytingarnar einkum í því að inntökupróf verður haldið að vori að loknum stúdentsprófum og verða þá strax valdir þeir sem hefja nám og halda áfram til loka, í stað þess að innrita stúdenta að vori sem verja sumrinu og haustinu til lestrar og undirbúnings fyrir inntökuprófið. Markmiðið er að einfalda og stytta ferlið. Reynir segir það þjóðhagslega hagkvæmt að stytta námið um allt upp í hálft ár, en fyrirhugað er að breytingarnar verði komnar í kring árið 2002. Um 200 manns sækja um nám í læknadeild á hverju ári. Þeim sem halda áfram námi hefur fjölgað, t.d. fjölgaði þeim í fyrra úr 36 í 40. Útlit er fyrir enn meiri aukningu á næsta ári. Bjarna Þór Eyvindssyni, formanni Félags læknanema, líst vel á þessar breytingar. „Inntökuprófin hafa reynt á þolrif margra sem hafa undirbúið sig í þrjá mánuði og sitja svo kannski eftir. Þetta gefur þeim sem ekki komast inn tækifæri til að hafa heilt ár til að mennta sig í einhveiju öðru,“ segir Bjami Þór. ■ Breytt inntökupróf/9 Ný rannsókn Refsingar draga ekki úr afbrotum RANNSÓKN sem gerð var á þeim sem hlutu skilorðsbundinn dóm, luku afplánun fangelsisvistar eða samfélagsþjónustu á árunum 1994- 1998 sýnir fram á að þeir sem hljóta þyngri refsingu eru líklegri til að brjóta aftur af sér. I niðurstöðum rannsóknarinnar- kemur ennfremur fram að ítrekun- artíðni afbrota hér á landi er svipuð því sem tíðkast meðal annarra þjóða þrátt fyrir að íslenskir dómstólar beiti yfirleitt vægari refsingum. Þá segir ennfremur að engar vísbend- ingar hafi fundist um það að harðari refsingar hafi dregið úr ítrekunar- tíðni. Þvert á móti séu vísbendingar um að harðari refsingar leiði frekar til þess að sakamennirnir brjóti aftur af sér. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og dósent við Háskóla íslands, segir að niðurstöður rannsóknarinn- ar sýni fram á gildi samfélagsþjón- ustu sem refsingar. ■ Samfólagsþjónusta /10 Morgunblaðið/Golli Mættu ÞEIM brá í brún, ökumönnunum f?m áttu leið um Kringluna í gær, egar þeir mættu manni sem ferð- aðist um með fataslá á hjólum á götunni. Ferðalag mannsins átti sér eðlilegar skýringar en hann var á leið á milli húsa með fatnaðinn. fataslá Þessir flutningar fóru fram án verulegra óhappa. Þess er þó tæp- lega að vænta að flutningar af þess- um toga færist í vöxt á næstunni, jafnvel þó að nú sé sá árstími að nálgast þegar aukið líf færist í verslunina. Flugleiðir með 87,3% stundvísi í ágúst FLUGLEIÐIR voru stundvís- astar 17 flugfélaga sem fljúga yfir Norður-Atlantshafið í ágúst. Voru 87,3% af ferðum félagsins á réttum tíma en meðaltal félaganna 17 er 67,3%. Evrópusamtök flugfélaga taka þessar tölur saman reglulega. Flugleiðir voru einnig stundvís- asta flugfélagið á þessari leið í júlí og sé litið á meðaltal mánaðanna janúar til ágúst er félagið í öðru sæti með 80,4% stundvísi. Meðaltal félaganna 17 á þeim tíma er 69,1%. Evrópusamtökin gefa viðkomandi flugfélagi aðeins upp tölur þess og síðan meðaltal allra félaganna en láta ekki uppi stundvísi allra. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Flugleiða, tjáði Morg- unblaðinu, að Flugleiðir hefðu einnig verið stundvísasta flugfélag- ið á Norður-Atlantshafsleiðinni í júlí. Hann segir stjórnendur fé- lagsins hafa sett sér það markmið að félagið yrði meðal hinna fimm bestu í stundvísi og hefðu Flugleið- ir náð þriðja sæti í ágúst meðal 30 flugfélaga. „Það þarf aðhald og aga til að ná þessum markmiðum og halda uppi stundvísi," segir Guðjón. „Oft eru það utanaðkomandi aðstæður á þessum stóru flugvöllum sem geta truflað en það þarf að halda vel á spöðunum til að afgreiða vélamar á þeim tíma sem gefinn er. Allir sem sjá um afgreiðsluna þurfa að vera meðvitaðir um nauðsyn stundvísi. Hver ferð hefur ákveðinn brottfar- artíma og ef vél er tilbúin og farin frá hliði áður en 15 mínútur eru liðnar frá brottfarartíma telst það stundvísi. Þetta er eitt af því sem flugfélög um allan heim glíma við því öll keppa þau að því að sýna fram á að sem hæst hlutfall flug- ferðanna sé á réttum tíma.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.