Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
J-------------------------------
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Atli Björn Gústafsson og Lovísa Ósk Ragnarsdóttir, Gull-
toppi, í flokki unglinga I-II12-15 ára A.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Karen og Adam sýndu standard-dansa við mikla hrifn-
ingu áhorfenda.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Yngsta kynslóðin sýndi Súperman-dansatriði og áhuginn
leyndi sér ekki.
Evrópumeistar-
arnir slógu í gegn
DANS
Hanshátííi
J 6 n s !• 6 t u r s o g K ö r u
LAUGARDALSHÖLL
í REYKJAVÍK
Sunnudagur 12. nóvcmber
DANSHÁTÍÐIN í Laugardalshöll á sunnu-
dag verður dansinum á íslandi örugglega
mikil lyftistöng. Hápunktur sýningarinnar
var dans fínnsku Evrópumeistaranna í suð-
ur-amerískum dönsum. Þeim var óspart
fagnað, reyndar svo mjög að þakið virtist
ætla að rifna af Höllinni.
Á síðasta ári var haldin mikil danshátíð, í
tilefni þess að Dansskóli Jóns Péturs og
Köru var á sínu 10. starfsári. Þessi hátíð
heppnaðist vel og var glæsileg í alla staði,
hvergi var til sparað. Hápunktur hátíðarinn-
ar þá var danssýning Markúsar og Karenar
Hilton, margfaldra heimsmeista í sígildum
samkvæmisdönsum. Pars sem nánast allir
dansarar horfa upp til og hafa sem fyrir-
mynd.
Aðspurð hvers vegna skólinn hafi ákveðið
að endurtaka leikinn nú, svaraði Kara því að
áhorf á keppnina og áhugi hafi farið fram úr
björtustu vonum manna og margir hafi jafn-
framt hvatt þau til að láta ekki deigan síga
og standa fyrir annarri slíkri hátíð. Ég tel
það vera fagnaðarefni að efnt skuli til hátíðar
á ný með engu minni glæsibrag en í fyrra.
Dans eins og hann gerist bestur
Danshátíð Dansskóla Jóns Péturs og Köru
fór fram sunnudaginn 12. nóvember sl. í
Laugardalshöllinni í Reykjavík. Var Höllin
þéttskipuð áhorfendum sem nutu þess að
horfa á dans eins og hann gerist beztur.
Boðið var upp á danskeppni í öllum al-
dursflokkum, frá 9 ára og yngri upp í flokk
35 ára og eldri og voru keppendur vel á
þriðja hundraðið. Flest af sterkustu pörum
okkar íslendinga tóku þátt í keppninni, sem
var hörð og spennandi í flestum ald-
ursflokkum.
Einnig var boðið upp á fjölbreytt
skemmtiatriði og var þar á meðal sýning
barna og unglinga frá öllum dansskólum á
höfuðborgarsvæðinu á dansinum Súperman
og La Luna. Það var gaman að sjá svona
margt ungt og efnilegt dansáhugafólk stíga á
stokk og sýna listir sínar. Eins var mjög vel
æft, skemmtilegt og áhrifaríkt atriði frá
Jazzballetskóla Báru, sem Irma Gunnars-
dóttir samdi.
Ekki má gleyma þætti Adams og Karenar
Björgvinsdóttur. Þau eru eina íslenzka parið
sem keppir í flokki atvinnumanna og hafa
þau verið að gera garðinn frægan á erlendri
grundu, t.d. með þátttöku í hinni vinsælu og
fjölsóttu sýningu „Burn the Floor“. Ég hafði
ekki séð þau dansa mjög lengi og fannst
spennandi að fá sjá þau á gólfinu núna. Parið
brást svo sannarlega ekki vonum mínum,
sýningin var einstaklega skemmtileg og vel
útfærð.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Isak Halldórsson Nguyen og Helga Dögg
Helgadóttir, Hvönn, í flokki áhuga-
manna 16-34 ára F.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ásgrímur Geir Logason og Bryndís Mar-
fa Björnsdóttir, Gulltoppi, í flokki 12-13
áraF.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríks-
dóttir, Gulltoppi, í flokki áhugamanna
16-34 áraF.
