Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 39
' MMíUNHLADII)
LISTIR
MIÖVtKtJÖÁGfJR 1S! NÓVE'MBER 2000 39
i
• ÚT er komin ljóðabókin Vor-
flauta eftir Agústínu Jónsdóttur.
í fréttatilkynningu segir: „Skörp
myndgáfa og
myndvísi ein-
kenna ljóð Ágúst-
ínu sem leitast við
að fanga horfin
augnablik og
kenndir í meitl-
uðu ljóðmáli. Ást-
ir, söknuður,
íhugun og
sjálfrýni, allt eru
þetta mikilsverðir
þættir í fágaðri Ijóðlist hennar.
Þetta er fimmta ljóðabók Ágústínu,
en fyrsta bók hennar, Að baki mán-
ans, kom út árið 1994.“
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 87 blaðsíður, unniní
Prentsmiðjunni Odda hf. Höfundur
hannaði kápuna. Leiðbeinandi verð:
3.490 krónur.
• ÚT er komið afmælisritið Saga
Kaupmannasamtaka Islands í tilefni
50 ára afmælis samtakanna nú í nóv-
ember. Höfundur
og ritstjóri er
Lýður Björnsson
sagnfræðingur
sem skrifað hefur
bókina í samvinnu
við sögunefiid
Kaupmannasam-
takanna.
í fréttatilkynn-
ingu segir:
„Hálfrar aldar
saga samtakanna endurspeglar sögu
byltinga og breytinga í íslensku sam-
félagi. Við stofnun Kaupmannasam-
takanna skorti vörur á Islandi og
þær voru skammtaðar. Alls kyns
höft og bönn í innflutningi og verð-
lagningu settu mark sitt á þjóðfélag-
ið. Kaupmannasamtök Islands hafa
alla tíð barist fyrir frelsi á þessum
sviðum og saga samtakanna sýnir að
þau hafa haft sigur í mörgum helstu
baráttumálum sínum. Óendanlegt
vöruframboð og frjáls opnunartími
verslana er árangur áratuga baráttu
kaupmanna - átaka við öfluga and-
stæðinga úti í samfélaginu, ríkisvald
og hagsmunasamtök ýmiss konar en
einnig deilna og opinnar umræðu
innan eigin raða.
I bókinni rekur Lýður Bjömsson
þessa sögu sem er í senn áhugaverð,
spennandi og fróðleg. Greint er frá
sögu Kaupmannasamtakanna, fyrir-
rennara þeirra og aðildarfélaga um
allt land. Fylgt er þróuninni frá
kaupmanninum á hominu til kjör-
búðanna, stórmarkaðanna og versl-
unarkeðjanna. Um 300 myndir,
gamlar og nýjar, prýða bókina.
Saga Kaupmannasamtaka íslands
er fyrsta bókin í ritröðinni Kaup-
menn og verslun á íslandi þar sem
greint verður frá ævi allra kaup-
manna á íslandi frá árinu 1855.“
Útgefandi er bókaútgáfan Sögu-
steinn. Bókin er279 bls., prentuð í
Félagsbókbandinu-Bókfelli ehf.
Leiðbeinandi verð: 15.450 krónur.
Lýður
Björnsson.
Ágústína
Jónsdóttir
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Ógnaröfl -
2. hluti, bók 1 eftir Chris Wood-
ing í þýðingu Guðna Kolbeinsson-
ar.
I fréttatilkynningu segir: „Ógn-
aröfl er bókaflokkur um mögnuð
ævintýri, ástir og svik. í fyrri
hluta bókaflokksins sem kom út á
sl. ári gerðu dáðrekkar sitt besta
en ekki dugði það gegn ógnaröfl-
unum. Makan konungur sigraði en
var það að fullu og öllu? Nú safna
dáðrekkar liði á ný því það er enn
meiri ástæða fyrir baráttu þeirra
en nokkru sinni fyrr. Barátta
Röskva, Kíu og vina þeirra heldur
áfram og lesendur munu ekki
verða fyrir vonbrigðum. Guðni
Kolbeinsson hlaut barnabókaverð-
laun Reykjavíkur fyrir þýðingu
sína á 1. hluta Ógnarafla.“
Útgefandi er Æskan ehf. Bókin
er 176 bls., prentuð og bundin í
prentsmiðjunni Odda hf. Verð:
1.690 krónur.
• ÚT er komin skáldsagan Ör-
eindirnar eftir franska rithöfund-
inn Michel Houellebecq.
í fréttatilkynningu segir: „Á síð-
ari hluta tuttugustu aldar búa í
Frakklandi tveir hálfbræður,
Michel og Bruno. Þeir hafa alist
upp hvor í sínu lagi hjá ættingjum
og á stofnunum því foreldrarnir
voru uppteknir við að breyta
heiminum og boða frjálsar ástir.
Michel er afburða erfðavísinda-
maður, en Bruno er menntaskóla-
kennari sem lifir hamslausu og ör-
væntingarfullu kynlífi. Dag einn
tekur Michel sér leyfi frá störfum
til að hugsa. Það verður til þess að
framþróun mannkyns tekur nýja
og óvænta stefnu.
