Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 68
Heimavörn
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Kosningar á
þingi ASI í dag
Spenna
^ vegna for-
setakjörs
MIKIL spenna og óvissa var meðal
þingfulltrúa, sem rætt var við á þingi
ASI í gær, vegna forsetakjörs, sem
fram á að fara síðdegis í dag. Kjör-
nefnd, sem hefur það hlutverk að
leggja fram tillögur um forseta, vara-
forseta og uppstillingu í 15 manna
miðstjórn, hefur haldið nokkra fundi
án þess að niðurstaða liggi enn fyrir í
nefndinni.
Ekkert liggur heldur íyrir um hver
eða hverjir muni gefa kost á sér í
embætti varaforseta en talið er að það
muni ráðast að miklu leyti af því hver
ý^JJferða úrslit forsetakosninganna.
Fyrir hádegi í dag hefst önnur um-
ræða um tillögur um skipulags-
breytingar Alþýðusambandsins og er
að því stefnt að frumvarpið verði af-
greitt sem lög um hádegi, svo að hægt
verði að kjósa skv. nýjum reglum síð-
degis.
■ Þing ASÍ/12-13
J Jólaormur-
inn kominn
til Islands
TÖLVUORMURINN Navidad,
jólaormurinn, er kominn til Is-
lands og hefur þegar smitað
fjölda tölva hérlendis. Ormurinn
kemur í veg fyrir að hægt sé að
keyra forrit í tölvum og hefur
þannig alvarleg áhrif á starfs-
hæfni þeirra en ekki er vitað til
þess að hann eyði gögnum.
Sigurður Stefánsson hjá
Friðriki Skúlasyni ehf. telur að
vírusinn hafi borist hingað til
lands í gær. Ormurinn dreifir
sér með tölvupósti. Þegar hann
hefur gert tölvuna óstarfhæfa
sendir hann sjálfan sig áfram
sem viðhengi með póstforritinu
Outlook Express til allra tölvu-
póstnetfanga sem skráð eru í
viðkomandi tölvu.
Tölvunotendur geta komið í
veg fyrir smitun tölvu sinnar
með því að opna ekki viðhengi
með nafninu navidad.exe.
Ikveikja við
Bústaðakirkju
. j^LÖKKVILIÐ var kvatt að Bú-
staðakirkju laust fyrir miðnætti og
slökkti þar eld sem logaði við dyr
kirkjunnar. Að sögn lögreglu gekk
vel að slökkva eldinn en ljóst þykir
að um íkveikju var að ræða.
Handtekinn grunaður
um aðild að mannshvarfí
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í gær mann á
fertugsaldri, sem grunaður er um að eiga þátt í
hvarfi Einars Arnar Birgissonar. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins gerði
lögreglan jafnframt húsleit vegna málsins í gær-
kvöldi á heimili og vinnustað hins grunaða. Ekkert
hefur spurst til Einars Ai-nar síðan skömmu fyrir
hádegi á miðvikudag í síðustu viku.
Tugir lögreglumanna hafa
unnið að rannsókninni
í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Kópavogi
hefur umfangsmikil rannsókn lögreglu m.a. beinst
að því að kanna hvort saknæmt atferli hafi átt sér
stað í tengslum við hvarf Einars. Sú rannsókn hef-
ur nú leitt til handtöku. Lögreglan segir rann-
sókninni haldið áfram af fullum krafti. Síðast
spurðist til Einars skömmu fyrir hádegi á mið-
vikudag. Síðdegis fóru fjölskylda og vinir Einars
að grennslast fyrir um hann og um miðnætti var
haft samband við lögregluna í Kópavogi. Síðan þá
hefur Einars verið leitað á Reykjanesi, á Bláfjalla-
svæðinu og víðar á höfuðborgarsvæðinu og í ná-
grenni þess. Fjörur hafa jafnframt verið gengnar
og yfirgefin hús könnuð.
