Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson flytur Alþingi skýrslu sína um utanríkismál
Þáttur Islands í friðar-
gæslu verður stóraukinn
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
greindi Alþingi frá því í gær að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að efla mjög þátttöku Islands í
alþjóðlegri friðargæslu.
Morgunblaðið/Porkell
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í ræðustól á Alþingi þar sem
hann flutti skýrslu sína um utanríkismál.
ALÞINGI
STEFNT er að því að á næstu
tveimur til þremur árum starfí um
25 íslendingar við alþjóðlega frið-
argæslu en að með aukinni þátt-
töku og reynslu geti sú tala farið
upp í allt að 50 manns.
Utanríkisráðherra flutti Alþingi
í gær skýrslu sína um utanríkis-
mál. Hann sagði að ríkisstjórnin
hefði í sumar ákveðið að setja á fót
starfshóp fjögurra ráðuneyta til að
móta tillögur um að efla þátttöku í
friðargæslu. Hópurinn skilaði til-
lögum sínum í október og sagði
Halldór að ríkisstjórnin hefði nú
fjallað um þær og komist að fyrr-
greindri niðurstöðu. Sagði hann að
til greina kæmi fólk úr ýmsum
starfsstéttum, þ.á m. lögreglu-
menn, verkfræðingar, læknar og
hjúkrunarfræðingar, lögfræðingar,
stjórnendur og tæknimenntað
starfslið.
„Undir heitinu íslenska friðar-
gæslan verður komið upp lista eða
skrá yfír allt að 100 manns sem
eru tilbúnir til að fara til friðar-
gæslustarfa með stuttum fyrir-
vara. Islenska friðargæslan verður
undir stjórn alþjóðaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins sem mun sjá
um ráðningu, undirbúning og
þjálfun starfsfólks og almenna um-
sjón með starfseminni,“ sagði
Halldór.
Tók hann fram að hér væri ekki
verið að fara inn á nýjar brautir
enda hefðu alls 50 manns starfað
að friðargæslu á vegum íslands í
Bosníu og Kosovo frá 1994.
Reynslan af þessu starfi hefði ver-
ið góð og íslendingarnir staðið sig
með sóma.
Sjónarmiðum EES-ríkjanna
komið betur á framfæri
Ráðherrann reifaði helstu atriði
utanríkismálanna í ræðu sinni í
gær. M.a. ræddi hann framkvæmd
samningsins um evrópska efna-
hagssvæðið en allmargar athuga-
semdir hafa borist frá eftirlits-
stofnuninni ESA þar að lútandi.
Sagði Halldór að nú hefði verið
gerð áætlun um að ráða bót á því
fyrir lok næsta árs hversu margar
gerðir liggja fyrir sem ekki hafa
verið þýddar á íslensku og birtar.
„Þó að EES-samningurinn sé
traustur grunnur og þess hafi ekki
orðið vart að Evrópusambandið
víki sér undan samningsskuldbind-
ingum telja EFTA-ríkin að samn-
inginn megi nota á markvissari
hátt til að tryggja samræmi á
svæðinu og koma sjónarmiðum
EFTA/EES-ríkjanna betur á
framfæri,“ sagði Halldór. Hefur
verið unnið að því að tryggja dreif-
ingu sjónarmiða og álitsgerða
EFTA-ríkja innan stjórnkerfis
ESB, að því er fram kom í máli
hans. Sagði hann ennfremur að
áfram yrði kappkostað að fylgjast
sem best með þróun ESB og áhrif-
um þeirra breytinga á stöðu ís-
lands.
Halldór gerði evrópsk öryggis-
og varnarmál einnig að umtalsefni
og sagði m.a. að þess hefði verið
farið á leit að ESB skýrði betur en
gert hefði verið að hve miklu leyti
það hyggst í þeim efnum taka tillit
til evrópsku NATO-ríkjanna sem
ekki eru í ESB. Kom einnig fram í
máli hans að í dómsmálaráðuneyt-
inu væri nú unnið að gerð frum-
varps til laga um framkvæmd
Rómarsamþykktarinnar um AI-
þjóðlega sakadómstólinn og að það
yrði lagt fram á yfirstandandi
þingi.
íslendingar vilja framlengja
bókun við varnarsamning
Fjölmargir þingmenn tóku til
máls við umræðuna í gær og var
m.a. rætt um aðild Islands að
mannúðarmálum, um viðskipta-
bann Sameinuðu þjóðanna á Irak
Fá fjarvinnslu-
verkefni verið
flutt ut á land
TILTÖLULEGA fá fjarvinnslu-
verkefni á vegum ráðuneyta,
stofnana og fyrirtækja í ríkis-
eigu hafa enn sem komið er ver-
ið flutt til landsbyggðarinnar.