Rúsínan í pylsuendanum og lokaatriði há-
tíðarinnar var sýning Jukka Happalainen og
Sirpa Suutari frá Finnlandi, Evrópumeistar-
anna í suður-amerískum dönsum, sýning
sem ég hefði ekki vilja missa af fyrir nokk-
urn mun. Ég hef aldrei séð suður-ameríska
dansa dansaða af slíkri innlifun og glæsileik.
Frábært atriði og óhætt að segja að þau hafi
slegið í gegn í Höllinni, því þakið ætlaði að
rifna af við fagnaðarlætin.
Keppnin gekk mjög vel að öllu leyti og
stóðu keppendur sig með stakri prýði og var
sérlega gaman að sjá áhuga og einbeitingu
keppenda á gólfinu. Keppnir sem þessar eru
líka gott veganesti til framtíðar fyrir unga og
efnilega nemendur, en reynslan skiptir ákaf-
lega miklu máli, þegar kemur að stórkeppn-
Morgunblaðið/Jón Svavarason
Jukka Haapalainen og Sirpa Suutari
Evrópumeistarar.
um. íslendingar eru farnir að ryðja sér veru-
lega til rúms í dansheiminum. Skemmst er
að minnast þess að ísak Nguyen og Helga
Dögg Helgadóttir unnu til Norðurlandatitils
í Espoo í Finnlandi nýlega, svo og Jónatan
Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir, sem
unnu einnig sinn flokk í Finnlandi.
Danshátíð sem þessi er mikil lyftistöng
fyrir dansíþróttina á Islandi og ástæða er til
að óska Dansskóla Jóns Péturs og Köru til
hamingju með frábært framtak.
