Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
David Beckham ræðir um framann og frægðina í bókiimi Minn heimur
ÞÆR
FISKA
SEM RÓA
Beckham í ham með enska landsliðinu.
The girls’ guide to hunting
and fishing eftir Melissu Bank.
274 síðna kilja. Gefin út af
Penguin Books árið 2000.
Fæst í Pennanum-Eymunds-
son og kostar 1.295
krónur.
ÞESSI fyrsta bók höfundar-
ins, Melissu Bank, hefur notið
mikilla vinsælda og komið út í
mörgum löndum. Hún er sett
saman úr fimm smásögum,
sem áður hafa birst í tímarit-
um og við þær hefur hún bætt
tveimur öðrum sögum. Bókin
ber þess þó engin merki að
vera púslað svona saman.
Hér er komin ástarsaga,
sem er þó mjög ólík hinum
dæmigerðu ástarsögum sem
ég las á unglingsárum mínum.
Þær sögur fjölluðu allar um
hinn sígilda ástarþríhyrning,
þar sem lífsreynd og lævís
þokkagyðja reynir að tál-
draga draumaprinsinn, en á
síðustu stundu opnast augu
hans og hann giftist hinni
hjartahreinu og góðu stúlku,
og allt fer vel að lokum eins
og í ævintýrunum.
I „Veiðihandbókinni" er
fjallað um alls konar ást, en
þó aðallega um elskendur.
Sagan er sögð af Jane, sem er
ósköp venjuleg stelpa. Þegar
hún er á unglingsaldri fylgist
hún með bróður sínum og
kærustunni hans og reynir að
ráða í þeirra ástamál. Svo
segir hún okkur frá sínum
eigin ástarsamböndum. Þau
eru hvert öðru ólík eins og
elskhugarnir. En ekkert
þessara sambanda end-
ist og Jane blessunin
og vinkonur hennar
eru orðnar úrkula
vonar um að hún
muni nokkurn tíma
ganga út. En þá
hittir hún hinn
eina rétta. Nú
stendur hún
frammi fyrir
þeirri hræði-
legu staðreynd,
að hún gæti tap-
að honum og það
getur hún alls ekki
hugsað sér og út-
vegar sér því bók,
sem kennir konum að
krækja sér í karl og
koma honum í hnapp-
helduna.
Þetta er einlæg saga
og skemmtilega skrif-
uð. Hún er fyndin og
sorgleg um leið. Hún er
einföld, en samt svo
margslungin, því öll hin
ósögðu orð, á milli lín-
anna og við þankastrik-
in, segja svo margt.
Það er kannski þess
vegna sem mér finnst
þessi bók svona
skemmtileg.
Ingveldur
Róbertsdóttir
ekki með elstu mönnum. Aðeins 25 ára. Eigi
að síður hefur hann skráð æviminningar
sínar og kallar bókina My World eða Minn
heimur. Segir hann þar undan og ofan af lífi
sínu, innan vallar sem utan. Orri Páll
Ormarsson las bókina.
> Heima f faðmi konunnar, Victoriu „Snobb-Krydds“.
VEITINGASTAÐURINN Oxo
Tower, Lundúnum. Ung hjón yfir-
gefa staðinn síðla kvölds eftir máls-
verð. Skyndilega skjótast tveir ljós-
myndarar út úr myrkrinu. Mynda
sem þeir eigi lífið að leysa. Annar
rekst utan í ungu konuna. Bóndi
hennar reiðist. Meðan hann les hin-
um óboðna gesti pistilinn myndar
hinn í gríð og erg. Ungi maðurinn
getur ekki unnið. Ljósmyndarar gulu
pressunnar í Bretlandi fá alltaf sínu
framgengt.
Ungu hjónin eru knattspymumað-
urinn David Beckham hjá Manchest-
er United og kona hans, Victoria, úr
poppsveitinni Kryddpíunum. Svona
er þeirra líf. A opinberum vettvangi
geta þau hvergi um frjálst höfuð
strokið, allt sem þau segja og allt
sem þau gera er skráð, ýmist fært í
letur eða mynd. Til að öðlast stund-
arfrið verða þau að læsa dyrum og
draga fyrir glugga. Þau eru fangar
eigin frægðar.
Það er athyglisvert að kynnast því
hvemig Beckham upplifir frægðina.
Hann dregur ekkert undan í bók
sinni, Minn heimur. Hér er um ein-
staka skýrslugerð að ræða því knatt-
spymuheimurinn þekkir enga hlið-
stæðu, hvorki fyrr né síðar. George
Best og Kevin Keegan nutu lýðhylli
en þá voru aðrir tímar. Það er einna
helst að Paul Gascoigne komist í
hálfkvisti við Beckham en eftir að
hann grét og gnísti tönnum á heims-
meistaramótinu á Ítalíu 1990 stóð
hann um tíma kóngaslegtinu næstur
i að frægð og vinsældum í Bretlandi. í
A þeim spomm er Beckham nú. Sumir
hafa meira að segja gengið svo langt
> að fullyrða að þau Victoria hafi fyllt
upp í tómarúmið sem myndaðist við
andlát lafði Díönu um árið.