Þau fjarvinnsluverkefni sem
færð hafa verið til landsbyggð-
arinnar eru einkum byggð á
flutningi verkefna innan eða á
milli opinberra stofnana, frá
höfuðborgarsvæði til lands-
byggðar.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari forsætisráðherra við fyr-
irspurn Kristjáns L. Möller,
Samfylkingu. Segir þar að til-
flutningur verkefna hafi orðið
minni en væntingar margra
stóðu til og m.a. hafi skýrsla,
sem unnin var á vegum Iðn-
tæknistofnunar í fyrra, getið af
sér meiri væntingar en raun-
sætt þyki. Flutningur fjar-
vinnsluverkefna sé alls ekki
einfaldur en þar sé þó tvímæla-
laust um valkost að ræða sem
hið opinbera geti nýtt sér í því
markmiði að draga úr eigin
umsvifum og auka sveigjan-
leika í opinberri starfsemi.
Kemur fram í svarinu að iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra muni
leggja fyrir Alþingi á yfirstand-
andi þingi skýrslu um fram-
kvæmd ályktunar Alþingis um
byggðastefnu fyrir árin 1999-
2001 og að þess sé að vænta að
fjallað verði um flutning fjar-
vinnsluverkefna til landsbyggð-
arinnar í henni.
og um Norðurlandasamstarfið.
Sighvatur Björgvinsson, Samfylk-
ingu, gerði Evrópumálin hins veg-
ar að sérstöku umtalsefni en hann
sagði athyglisvert að utanríkisráð-
herra skyldi í skýrslu sinni engu
bæta við í þeim efnum, jafnvel þó
að það hefði t.d. verið að gerast að
alþjóðanefnd Alþýðusambands ís-
lands væri að móta tillögur þar að
lútandi.
Itrekaði Sighvatur mikilvægi
þess að ráðist yrði í umræðu um
kosti og galla aðildar að ESB og
að stjórnmálaflokkar mótuðu af-
stöðu í þeim efnum. Spurði hann
síðan hvort ráðherra teldi ekki
tímabært að endurreist yrði sú
Evrópustefnunefnd, sem starfrækt
var á vettvangi Alþingis í tengsl-
um við aðild að EES-samningnum
upp úr 1990. Ennfremur spurði
hann um tillögu ríkisstjórnarinnar
vegna viðræðna við Bandaríkja-
menn um bókun við varnarsamn-
ing landanna.
Halldór svaraði því til að það
væri Alþingis að taka ákvörðun
um endurreisn fyrrgreindrar
nefndar. Kom einnig fram að hann
færi á fund utanríkismálanefndar
Alþingis í dag þar sem rætt yrði
um Evrópumál. Sagði hann loks að
viðræður um bókun við varnar-
samninginn væru ekki hafnar og
að Islendingar hefðu ekki enn far-
ið fram á þær. Ljóst væri hins
vegar að við vildum framlengja
samninginn.
Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður ut-
anríkismálanefndar, fagnaði
áformum um aukna þátttöku ís-
lendinga í friðargæslu. Sagði hann
hér um að ræða það framlag sem
hentaði okkur best. „Aukin þátt-
taka íslands í friðargæslu mun
styrkja stöðu okkar innan NATO
°g Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu og efla tengsl okkar við
Evrópuríkin. Hér er því um að
ræða mjög mikilvæga ákvörðun
sem ástæðulaust er að gera lítið
úr,“ sagði Tómas Ingi.
Rangt að samstaða ríki um
alla þætti utanríkisstefnunnar
Steingrímur J. Sigfússon,
Vinstri-grænum, gerði athuga-
semd við það mat ráðherra að al-
ger samstaða ríkti hér á landi um
grundvallarþætti utanríkismál-
anna, s.s. aðildina að NATO og
veru erlends herliðs á Islandi.
Þetta stæðist enga skoðun.
Steingrímur taldi hins vegar
merkilegt að hér skyldi ekki hafa
verið gerð skoðanakönnun síðan á
níunda áratugnum um afstöðu
fólks til NATO-aðildar og veru
varnarliðsins í Keflavík. Sagði
hann sannarlega enga sátt ríkja
um þau mál.
Hann taldi ennfremur að ráða
mætti af svari ráðherra vegna fyr-
irspurnar um bókunina við varnar-
samninginn að íslensk stjórnvöld
vildu með engu móti ýfa málin,
enda vissu þau sem væri að
Bandaríkjamenn vildu sjálfir
minnka umsvif sín hér á landi.
