Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 64
64 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
EDDIE MURPHYer KLUMPARNIR
f ókus
- THírCAN'T WAIT
TOClTlRllA RAND5
OHTCU-
KLUMPAP
★ ★ ★
OFE Hausverk.is
• - mm
'Aiíiicæj'
Mynd eftii Paul Austei. Harvey Keitel. Mira Sarvino
9-15. nóv
Hagatorgi
www.haskolabio.is
sími 530 1919
HASKOLABIO
HlÉKÓLABÍÓ
FILMUNDUR;
BÍÓH
NÝn OG BETRA
■nnTin.TinnfiTii-L,
EDDIE MURPHY er KLUMPARNIR
BRUCE WILLIS
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is
ÓHUÍjNANLKGASTA MYND ALLRA 1 ÍMA
í ÚI GÁFU SEMJéiI IIKKUR ALDRJ I SKD
0F£ Hausverk.is
DIRECTORS CUT
Evrópska MTV-tónlistarhátídin verður haldin í Stokkhólmi
Sænskættuð
popptónlist á
heimsmælikvarða
Þrándheimi. Morgunblaðið.
VERÐLAUNAHÁTÍÐ evrópsku útgáfu
^jyiTV-tónlistarsjónvarpsins verður hald-
ín í Globe-höllinni í Stokkhólmi á
morgun. Að þessu sinni verða það
ekki Einar Ágúst og Telma Ágústs-
dóttir sem munu dansa, syngja og
trylla lýðinn heldur nokkrir af helstu
poppurum heimsins, þeir vinsælustu
í Evrópu í augnablikinu.
Verðlaunahátíðin er þó aðeins
toppurinn á ísjakanum á vikulangri
tónlistarhátíð þar sem Svíar ætla
að sýna umheiminum það sem í
þeim býr og er vonast til að
hátíðin laði að risa úr út-
gáfuheiminum auk fjölda
fjölmiðlamanna. En það
eru þó ekki sænskir
popparar sem verða
-^aðallega til sýnis,
'Tieldur þeir sem vinna
bak við tjöldin; útsetj-
arar, laga- og texta-
höfundar og fleiri
undramenn sem eru
að meika það í bóksta-
flegri merkingu um all-
an heim.
Frá Nashville
til Stokkhólms
Eitt sinn var það Nashville-
hljómurinn sem tónlistarmenn
þráðu en núna er það sá
sænski. Færa má góð rök
fyrir því að mekka popptón-
listarinnar sé nú í Stokk-
hólmi nútímans. Vissulega
dru tónlistarmennirnir sem
eru að slá hvert vinsælda-
metið á fætur öðrum oft-
ast breskir eða banda-
rískir að uppruna en
heilarnir á bak við tónl-
istina sem þeir flytja eru
oftar en ekki sænskir í
húð og hár. Britney
Spears, Baekstreet
Boys, Christina Aguil-
era, 5ive, Westlife og
’N Sync eiga öll sænsk-
um poppsérfræðingum
ilmikið að þakka.
igja má að samstarf
Britney Spears við
poppgúrúinn Max
Martin, en hann á
töluvert mikið í
íyrsta smelli hennar,
„Baby, One More
Time“, hafi komið
Stokkhólmi endan-
lega á kortið og þangað flykkjast nú tónlistarmenn úr öllum
áttum og leyfa Martin og félögum að eiga við tónlist sína að
vild. Nafnið Martins virðist vera ávísun á vinsældir. Hann
hefur t.d. komið nálægt 16 lögum strákanna í Backstreet
Boys og 15 lögum poppprinsessunnar Britney Spears og á
mikið í nýjasta lagi rokkaranna í Bon Jovi, „It’s My Life“.
Islenskir popparar
sækja til Svía
Fleiri Svíar hafa lagt hönd á plóginn við að gera
Stokkhólm að miðju poppiðnaðarins þó að Martin sé
einna þekktastur þeirra. Þá hafa íslenskir popparar
einnig fengið að njóta snilligáfu Svíanna, t.d. hafa
bæði Selma og Svala Björgvins unnið sína tón-
list í samstarfi við sænska náunga. Þrjú lög af
i breiðskífu Selmu voru hljóðblönduð af Bern-
hard Löhr, sem m.a. hefur unnið fyrir Aqua
i og Backstreet Boys, hjá Mono Studios sem
^ er í eigu Benny Ánderson. Svala hefur einn-
■ ig verið í nánu samstarfi við Svía og hafa
m þrjú lög hennar verið samin, tekin upp og
f hljóðblönduð í samvinnu við sænska aðila.
I Lagið „The Real Me“ sem verður fyrsta
' smáskífa hennar, var t.d. samið af Anders
Bagge, Svölu og Arnthori Birgissyni sem er af
íslensku bergi brotinn. Anders og Arnthor hafa
náð góðum árangri sem lagahöfundar og upptöku-
stjórar og m.a. komið nálægt tónlist strákasveitarinn-
ar 98° og hins suðræna Ricky Martin. Þá samdi Svala
einnig lag með Jörgen Elofson en hann er t.d. höfundur
nokkurra þekktustu laga Britney Spears og Westlife.
Hlutirnir gerast í Svíþjóð. Svo það er ekki að ástæðu-
lausu að höfuðpaurar evrópska tónlistarsjónvarpsins
MTV völdu verðlaunahátíð sinni stað í Stokkhólmi í ár.
„Sænska tónlistarsenan er sú öflugasta í Evrópu og
við viljum koma því til skila á hátíðinni, segir Brent
Hansen forseti MTV og VHl í Evrópu. „í þættinum
viljum við sýna sænska menningu á jákvæðan hátt.
Við viljum vera þar sem hlutirnir eru að gerast og í
augnablikinu er það Svíþjóð.
Hátíðin er nú haldin í sjöunda sinn og að sögn
Hansen verður hún sú glæsilegasta til þessa.
Global-höllin býður upp á umfangsmikil hátíðar-
höld og verður dagskrá kvöldsins þéttskipuð vin-
sælustu tónlistarmönnum Evrópu í dag. Líkt og
þegar verðlaunahátíð bandarísku útgáfu MTV var
haldin í haust er það rapparinn orðljóti Eminem
sem hlotið hefur flestar tilnefningar, m.a. fyrir
bestu plötu og sem besti karlkyns flytjandi. Meðal
þeirra sem munu skemmta áhorfendum heima og í
Global-höllinni eru Backstreet Boys (sem þekkja
nú Stokkhólm orðið inn og út), Moby, Guano Ap-
es, U2, Spice Girls og Robbie Willams. Kynnir
verður r&b tónlistarmaðurinn Wyclef Jean. Út-
sending byrjar á MTV um kl. 19 að íslenskum
tíma og hátíðin sjálf fer í loftið um kl. 21.
Wyclef Jean verður kynnir á evrópsku MTV
verðlaunahátíðinni sem haldin verður í
Stokkhólmi annað kvöld.
Svala og Selma hafa báðar leitað til
sænskra poppfræðinga.
Spice Girls eru meðal flytjenda á evrópsku
MTV tónlistarhátíðinni.