Úrslit
Böm I, A/D-riðill. Cha, cha, cha
1. Alex F. Gunnarss/Vala B. Birgisd. DSH
2. Sævar Þ. Sigfúss/Ragna B. Bemburg DJK/GT
3. Guðmundur F: Böðvarss/Yrsa P. Ingólfsd. DSM/
DÍH
4. Davíð Ö. Pálss/Elísabet Jónsd. DSH
5. Sigurður M. Atlas/Sara Jakobsd. DSM/KV
Börn II, A-riðill. Cha, cha, cha, jive
1. Stefán Víglundss/Andrea R. Sigurðard. DHÁ/Ýr
2. Valdimar Kristjánss./Rakel Guðmundsd/HV
3. Jón E. Gottskálkss/Elín H. Jónsd. DSM/KV
4. Alexander Mateev/Olga E. Þórarinsd. DJK/GT
5. Ingimar F. Marinóss/Alexandra Johansen DJK/GT
Böm II, D-riðill. Cha, cha, cha, jive
1. Edda B. Jónsd/Helga Haraldsd. DJK/GT
2. Anna G. Ingad/Sandra R. Vignisd. DJK/GT
2. Álfrún E. Hallsd/Hrönn Hafliðad. DJK/GT
4. Ólöf K. Helgad/Jóhanna A. Amórsd. DHÁ/Yr
5. Bryndís J. Hamilton/íris D. Andrésd. DJK/GT
6. Hrund Ólafsd/Rut Kristjánsd. DJK/GT
Unglingar I+II A-riðill. Cha, cha, cha, jive
1. Andri B. Róbertss/Inga H. Ólafsd. DJK/GT
2. Theodór Kjartanss/Thelma D. Ægisd. DHÁ/Ýr
3. Atli B. Gústafss/Lovísa Ó. Ragnarsd. DJK/GT
4. Marinó Sigurðss/Berta Gunnarsd/HV
5. Erlingur Einarss/Gerður H. Arinbjamard. DJK/
GT
5. Steinar Ólafss/Ragnheiður Ámad. DHÁ/Ýr
Unglingar I+II, D-riðill. Cha, cha, cha, jive
1. Gunnhildur H. Steinþórsd/Hildigunnur Steinþórsd.
DJK/GT
2. Steinunn Reynisd/Aðalheiður Svavarsd. DHÁ/Yr
3. Anita T. Helgad/Ama S. Ásgeirsd. DHÁ/Ýr
FuUorðnir I+n, A-riðilI. Cha, cha, cha, jive
1. Pétur Bauer/Sædís Halldórsd. DJK/GT
2. Sveinbjöm Hjálmarss/Sóley H. Árnad. DJK/GT
3. Karl Skarphéðinss/Kristín Harðard. DJK/GT
4. Þorvaldur Þórss/Ástdís Sveinsd. DJK/GT
5. Sigurður Erlingss/Ingibjörg Sigurþórsd. DJK/GT
Ungmenni, D-riðUl. Cha, cha, cha, jive
1. Snjólaug Gunnarsd/Sunna K Ingvad. DJK/GT
Börn I, K-riðilI, sígildir samkv.
1. Jökull Öriygss/Denise M. Hannesd. DSM/KV
Börn II, K-riðUI. Latin
1. Haukur F. Hafsteinss/Hanna R. Ólad. HV
2. Bjöm I. Pálss/Ásta B. Magnúsd. DSM/KV
3. Eyþór S. Þorbjömss/Ásrún Ágústsd. HV
4. Jakob Þ. Grétarss/Anna B. Guðjónsd. HV
5. Aðalsteinn Kjartanss/Erla B. Kristjánsd. DSM/KV
6. Fannar H. Rúnarss/Edda G. Gíslad. HV
Unglingar I, F-riðUI. Suður-amerískir
1. Jónatan A. Örlygss/Hólmfríður Bjömsd. DJK/GT
2. Þorleifur Einarss/Ásta Bjamad. DJK/GT
3. Friðrik Ámas/Sandra J. Bemburg DJK/GT
4. Baldur K. Eyjólfss/Ema Halldórsd. DJK/GT
5. Ásgrímur G. Logas/Bryndís M. Bjömsd. DJK/GT
6. Stefán Claessen/María Carrasco DJK/GT
Unglingar I, F-riðUl. SígUdir samkv.
1. Jónatan A. Öriygss/Hólmfríður Bjömsd. DJK/GT
2. Friðrik Ámas/Sandra J. Bemburg DJK/GT
3. Þorleifur Einarss/Ásta Bjamad. DJK/GT
4. Baldur K. Eyjólfss/Ema Halldórsd. DJK/GT
5. Ásgrímur G. Logas/Bryndís M. Bjömsd. DJK/GT
6. Stefán Claessen/María Carrasco DJK/GT
Unglingar II, F-riðUl. Suður-amerískir
1. Sigurður R. Amarss/Sandra Espersen/HV
2. Agnar Sigurðss/Elín D. Einarsd. DSM/KV
3. Davíð M. Steinarss/Sóley Emilsd. DJK/GT
Unglingar II, F-riðUl. Sígildir samkv.
1. Davíð G. Jónss/Helga Bjömsd. DJK/HV
2. Agnar Sigurðss/Elín D. Einarsd. DSM/KV
3. Sigurður R. Arnarss/Sandra Espersen HV
4. Davíð M. Steinarss/Sóley Emilsd. DJK/GT
5. Bjöm V. Magnúss/Björg Halldórsd. DSM/KV
Áhugamenn, F-riðUl. SígUdir samkv.
1. ísak H. Nguyen/Helga D. Helgad. /HV
2. Hilmir Jenss/Ragnheiður Eiríksd. DJK/GT
3. Hannes Þ. Egilss/Sigrún Ýr Magnúsd. DJK/GT
Fullorðnir. Suður-amerískir
1. Bjöm Sveinss/Bergþóra M. Bergþórsd. DJK/GT
2. Ólafur Ólafss/Hlíf Þórarinsd. DJK/GT
3. Eggert Claessen/Sigrún Kjartansd. DJK/GT
4. Jón Eiríkss/Ragnhildur Sandholt DJK/GT
Fullorðnir. SígUdir samkv.
1. Bjöm Sveinss/Bergþóra M. Bergþórsd. DJK/GT
2. Jón Eiríkss/Ragnhildur Sandholt DJK/GT
Jóhann Gunnar Arnarsson