Sverrir Hermannsson, Frjáls-
lynda flokknum, velti fyrir sér
hvort það gæti staðist að sátt ríkti
um afstöðuna til hugsanlegrar
ESB-aðildar. Ef afstaða ríkis-
stjórnarflokkanna væri skoðuð
væri nefnilega ekki annað að sjá
en þar væru menn á öndverðum
meiði - nema þá ef skipan sér-
stakrar nefndar innan Framsókn-
arflokksins um þau mál væri ein-
tómt sjónarspil. Engin sátt væri
heldur um þær fyrirætlanir mátt-
arstólpa stjórnarflokkanna að
hleypa erlendu auðvaldi inn í ís-
lenska fiskveiðilögsögu.
Mat lagt á
gildi fisk-
markaða
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
verður falið að skipa nefnd sem hafi
það hlutverk að gera úttekt á gildi
fiskmarkaða fyrir íslenskan sjávarút-
veg og atvinnuþróun verði samþykkt
á Alþingi tillaga til þingsályktunar
sem sex þingmenn Samfylkingar hafa
lagt fram. Myndi nefndinni vera gert
að afla gagna, bera saman aðstæðui’
og leggja þannig mat á áhrif fisk-
markaða með tilliti til þátta eins og
brottkasts, verðmyndunar sjávarafla,
tekna útgerðar og fleira.
,Á fiskmörkuðum eru nú árlega
seld um 100 þúsund tonn af bolfiski
fyrir um 10 milljarða kr.,“ segir í
greinargerð tillögunnar. „Flutnings-
menn þessarar tillögu eru sannfærðir
um mikilvægi fiskmarkaða fyrir þró-
un sjávarútvegs á íslandi og telja því
mikilvægt að gerð sé vönduð úttekt á
helstu álitamálum sem fram hafa
komið í umfjöllun um fiskmarkaði og
mikilvægi þeirra."
-----^-4-----
Gjald verði í
samræmi við
kostnað
FJÁRHÆÐ gjalds vegna veiðiheim-
ilda innan og utan lögsögu verður
breytt til samræmis við áætlaðan
kostnað Fiskistofu af veiðieftirliti ef
fhimvarp, sem Ami M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra mælti fyrir á
Álþingi á mánudag, verður að lögum.
í frumvarpinu er lagt til að þegar
skipi er úthlutað tilteknu aflamagni
sem byggist ekki á hlutdeild taki það
mið af úthlutuðu aflamagni en ekki
lönduðum afla eins og núgildandi lög
gera ráð fyrir. Þá er lagt til að gjald
fyrir veru eftirlitsmanna um borð í
veiðiskipum verði hækkað og að það
verði einnig innheimt fyrir veru veiði-
eftirlitsmanns um borð í fískiskipi
samkvæmt sérstakri heimild í lögum.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR hefst á Al-
þingi í dag kl. 13.30 og fer þá
fram fyrirspumatími. Eftirfar-
andi fyrirspumir eru á dag-
skrá:
1. Búsetuúrræði fyrir fatlaða,
fsp. til félagsmálaráðherra.
2. Fullorðinsfræðsla fatlaðra,
fsp. til menntamálaráð-
herra.
3. Víkingaskipið íslendingur,
fsp. til menntamálaráð-
herra.
4. Útgjöld sveitarfélaga sam-
fara nýrri námskrá, fsp. til
menntamálaráðherra.
5. Ráðningar í stöður minja-
varða, fsp. til menntamálar-
áðherra.
6. Umgengni um nytjastofna
sjávar, fsp. til sjávarútvegs-
ráðherra.
7 Gagnagrunnur um jarðir á
íslandi, fsp. til landbúnað-
arráðherra.
8. Ákvæði skipulagsreglu-
gerðar um nálægð byggðar
við vötn, fsp. til umhverfis-
ráðherra.
9. Miðlægur gagnagrannur
lyfjanotkunar, fsp. til heil-
brigðisráðherra.
10. Gildistaka Schengen-sam-
komulagsins, fsp. til dóms-
málaráðherra.
11. Fíkniefnanotkun í fangels-
um fsp. til dómsmálaráð-
herra.
12. Umferðaröryggismál, fsp.
til dómsmálaráðherra.
13. Vegagerðarmenn í umferð-
areftirliti, fsp. til dómsmál-
aráðherra.
14. Launagreiðslur fanga, fsp.
til dómsmálaráðherra.
15. Flutningur eldfimra efna,
fsp. til dómsmálaráðherra.