Félagar í Slysavamafélaginu Landsbjörg hafa
leitað hans með aðstoð leitarhunda. Mikill fjöldi
ættingja og vina Einars hefur einnig tekið þátt í
leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Við rannsókn málsins hefur lögreglan í Kópa-
vogi notið aðstoðar fimmtán lögreglumanna frá
embætti ríkislögreglustjóra, lögreglunni í
Reykjavík og fleiri lögregluumdæmum í nágrenni
höfuðborgarinnar.
Leitað í nágrenni Grindavíkur
eftir að ný vísbending barst
Bifreið Einars fannst við Hótel Loftleiðir á
fimmtudagsmorgun. Sporhundur fann enga slóð
við bifreiðina og umfangsmikil leit í Öskjuhlíð og
við Reykjavíkurflugvöll bar ekki árangur.
Fjöldi vísbendinga hefur borist lögreglunni og
hefur leit björgunarsveita m.a. tekið mið af þeim. I
gær barst ný vísbending til lögreglu og fóru félag-
ar úr Slysavamafélaginu Landsbjörg með þrjá
leitarhunda til leitar í nágrenni Grindavíkur.
■ Umfangsmikil leit/4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikið stuð á
Skrekk 2000
FULLTRÚAR Breiðholtsskóla og
Rimaskóla sigruðu í undankeppni í
Skrekk 2000, hæfiieikakeppni
grunnskólanna í Reykjavík, f gær-
kvöld. Fimm aðrir skólar tóku þátt í
þessum riðli keppninnar en í fyrra-
kvöld báru Hvassaleitisskóli og
Hlíðaskóli sigur úr býtum í sfnum
riðli.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, um fyrirhugaða uppbyggingu álvera
Ekki verði byggð tvö
álver á sama tíma
r
Bónus fyrír
korthafa
Nú getur þú greltt mefl EUR0CARD
og MasterCard greiflslukortum í Bðnus!
ARI Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, hefur ekki
trú á að hyggilegt verði metið að fara
strax af stað með allar þær hugmynd-
ir um frekari uppbyggingu álfra-
mleiðslu hér á landi, sem verið hafa
uppi að undanfomu.
„Það er væntanlega ekki raunhæft
að ráðist verði í allar þessar fram-
kvæmdir á sama tíma og slíkt er tæp-
lega í spilunum," segir hann.
Ari bendir á að á vinnumarkaði hér
á landi sé mjög mikil spenna um þess-
ar mundir og spum eftir vinnuafli sé
miklu meiri en framboð. Flest bendi
til þess að eftirspurn aukist enn á
næstu mánuðum og samkvæmt
könnun Þjóðhagsstofnunar verði hún
3% meiri í september á næsta ári en
nú.
Ari hitti forsvarsmenn Norsk Hyd-
ro að máli þegar þeir voru hér á landi
á dögunum á fundi með stjómvöldum
og fleiri aðilum. Á fundinum var farið
almennt yfir málin og litið yfir sviðið.
„Ég fjallaði um stöðuna á vinnu-
markaði, þá spennu sem uppi er nú
um stundir og tölur um breytingar á
vinnuframboði frá einu ári til annars
sem sýna fram á mikinn sveigjan-
leika markaðarins. Síðan kom ég inn
á það að útlit sé fyrir að dragi úr eftir-
spurninni upp úr árslokum 2001, en
þeirra áform ganga einmitt út á
framkvæmdir á ámnum 2002 til
2009.“
Norðurál fer fram á úttekt
Forsvarsmenn Norðuráls hafa
formlega farið þess á leit við Þjóð-
hagsstofnun að unnin verði skýrsla
um þjóðfélagsleg og samfélagsleg
áhrif stækkunar álvers fyrn-tækisins
á Grundartanga upp í 300 þúsund
tonn. Talið er að nokkrar vikur taki
að vinna slíka úttekt.
Viðlíka skýrsla hefui- áður verið
unnin vegna áforma um byggingu ál-
vers á Reyðarfirði.
■ Vinnuaflið/28