Öreindirnar er ein berorðasta
og magnaðasta skáldsaga síðari
ára. I henni er á nýjan hátt teflt
saman vísindum, sögu tuttugustu
aldar, kynlífi, líkamsdýrkun, vís-
indahyggju og heimspeki uns eftir
stendur einstök mynd af lokaskeiði
vestrænnar menningar. Fáar sög-
ur hafa vakið jafn miklar deilur og
umtal á seinni árum, jafnt í heima-
landi höfundar, Frakklandi, sem
öðrum Evrópulöndum. Hún sló í
gegn í Frakklandi þegar hún kom
út haustið 1998 og vermdi efstu
sæti metsölulista mánuðum saman.
Michel Houellebecq (f. 1958) er
landbúnaðarverkfræðingur að
mennt en starfaði um árabil í
tölvudeild franska landbúnaðar-
ráðuneytisins og síðan hjá franska
þinginu, en hann hefur alfarið
helgað sig ritstörfum undanfarin
ár. Hann hefur sent frá sér ljóða-
bækur, geisladiska með ljóðalestri,
ritgerðasöfn og þrjár skáldsögur.
Hann hefur hlotið margvísleg
verðlaun og viðurkenningar fyrir
þessa skáldsögu og hún hefur ver-
ið þýdd á hartnær þrjátíu tungu-
mál.
Nánari upplýsingar um höfund-
inn og verk hans er að finna á eft-
irfarandi vefslóð (franska og
enska): http://houellebecq.multi-
mania.com.“
Útgefandi er Mál og menning.
Friðrik Rafnsson þýddi.
Oreindirnar er 324 bls., unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna
gerði Robert Guillemette. Verð:
4.290 krónur.
• ÚT er komin bókin Undir berum
himni - ævintýri nálfanna eftir
Terry Pratchett. í þýðingu Þorgerð-
ar Jörundsdóttur.
I fréttatilkynningu segir: „Þar
segir frá þúsundum örsmári’a nálfa
sem eftir að hafa hrakist frá heim-
kynnum sínum í stórverslún A. Am-
alds búa um sig í yfirgefinni námu.
En þá kemur mannfólkið til sögunn-
ar sem virðist alltaf fá sínu fram-
gengt þótt það sé bæði heimskt og
klunnalegt. Aftur þurfa nálfamir að
færa sig um set og í þetta sinn býsna
langt.
Terry Pratchett er einn vinsælasti
höfundur heims um þessar mundir
og þekktur fyrir hugmyndaríkar og
spennandi bækur fyrir bæði böm og
fullorðna. Undir bemm himni er önn-
ur bók hans um nálfana en þær hafa
notið gífurlegrar hylli lesenda víða
um heim. Fyrri bókin, Ævintýri nálf-
anna - Flóttinn, hefur verið ófáanleg
um skeið en er nú endurútgefin. “
Mál og menning gefur bækumar
um nálfana út og prentarí Svíþjóð.
Þær eru hvor um sig um 150 bls. og
leiðbeinandi verð er 1.990 krónur
fyrir hvora bók.
• ÚT er komin bókin Veröldin
okkar eftir Angelu Wilkes í þýðingu
Árna Árnasonar, Guðna Kolbein-
sonarog Sigrúnar Á. Eiríksdóttur.
I fréttatilkynningu segir: „Þessi
bók var fyrst gefin út á sl. ári hjá
Kingfisher í Bretlandi en kemur nú
samtímis út í mörgum löndum. Ver-
öldin okkar er fjölfræðibók handa
ungum lesendum. Málefni era gædd
lífi með töfrandi myndefni og text-
inn settur fram á stuttu máli og
hnitmiðaðra en sést hefur í útgáfum
sem ætlaðar era ungum lesendum.
Skýrt og lifandi lesmál, skýr efn-
isröðun auðveldar notkun bókarinn-
ar og í henni era yfir 800 litmvndir.
Einnig er í bókinni fjöldi einfaldra
verkefna sem hvetja lesendur til
þátttöku. Þessi glæsilega bók er
verk verðlaunahöfundar og fæst á
óvenju hagstæðum kjöram vegna 70
ára afmælis bókaútgáfu Æskunnar."
Útgefandi erÆskan ehf. Bókin er
320 bls., prentuð og bundin í Kína.
Verð: 3.480 krónur.
Fullkomið
kerfi með
heildarlausn
fyrif
lagerrymið ,
AUÐBREKKU 1 200 KOPAVOGI
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
| www.straumur.is |
*\
Bónus
fyrir
korthafa
Nú getur þú greitt með EUR0CARD og
MasterCard greiðslukortum i Bónus!
www.mbl.is
Árshátíð
Vegna árshátíðar starfsfólks
Merkúrs hf. verður
fyrirtækið einungis með
neyðarþjónustu dagana
16. og 17. nóvember.
Við biðjum viðskiptavini
okkar velvirðingar á
þessu uppátæki okkar.
Sími 568 1044
AUKIN ÞJÓNUSTA
við eigendun Daewoo, Musso og Konando
Til viðbótar þjónustuverkstæði okkar í Reykjavík og þjónustuumboða um land allt hafa
2 bílaverkstæði á Stór-Reykjavíkursvæðinu tekið að sér þjónustu við eigendur
Daewoo-fólksbíla og SsangYong-jeppa (Musso og Korando).
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs Bflherji ehf.
Gylfaflöt 12 Bæjarhrauni 6
112 Reykjavfk 220 Hafnarfirði
www. b e n n i. i s
Vagnhöfða23 • HOReykjavík • Sími 587-0-587
■HHnm