Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 25
ERLENT
Útför Ingirfðar drottningarmóður fór fram frá dómkirkjunni f Hróarskeldu
100.000 fylgdust með
hinstu för drottningar
Kaupmannahöfn, Hróarskeldu. Morgunblaðið.
AP
Dætur Ingiríðar drottningar. Anne-Marie Grikklandsdrottning, Bene-
dikte prinsessa og Margrét Danadrottning.
AP
Við útförina í dómkirkjunni í Hróarskeldu. Talið frá vinstri eru Karl
Gústaf Svfakonungur og Silvía, drottning hans; Haraldur Noregskon-
ungur og Sonja, drottning hans; Beatrix Hollandsdrottning og Sofia
Spánardrottning.
ALLT að 100.000 manns fylgdust
með því í gær er kistu Ingiríðar
drottningarmóður var ekið um götur
Kaupmannahafnar og Hróarskeldu
þar sem hún var lögð til hinstu hvílu
við hlið eiginmannsins, Friðriks 9.
Útför hennar fór fram frá dómkirkj-
unni í Hróarskeldu í gær að viðstödd-
um fulltrúum allra konungsfjöl-
skyldna Evrópu, forsetum íslands og
Finnlands, sendiherrum erlendra
í-íka, dönskum ráðamönnum og öðr-
um gestum.
Kaupmannahafnai'búar söfnuðust
saman við kirkju Kristjánsborgar-
hallar þegar um morguninn en kl. 11
hófst minningarathöfn um Ingiríði í
kirkjunni. Að henni lokinni var kistu
drottningarmóðurinnar ekið á vagni
sem fjórir hestar fóru fyrir. Var það
óneitanlega tilkomumikil sjón er líf-
varðasveit drottningar, lúðrasveit og
herdeildir úr sjó- og flugher fóru fyr-
ir kistunni. A eftir henni gekk danska
konungsfjölskyldan með Margréti
drottningu , eiginmann hennar Hinr-
ik og Friðrik krónprins í broddi fylk-
ingar. Voru dætur Ingiríðar, Mar-
grét drottning, Benedikta prinsessa
og Anna María, fyrrum drottning
Grikklands, í sorgarklæðum og karl-
mennirnir með sorgarborða.
Útstillingaim breytt
á Strikinu
Gengið var sem leið lá niður aðal-
göngugötu borgarinnar, Strikið, þar
sem nokkrar verslanir höfðu breytt
útstillingum sínumeða hulið þær, yfir
Ráðhústorgið og til Aðaljámbrautar-
stöðvarinnar þar sem eimreið flutti
kistuna til Hróarskeldu.
Þar vai- ekið frá jámbrautarstöð-
inni til dómkirkjunnar, þar sem út-
fórin fór fram. Leiðin frá járnbraut-
arstöðinni í Hróarskeldu og að
kirkjunni var þakin grenigreinum,
fánar blöktu við hún og fjöldi fólks
kastaði rósum sem gefnar vora í tii-
efni atburðarins undir hjól líkvagns-
ins.
Mikill fjöldi fólks varðaði leiðina
sem kistu drottningar var ekið og var
það að ákvörðun Margrétar drottn-
ingar sem vildi að almenningi gæfist
kostur á því að taka þátt í síðustu för
drottningar. Margt eldra fólk laut
höfði er kistunni var ekið hjá á meðan
yngra fólk teygði sig til að sjá betur.
Kirkjuklukkum var hringt um alla
Danmörku í hálfa klukkustund fyrir
og eftir útfórina.
Svipaði til útfarar
eiginmannsins
Gríðarlegur viðbúnaður var í
Kaupmannahöfn og Hróai'skeldu
vegna útfararinnar, um 900 hermenn
og annar eins fjöldi lögreglumanna
gættu þess að allt færi vel fram.
Danskar sjónvarps- og útvarps-
stöðvar vora með beinar útsendingar
nær allan daginn og um 100 erlendir
fréttamenn komu til Danmerkur til
að íylgjast með útförinni enda margt
fyrirfólk mætt til hennar.
Þeirra á meðal má nefna Karl
Bretaprins, Albert Mónakóprins,
Beatrix Hollandsdrottningu og Soff-
íu Spánardrottningu. Þá vora kon-
ungsfjölskyldur Noregs og Svíþjóðar
og forsetar íslands og Finnlands.
Auk forsetans, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, vora Helgi Ágústsson sendi-
herra og Örnólfur Thorsson sem
fylgdi forsetanum.
Sjálf athöfnin stóð í um klukku-
stund. Leikin var tónlist úr 6. sinfón-
íu Tsjaíkovskíjs og prelúdía og fúga í
C-dúr eftir J.S. Bach auk þess sem
sungnir vora danskir sálmar. Lesið
var úr Markúsarguðspjalli, 10,42-45
að ósk drottningar en hún skildi eftir
sig skriflega ósk um hvernig útför-
inni skyldi háttað. Svipaði henni
mjög til útfarar eiginmanns hennar,
Friðriks 9. sem lést árið 1972.
I eftirmælum sagði hirðprófastur-
inn séra Christian Thodberg drottn-
inguna hafa gegnt lykilhlutverki í að
breyta stöðu dönsku konungsfjöl-
skyldunnar og fært hana nær al-
menningi. Thodberg sagði drottning-
una hafa óskað þess að hennar yrði
ekki minnst persónulega og væri það
til marks um lítillæti hennar. Líf
Ingiríðar hefði verið til fyrirmyndar
fyrir aðra og kjörorð hennar verið;
ég get það sem mér er ætlað.
Að athöfn lokinni var kista Ingi-
ríðar borin til hinstu hvílu við hlið
eiginmanns hennar, Friðriks 9., við
dómkirkjuna en alls eru 38 konungar
og drottningar jarðsett þai’.
Skráðu þig á www.netsimi.is
I SIMTOL
TIL UTLMIDA
f \
0 Hringdu í sfma 575 1100
og skráðu símanúmerið þitt.
Opið allan sólarhringinn!
Q Eftir það velur þú 1100
f stað 00 í hvert skfpti sem þú
hringir til útlanda.
Þannig sparar þú stórfé.
Ekkert skráningargjald.
Verð frá
14,90
á mínútu
Minátuverð Bandaríkin Bretland Danmörk Svíþjóð Þýskaland
Netsíminn1 15,90 kr. 14,90 kr. 15,90 kr. 16,90 kr. 16,90 kr.
Íslandssími2 17,90 kr. 17,90 kr. 17,90 kr. 17,90 kr. 17,90 kr.
Halló heimur 17,00 kr. 17,00 kr. 17,00 kr. 17,00 kr. 17,00 kr.
Tal3 19,00 kr. 19,00 kr. 19,00 kr. 19,00 kr. 19,00 kr.
1
2
3
Nánarí upplýsingar um verðskrö Netsímans er að finna á www.netsimi.is.
Sama lága verðið hvort sem hringt er í erlendan farsima eða heimilissima.
Á heimasíðu Íslandssíma stendur að viðbótargjald bætist við ef hringt er í erlendan farsíma.
Á heimasiðu Tals stendur að verðskráin taki mið af mínútuverði í landlínu í viðkomandi landi.
Mínútuverð er hærra ef hringt er i farsima. Símtöl gjaldfærast á 10 sekúndna fresti.
S í M I N N
ENN ODYRARU