Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kokkar og
brytar á
farskipum
boða verkfall
Morgunblaðið/Porkell
Próflestur á þingpöllum
FÉLAG bryta og Félag matreiðslu-
manna hafa boðað verkfall á kaup-
skipaflotanum frá og með 20. nóvem-
ber nk. Samtök atvinnulífsins hafa
sett fram efasemdir um að rétt hafi
verið staðið að boðun verkfallsins og
ætla að taka ákvörðun í dag um
hvort farið verði með málið fyrir fé-
lagsdóm.
Kjarasamningur bryta og mat-
reiðslumanna rann út 1. nóvember
sl. Níels S. Olgeirsson, formaður
Matvíss, sagði að lítið hefði miðað í
viðræðum deiluaðila og tilgangurinn
með boðun verkfalls væri ekki síst sá
að knýja á um að Samtök atvinnu-
lífsins kæmu af alvöru til viðræðna
við félögin.
Níels sagði að boðað verkfall næði
til rúmlega tuttugu manna sem
vinna á kaupskipaflotanum. Ef til
verkfalls kæmi myndu skipin stöðv-
Athuga-
semdir við
stunda-
kennslu í VI
VERKFALLSSTJÓRN fram-
haldsskólakennara gerði í gær
athugasemdir við kennslu
stundakennara í Verzlunar-
skóla íslands. Gunnlaugur Ást-
geirsson, formaður verkfalls-
stjórnar, segir að vinna
kennaranna hafi verið endur-
skipulögð og slíkt feli í sér brot
á reglum um framkvæmd verk-
fallsins.
Gunnlaugur sagði að eftir að
verkfall í Verzlunarskólanum
hófst hefði stundatafla stunda-
kennara sem kenna við skólann
verið endurskipulögð og tímar
færðir saman. Hann sagði að
þetta væri í ósamræmi við
reglur um framkvæmd verk-
falla því að ekki mætti endur-
skipuleggja vinnu þeirra sem
ekki væru í verkfalli. Hann
sagði að verkfallsstjórn hefði
beint þeim tilmælum til Verzl-
unarskólans og kennaranna að
kennslan yrði færð í fyrra horf.
í allmörgum skólum sjá
stundakennarar um lítinn hluta
kennslunnar. Um er að ræða
kennara sem ekki eru í Félagi
framhaldsskólakennara og þeir
taka því ekki þátt í verkfallinu.
Gunnlaugur sagði að kennsla
stundakennara í öðrum fram-
haldsskólum væri mjög víða að
fjara út. Ástæðan væri sú að
nemendur mættu mjög illa í
skólann.
ast um leið og þau kæmu í höfn.
Hann sagðist gera sér vonir um að til
þess þyrfti ekki að koma. Það ætti
ekki að þurfa að taka langan tíma að
Ijúka viðræðum ef báðir aðilar sett-
ust af alvöru niður við samninga-
borðið.
Matreiðslumenn og brytar voru
upphaflega í samstarfi í kjaravið-
ræðunum við stýrimenn og skip-
stjóra á farskipaflotanum, en þeir
hafa ekki tekið ákvörðun um að fara í
atkvæðagreiðslu um verkfall.
Efast um lögmæti
boðaðs verkfalls
Jón H. Magnússon, lögfræðingur
Samtaka atvinnulífsins, sagði að
vinnuveitendur drægju í efa að eðli-
lega hefði verið staðið að boðun verk-
fallsins. Vinnulöggjöfinni hefði verið
breytt 1996 og markmið breytingar-
innar hefði m.a. verið að auka lýð-
ræðisleg vinnubrögð við atkvæða-
greiðslu um boðun verkfalls.
Matreiðslumenn hefðu haft kjörfund
opinn í einn dag og brytar í tvo daga
þai' sem félagsmönnum hefði gefist
tækifæri á að greiða atkvæði um
verkfall. Stór hluti félagsmanna væri
úti á sjó og hefði því ekki átt kost á
að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Jón sagði einnig að mál þessara fé-
laga væru nýkomin til ríkissátta-
semjara og honum hefði varla gefist
tækifæri til að boða til samninga-
fundar áður en verkfall var boðað.
Það væru því áhöld um hvort búið
hefði verið að gera tilraun til sátta,
eins og áskilið er í lögunum, áður en
boðað var til verkfalls.
SAMKVÆMT nýjum lögum um
fæðingarorlof eiga foreldrar sem
eiga von á barni í byrjun janúar að
tilkynna vinnuveitanda átta vikum
fyrir töku fæðingarorlofs að þeir
ætli að nýta sér orlofsréttinn. Jafn-
framt þurfa foreldrar að sækja um
fæðingarorlofíð til Tryggingastofn-
unar sex vikum fyrir töku orlofsins.
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri
ASÍ, segir að það sé ekki seinna
vænna fyrir fólk sem ætlar að eign-
ast böm í byrjun janúar að huga að
þessum málum.
Nýju lögin um fæðingarorlof voru
kynnt í málstofu á þingi ASÍ í gær.
Halldór sagði að þegar nýju lögin
FÉLAGAR í Röskvu, samtökum fé-
lagshyggjufólks við Háskóla Is-
lands, hófu í gær próflestur haust-
annar áþingpöllum Alþingis.