Beckham tekur þetta allt á brjóst-
ið. Þegar öllu er á botninn hvolft hef-
ur draumur hans ræst - að verða
einn besti knattspyrnumaður í heimi.
Og fótafimi fylgir frægð. Beckham
vill því engu breyta. Viðurkennir
meira að segja að þrífast að vissu
marki á athyglinni, einkum á vellin-
um. En þær stundir koma að hann
þráir nafnleysið, að geta gengið óá-
reittur um götur.
David Beckham er ekki jafn ein-
kennilegur maður og Eric Cantona.
Hann er ekki eins geggjaður og Paul
Gascoigne og hefur sopið færri fjörur
en Tony Adams. Hann er satt best að
segja ósköp venjulegur ungur maður
- og dregur hvergi dul á það í bók
sinni. Hann er feiminn að upplagi -
skalf á beinunum þegar hann kom i
fyrsta sinn til móts við enska lands-
liðið og þegar hann hitti Kryddpíurn-
ar fyrst með spúsu sinni. Beckham er
líka metnaðargjarn. Veit að frami
hans byggist á hæfni en lykillinn að
árangri er einfaldur - vinna og aftur
vinna. Hann er á allan hátt fyrir-
myndarfagmaður. Beckham hefur
trú á hæfileikum sínum en gerir sig
hvergi sekan um hroka í bókinni.
Knattspyma er vitaskuld miðlæg
enda er það á þeim vettvangi sem
Beckham kýs að vera dæmdur. Hann
talar af lotningu um lið sitt, Man-
chester United, sem hann hefur
haldið með frá blautu bamsbeini og
hinn sterka liðsanda sem lagt hefur
gmnninn að glæstum sigmm félags-
ins á undanfömum ámm.
Beckham ratar hinn gullna meðal-
veg þegar hann talar um samskipti
sín við Sir Alex Ferguson knatt-
spymustjóra United. Hann viður-
kennir að þeir séu ekki alltaf á sama
máli en lítur á Sir Alex sem banda-
mann, ekki síst þegar blæs á móti, þó
ekki drekki þeir saman te á sunnu-
dögum. Beckham ber Kevin Keegan,
fyrrverandi landsliðseinvaldi Eng-
lands, einnigvel söguna. Ræðir að
vísu lítið um hæfni hans sem þjálfara
en lýsir honum sem vönduðum
manni. Forvera Keegans, Glenn
Hoddle, finnur leikmaðurinn hins
vegar flest til foráttu. Hann hafi
margoft bmgðist trausti leikmanna.
Beckham rifjar upp brottrekstur-
inn umdeilda
gegn Argentínu
á HM ’98 og erf-
iðleikana sem
komu í kjölfarið.
Ótrúlegur aur
slettist yfir
hann. í langan
tíma hefur hann
mátt þola sví-
virðingar fólks
sem á bágt með
aðþolavel-
gengni hans.
Hún er aum, öf-
undin. Beckham
sér þess þó
merki að versta
hrotan sé að
baki
Knattspyrnu-
manninum er
tíðrættum
kvenlegt eðli sitt
í bókinni - sem
hann viðurkenn-
ir fuslega að sé
ríkjandi. Hann hefur yndi af elda-
mennsku, er mikill snyrtipinni - á
fleiri föt en Victoria - tárast yfir
kvikmyndum og drekkur kampavín
fremur en bjór. Játar
raunar að vera hænu-
haus hinn mesti.
Hann er á allan
hátt réttsýnn og
nútúnalegur í
hugsun, trúir á
jafnrétti kynjanna
en blæs á þær
sögusagnir að
Victoria sé húsbóndinn
á heimilinu. Beckham hef-
ur ímugust á kynþáttafor-
dómum og líður vel í návist
samkynhneigðra. í hópi bestu
vina þeirra hjóna eru poppgoð
ið Elton John og hans maður.
Beckham fjallar ítarlega
um samband sitt við Victor-
iu, sem hann elskar og dáir,
og son þeirra, Brooklyn. Mál
hans er innilegt.
Beckham við ræktun
holds og anda.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þegar Beckham áritaði bók sína á dögunum á fjórðu
hæð bókaverslunnar í Englandi myndaðist biðröð
alla leið út á götu.
Margt er sagt um David Beckham
- í ræðu og riti. Mest stælt og logið.
Minn heimur er öðrum þræði við-
leitni geðugs manns til að veija
hendur sínar - segja söguna frá eig-
in bijósti. Næsta skref er að
koma á fót heimasíðu á Netinu,
þar sem hann getur talað
milliliðalaust til aðdáenda
sinna. Ráðist til atlögu við
orðróminn. Gangi hon-
um vel!
David
Freeman
í fjötrum
frægöar
Knattspyrnukappinn David Beckham er