Tilgangur þeirra var að vekja at-
hygli á aðstöðuleysi háskólans og
ítreka kröfur stúdenta um að ríkið
veiti aukafé til byggingar-
voru samþykkt í maí í vor hefðu for-
eldrar öðlast þriggja mánaða sjálf-
stæðan rétt til að taka foreldraoriof.
Hvort foreldri fyrir sig gæti tekið
þriggja mánaða launalaust orlof á
fyrstu árum barnsins til að vera
heima.
Halldór sagði að við gildistöku
laganna hefði einnig tekið gildi
ákvæði um réttarstöðu þungaðra
kvenna í fæðingarorlofi. Þar væri
kveðið á um að ef þungaðar konur
þyrftu að breyta um starf eða
breyta vinnuaðstæðum af öryggis-
ástæðum og það væri ekki hægt
öðluðust konumar lengra fæðingar-
orlof. Þær gætu fræðilega séð verið
framkvæmda við skólann. f frétt
frá Röskvu kemur fram að álagið á
lesborðum á háskólasvæðinu er svo
mikið að stúdentar nánast slást um
borðin. Aðbúnaðurinn á þingpöllum
Alþingis er því síst verri en sú að-
staða sem mörgum nemendum Há-
skóla Islands stendur til boða.
í fæðingaroriofi frá þungun og þar
til þær hefðu lokið hefðbundnu fæð-
ingarorlofi.
Aukinn réttur um áramót
Halldór sagði að fæðingarorlof
foreldra sem eignast börn 1. janúar
nk. og síðar breyttist mikið. Fi-am
að þessu hafa foreldrar fengið u.þ.b.
76 þúsund krónur á mánuði í fæð-
ingarorlof; konur í sex mánuði og
kariar í tvær vikur. Um áramót fá
foreldrar greidd 80% af launum í
fæðingarorlofi úr sérstökum fæð-
ingarorlofssjóði. Konur fá orlof í
þrjá mánuði, karlar í einn mánuð og
þrír mánuðir verða til sameiginlegr-
Pilta leitað
vegna
íkveikju
LÖGREGLAN leitaði í gær fjögurra
pörupilta sem sáust forða sér á
hlaupum frá athafnasvæði íslensku
kvikmyndasamsteypunnar við Héð-
inshúsið við Mýrargötu í Reykjavík.
Þeir eru taldir hafa kveikt í rútu í
eigu fyrirtækisins.
Sjónarvottar sáu þrjá til fjóra
unglingspilta, 14-15 ára gamla,
hlaupa frá staðnum. Slökkvilið var
kvatt á vettvang og slökkti eldinn á
skammri stund. Piltarnir voru með
bensínbrúsa er þeir sáust forða sér á
hlaupum og er talið að þeir hafi hellt
bensíni yfir bílinn og kveikt í. Þetta
er í annað sinn á þremur dögum sem
kveikt er í rútunni sem lögreglan
segir að hafi verið númerslaus og
ónothæf eftir fyrri bruna. Lögreglan
telur líklegt að sömu piltar hafi verið
að verki í báðum tilvikum.
---------------
Lítið miðar
í kennara-
deilunni
LÍTIÐ hefur miðað í kjaradeilu
framhaldsskólakennara og ríkisins
að sögn Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara, en verkfall hefur núna
staðið í átta daga. Þórir sagði að
hvorugur aðili hefði lagt fram nýjar
tillögur til lausnar deilunni frá því að
verkfallið hófst.
Haldnir hafa verið fundir á hverj-
um degi frá því að verkfallið hófst ef
sunnudagurinn er undanskilinn.
Þórir sagði að samningar kennara
væru flóknir og menn hefðu um nóg
að tala þó að ekkert miðaði í megin-
ágreiningsefnunum. Báðir aðilar
hafa lýst vilja til að taka upp nýtt
launakerfi og sagði Þórir að viðræð-
ur síðustu daga hefðu mikið farið í að
ræða hluti sem tengjast því. Hann
sagði að áfram yrðu haldnir daglegir
fundir í deilunni.
ar ráðstöfunar. Halldór sagði að
réttur karla ykist um einn mánuð 1.
janúar 2002 og um annan mánuð 1.
janúar 2003. Þá yrði fæðingarorlofið
samtals níu mánuðfr. Hann sagði að
samkvæmt nýju lögunum yrði fæð-
ingarorlofsrétturinn sveigjanlegri
en áður. Foreldrar gætu valið um
hvenær þeir tækju oriofið á fyrstu
átján mánuðunum í lífi barnsins.
Halldór sagði að auk þess væri
verið að styrkja réttarstöðu for-
eldra í fæðingar- og foreldraorlofi
svo og réttarstöðu þungaðra kvenna
sem þyrftu að víkja af vinnumark-
aði varðandi réttindaávinnslu af
ýmsu tagi.
Sjö vikur þar til ný lög um aukinn fæðingarorlofsrétt taka gildi
Tryggingastofnun byrjuð
að taka við umsóknum
þ j VERINU í dag er m.a. sagt frá kræklingaeldi í Arn-
arfirði, fjallað um rafræn viðskipti með sjávarafurðir
og deilur um kvótakerfi í Danmörku. Þá eru í blaðinu
hefðbundnar upplýsingar um af labrögð og markaði.